Morgunblaðið - 20.11.1987, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987
35
Kjaraviðræðum VMSÍ og VSÍ slitið
Hugmyndir vinnuveitenda
ganga í skerðingarátt
segir Guðmundur J. Guðmundsson for-
maður Verkamannasambands Islands
„VIÐ VORUM að koma af fundi með Vinnuveitendasambandinu, þar
sem við tilkynntum þeim að það væri ekki ástæða til þess að halda
þessum viðræðum áfram,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson, form-
aður Verkamannasambands íslands, á blaðamannafundi, sem
framkvæmdastjórn VMSÍ boðaði til í gær ásamt ráðgjöfum sinum
eftir samningafundinn með vinnuveitendum.
Guðmundur sagði að niðurstaða
þeirra viðræðna, sem farið hefðu
fram, væri ákaflega skýr. „Við höf-
um lagt fram kröfur og óskir um
að það sé tekið tillit. til þess að
meginhluti af félagsmönnum
Verkamannasambandsins sé á
lægstu launum og launaskrið hafi
að mestu farið framhjá þeim. Við
viljum leiðréttingu á kjörum þess
fólks, sem er á lægstu töxtum, og
sér í lagi Ieggjum við áherslu á að
fískvinnslufólk, sem er á töxtunum
alfarið, að minnsta kosti í fryst-
ingu, fái leiðréttingu. Við höfum
ekki fengið undirtektir um eitt eða
neitt. Þær hugmyndir sem komið
hafa frá vinnuveitendum ganga í
skerðingarátt," sagði Guðmundur
ennfremur.
Guðmundur sagði það ómótmælt
og vinnuveitendur viðurkenndu það
að meginhluti Verkamannasam-
bandsins hefði orðið verulega úti
hvað samninga og launaskrið
snerti. Hann minnti á að í samning-
unum í desember hefði spáin fyrir
árið 1987 verið mjög slæm, þó hún
hefði ekki verið eins slæm og vinnu-
veitendur boðuðu nú. Í trausti þess
að verðlagi væri haldið í skefjum,
hefðu þá verið gerðir samningar,
sem byggðu á óbreyttum kaup-
mætti. Síðan þá hefði allt farið úr
böndunum. Kjarasamningar hefðu
verið gerðir út og suður og launa-
skrið hefði fylgt í kjölfarið. Almennt
verkafólk sæti eftir. „Ef við biðjum
um eitthvað fyrir þetta fólk, þá
erum við að kreíjast gengislækkun-
ar. Sem sagt, það er gengislækkun
ef farið er fram á leiðréttingu fyrir
það fólk sem lægst er og býr við
skarðastan hlut,“ sagði Guðmund-
ur.
Karvel Pálmason, varaformaður
VMSÍ, sagði rétt að undirstrika það
sérstaklega að verkalýðsfélögin
væru ekki með lausa samninga fyrr
en um áramót og það að sjálfsögðu
takmarkaði það sem hægt væri að
gera á þessu stigi. VMSIhefði ein-
ungis farið fram á leiðréttingu
vegna iaunaskriðs hjá öðrum starfs-
stéttum. Vinnuveitendur viður-
kenndu launaskriðið en neituðu að
ræða það og þar stæði málið.
„Þessi vinslit, ef það má kalla
það svo, verða kannski til þess að
skerpa frekar línur í samningamál-
um í framtíðinni, ef þessi háttur á
að verða hafður á af hálfu Vinnu-
veitendasambands íslands og
Vinnumálasambands samvinnufé-
laganna. Hér er nánast um vinslit
að ræða, eins og mál standa í dag,
en trúlega sjá menn að sér,“ sagði
Karvel.
„Við hvetjum að sjálfsögðu aðild-
arfélögin til þess að 'ræða málin,
taka þau í sínar hendur og gera
þær ráðstafanir sem þau telja að
eigi við, á hveijum stað kannski,
þangað til það losnar betur um
hefðbundnar aðferðir, ef menn vilja
beita þeim,“ sagði Karvel er hann
var spurður um hugsanlegar að-
gerðir VMSÍ. Málið væri í höndum
félaganna og þeir treystu á félags-
menn að sýna samstöðu. „Við
vonum að augu manna opnist fyrir
því að það verður ekki flúið að
breyta launahlutföllum í landinu frá
þeim sem mest hafa til þeirra sem
minnst hafa. Hjá því verður ekki
komist og fyrr verður ekki samið,“
sagði Karvel.
Guðmundur sagði að samningar
væru bundnir til áramóta, hvað hin
einstöku verkalýðsfélög gerðu eða
starfandi verkafólk vissu þeir ekki
um og það væri ekki á þeirra færi
að segja fyrir um það.
Aðspurðir hvort þeir sæu mögu-
leika á því að samningar næðust
án átaka, sagðist Karvel engu spá
um það, en benti á að alvörusamn-
ingaviðræður væru í gangi á
Vestfjörðum. „Þar eru menn af
heiðarleika að vinna sameiginlega
að því að leysa þetta vandamál. Eg
hoiifi fram til þess að þar kannski
eygi menn þátt í lausn væntanlegra
kjarasamninga, en þar verður auð-
vitað meira að koma til,“ sagði
Karvel.
Aðspurður um hvort stjómvöld
gætu með einhveijum hætti liðkað
fyrir samningum, sagði Guðmundur
það eftirtektarvert að á fyrstu stig-
hagslegt hmn á næsta ári, að
líklega væri þetta tuttugasta spáin
sem kæmi frá Þjóðhagsstofnun
undanfarin ár og það hefði þurft
að leiðrétta hveija einustu. Þær
væru alltaf of lágar og inn í þær
virtist vera innbyggð neikvæð
steftia.
Guðríður Elíasdóttir, formaður
Pramtíðarinnar í Hafnarfirði, sagð-
ist hafa orðið fyrir miklum von-
brigðum með að slitnað hefði upp
úr þessum viðræðum. Innan VMSÍ
væri mikill fjöldi kvenna sem væri
á lægstu launum og hefði ekki
möguleika til þess að auka sín laun.
Hann sagði að sumir vinnuveitend-
ur væru famir að bjóða að hækka
þessi laun án þess að spyija aðra.'
„Ég hélt að menn myndu sjá að
sér. Þeir standa með húsin tóm og
konur fara í alla aðra vinnu frekar
en að ganga inn í frystihús til þess
að vinna," sagði Guðríður. Hún
sagðist handviss um að forráða-
mönnum frystihúsa væri haldið
niðri af öðmm atvinnurekendum.
Þröstur Ólafsson tók í sama
streng og sagði að það mætti ekki
í öllum tilvikum setja samasem-
merki á milli atvinnurekenda og
Vinnuveitendasambandsins. VSI
væri á síðustu mánuðum að verða
eins konar hrellingartröll. Einstakir
atvinnurekendur spyrðust fyrir um
það hvort þeir gætu ekki samið sér
framhjá VSÍ og launafólk væri að
semja beint við sína atvinnurekend-
ur framhjá aðilum vinnumarkaðar-
ins. „Þetta segir auðvitað ákveðna
sögu um það hvert Vinnuveitenda-
sambandið er að stefna samskiptum
aðila vinnumarkaðarins. Það hlýtur
að verða þar á veruleg breyting frá
því sem verið hefur undanfarin tvö
ár og það tel ég kannski stærsta
málið í sambandi við þessi slit nú
á samningunum. Þetta eru ekki
bara slit, það er verið að fara með
samningaviðræður í nýjan farveg,“
sagði Þröstur.
Jón Kjartansson, formaður
verkalýðsfélags Vestmannaeyja,
sagði það ekki traustvekjandi þegar
farið væri að nota þjóðhagsspár sem
áróðurstæki. Honum heyrðist á at-
vinnurekendum að þeir ætluðu að
leysa vanda frystihúsanna með inn-
flutningi á erlendu yjnnuafli. Þeir
fengju ef til vill frið í einhvem tíma,
en það væri ákaflega mikil uppgjöf
hjá íslenskri verkalýðshreyfingu að
geta ekki samið það vel fyrir sitt
fólk að hún yrði að játast undir
innflutning á erlendu verkafólki.
Þetta væri því ekki lausn fyrir fisk-
vinnsluna, heldur yrði að gera
eitthvað til þess að fólk fengist til
þess að vinna.
Býst ekki við viðræð-
um fyrr en eftir áramót
GUNNAR J. Friðriksson, form-
aður Vinnuveitendasambands
íslands, sagði að samtökin hefðu
verið sammála því mati Verka-
mannasambandsins að það mikið
bæri á milli aðila að þýðingar-
laust væri að halda viðræðum
áfram eins og stæði.
„Við sáum engan flöt á því, það
munar svo miklu og óvissuatriði em
svo mörg að við treystum okkur
ekki til þess,“ sagði Gunnar að-
spurður hvort VSI hefði ekki séð
neina leið til þess að koma til móts
við VMSÍ þannig að viðræður gætu
haldið áfram. „Að sjálfsögðu kemur
að þvi að við verðum að ná samning-
um, en núna sjáum við ekki flöt á
því,“ sagði Gunnar ennfremur.
— Hvað þarf til þess að samning-
ar náist?
„Fiskiðnaðurinn er rekinn með
halla, þannig að hann er ekki (stakk
búinn til þess að taka á sig kaup-
hækkanir. Hins vegar em athyglis-
verðar tilraunir I gangi á Vestfjörð-
um, sem kynnu að gera
fiskiðnaðinum kleift að koma eitt-
hvað til móts við fískvinnslufólk
með aukinni framleiðni. Ef það yrði
niðurstaðan úr þeim tilraunum þá
g^ætu skapast einhveijir möguleik-
ar,“ sagði Gunnar.
Gunnar sagðist ekki vilja taka
undir það að nú horfði í alvarleg
átök á vinnumarkaði. Hann sagðist
halda að samningsaðilar væm það
sjóaðir í samningum að þeir gerðu
sér grein fyrir því áð þeir væm
báðir á sömu skútunni. Menn yrðu
að vona að aðstæður yrðu hagstæð-
ari þegar sest væri að samninga-
borðinu á nýjan leik. Hann bjóst
ekki við að það yrði fyrr en eftir
áramót, enda giltu núverandi kjara-
samningar til áramóta. Það væri
ekki nema eitthvað nýtt gerðist að
viðræður hæfust fyrir áramót.
— Gæti ríkisvaldið eitthvað gert
til þess að samið yrði?
„Ég geri ráð fyrir að þegar kem-
ur að því að við setjumst niður
muni ríkisvaldið eitthvað koma þar
inn í, eins og verið hefur í undanf-
ömum samningum," sagði Gunnar.
Hann sagði að ekkert lægi fyrir um
það hvort stjómvöld væm tilbúin
til þess að liðka til fyrir fískvinnsl-
una, nema ef vera skyldi það að
hætt yrði við að leggja á kvaðir,
sem fískvinnslan hefði ekki f dag
og hann kallaði það ekki að liðka til.
Gunnar sagðist ekki búast við
að erfíðara yrði að ná samningum
eftir áramót. Eftir áramót væri
búið að afgreiða fjárlagafrumvarpið
og þá yrði ef til vill ljósara með
gengi dollars. Fall hans undanfarið
hefði haft áhrif á viðræðumar nú.
Morgunblaðið/Júlíus
Hluti fulltrúa Verkamannasambandsins gengur af fundi með vinnuveitendum í gœr, þar sem samninga-
viðræðum var slitið. Talin frá vinstri: Guðríður Elíasdóttir, Guðmundur J. Guðmundsson, Karvel
Pálmason og Þröstur Ólafsson.
Gunnar J. Friðriksson formaður VMSÍ:
um þessara samningaviðræðna
hefði VMSÍ lýst yfir vilja sínum til
þess að ganga sameiginlega með
vinnuveitendum á fund ríkisstjóm-
arinnar til þess að mótmæla
launaskatti á fiskvinnsluna og að
hætt yrði endurgreiðslu uppsafnaðs
söluskatts til hennar. Vinnuveitend-
ur hefðu tekið vel í þetta í byijun,
en síðan hefði eitthvað gerst og
þeir hefðu ekki minnst á að ræða
við ríkisstjómina og ríkisstjómin
heldur ekki rætt við aðila vinnu-
markaðarins. „Ég er hræddur um
að þama sé hjá að minnsta kosti
hiuta af ríkisstjóminni og Vinnu-
veitendasambandinu einhver af-
staða. Nú, en það em getsakir, en
það datt allt í einu niður þessi áhugi
á að afstýra því að fiskvinnslan
væri skattlögð og þeir hafa ekkert
viljað ræða það mál meira og ekk-
ert viljað af ríkisstjóminni vita,“
sagði Guðmundur.
Þröstur Ólafsson sagði rétt að
kæmi fram eftir þá hrollvekju sem
lesin hefði verið yfír þjóðinni í gær
um fall dollarans og nánast efna-
Morgunblaðið/Júltus
Gunnar J Friðriksson, t.h., og Víglundur Þorsteinsson ganga til fund-
arins með Verkamannasambandsmönnum i gær.