Morgunblaðið - 20.11.1987, Page 40

Morgunblaðið - 20.11.1987, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987 Ljóma smjörlíki 500g • • • 43, Srásykur, lkg • .....16, Finax hveiti 2 kg • .....41, Golden síróp, 500g • • • • 65, Hagvers /\ CD kókosmjöl, 500g •••••• C? 9 Dansukker “1 ^7 flórsykur, 500g •••••• X/ 9 Dansukker púöursykur, 500g • • • • • jl. j Rússnesk 1 — jarðarbeijasulta, 454g • • • X 9 Odense 1 ' hrámarsipan, 200g • • X %J xJ 9 Odense T /^V _ konfektmarsipan, 200g X U J 9 “ Konsum "I ^ ^ suöusúkkulaði, 200g • X Z/ / 9 "" Mónu ^7 _ súkkulaöispænir 150g • • jl / 9 HAGKAUP REYKJAVÍK AKUREYRI NJARÐVÍK Afsögn Weinbergers mark- ar þáttaskil í varnarmálum ÞEGAR Ronald Reagan tók við embætti forseta hét hann þvi að efla að nýju herafla Bandaríkjanna. Það kom í hlut Caspars Weinberger varnarmálaráðherra að efna það loforð. Weinberger hefur nú sagt af sér af persónulegum ástæðum eftir tæplega sjö ára starf og markar afsögn hans að mörgu leyti þáttaskil. Stefna stjórnarinnar og framganga Weinbergers hefur verið umdeild. Fylgismenn hans benda á að stefnan hafi borið árang- ur og hafi til að mynda sú áhersla sem hann hefur lagt á að unnið verði að framgangi geimvamaráætlunarinnar gert það að verkum að Sovétstjómin fékkst til að setjast að samningaborð- inu og ræða um fækkim kjarnorkuvopna. Á hinn bóginn hefur Weinberger verið gerður persónulega ábyrgur fyrir mestu hem- aðamppbyggingu á friðartimum i sögu Bandarikjanna og af þeim söktun þótti sovéskum fjölmiðlum sérstök ástæða til að fagna afsögn hans. Astæðuna fyrir afsögn sinni sagði Weinberger vera versnandi heilsu eiginkonu sinnar. Þeir sem gerst þekkja til í vamar- málaráðuneytinu segja þetta rétt vera en einnig hafí komið til óánægja Weinbergers með stefnu stjómarinnar i afvopnunarmálum. Hann óttist að Reagan forseti hyggist bjóða Gorbachev að fresta framkvæmd geimvamaráætlun- arinnar gegn þvi að samið verði um umtalsverða fækkun lang- drægra kjamorkuvopna. Þessu hafí hann ekki getað unað og því ákveðið áð réttast væri að draga sig í hlé. Weinberger hefur ekki legið á þeirri skoðun sinni að geimvamaráætlunin sé nauðsyn- leg trygging fyrir lýðræðisríkin ákveði Sovétmenn að ganga á bak gerðum afvopnunarsamningum. Breyttar áherslur Þá hefur ennfremur komið fram að embættismönnum í vam- armálaráðuneytinu þykir hafa verið freklega framhjá sér gengið i afvopnunarviðræðum við Sovét- menn á undanfömum tveimur ámm. Kann þetta einnig að hafa ráðið miklu um ákvörðun Wein- bergers. Utanríkisráðuneytið með George Shultz i broddi fylkingar hefur borið hitann og þungann af afvopnunarviðræðunum og má telja víst að áhrif Shultz komi til með aukast til muna þá tæpu 14 mánuði sem eftir lifa af valdatíma Reagans forseta í Hvíta húsinu. Sérfræðingur breska tímaritsins The Economist gengur svo langt að segja að í kjölfar afsagnar Weinbergers muni aukinn samn- ingsvilji setja svip sinn á stefnu Bandaríkjastjómar í afvopnunar- málum. Telur sérfræðingurinn til að mynda meiri líkur á því en áður að risaveldunum takist að ná samkomulagi um helmings fækkun langdrægra kjamorku- vopna á leiðtogafundinum í Washington og á fyrirhuguðum fundi í Moskvu á næsta ári. Vígbúnaðarsérfræðingar eru sammála um að þörf hafi verið á því að stórefla herafla Bandaríkja- manna sem iátinn hafði verið drabbast niður f valdatíð Jimmys Carter Bandarílqaforseta. Þegar Reagan forseti tók við völdum var mótuð sú stefna að treysta her- aflann meðal annars til að styrkja stöðu Bandaríkjastjómar í af- vopnunarviðræðum við Sovét- menn. Þessi stefna hefur vissulega kostað óskiljanlegar Qámpphæðir. Weinberger lagði blessun sína yfír smfði MX-flaug- arinnar, B-l-sprengjuvélina, stórkostlega uppbyggingu flotans og smfði háþróaðra stýriflauga svo nokkur dæmi séu tekin. Vígvæðingin er sögð hafa kostað 1.900 milljarða Bandaríkjadala. Sögnlegar tillögnr Á hinn bóginn vom það Wein- berger og aðstoðarmaður hans Richard Perle sem settu fyrst fram hugmyndina um að stórveld- in upprættu meðaldrægar kjam- orkuflaugar, sem flestum þótti öldungis fráleit er Reagan forseti tók að kynna hana opinberlega vikunni. árið 1981. Nú hafa Sovétmenn fallist á þessa hugmynd og gott betur og munu leiðtogamir vænt- anlega undirrita samning um útrýmingu meðaldrægra- og skammdrægra flauga (tvöföldu núll-lausnina svonefndu) á fund- inum í Washington. Verður þetta fyrsti afvopnunarsáttmálinn sem gerður er frá upphafi kjamorku- aldar. Þeir lögðu einnig til árið 1982 að stórveldin stefndu að vemlegri fækkun langdrægra kjamorkuvopna, sem leiðtogamir höfðu náð óformlegu samkomu- lagi um á fundinum í Reykjavík í fyrrahaust þar til Gorbachev gerði það að skilyrði að hætt yrði við geimvamaráætlunina. Þeir Reagan og Weinberger hafa verið sammáia um að geimvamir séu nauðsynleg trygging bijóti Sov- vétmenn gegn ákvæðum hugsan- legra afvopnunarsáttmála. Nú hafa Sovétmenn fallist á að til- teknar tilraunir með geimvopn megi framkvæma utan rannsókn- arstofnana og flest bendir til þess að Gorbachev sé ákaflega um- hugað um að ná fram einhvers konar samkomulagi um takmark- anir geimvama. Sú skoðun að geimvamaráætlunin hafí fengið sovéska ráðamenn að samninga- borðinu á því vissulega við rök að styðjast auk þess sem erfíðleik- ar í sovésku efnahagslífi og umbótastefna Gorbachevs hafa vaflaust átt drjúgan þátt í því. Slyngoir stjórn- málamaður Ennfremur hefur verið bent á að afsögn Weinbergers sýni hvað hann er slyngur stjómmálamaður. Bandaríkjamenn em nú almennt þeirrar skoðunar að vinna þurfí bráðan bug á fjárlagahallanum í Bandaríkjunum og hafa margir áhrifamenn hvatt til þess að fram- iög til vamarmála verði skorin niður. Weinberger hafí því séð að tími hans var liðinn þar sem ör- uggt megi heita að ekki fáist framlög til þeirra verkefna, sem hann hefur sagt nauðsynlegt að hrint yrði í framkvæmd á næstu ámm. Eftirmaður hans John Carlucci, fyrmrn öryggisráðgjafi, sagði í síðustu viku að niðurskurður á fjárframlögum til vamarmála muni líklega leiða til þess að fækkað verði í herliði Bandaríkja- manna. Þótti þetta nokkmm tíðindum sæta því Weinberger hafði ævinlega lýst yfír því að kæmi til greina að fækka her- mönnum. Carlucci hefur á hinn bóginn lýst yfír afdráttarlausum stuðningi við að áfram verði unn- ið að tilraunum sem tengjast geimvamaráætluninni. Hans bíður því það erfíða verkefni að framfylgja stefnu stjómarinnar í vígbúnaðarmálum á sama tíma og fullvíst má telja að fjárframlög til þessa málaflokks verða skorin niður. Þeir sem gerst þekkja segja Weinberger stálheiðarlegan mann og jafnframt frámunalega þrjósk- an. Þykir það dæmigert að hann skyldi nota tækifærið er haldin var séretök kveðjuathöfn honum til heiðure og minna á gildi geim- vamaráætlunarinnar. Reagan forseti kvaddi hann með þeim orðum að með honum væri horfinn á braut „hæfasti vamarmálaráð- herrann í sögu þjóðarinnar“. Weinberger tókst á við ákveðið verkefni sem honum var falið og má telja fullvíst að með afsögn hans sé liðið tímabil áhrifamesta vamarmálaráðherra í sögu Bandaríkjanna. Heimildir: Newaweek,The Eco- nomist og Time. Reagan Bandaríkjaforseti þurrkar tár úr auga sér við kveðjuat- höfn sem haldin var til heiðurs Weinberger (til vinstri) fyrr í • • BOKUNAR VÖRUR Bandaríkin: AF ERLENDUM VETTVANGI eftir ÁSGEIR SVERRISSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.