Morgunblaðið - 20.11.1987, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987
AP
Ramaswami Venkatar, forseti Indlands og Ólafur Ragnar Grímsson við afhendingu Indiru Gandhi verðlaunanna.
ÓlafurRagnar tekur viðlndiru Gandhi-verðlaununum
Ólafur Ragnar Grímsson tók við
friðarverðlaunum sem kennd eru
við Indiru Gandhi í Nýju Delhi á
Indlandi í gær. Ólafur tók við
verðlaununum fyrir hönd al-
þjóðlegu friðarsamtakanna
Parliamentarians Global Action,
sem hann hefur veitt forstöðu.
Forseti Indlands, Ramaswami
Venkatar, afhenti verðlaunin.
Meðal þeirra sem viðstaddir voru
athöfnina var Rajiv Gandhi for-
sætisráðherra Indlands.
VEÐURHORFUR í DAG, 20.11.87
YFIRLIT á hádegl f gaer: Lægðardrag á Grænlandshafi en mikil
hæö suöur í hafi.
SPÁ: í dag verður sunnan- og suðvestangola eða kaldi um mest
allt land. Dálítil rigning á Suður- og Vesturlandi en þurrt að mestu
á Norður- og Austurlandi. Hiti 1 til 6 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
LAUGARDAGUR OG SUNNUDAGUR: Fremur hæg vestan- og norð-
vestanátt með skúrum eða slydduéljum á víð og dreif vestan- og
norðanlands en líklega þurrt suðaustanlands. Hiti 0 til 4 stig.
TÁKN:
Heiðskirt
á
&
m
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
# * #
* * * * Snjókoma
# # *
1 o Hitastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
Vfi VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12:00 í gœr að ísl. tíma hlti veður Akureyri 2 slydduól Reykjavfk 2 skýJaS
Bergen vantar
Helslnki vantar
Jan Mayen 3 skýjað
Kaupmannah. 10 þokumóða
Narasarssuaq +1 frostrlgnlng
Nuuk vantar
0*16 vantar
Stokkhólmur 4 rlgning
Þórshöfn vantar
Algarve 18 léttskýjað
Amsterdam vantar
Aþena vantar
Barcelona 17 hólfskýjað
Berlín 9 rignlng og súld
Chicago 1 skýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 9 skýjað
Glasgow vantar
Hamhorg 10 þokumóða
Las Palmas vantar
London 13 súld
LosAngeles vantar
Lúxemborg 8 skýjað
Madrid 13 léttskýjað
Malaga 18 léttskýjað
Mallorca 10 skýjað
Montreal 3 skýjað
NewYork 8 léttskýjað
Parfs 11 alskýjað
Róm vantar
V(n vantar
Washlngton 6 skýjað
Winnipeg +7 skýjað
Valencia 18 mlstur
Islenska málfræðifélagið:
Málþing í tilefni
200 ára afmælis
Rasmusar Rasks
ÍSLENSKA málfræðifélagið efn-
ir til málþings laugardaginn 21.
nóvember. Málþingið sem ber
yfirskriftina „að halda við
íslenskunni - og þjóðarinnar
heiðri“ er haldið í tilefni 200 ára
afmælis danska málfræðingsins
og íslandsvinarins Rasmusar
Kristjáns Rasks.
Fundarstjóri fyrir hádegi verður
Helgi Bernódusson. Guðrún Kvaran
formaður íslenska málfræðifélags-
ins setur þingið klukkan 9 árdegis
og flytur inngangsorð um Rasmus
Kristján Rask. Síðan flytur Magnús
Fjalldal erindið: Ensk tökuorð í
íslensku að fomu og nýju. Bergljót
Baldursdóttir talar um máltöku og
málbreytingar. Bima Ambjöms-
dóttir flytur erindi, sem hún nefnir:
Flámæli og önnur fyrirbæri í vest-
ur-íslensku og Svavar Sigmundsson
talar um íslensku í samanburði við
önnur mál.
Fundarstjóri eftir hádegi verður
Sigurður Konráðsson. Þá flytja eft-
irtaldir erindi: Hrafnhildur Ragn-
arsdóttir; Samanburður á tímatilví-
sunum í sögum bama og
fullorðinna. Baldur Sigurðsson;
„Kantvissir Reykvingingar". Jör-
undur Hilmarsson; Um upgruna e2
í germönsku. Kristján Ámason;
Hendingar í dróttkvæðum hætti.
Jón Aðalsteinn Jónsson; Bóndakarl,
kerling og húnn. Ámi Böðvarsson;
Viðhorf Rasks til tungumála.
Málþingið fer fram í stofu 201 í
Odda, húsi félagsvísindadeildar
Háskóla íslands, og er opið öllum
sem áhuga hafa á íslensku máli.
Flokksráðs- og formannafundur
Sjálfstæðisflokksins hefst í dag:
Fyrsti stóri fundur
Sjálf stæðisflokks
eftir kosningar
FLOKKSRÁÐS- og formanna-
fundur Sjálfstæðisflokksins
hefst í dag klukkan 15.30 með
formannafundi í sjálfstæðishús-
inu Valhöil. Á morgun verður
siðan sameiginlegur fundur
formanna og flokksráðs að Hótel
Selfoss. Að sögn Kjartans Gunn-
arssonar, framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins, er það
nokkur nýlunda að flokksráðs-
fundur sé haldinn utan Reyjavik-
ur, það hafi ekki verið gert i
langan tíma. Fyrri daginn verða
almennar umræður en afgreiðsla
stjómmálaályktunar þann síðari.
Kjartan sagði þetta vera fyrsta
stóra fund Sjálfstæðisflokksins
eftir kosningar og gerði hann
ráð fyrir að fjallað yrði vitt og
breitt um stöðu hans. 377 aðilar
eiga rétt á þátttöku á fundinum.
Formannafundurinn hefst eins ,
og áður sagði í Valhöll klukkan
15.30 og mun Þorsteinn Pálsson,
forsætisráðherra og formaður Sjálf-
sfyeðisflokksins setja fundinn. Inga
Jona Þórðardóttir, formaður fram-
kvæmdanefndnar, mun síðan gera
grein fyrir flokksstarfinu framund-
an. Formaður fræðslunefndar,
Bessí Jóhannsdóttir gerir grein fyr-
ir starfi fræðslunefndar, Sigurbjöm
Magnússon, framkvæmdastjóri
þingflokks sjálfstæðismanna fýrir
starfí málefnanefnda og Guðmund-
ur Magnússon, formaður Varðar
félags ungra sjálfstæðismanna á
Akureyri, fjallar um félagsstarf
sjálfstæðisfélaganna. Að þessum
erindum loknum verða almennar
umræður. Hlé verður gert á umræð-
unum klukkan 19 vegna sameigin-
legs kvöldverðar en þær halda síðan
áfram til klukkan 22.
Á morgun, laugardag, verður
fundað að Hótel Selfossi. Rútuferð-
ir verða frá Valhöll klukkan 9.15
en fundurinn hefst klukkan 10 með
ávarpi Þorsteins Pálssonar. Einnig
mun Brynleifur Steingrímsson,
læknir á Selfossi, ávarpa fundinn.
Að loknum ávörpum verður gert
grein fyrir drögum að stjómmála-
ályktun og kosið í stjómmálanefnd.
Eftir kjörið flytur Friðrik Sophus-
son, iðnaðarráðherra ræðu og eftir
hana verða almennar umræður og
hádegisverður.
Klukkan 14 verða ræður annarra
ráðherra Sjálfstæðisflokksins þeirra
Birgis Isleifs Gunnarssonar,
menntamálaráðherra, og Matthías-
ar Á. Mathiesen, samgöngumála-
ráðherra og síðan almennar
umræður. Loks verður stjómmálaá-
lyktun fundarins afgreidd en
ráðgert er að slíta fundi klukkan
18.30. Að fundi loknum verða rútu-
ferðir til Reykjavíkur.
Heijólfur bilaður:
Viðgerð tekur viku
Þegar Vestmannnaeyjafeijan
Heijólfur var á leið til Eyja frá
Þorlákshöfn á þriðjudag, kom í
ljós bilun f kúplingu. Tókst að
sigla skipinu á hálfri ferð til
Eyja. í ljós hefur komið að bUun-
in er það alvarleg að taka mun
að minnsta kosti viku að gera
við skipið. Þjóðvegur Eyjamanna
er þeim þvf lokaður að sinni.
Magnús Jónasson, framkvæmda-
stjóri Heijólfs hf, sagði að talið
væri að þijá daga tæki að rífa kúpl-
inguna og fleira til að komast að
biluninni. Annan eins tíma að
minnsta kosti tæki að koma henni
saman og íjóra daga að fá vara-
hluti. Sagði Magnús að stoppið
kæmi sér að vonum afar illa fyrir
Eyjamenn því miklir flutningar
væm með skipinu á þessum tíma
og allir vissu að skipið væri þjóðveg-
ur Eyjamanna.
„Þetta sýnir líka efasemdamönn-
um hve öryggið er lítið að hafa
skip með einni vél á þessari leið.
Slíkt öiyggisleysi er óviðunandi.
-Bjarni.