Morgunblaðið - 20.11.1987, Page 29

Morgunblaðið - 20.11.1987, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987 29 Sólfari á sigurbraut John Harrington, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, situr hér undir stýri á Sólfara, sólknúnum bU frá General Motors-verk- smiðjunum í Bandaríkjunum, en bíllinn bar nýlega sigur úr býtum í kappakstri yfir þvera Ástralíu. Myndin er tekin í Washington, fyrir utan minnismerkið um Lincoln forseta. Finnland: Heimsborgari kem- ur yfirvöldum í klípu Borgá, Finnlandi, frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. HIÐ harðsnúna útlendingaeftir- iit í Finnlandi hefur nú fengið óvenjulegt mál til umfjöllunar. Bandaríkj amaðurinn Charles Hall viU setjast að í borginni Borgá 50 km austur af Helsinki. Hann er hálffertugur, einhleyp- ur og finnskumælandi. HaU fær hvorki dvalarleyfi né atvinnu- leyfi því hann er vegabréfslaus. Á hinn bóginn er ekki hægt að vísa honum úr landi þvi hann hefur hvergi ríkisborgararétt. Einu skilríkin sem Hall hefur, er „heimsvegabréf" sem gefíð er út af samtökum í Bandaríkjunum sem nefnast World Service Authority. Finnsk yfírvöld viðurkenna ekki slíkt vegabréf og því telst Hall hafa komið á ólöglegan máta til Finn- lands. Sagt er að 250.000 manns ferðist um heiminn með slíkt al- heimsvegabréf. Nokkrir tugir manna hafa ritað undir meðmæli í því skyni að út- vega Hall dvalar- og atvinnuleyfí. Þar á meðal er tilvonandi vinnuveit- andi Halls, eigandi garðyrlq'ustöðv- ar í Borgá. Hún segist endilega vilja ráða menn eins og Hall sem hafa hugrekki til að afsala sér vemd ríkisvaldsins. Hall segist vera heimsborgari sem viðurkenni ekki skiptingu jarð- arinnar í ríki. Hann segir ríkjaskipt- inguna vera upphaf allra styijalda. Fyrir nokkrum árum reyndi Hall að komast til Finnlands án vega- bréfs. Þá var honum vísað úr landi og hann sendur til baka til Banda- ríjanna. Það er ekki lengur hægt vegna þess að Hall hefur afsalað sér bandarískum ríkisborgararétti. Samt getur hann ekki talist pólitísk- ur flóttamaður enda hefur hann ekki sagst vera slíkur. í Finnlandi hefur útlendingaeftir- Iitið sætt gagnrýni fyrir að ofsækja útlendinga og gera þeim erfítt fyrir að dvelja langdvölum í landinu. Túlkun stofnunarinnar á innflytj- endalögum þykir mjög ströng. Talsmenn útlendingaeftirlitsins segja að verkefni þeirra sé að koma í veg fyrir „útlendingavandamál". Enda segja gárungamir að Finn- land jafnist á við Albaníu hvað varðar möguleika útlendinga á því að setjast þar að. Móðir Teresa hyggst faratil Suður-Afríku MÓÐUR Teresu í Kalkútta hefur mlisverið boðið að koma í heim- sókn til Suður-Afriku næsta vor og hefur hún ákveðið að taka boðinu. Kalþólskur prestur, Ger- hardt Brunner að nafni, bauð henni fyrir hönd félagsskapar kaupsýslumanna sem kallar sig „Matteusargildið" og helgar sig Maríuvitruninni i Fatima i Port- úgal 1917. „Gildi“ þetta er einskonar klúbbur sem hittist til skrafs og ráðagerða yfir hádeg- isverði eftir settum reglum. Fulltrúar baráttuhreyfinga svartra Afríkumanna hafa bragðist illa við þessum tíðindum og segja hana bijóta gegn samtökum um andstöðu við stóm hvítra manna með því að þiggja þetta boð. Tilefni þess er að kaþólskir menn hafa ákveðið að halda mót í Pretoríu í maí og er þungamiðja þess móts rósakransinn (talnabandið) og iðk- un þeirra bæna sem honum tilheyra. Það era einkum talsmenn ÁNC (African National Congress) sem era óhressir út af heimsókn þessari og sagði einn þeirra í viðtali við Catholic Herald að þeir hefðu viljað að Móðir Teresa hefði rætt heim- boðið við trúmáladeild samtakanna áður en hún tók því. Stjóm Suður- Afríku muni notfæra sér þessa heimsókn hennar í áróðursskyni og íjölmiðlar Suður-Afríku muni elta hana á röndum og reyna að færa sér hana í nyt. Sumir hafa velt því fyrir sér, eftir að Móðir Teresa tók boðinu, hvort heimsókn þessi muni vera einskonar „uppbót" fyrir það að páfinn hefur ákveðið að koma ekki til Suður-Afríku þegar hann fer í Afríkuför sína á næsta ári. Denis Hurley, erkibiskup í Durban, hefur neitað því að svo sé en bætti við: „Allir biskupar þessa lands hafa verið að reyna að fá hana til að koma undanfarinn áratug. Það er því hálfkynlegt að hún skuli fallast á að koma í þetta skipti.“ Aðalritari biskuparáðs Suður- Afríku, séra Smangaliso Mkhatsh- wa, sagðist líka vera hissa á þessu. „Félagið sem bauð henni er mjög lítið og starfar hvergi nema í erki- biskupsdæmi Pretoríu," sagði hann. „Ég er ekki viss um að það hafí verið skynsamlegt af henni að taka boðinu. Ég verð að bíða og sjá hver skipuleggur þessa heimsókn." (Heimild: Catholic Herald) UNDRASAPAN ER K0MIN AFTUR VANDINN ER LEYSTUR LAUSNIN ER FUNDIN Vanish-undrasápan. Ótrúlegt en satt. Tekur burtu óhreinindi og bletti sem hvers kyns þvottaefni og sápur eða blettaeyðar ráða ekki við. Fáein dæmi: Olíur, blóð-, gras-, fitu-, lím-, gos- drykkja-, kaffi-, vín-, te-, eggjabletti, snyritvörubletti, bírópenna-, tús- spennablek og fjölmargt fleira. Nothæft ails staðar, t.d. á fatnað, gólfteppi, málaða veggi, gler, bólstruð húsgögn, bílinn, utan sem innan, o.fl. Urvals handsápa, algerlega óskaðleg hörund- inu. Notið einungis kalt eða volgt vatn. Nú einnig í fljótandi formi. Fæst í flest- um matvöruverslunum um land allt. Heildsölubirgðir. Logaland, heildversl- un, símar 1-28-04 og 2-90-15. Gæ JAR 2. ÁRA / ' í TILEFNIAFMÆLISINS 10% AFSLÁTTUR 20. og 21. NÓYEMBER VERSLUNIN GÆJARINGÓLFSSTRÆTI8

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.