Morgunblaðið - 20.11.1987, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987
Viðtalstími borqarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til við-
tals í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá
kl. 10-12. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurn-
um og ábendingum og er öilum borgarbúum boðið
að notfæra sér viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 21. nóvember verða til viðtals Jóna Gróa Sigurðardóttir, formað-
ur atvinnumálanefndar, í stjórn framkvæmdabygginganefndar stofnana í þágu
aldraðra og SVR og Haraldur Blöndal, formaður umferðarnefndar.
VERIÐ VEL KLÆDD í VETUR
Iðunnar peysur fyrir
dömur,
herra
og börn
Dömublússur og
herraskyrtur frá
OSCAROF
SWEDEN
Dömubuxur,
buxnapils
og pils frá
GARDEUR
Ný sending af
dömubuxum,
svörtum og
sandbrúnum.
* m JL. PRJÓNASTOFAN
vdutttv
Verslunineropin
daglegafrá kl. 9-18,
laugardaga frá kl. 10-16.
Kreditkortaþjónusta.
Skerjarbraut 1 v/Nesveg, Seltjamamesi.
Islandsvinur á
hljómleikaferð
Hann er fæddur í Ósló 6. maí
1930. Slaghörpuleikari, segja sumir
þegar nafn hans ber á góma, dálka-
höfundur og menningarviti, segja
aðrir. Kvennagull, segja vinir hans.
Hann heitir Kjell Martin Bække-
lund og er í raun allt þetta. Orðstír
hans hefur þó risið einna hæst með
píanóleiknum og er hann gjama
talinn einn allra fremsti einleikari
Noregs og þótt víðar væri Ieitað.
Einn vina hans segir þá sögu að
eitt sinn þegar þekktur erlendur
fiðluleikari kom til Noregs að leika
verk í norska ríkisútvarpið, hafi
hann beðið um að Kjell Bækkelund
léki undir hjá sér og var það auð-
sótt. Verkið var að sögn óhemju
flókið og vandasamt. Síðan gerðist
það að þegar fiðluleikarinn kallaði
Kjell til æfinga, kom í ljós að þeim
síðamefnda hafði ekki gefist tími
til að skoða verkið hvað þá meir
vegna anna á öðrum vígstöðvum
og virtist þá fiðlaranum dýrmætum
tíma á glæ kastað og jafnvel fokið
í flest skjól. En viti menn, hinum
erlenda fiðlumeistara til mikillar
undranar greip Kjell nótnablöðin
að óséðu, þessi blöð sem höfðu að
geyma nótnaletrað fyrirmæli sem
vora fast að því á mörkum hins
mögulega, og tók að hlaða þeim á
flygilinn sinn. Síðan sat hann um
stund og rýndi í nótumar en svo,
sagði fíðluleikarinn síðar, var eins
og hann sogaði til sín táknin af
pappímum, þau hyrfu innum augu
hans og liðu niður handleggina og
frammí fingurgómana, þarsem þau
leystust úr læðingi og tóku þegar
að flæða uppúr hljóðfærinu í mynd
fagurra tóna. Hreint frábært, sagði
fíðlarinn, eiginlega fullkomið.
Það er ekki að ófyrirsynju að
Kjell Bækkelund hefur orð á sér
fyrir að vera liðtækur píanóleikari
og ríflega það. Hann hefur langa
reynslu í tónleikahaldi, haldið tón-
leika um gjörvalla Evrópu og
hvarvetna vakið athygli. Að auki
hefur hann farið tónleikaferðir um
Suður-Ameríku, Sovétríkin, Afríku
og Asíu og var reyndar fyrsti vest-
ræni píanóleikarinn sem boðið var
að halda tónleika í Kínaveldi eftir
menningarbyltinguna.
En tónlistin er þó ekki hið eina
sem heillar Kjell Bækkelund — og
sumir vina hans segja jafnvel að
hann deili sér milli alltof margra
áhugamála, slíka tónlistargáfu sem
hann þurfi að rækta. Aðrir þakka
guði fyrir að hann skuli ekki hafa
lokað sig inni við æfingar 10—12
tíma á dag heldur líka fengist við
allt hitt. Og það er ekki lítið: alla
tíð virkur í stjómmála- og menning-
arlífi, setið í ótal nefndum, ráðum
og stjómum, þar á meðal norska
menningarráðinu, útvarpsráði,
stjóm Norsku óperannar, menning-
armálanefnd Verkamannaflokksins
— svo aðeins nokkuð sé nefnt. Auk
þess var hann dálkahöfundur við
Morgenposten, Arbeiderbladet og
frá 1972 hefur hann skrifað fasta
dálka um menningarmál líðandi
stundar í Verdens Gang undir yfir-
skriftinni Tramp í klaveret.
Hefur svona maður tíma til að
iðka list sína? Já, hann hefur það
meðan áhuginn og lífsgleðin reka
hann áfram. Svo sem raunin hefur
verið hingað til.
Ferill Kjells Bækkelund hófst í
Ósló árið 1951 og tveimur áram
síðar vann hann fyrstu verðlaun í
samkeppni píanista í Þrándheimi.
Síðan hafa honum hlotnast marg-
háttaðar viðurkenningar fyrir leik
sinn og hann hefur fyrir löngu
markað varanleg spor í gróðurmold
tónlistarlífs Norðurlandanna.
Á laugardaginn kemur hann
hingað fljúgandi. Þetta er langt í
frá fyrsta ferð hans hingað til lands,
og í öll skiptin hefur hann leikið á
slaghörpu fyrir landsmenn, eitt sinn
með Sinfóníunni. Síðast var hann
hér á ferðinni árið 1984. Og nú er
hann sumsé að koma aftur. Til að
halda tónleika í Norræna húsinu á
sunnudagskvöldið klukkan hálf níu.
Sé hann velkominn — Kjell Bække-
lund.
Texti: Kjartan Arnason
Haustmót Skákfé-
lags Hafnarfjarðar
HAUSTMÓT Skákfélags Hafnar-
fjarðar verðnr haldið helgina
20.-22. nóvember i íþróttahúsinu
við Strandgötu.
Fyrirkomulag mótsins verður
þannig að tefldar verða 2 klukku-
stunda skákir, 6-7 umferðir
monrad. Fyrsta umferð verður
föstudaginn 20. nóvember og hefst
kl. 19.30. Þrjár næstu umferðir
verða svo á laugardag og heQ'ast
kl. 9.00, 14.30 og 20.00. A sunnu-
dag verða tvær umferðir kl. 11.00
og 17.00.
Fyrirhugað er að verðlaun verði
sem hér segir: 1. verðlaun kr. 7000,
2. verðlaun kr. 5000 og 3. verðlaun
kr. 3000.
Sá hafnfirðingur sem fær flesta
vinninga hlýtur titilinn Haustmeist-
ari SH.