Morgunblaðið - 20.11.1987, Síða 26

Morgunblaðið - 20.11.1987, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987 Eldsvoðinn á King’s Cross-brautarstöðinni „Renmstiginn bar okkur hratt í átt að eldsvítinuu London, Reuter. „ÞEGAR ég var kominn hálfa leið upp braust eldurinn út á skörinni og þá reyndi ég að troð- ast til baka en rennistiginn bar okkur hratt í átt að eldsvítinu," sagði einn þeirra, sem komust lifs af úr eldsvoðanum á King’s Cross-brautarstöðinni í London. „Ég sá móður sveipa kápunni um bamið sitt en eldurinn læsti sig í hana og það var það síðasta, sem ég sá til þeirra," sagði annar. „Skelfíngin var alger og ringulreið- in slík, að fólkið vissi hvar það var né hvert það átti að fara. Það vildi bara komast burt.“ Haft er eftir vitnum, að fólk hafí farið úr lestum á brautarstöðinni eftir að eldurinn braust út en aðrar lestir voru ekki stöðvaðar þótt lest- arstjóramir yrðu að aka í gegnum þykkan reykjarmökkinn. „Þegar lestin kom inn á stöðina mætti okk- ur kolsvart reykjarkófið og ég heyrði fólkið hlaupa æpandi um allt,“ sagði Leroy Bigby, farþegi með einni lestinni. Súgurinn, sem jafnan er í lestar- göngunum, magnaði eldinn skjótt og er það haft eftir slökkviliðs- mönnum, að stöðin hafi verið líkust smiðjuafli, slíkur var hitinn. Lét einn slökkviliðsmannanna lífíð, Col- in Townsley, 45 ára gamall. Ætlaði hann að reyna að komast að elds- upptökunum en þá breyttist súgur- inn og logatungumar gleyptu hann samstundis. Lögreglumaður og slökkviliðsmaður sinna meðvitundarlausum í lestargöngunum. Reuter , sem var bjargað Eldsvoðinn kom eins og reiðarslag yfir Breta Frá Árna Johnsen, blaðamanni Morgunblaðsins í London. Reuter Örþreyttir slökkviliðsmenn ræðast við eftir baráttuna við eldinn. Lundúnabúar eru felmtri slegnir vegna eldsvoðans í King’s Cross-neðanjarðarlestarstöðinni í gær, þar sem þrjátíu manns létu lífið og tuttugu og einn eru hroðalega brenndir og sjúkir Næstmesta slys í sögn neðanjarðarlestanna London, Reuter. Eldsvoðinn, sem í fyrradag varð að minnsta kosti 30 mönnum að bana í King’s Cross-neðan- jarðarstöðinni, er næstmesta slys, sem orðið hefur i lestar- göngunum undir London, en árið 1975 iétu 43 menn lífið i miklum árekstri. Lítið hefur verið um slys í neðan- jarðarlestunum í London þótt þær flytji daglega nokkrar milljónir manna til og frá vinnu. Það mesta til þessa átti sér stað 28. febrúar árið 1975 en þá var einni lestinni ekið á fullum hraða út af brautar- enda og inn í jarðstálið við Moor- gate-stöðina. Biðu 43 bana og 74 siösuðust. Á King’s Cross tengjast lestimar í London lestunum, sem fara til Norður-Englands og Skotlands og er það haft eftir talsmanni sam- göngumálaskrifstofu borgarinnar, að 10.000 manns fari um stöðina á mesta annatímanum á kvöldin. í janúar árið 1985 voru reyking- ar bannaðar á neðanjarðarstöðvn- um og í lestunum en skömmu áður höfðu hundruð manna lokast inni á Oxford Circus vegna eldsvoða, sem þó varð engum að meini. Breska stjómin ákvað í gær að skipa nefnd til að rannsaka slysið og tildrög þess en ekki er enn ljóst hver þau voru. Slökkviliðsmenn telja þó, að eldurinn hafí fyrst kom- ið upp í tréstiga og borist þaðan í miðasöluklefana, sem eru um sjö metra undir yfírborði jarðar. Noregur: Dómsmálaráðherrann höfðar til náungakærleika Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara MorgainbLadsins. HELEN Besterud, dómsmálaráð- herra Noregs lenti f óhappi á laugardag f síðustu viku og varð þá áþreifanlega vör við skeyting- arleysi nútímamannsins nm hag náungans. Bosterud var að koma úr mat- vöruverslun með tvo innkaupapoka þegar henni skrikaði fótur á hálu haustlaufinu og hún skall í götuna. Bosterud meiddist á handlegg og missti meðvitund. Þegar hún rank- aði við sér hrópaði hún á hjálp og veifaði til vegfarenda. En fólk hand- an götunnar gekk áfram sína leið og enginn bflanna sem framhjá óku nam staðar. Seint og um síðir gat ráðherrann komist á fætur fyrir eigin rammleik og leitað hjálpar í verslun. „Ég skil vel að fólk sé feimið og ef til vill hrætt við að vasast í málefnum annarra. En mér fínnst að það ætti að gefa sér tíma til þess. Eg skora á alla að rétta náunganum hjálpar- hönd þegar mikið liggur við,“ sagði Helen Besterud dómsmálaráðherra. Noregur: í fótspor Nansens OhIó, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins. FJÓRIR Norðmenn hyggjast feta sem Nansen gerði árið 1888, með ERLENT í fótspor Friðþjós Nansen á næsta ári og ganga yfir Græn- landsjökul. Þá verða hundrað ár liðin frá för Nansens. Fjórmenningamir ætla að fá svar við spumingunni: Tekst okkur það sama búnaði? Búnaðurinn sem Nansen notaði er geymdur á safni í Noregi og það auðveldar undirbún- inginn. Mennimir ætla að leggja í’ann í ágúst á næsta ári og ganga 600 km á sex vikum. vegna reykeitrunar. Læknar höfðu aldrei séð eins óhugnanleg brunasár. Eldsvoðinn kom eins og reiðarslag yfir Breta í gær, enda lang alvarlegasti eldsvoði í sögu bresku neðanjarðarbraut- anna, sem eru þær elstu f heiminum. Þar var kaldhæðnis- legt að sfðdegis f gær var hópur fólks að dreifa aðvörunarmiðum til farþega við eina neðanjarðar- stöðina og benda á eldhættuna sem leyndist vfða í mannvirkjun neðanjarðarbrautanna og skort á öryggisbúnaði. Hópnum var hótað lögreglu þó þeir kæmu mjög pcúðmannlega fram og þegar blaðamaður Morgunblaðs- ins fór um umrædda stöð, buðu þeir vegfarendur aðvörunar- miðana án orðaskipta. Augljóst er að ótrúlegt sam- bandsleysi er innan kerfís neðan- jarðarbrautanna í London og öryggisbúnaður á brautapöllum er í algjöru lágmarki. Tvær lestir skil- uðu fólki inná King’s Cross-stöðina eftir að eldurinn var laus og þar með vom þær komnar í gildru. Þar fara milljónir manna daglega með neðanjarðarlestum Lundúna- borgar og um King’s Cross-stöðina fara á annað hundrað þúsund manns á dag, en King’s Cross er einn stærsta stöðin með fímm leiðir um stöðina. Eldurinn var laus í efsta stiga lyftustigans fyrir neðan miðasölu- salinn, sem er sjö metrum undir yfírborði jarðar. Samkvæmt frá- sögn sjónarvotta var sem eldhnöttur yrði til á augabragði efst í stiganum og þeir sem voru í efri hluta hans áttu enga undankomuleið úr eld- hafinu, því lyftustiginn var fullur af fólki og flutti það inn f eldinn. Fjöldi manna vann í gær við hreinsun King’s Cross-stöðvarinnar og rannsókn eldsupptaka, en uppi voru getgátur um að eldurinn hefði komið út frá rafmagni í vélum lyftu- stiganna. Rannsókn var ekki það langt komin að unnt væri að taka af skarið hvort um hryðjuverk væri að ræða eða ekki. Það var hrikalegt að sjá salarkynni King’s Cross- stöðvarinnar eftir eldsvoðann, allt ein rúst. Slökkviliðsmenn eru taldir hafa sýnt stórkostlega framgöngu og unnið mikið afrek við ótrúlega aðstæður, en einn slökkviliðsmaður fórst í eldsvoðanum. í gær varð að fella niður umferð um þijár af fimm leiðum King’s Cross-stöðvarinanr og olli það því, ásamt óhugnum í Lundúnabúum í kjölfar brunans, að mikill umferðar- öngþveiti skapaðist á allri umferð f London í gær, sérstaklega síðdeg- is, því mun fleiri en venjulega ferðuðust í einkabflum. Leigubíl- stjóri tjáði blaðamanni Morgun- blaðsins að hann hefði aldrei fyrr lent í öðru eins umferðaröngþveiti í Lundunaborg. Þó var að venju verulegur fjöldi fólks sem ferðaðist með neðanjarÖ- arlestunum í gær. Unnið verður að rannsókn máls- ins fyrir opnum tjöldum, en neðan- jarðarbrautimar eru helsta samgönguleið Lundúnabúa alla daga vikunnar og mikið í húfí að sú umferð geti farið eðlilega fram og af öryggi. Talsmenn neðanjarðarbrautanna hafa svarað gagnrýni um skort á öryggisbúnaði með því að benda á að fjármagnskortur sé til þeirra hluta, en allt virðist benda til þess, að þetta hrikalega slys verði tl þess að gerð verði gangskör að breytingu til betri vegar. Þeir verst brenndu sem lifðu af brunann voru ekki úr lífshættu í gær, en ljóst er að margir þeirra þurfa að ganga undir miklar skurð- aðgerðir. Ítalía: Stjornar- kreppunni að ljúka Róm, Reuter. SÍÐUSTU stjómarkreppunni á Ítalíu virðist ætla að ljúka fyrir vikulok og hefur um það samist, að Francesco Cossiga forseti hafni afsögn Giovannis Goria f orsætisráðherra. Goria sagði af sér sl. laugardag og á þriðjudag fékk hann umboð til að mynda nýja stjóm. Gekk það vonum framar og á miðvikudag féllst Fijálslyndi flokkurinn, sem hafði rofið stjómarsamstarfið, á breytingartillögur Goria við §árlög- in en á þeim hafði stjómarfleyið steytt. Búist er við, að stjómin biðji þingið um traustsyfírlýsingu í dag eða á morgun og þarf líklega ekki að óttast útkomuna. Vegna þess, að Cossiga ætlar að hafna afsagnarbeiðninni er litið svo á, að sama stjóm sitji áfram eins og ekkert hafí í skorist, sú 47. frá stríðslokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.