Morgunblaðið - 20.11.1987, Side 48

Morgunblaðið - 20.11.1987, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987 fclk í fréttum COSPER (&IPIB ItH ■■Ml* COSPER 10599 Það er rétt hjá yður, frú, ég hef farið húsavillt með vaguinn. SJONVAEPSTJORNUR Larry Hagman hjálpar reyk- ingamönnum inur vor Larry „JR“ Hag- man er drengur góður og vill öllum mönnum hið besta. Hann stendur nú fremstur í flokki þeirra er vilja hjálpa öðrum að hætta að reykja, enda sjálfur fyrrverandi reykingamaður. Hefur hann nú ásamt sérfræðingum IJCLA háskólans barið saman klukkutíma langt myndband sem ber heitið „Hættið að reykja fyrir lífstíð“. Það er Karl Lorimar fyrirtækið sem sér um útgáfuna og er útgáfu- dagurinn áætlaður 29. apríl. Reuter Fawn var mætt og lét sér ekki nægja minna en súkustæði. Barbara er djúpvitur kona og munar ekki um að gefa aðdáendum sínum góð ráð. ÁSTARÆVINTÝR Barbara gefur góð ráð Barbara Cartland, sú aldna heið- ursfrú og ástarsagnaritari varð um daginn að 'setja ofan í við einn aðdáenda sinna sem hafði tekið bækur hennar aðeins of alvarlega. Hafði hin 14 ára gamla Keeley Raven hlaupist á brott með sér helmingi eldri manni vegna óánægju foreldra sinna með ást- manninn. „Ef þú læsir bækumar mínar gaumgæfilegar," sagði sú vísa Barbara, „þá myndir þú vita að það er mjög nauðsynlegt að þú hlustir á það sem foreldrar þínir segja. Þér til huggunar get ég sagt að 14 ára aldursmunur er alls ekki svo mikið, það er til dæmis sami aldursmunur og á Karli Bretaprinsi og Díönu stjúpbamabami mínu.“ Ekki fylgdi sögunni hvort Keeley sneri aftur í heimahús. ÖRYGGISMÁL BANDARÍKJANNA Fawn kveður Caspar Hún hefur síður en svo glatað áhuganum á málefnum er snerta öryggi Bandaríkjanna hún Fawn Hall fyrrum ritari og samsæ- riskona Olivers North. En Oliver varð sem kunnugt er orðið uppvís að ólöglegri vopnasölu til írana og ólöglegum fjárgreiðslum til Kontra- skæruliða og naut við yfírhylmingar dyggrar aðstoðar ritarans síns hennar Fawn. Hún missti vinnuna sökum þessa og er lítið vitað um hvar hún heldur sig. Því kættist margur maðurinn er hún mætti galvösk til kveðjuathafnarinnar er Caspar Weinberger fyrrum vamar- málaráðherra Bandaríkjanna var settur af við Pentagon nú fyrr í vikunni. Stóð Fawn þar fremst í flokki og lét ekki kuldagoluna á sig fá, frekar en aðrir gestir. _cu. ekki blikunT SV° á „Harrison Ford var feikilega góður í „Moskítóströndinni, þannig vil ég vera,“ bætti Sting við og setti upp gleraugun. UTLIT Sting Harrison Eastwood Líkumar á því að móðir popp- arans Sting myndi þekkja son sHjn aftur fara minnkandi með hveijum deginum sem líður. Þær em reyndar orðnar hverfandi og lái henni hver sem vill er hann sér þessar myndir. Þær eru tekn- ar nú síðsumars og sýna okkur mann sem vill fylgjast með tískunni, er kominn með hálfsítt hár, hattkúf og þriggja daga skeggtjásur. En annað hvort eru allir ungir menn sem fylgjast vilja með tískunni eins eða honum Sting okkar hefur fatast flugið. Hvað er orðið af reggírokkaranum Sting með broddana sína sem með útliti sínu var öðrum til eftir- breytni, spyija menn nú. Hann hieypur nú á eftir tískudillunum í stað þess að skapa þær og apar eftir bandarískum kvikmynda- stjömum. Þeir Clint Eastwood og Harrison Ford myndu reka upp stór augu ef þeir mættu Sting á götu eða í veislu og myndu halda sig vera að horfa í spegil. Því hann Sting okkar er eins og klipptur út úr myndum þeirra fé- laga. En hvort einskær kvik- myndaáhugi ræður ferðinni er annað mál. -

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.