Morgunblaðið - 20.11.1987, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 20.11.1987, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987 Kristín Ingvars- dóttir — Kveðjuorð Mínar bemskuminningar eru meira og minna tengdar Kristínu Ingvarsdóttur og heimilinu hennar. Ég var bara lítil stelpa þegar við Bryndís, dóttir hennar, kynntumst, og þó hún væri svolítið eldri en ég og svo miklu skynsamari, urðum við afskaplega góðar vinkonur. Bryndís hafði verið í ísaksskóla og kunni allt mögulegt. Ég bar geysi- lega virðingu fyrir svona lærðri manneskju, og átti þá ósk heitasta að feta í fótspor hennar, verða læs, geta skrifað, reiknað og líka allt hitt sem hún Bryndís gat. En hún Bryndís átti líka afskaplega góða foreldra, og alltaf var ég jafn vel- komin til Kristínar og Braga. Ég heid líka að þangað hafi ég lagt Leiðrétting í minningargrein í blaðinu í gær um Baldur Þórhallsson eftir Astu Karen varð meinleg villa. Setning í byijun greinarinnar átti að hefjast þannig: Mér er sagt að fundum okkar hafi fyrst borið saman fyrir tuttugu og þremur árum ... Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum. leið mína hvem einasta dag, og flest kvöld. Og þó ég ætti heima í næsta húsi var ég alltaf svo hrædd við að fara ein heim á kvöldin, en þá datt Kristínu það í hug að þær mæðgur myndu alltaf fara út í glugga á kvöldin og veifa mér á meðan ég hlypi heim. Þetta þótti mér miklu betra þegar ég vissi að einhver fylgdist með mér. Veifaði ég þeim þá „afturábak" á hlaupun- um eins og ég kallaði það. Kristín sagði líka alltaf við mig að sér fyndist hún eiga svolítinn part í mér, og að ég væri orðin eins og önnur litla stelpan sín. Ég var ánægð að eiga part í henni, og það var alltaf gott að finna hlýjuna sem allir veittu mér heima hjá Bryndísi, og afi hennar og amma umvöfðu mig líka. I fyrsta skipti sem ég fór í Þórs- mörk var ég í för með þeim. Ég skemmti mér alveg konunglega og á ég margar góðar minningar úr Þórsmerkurferðum með þeim Kristínu og Braga. Þau kunnu að fara í útilegu og láta alla njóta þess. Og Landrover-bíllinn þeirra var merkilegasti og besti farkostur sem ég gat hugsað mér. Á honum mátti komast á svo marga staði sem TIIBOEMN Juvel oe Kornax hvfiltl 2to kr.35/ 2009» suiusúkkulaiikfjl^. 80 Kjörbúð Lóuhólum 2-6 sími 74100 bíllinn hans pabba míns komst ekki. Við Biyndís ætluðum líka báðar að eignast Landrover, og ekkert annað ökutæki, þegar við yrðum stórar. Við ætluðum líka að skoða landið okkar og vera eins vel að okkur í öllu sem snerti það, eins og pabbi og mamma hennar Bryndísar voru. Og skíðaferðirnar. Mínir fyrstu klaufalegu tilburðir til að standa á skíðum voru undir handleiðslu Braga. Ég man að ég gat í fyrstu með ómögulegu móti rennt mér áfram á jafnsléttu, heldur rann allt- af stjómlaust afturábak og hélt engu jafnvægi. En ferðimar urðu fleiri og ég gat að lokum staðið hjálparlaust. Mér fannst ég aldrei hafa séð neina eins góða á skíðum og Braga og Bryndísi. Kristín varð líka skíðamanneskja, þó hún byijaði ekki að stunda þetta sport fyrr en seinna, og þá fór öll fjölskyldan saman á skíði. Fyrstu, og einu, skautana mína fékk ég líka frá Bryndísi í jólagjöf, og ekki urðu þær ferðir síður skemmtilegar. Það var líka erfitt fyrir mig að flytja úr Hvassaleitinu, og var ég lengi að jafna mig á umskiptunum. En Kristín var alltaf jafn hugsunar- söm og góð við mig. Hún lét mig hafa iykil af húsinu þeirra, svo ég gæti alltaf átt þar samastað ef á þyrfti að halda. Ég hélt nefnilega áfram í mínum gamla skóla og hann var rétt hjá húsinu þeirra. Þá þurftu foreldrar mínir ekki að hafa áhyggjur af mér á þvælingi langt frá heimili mínu. Svona var Kristín, alltaf hugs- andi um aðra. Ég á henni svo ótal margt að þakka, og því mun ég aldrei gleyma, því þó fólk flytjist búferlum og hittist jafnvel sjaldan þá breytast tilfinningar ekki við það. Og nú er hún flutt þangað sem við eigum öll eftir að flytjast ein- hvem tíma. Við söknum hennar öll mjög mikið og við sendum fjöl- skyldu hennar okkar dýpstu samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur öll. Nína Tóta Björn R. Hjálmarsson frá Hlíð — Kveðjuorð Fæddur9.júlí 1906 Dáinn 12. nóvember 1987 í gær, fimmtudag, fór fram útför Bjöms Ragnars Hjálmarssonar. Hann fæddist 9. júlí árið 1906. Hann afi byijaði ungur á sjó og var hálft sitt líf á Esjunni, hann hefur örugglega verið góður og duglegur sjómaður. Hann var góður, hlýr og elsku- legur maður, sem þótti mjög vænt um bamaböm sín. Hann gaf okkur systkinunum alltaf kandís og 100 kall, þegar við fómm út í búð að kaupa sígarettur handa honum. Það var alltaf gott og gaman að tala við hann og þær vom margar stund- imar, sem við horfðum saman á sjónvarpið og töluðum um efnið í því. Hann var mjög lánsamur að kynnast konu sinni, Kristjönu Gísladóttur, yndislegri konu, sem hann mat mikils. Við höldum að það sé bara gott að hann sé farinn sína hinstu ferð. Hann var orðinn gamall og þreyttur eftir allt sitt Iíf. Við emm glöð, að hafa þekkt okkar eina afa, Bjöm Ragnar Hjálmarsson. Konu hans, Kristjönu Gísladótt- ur, bömum þeirra, fjölskyldu, ættingjum og vinum hans sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Svala Birna Sæbjömsdóttir, Magnús Logi og Ágústa Brynjólfsdóttir. Jón Stein arGunnfc dugsson Deilt á dómarana Bókin sem fjallað hefur verið um í fréttatímum og á forsíðum dag- blaða. Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður gagnrýnir meðferð Hæstaréttar á sex málum þar sem reynir á nokkur mannrétt- indaákvæði stjómarskrárinnar. Geta íslendingar treyst Hæstarétti? bók góð bók

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.