Morgunblaðið - 20.11.1987, Page 46

Morgunblaðið - 20.11.1987, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987 Minning: S vanur Ágústsson framkvæmdastjóri Svanur Ágústsson, veitingastjóri Leikhúskjallarans, fæddist í Reykjavík, foreldrar hans, Ágúst Jónsson, lögreglumaður, sem lést 13. apríl 1978 og Valgerður Tómas- dóttir, sem lifir son sinn. Þann 8. febrúar 1959 kvæntist Svanur Stellu Þoryaldsdóttur og eiga þau þrjú böm, Ágúst, lögreglu- maður í Hafnarfírði, Svandísi, sem er matreiðslumaður og Þorvald. Snemma beindist hugur Svans að veitingarekstri og matreiðslu. Á sjötta áratugnum var hann við nám í matreiðslustörfum og hótelrekstri Tekniskeskole í Álaborg í Dan- mörku, og lauk þaðan flögurra ára námi í aprfl 1957. Fyrstu árin að námi loknu réðist hann til Skipa- deildar SÍS, þar sem hann starfaði sem kokkur á skipum þess. Þá starfaði hann um tíma í Þjóðleik- húskjallaranum í kringum 1960 hjá Þorvaldi Guðmundssyni, sem þá rak Leikhúskjallarann, og tókst með þeim vinátta sem haldist hefur æ síðan. Upp úr 1960 var Svanur ráðinn yfírmaður eldhúss Loftleiða á Keflavíkurflugvelli og gegndi því starfí þar til hann réðist hingað til Þjóðleikhússins. Svanur tók við rekstri Leikhús- kjallarans í september 1973 og rak hann til dauðadags að frátöldu einu og hálfu ári sem hann veitti „Sjall- anum“ á Akureyri forstöðu. Þá átti Svanur lengi sæti í stjóm Félags matreiðslumanna, sat í samninga- nefndum þess og í prófnefndum Hótel- og veitingaskólans. Það verður að segjast eins og er að rekstur Leikhúskjallarans fór honum afar vel úr hendi. Hann var slfellt að koma fram með nýjar hugmyndir sem gætu leitt til auk- innar aðsóknar og aukinnar ánægju fyrir gesti leikhússins. Hann hafði líka frumkvæði að mörgum hug- myndum um að tengja saman veitingareksturinn og leikhúsið og má þar meðal annars nefna „Leik- húsveisluna" þar sem leikhúsgest- um er boðið upp á mat fyrir sýningu, desertinn í hléinu og dans á eftir. Þetta fyrirkomulag varð strax mjög vinsælt og fara vinsæld- ir þess sívaxandi og má sem dæmi nefna að matargestum Leikhús- kjallarans hefur flölgað um ríflega 100% nú á þessu hausti. Það er ljóst að Svanur hefur markað rekstri Leikhúskjallarans farveg sem við eigum eftir að njóta góðs af um langa framtíð. Kynni okkar Svans hófust um það leyti sem hann byijaði störf hér við Þjóðleikhúsið, en þá var ég stjómarmeðlimur í Félagi íslenskra leikara, en það félag hefur um langt skeið haldið flesta félagsfundi sína í Þjóðleikhúskjallaranum. Og enn jukust kynni okkar þegar ég tók við mínu núverandi starfí. Það fór ákaflega vel á með okk- ur, ekki síst vegna þess að hugmyndir okkar um veitingarekst- t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HAUKUR MAGNÚSSON, Tunguvegi 3, Hafnarfirði, lést miövikudaginn 18. nóvember. Kristín Þorleifsdóttir, Bjami Hauksson, Gyða Hauksdóttir, Auður Hauksdóttir, Þráinn Hauksson, Hulda Hauksdóttir og fjölskyldur. t Faðir okkar, GUNNAR ÞORVARÐSSON rafeindavirkjameistari, Stífluseli 8, Reykjavfk, andaðist í Landspítalanum að kvöldi 18. nóvember. Lórus Gunnarsson, Árni Gunnarsson, Hrafnhildur Gunnarsdóttir. t Móöir okkar, JÓNA ÁSGEIRSDÓTTIR, Álfaskeiði 64, Hafnarfirði, andaðist í St. Jósefsspítala miðvikudaginn 18. þ.m. Bryndi's Matthíasdóttir, Valgerður Jónsdóttir, Kristfn Jónsdóttir, Kristinn Jónsson, Ástrún Jónsdóttir, Guðlaug Jónsdóttir. t Eiginkona mín, móðir, tengdamóöir, amma og langamma, STEINÞÓRA SIGURBJÖRNSDÓTTIR, Dvalarheimilinu Höfða, áður húsfreyja Þyrli, sem lést 10. nóvember veröur jarðsungin frá Hallgrímskirkju í Saurbæ laugardaginn 21. nóvember kl. 14.00. Sigurður Helgason, Sigrún Sigurðardóttir, Ingvi Böðvarsson, Helgi Sigurðsson, Laufey Sigurðardóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Ingvar Ingvarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ur í leikhúsi lágu að verulegu leyti saman. Þá deildum við sömuleiðis ýmsum áhugamálum. Við unnum mjög náið saman að tölvuvæðingu Leikhúskjallarans og var mjög skemmtilegt hvað hann var fljótur að tileinka sér þessa nýju tækni og kom oft og tíðum með nýjar hug- myndir sem til bóta voru á þessu sviði. Við höfum daglega samband í gegnum tölvuna og nú síðast viku áður en hann lést. Svanur var. hressilegur í fram- komu og spaugsyrði voru honum ætíð nærtæk. Það duldist engum sem samskipti höfðu við Svan að þar fór maður sem vissi hvað hann vildi og ætlað sér að gera, enda var hann vakinn og sofínn í starfi sínu og ætíð opin fyrir nýjum hugmynd- um. í rúm §órtán ár hefur Svanur átt við erfíðan sjúkdóm að stríða kl. 14.00. Bjarni Lárusson, Svanlaugur Lárusson, Helga Lárusdóttir, Lea Rakel Lárusdóttir, Hrefna Lárusdóttir, Ebba Lárusdóttir, Gunnlaugur Lárusson, og honum var fullljóst að stundin gæti runnið upp hvenær sem væri. Aldrei lét hann þetta þó bitna á þeim sem hann umgekkst, hann gekk ótrauður til vinnu sinnar og var jafn lifandi og fijór í sínu starfí eins og ekkert amaði að honum. Það er því mikil eftirsjá að Svani Ágústssyni og skarð hanshér í leik- húsinu verður vandfyllt. Ég veit að ég mæli fyrir munn allra hér í leik- húsinu þegar ég færi eiginkonu hans og bömum og fjölskyldu hans allri innilegar samúðarkveðjur. Gísli Alfreðsson. í dag, 20. nóvember, verður til hinstu hvflu borinn frændi okkar, Svanur Ágústsson, framkvæmda- stjóri. Hann lést í Landspítalanum .þann 13. nóvember, eftir stutta sjúkrahúslegu. Svanur fæddist í Reykjavík þann 21. október 1933 og var hann því aðeins 54 ára gamall er hann lést. Hann var sonur hjónanna Valgerðar K. Tómasdóttur og Ágústar Jóns- sonar frá Varmadal á Kjalamesi, lögreglumanns og síðar heildsala í Reykjavík. Eftir skilnað foreldra sinna ólst Svanur upp ásamt systur sinni, Björgu, hjá móður þeirra, sem lengst af sá fjölskyldunni farborða með saumaskap. Eignuðust þau systkini tvær hálfsystur, Díönu og Hrafnhildi, úr seinna hjónabandi Ágústar. Valgerður giftist síðar Jóhannesi Kolbeinssyni, smiði og fararstjóra hjá Ferðafélagi íslands. Um tvítugt hélt Svanur út til náms og lærði hann til matreiðslu- meistara í Álaborg í Danmörku. Strax að loknu námi starfaði hann um hríð sem bryti á millilandaskip- um þar til hann réðst til ábyrgðar- starfa til Loftleiða hf., þar sem hann starfaði í átta ár. Síðustu Hildigunnur Hallsdóttir, Inga Bjartmars, Leó Guðbrandsson. Agnar Muller, Eggert Magnússon, Þorgelr Ibsen, Hanna Ágústsdóttir. sautján árin starfaði Svanur sem framkvæmdastjóri Þjóðleikhúskjall- arans með stuttu hléi þegar hann tók að sér rekstur Sjálfstæðishúss- ins á Akureyri. Stuttu eftir heimkomuna frá Danmörku steig Svanur hið mesta gæfuspor er hann árið 1959 kvænt- ist eftirlifandi eiginkonu sinni, Stellu Þorvaldsdóttur. Eignuðust þau þijú böm: Ágúst, f. 1960, Svandísi, f. 1963, og Þorvald, f. 1965. Það var árið 1974 sem veikindi Svans hófust, sem að lokum drógu hann til dauða. í blóma lífsins, að- eins 41 árs að aldri, fékk Svanur hjartaáfall sem kallaði á bráðan hjartauppskurð I London. Starfs- gleði og ósérhlífni Svans lýstu sér best í því, að hann var kominn til fullra starfa áður heilsa hans gaf tilefni til. Þessi ósérhlífni, ásamt því að Svanur átti það til að tala með nokkurri léttúð um sjúkdóm sinn, gerði það að verkum að fáir utan nánustu fjölskyldu gerðu sér ljóst hvert steftidi síðustu mánuð- ina. Fráfall Svans kom því mörgum á óvart. Það er kannski einkenn- andi fyrir skapgerð hans, að nokkrum dögum fyrir andlát sitt átti hann tal við systur sína um matarboð um jólin, á sama tíma og hann trúir konu sinni fyrir því, að hann sé hræddur um að þetta verði sín síðasta ferð á sjúkrahúsið. Eng- um sem til þekkir duldist hversu mikill styrkur það var Svani í veik- indum hans að hafa Stellu sér við hlið. Dugnaður hennar og rósemi eru öllum öðrum mikill styrkur á þessum erfíða tíma. Við systkinin eigum margar skemmtilegar minningar tengdar Svani frænda, allt frá því er hann klæddist jólasveinabúningi og skreið inn um stofugluggann á að- fangadagskveldi fyrir u.þ.b. 25 árum með stóran gjafapoka á bak- inu. Það var alltaf líf og §ör þar sem Svanur fór, enda hafði hann sérstakt lag á að auðga samveru- stundimar með góðri frásagnar- og kímnigáfu. Hann var mikil félags- vera og hafði yndi af samskiptum við aðra. Einnig átti Svanur mörg áhugamál og það var fátt sem við gátum ekki rætt við hann um. Seinni ár áttu næringarfræði og náttúrulækningar hug hans allan og viðaði hann að sér miklum fróð- leik um þessi mál með lestri er- lendra tímarita. Það var ekki aðeins fróðlegt að sitja og hlusta á hann útskýra mikilvægi næringarfræð- innar; það var ekki síður ánægjulegt að sjá hversu mikla ánægju hann fékk út úr því að geta miðlað öðrum af þekkingu sinni. Svanur var einnig gæddur mikl- um tónlistarhæfíleikum og minn- umst við systkinin margra góðra stunda þegar Svanur tók lagið með okkur og spilaði undir á gítar. Það voru ekki mörg hljóðfæri sem Svan- ur gat ekki fljótlega náð lagi úr. Þó var gítarinn honum alltaf kær- astur. Þessir tónlistarhæfíleikar komu sér einnig vel á námsárunum í Danmörku, en þá spilaði Svanur um tíma með danshljómsveit og gat þannig unnið sér inn einhvem auka- pening ásamt því að eiga góðar stundir með góðum félögum. Auk tónlistarinnar hafði Svanur yndi af útiveru og áttu fjölskyldur okkar ótaldar ánægjustundir saman við stangveiði eða siglingar á báti sem hann smíðaði í félagi við föður okk- ar. Allir sem kynntust Svani og Stellu vita að þau voru höfðingjar heim að sækja. Jafnvel þótt fyrir- vari heimsóknar okkar væri oft á tíðum enginn, var Svani hægt um vik að töfra fram hina gómsætustu rétti úr eldhúsinu á örskömmum tíma. Það brást aldrei að móttök- umar voru hlýjar og hjartanlegar og aldrei fundum við annað en að við komum á besta mögulega tíma. Þetta á jafnt við eftir að veikindi og vanlíðan Svans ágerðust. Við viljum ljúka þessum fátæk- legu orðum með því að votta konu hans, bömum og bamabömum, móður hans og systrum, okkar dýpstu samúð. Minningar um góðan dreng munu lifa áfram og verða öllum vandamönnum og vinum huggun harmi gegn. Frændsystkini t Útför BJARNA ÓSKARS FRÍMANNSSONAR fyrrverandi oddvita frá Efri-Mýrum, Austur-Húnavatnssýslu, fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 21. nóvember kl. 14.00. Sætaferö frá Fremstagili, Blöhduósi, aö morgni sama dags. Valgerður Bjarnadóttir, Karl G. Sigurbergsson. t Eiginmaður minn, faöir, tengdafaðir, sonur, bróðir og afi, SVANUR ÁGÚSTSSON matreiðslumeistari, Espigerði 2, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, föstudag, 20. nóvem- ber kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd eða Minningarsjóð Landspít- alans. Stella Þorvaldsdóttir, Ágúst Svansson, Guðfinna Kristjánsdóttir, Svandfs Svansdóttir, Oddur Vilmundarson, Þorvaldur Svansson, Valgerður Tómasdóttir, Björg Ágústsdóttir og barnabörn. t Útför systur minnar, KRISTÍNAR HREFNU ÞORFINNSDÓTTUR (BÍBÍ) frá Baldurshaga, verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, föstudag, kl. 13.30. Eva Þorfinnsdóttir. t Útför móður okkar og tengdamóöur, ÁSTU PÁLSDÓTTUR, Silfurgötu 1, Stykklshólmi, fer fram frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 21. nóvember

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.