Morgunblaðið - 20.11.1987, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fróttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 55 kr. eintakiö.
Breyttar
efnahagsf orsendur
rát± fyrir aflatakmarkan-
ir hefur heildarafli físki-
skipaflotans aukist um 45% á
síðustu þremur árum. Aflinn
jókst á fostu verðlagi um 14%
1985, 17,5% 1986 og það
stefnir í 8% aukningu 1987.
Sjávarvöruframleiðslan jókst
um 28% á þessu tímabili.
Útflutningsverð sjávarvöru
hækkaði samhliða aflaaukn-
ingu. Frá árinu 1984 talið
hefur verð á freðfíski hækkað
um 55% í Bandaríkjadölum.
Verð á saltfíski hefur hækkað
enn meira eða um 90%.
Síðastliðin tvö ár hefur
landsframleiðsla aukist að
jafnaði um 5,5% á ári og þjóð-
artekjur nokkru meira eða um
7%, vegna hagstæðra við-
skiptakjara. Kaupmáttur
atvinnutekna á mann hefur
aukist um 35-40% frá 1985.
Á líðandi ári stefnir í 16%
aukningu kaupmáttar at-
vinnutekna. Á síðastliðnum
tveimur árum hefur kaup-
máttur hækkað meira en
nokkru sinni fyrr á jafnlöngum
tíma frá lyktum síðari heims-
stjfyaldarinnar talið.
Framangreindar tölur, sem
sóttar eru í ræðu Þórðar Frið-
jónssonar, forstjóra Þjóðhags-
stofnunar, á fiskiþingi, sýna
ljóslega, að við höfíim búið við
mikið góðæri næstliðin ár.
Þetta góðæri átti að stærstum
hluta rætur í hagstæðum skil-
yrðum í sjávarútvegi, auknum
sjávarafla og hækkandi út-
flutningsverði sjávarvöru.
Á því ári, sem senn kveður,
hafa flestar efnahagsforsend-
ur í íslenzkum þjóðarbúskap
breytzt mjög mikið til hins
verra. Sterkar líkur standa til
þess að komandi ár geti orðið
okkur erfítt í skauti, að þessu
leyti, á margan veg, ekki sízt
í sjávarútvegi. Af þessum sök-
um hefur Vinnuveitendasam-
band íslands unnið drög að
þjóðhagsspá, sem Ólafur Dav-
íðsson, hagfræðingur, hefur
haft forystu um. Þar er reynt
að spá í framvinduna og sett
fram þjóðhagsdæmi ársins
1988, eins og það blasir við
frá sjónarhóli VSÍ.
Þijár efnahagsstærðir
stinga einkum í augu í þjóð-
hagsspá VSÍ, miðað við fyrri
spár:
★ 6% samdráttur í sjávar-
vöruframleiðslu. Reiknað er
með 345 þúsund tonna þor-
skafla 1988 í stað 390 þúsund
tonna afla 1987 með hliðsjón
af tillögum fískifræðinga.
★ 4% samdráttur vöruút-
flutnings vegna samdráttar í
sjávarútvegi.
★ 2-3% lakari viðskiptakjör,
miðað við núverandi gengi
Bandaríkjadals.
Ekki hafa verið teknar
ákvarðanir um hámarksafla
einstakra tegunda. Hafrann-
sóknastofnun hefur hinsvegar
lagt til að verulega verði dreg-
ið úr þorskveiði. Tillögur
stofnunarinnar fela í sér
10-12% samdrátt í sjávarafla.
Láklegt verður að telja að far-
inn verði einhver millivegur
milli fískifræðilegra stað-
reynda, sem fískifræðingar
híifa kunngjört, og efnahags-
legra og atvinnulegra sjónar-
miða, sem hagsmunaaðilar
tíunda. Miðað við líklegan afl-
asamdrátt 1988, líklega stöðu
Bandaríkjadals og fastgengis-
stefíiu hér heima fyrir hlýtur
rekstrarstaða sjávarútvegsins,
undirstöðuatvinnugreinar
íslenzks þjóðarbúskapar, að
veilgast á næsta ári. Ekki
bætir úr skák fyrirsjáanleg
innlend kostnaðarhækkun
vegna verðbólgu. Kjarasamn-
ingar eru og á næsta Ieiti.
Aðilar vinnumarkaðar,
samtök launþega og vinnu-
veitenda, að ógleymdri ríkis-
stjóm, eiga erfítt verk fyrir
höndum: að ná fram þjóðar-
sátt, sem tekur mið af efna-
hagslegum staðreyndum í
þjóðarbúskapnum, heldur
verðbólgu í skefjum og trygg-
ir jafnvægi og stöðugleika í
efnahagslífínu. Ef verðbólgu-
bönd bresta og flóðalda
víxlhækkana færir okkur í
sama „gapastokkinn" og vorið
1983, verður dvöl okkar í
efnahagsbatanum skammæ.
Það er engum greiði gerður,
og allra sízt þeim verst settu
í þjóðfélaginu, ef kaupgengi
íslenzku krónunnar hrapar
niður úr öllu valdi og hún verð-
ur sá smásjármatur sem hún
var — áður en hundrað „flot-
krónur“ vóru steyptar í eina
nýkrónu. Leiðin í þann botn
kann að verða stutt, ef þjóðin
þekkir ekki sinn vitjunartíma.
H
=f
Fiskiþing:
Eríndi dr. Gríms Valdimarssonar á Fiskiþingi:
Útflutningnr tækni
ingar í sj ávarútvt
Á undanfömum misserum hafa
rannsókna- og þróunarmál í sjávar-
útvegi og fískvinnslu verið talsvert
í brennidepli. Nægir þar að minna
á skýrslu Rannsóknaráðs ríkisins
um „Þróun sjávarútvegs" og
„Tæknibreytingar í fiskvinnslu"
auk nýafstaðinnar afmælisráð-
stefnu um rannsóknir í þágu
atvinnuveganna.
Að þessu sinni ætla ég því að
venda mínu kvæði í kross og ræða
lítillega um verkefnaútflutning í
sjávarútvegi, sérstaklega með tilliti
til nýafstaðinnar ferðar til Kína þar
sem skoðaður var sjávarútvegur og
fískvinnsla.
Eins og mönnum er kunnugt er
stutt síðan umræða hófst hér á landi
um útflutning á tækniþekkingu í
sjávarútvegi. Sem betur fer hefur
ekki verið látið standa við orðin tóm
í þessu efni, því á síðastliðnum
tveimur ámm hafa tvö fyrirtæki
verið stofnuð á þessu sviði hér á
landi, eins og ég kem að síðar. Það
sem vafalaust átti mikinn þátt í að
þessi starfsemi komst á legg er
vaxandi útflutningur á íslenskum
búnaði fyrir sjávarútveg og físk-
vinnslu. Menn gerðu sér skyndilega
ljóst að íslensk tækniþekking og
reynsla var nokkuð sem mátti flytja
út.
Heimsaflinn 90
milljónir tonna
FVá lokum heimsstyrjaldarinnar
síðari hefur orðið gífurleg aukning
á fískveiðum í heiminum. Veiðin
hefur vaxið úr 20 milljónum tonna
á ári rétt eftir heimsstyijöldina í
tæpar 90 milljónir tonna 1986.
Fiskveiðar hafa verið sú grein mat-
vælaiðnaðar sem hefur vaxið hvað
örast á þessu tímabili eða um 5%
á ári. Aukningin í fiskeldi er þó
talsvert meiri og er nú svo komið,
að fiskeldisafurðir eru orðnar um
eða yfír 10% af heimsaflanum.
Enginn veit í raun hve mikinn afla
heimshöfín geta gefíð af sér en
sérfræðingar Matvæla- og land-
búnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna telja 450 milljóna tonna
ársafla ekki flarri lagi.
Sé litið á skiptingu afla eftir
verkunaraðferðum kemur í ljós að
frysting er í örum vexti. Frá 1982
hafa frystar afurðir haft vinninginn
yfír ferskan físk sem til þess tíma
var ávallt í fyrsta sæti. Heistu skýr-
ingu á aukinni frystingu er að fínna
í vaxandi áherslu þróunarríkja á
að nýta fískimið sín betur, bæði til
innanlandsneyslu og til öflunar er-
lends gjaldeyris. í heitari löndum
virðist frysting á sjó vera helsta
leiðin til að framleiða útflutnings-
hæfar fískafurðir. Einkum er þar
um að ræða dýrari tegundir eins
og rækju og skelfísk.
Mögnleikar í
Kina kannaðir
Kínveijar eru ein þeirra þjóða
sem hefur lagt mikla áherslu á að
auka framleiðslu sína á físki, eink-
um fyrir heimamarkað. í kjölfar
heimsóknar Steingríms Hermanns-
sonar í Kína í fyrra buðu Kínveijar
heim tveimur íslendingum til að
kynna sér sjávarútveg og fískiðnað
þar í landi með það fyrir augum
að kanna grundvöll fyrir samstarf
þjóðanna á þessu sviði. Sá er hér
talar fór fyrir hönd sjávarútvegs-
ráðuneytisins og Össur Kristinsson
fór fyrir hönd Icecon, fyrirtækis
SÍS, SH og SÍF. Stóð ferðin frá 25.
september til 6. október. Hófst hún
í höfuðborginni, Peking, en síðan
var farið til Dalian við Gulahaf, þá
til Shanghai og Hongzhou sem er
miðstöð mikils fískræktarhéraðs
skammt fyrir sunnan Shanghai.
Heimsótt voru útgerðar- og físk-
vinnslufyrirtæki á þessum stöðum,
fískiðnaðarskóli, háskóli og rann-
sóknastofnanir. Á hveijum stað
voru haldnir fundir með forsvars-
mönnum fyrirtækja og stofnana. Á
þessum fundum voru málin rædd
og kynntum við íslenskan sjávarút-
veg og sýndum litskyggnur auk
efnis á mjmdbandi.
Þótt efnahagsþróun í Kína hafí
farið batnandi á undanfömum árum
telst landið til þróunarlanda. Meðal-
tekjur á mann eru um 335 Banda-
ríkjadaiir á ári samanborið við um
14.000 á íslanndi. Kínveijar eru
þriðja mesta fiskveiðiþjóð í heimi,
næstir á eftir Japönum og Sovét-
mönnum, og var heildarveiðin í
fyrra 8,2 milljónir tonna. Vegna
gífurlegs fólksfjölda er fiskneysla á
mann aðeins um 8 kg á ári. Saman-
borið við landbúnaðinn er fískiðnað-
urinn einnig mjög lítill eða um 1%.
Á síðastliðnum 17 árum hefur
Kínveijum tekist að nær þrefalda
afla sinn, sem í ár verður nálægt 9
milljónum tonna. Um aldamótin
reikna þeir með að framleiða um
átján milljónir tonna af físki og
verða um 70% þess ræktaður físk-
Afkoma norðan-
togara betri
en fyrir sunnan
Utg’erðarkostnaður fyrir norðan mun lægri
AFKOMA minni togara á svo-
kölluðu norðursvæði var mun
betri en hjá togurum á suður-
svæði á síðasta ári samkvæmt
tölum, sem Fiskifélag íslands
hefur unnið. Afkoma stærri tog-
ara er jafnari eftir svæðum, en
heldur betri hjá aflamarkstog-
urum fyrir norðan. Afkoma báta
er hins vegar heldur betri á
suðursvæði, einkum þeirra sem
eru undir 200 brúttólestum að
stærð.
Afkoma minni togara að norðan
er tvöfalt betri en hinna að sunn-
an, hvort sem um er að ræða
'sóknarmark eða aflamark. Tekjur
aflamarkstogara að sunnan eru þó
hærri en norðan togaranna en
dæmið snýst við hjá sóknarmarks-
togurunum. Að meðaltali eru
tekjur aflamarkstogara fyrir norð-
an 82 milljónir króna en 88,5 fyrir
sunnan. Hagnaður eftir ijármagns-
kostnað er hins vegar 21,4 milljónir
fyrir norðan að meðatali en aðeins
762.000 krónur fyrir sunnan. Mun-
urinn á telgum liggur fyrst og
fremst í því að sunnan togarar
selja meira af afla sínum erlendis.
Hins vegar veldur mun minni
rekstrarkostnaður norðan togar-
anna því að útkoma þeirra er mun
betri. Hreinn rekstrarkostnaður
þeirra er um 20 milljónum króna
lægri en sunnan togaranna, 53,9
milljónir á móti 73,3 fyrir sunnan.
Veiðarfærakostnaður er lægri fyrir
norðan, olíukostnaður lægri og
annar kostnaður við útgerð 12
milljónum króna lægri. Stjómunar-
kostnaður er mun hærri sunnan
lands svo og annar rekstrarkostn-
aður. Vergur hagnaður norðan
togaranna er 26,4 milljónir en
sunnan togaranna 12,8.
Telgur sóknarmarkstogara fyrir
norðan eru 93,7 milljónir en 71,4
fyrir sunnan. Hreinn rekstrar-
kostnaður fyrir norðan er 71
milljón en 61,8 fyrir sunnan og
liggur munurinn að mestu í hærri
aflahlut í samræmi við meiri tekjur
og annar kostnaður er hærri fyrir
norðan. Vergur hagnaður togara
fyrir norðan er engu að síður 21
. milljón á móti 8 fyrir sunnan.