Morgunblaðið - 20.11.1987, Side 55

Morgunblaðið - 20.11.1987, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987 55 Ég þakka innilega öllum þeim jjölmörgu, sem glöddu mig margvíslega og sýndu mér sóma á niræÖisafmœli mínu. Guðrún Valdimarsdóttir. Þessir hringdu . . Fyrirspurn um skattheimtu Inga Helgadóttir hringdi: „Þegar staðgreiðslukerfí skatta verður tekið upp á nýju ári, hvem- ig verður þá skattheimtu hagað í sambandi við fyrirframgreidd laun og laun sem greidd eru eft- irá? Ef við gefum okkur að fyrsta greiðsla fari fram 1. janúar fyrir alla landsmenXLþá eru þeir sem fá sín laun eftirá að greiða skatt af desemberlaunum 1987. Ef hins vegar fyrsta greiðsla færi fram 1. febrúar þá fá þeir sem fá laun sín fyrirfram janúarlaunin skatt- frjáls. Ég hefði gaman af að vita hvemig þessu verður háttað, veit einhver svarið?" Hendingin ekki eftir Bólu-Hjálmar Kvæða unnandi „Ég hef haft mjög gaman af spumingaþáttum Ómars Ragn- arssonar á sunnudagskvöldum og þess vegna þótti mér leiðinleg skyssan sem honum varð á í síðasta þætti. Þar sagði hann að hendingin „Fátæktin var mín fylgikona" væri eftir Bólu-Hjálm- ar. Hið rétta er að hendingin er eftir sr. Jón Þorláksson á Bægisá og er í Hjónaversi sem hann orti árið 1812. Kvæðið er þannig: Fátæktin var mín fylgikona frá því ég kom í þennan heim. Við höfum lafað saman svona sjötígi vetur fátt í tveim. Hvort við skiljum nú héðan af hann veit er okkur saman gaf. Gamlir bílar - varahlutir HJ. hringdi: „Nú er mikið um að bflum sem komnir em til ára sinna sé fleygt og er talað um að hvergi sé pláss fyrir þá. Fjölmargir bflar hafa verið teknir úr umferð að undan- fömu og era margir þeirra eflaust í þokkalegu ástandi. Fyrirtækið Vaka segist ekki geta keypt alla þessa bfla þar sem þeir hafi þegar nóg af bflum til niðurrifs. Væri ekki tilvalið að leyfa þeim sem áhuga hafa að hirða varahluti úr þessum bflum endurgjaldslaust. Þetta mætti framkvæma þannig að menn gætu skilið eftir ónýta bfla á einhverjum tilteknum stað’. Þar gæfist svo öllum kostur á að hirða úr þeim varahluti í nokkum tima áður en hræin væra flutt á haugana. Góðar vélar, nýleg dekk og nýtilegir varahlutir fara nú á raslahaugana engum að gangi. Ég tel að mikil verðmæti fari oft forgörðum þegar bflum era settir á haugana og ætti það ekki að skaða hagsmuni neins þó mönnum gæfist kostur á að hirða úr þeim nothæfa hluta." Faðirinn - athyglisvert leikverk Leikhúsgestur hringdi: „Ég er sammála grein Valnýjar um uppfærslu Leikféíags Reykjavíkur á Föðumum og hvet ég fólk til að sjá þetta verk. Við lifum í auglýsingaþjóðfélagi þar sem alls konar dægurflugum er mikið hampað og sá þykir mestur er hæst galar. Minna fer hins vegar fyrir alvarlegum listamönn- um sem hafa metnað fyrir því sem þeir gera. Uppfærslan á Föðum- um er Leikfélaginu til sóma. Hér er um að ræða sígilt og djúphugs- að verk sem hlýtur að höfða sterkt til allra." Hanski Brúnn kvenhanski tapaðist í Miðbænum á laugardag. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 36463 eða 10500. Seðlaveski Brúnt seðlaveski tapaðist í Stjömubíói eða þar í grennd sl. mánudag. Finnandi er vinsamleg- ast beðinn að hringja í síma 29832. Frjálslyndi eða stjórnlyndi Til Velvakanda. Talsmenn þeirrar stefnu, að bjór verði áfram aðeins seldur í fríhöfn- inni á Keflavíkurflugvelli, smyglað inn í landið og fluttur auk þess inn af farmönnum í einhverjum mæli, halda mjög á lofti þeirri yfirlýsingu WHO (Alþjóðaheilbrigðisstofnunar- innar) að aukið framboð á áfengi stuðli að aukinni neyslu þess. Við fyrmefnda yfirlýsingu hef ég út af fyrir sig ekkert að athuga. Aukið framboð á hveiju sem vera skal stuðlar trúlega að aukinni neyslu. Hins vegar skortir alfarið rök fyrir því að draga af þessu þá ályktun, að ef hægt væri að kaupa bjór þar sem annað áfengi er selt, myndi áfengisneysla aukast. Skal ég nú taka dæmi til að skýra mál mitt. Hér á landi er kaffí víðast á boðstól- um. Bæði í heimahúsum, á vinnu- stöðum og á opinberam stöðum. Þeir sem á annað borð drekka kaffi HEILRÆÐI Sjómenn Kynnið ykkur staðsetningu handslökkvitækja um borðí skipi ykkar. Kynnið ykkur notkun þeirra. Kynnið ykur ástand þeirra. Munið: Hafið ávallt greiðan aðgang að handslökkvitækj- um, það er aldrei að vita hvenær grípa þarf til þeirra. drekka því líklega heldur meira af því en þeir myndu gera stæði þeim kaffi ekki svo víða og.oft til boða. Setjum sem svo að íslendingar færa einnig að bjóða upp á te alls staðar þar sem kaffi er boðið. Er líklegt að hver og einn drykki þá bolla af tei til viðbótar því kaffi sem hann drykki hvort eð er? Ég tel óhætt að svara því neit- andi. Við höfum aðeins einn líkama. Því era okkur takmörk sett varð- andi það magn matar og drykkjar sem við getum innbyrt hveiju sinni. Ég ætla að sama lögmál gildi hvað áfengi varðar. Einungis sé hægt að neyta ákveðins magns hvetju sinni. Valið stendur því milli teg- unda en ekki möguleikans á að neyta þeirra allra samtimis. Ekki fæ ég séð að það sé verra að neyta bjórs en sterkari áfengistegunda. Finnst mér því illskiljanlegur sá ótti sem sumir láta f ljós við að unglingar drekki bjór. í mínum augum era þeir betur settir með bjór en vodka, sem er vinsæll drykk- ur hjá íslenskum unglingum. I tali bjórandstæðinga finnst mér gæta þeirrar forsjárhyggju og stjómlynd- is sem kennd er við vinstri stefnu í stjómmálum. Þeirrar stefnu að treysta ekki einstaklingunum til að kunna fótum sínum forráð og ráða sjálfir sínum ráðum, en ætla hinu opinbera m.ö.o. stjómmálamönnum að taka fyrir þá ákvarðanir í stóra sem smáu. Hvað er hið opinbera, embættismenn ríkis og bæja, stjómmálamenn, annað en misvitrir einstaklingar sem hafa öðlast meiri völd en allur almenningur. Þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins vil ég benda á að hugsa aðeins lengra en sem nemur yfirborðinu f þessu máli og átta sig á hvort þeir álíti það í samræmi við stefnu Sjálfstæð- isflokksins að stjómmálamenn ákveði hvaða tegundir áfengis sé leyfilegt að selja í Áfengis- og tó- baksverslun ríkisins. Gyða Magnúsdóttir /t® n Mjúk satináferð með Kópal Glitru 1 Kópal Glitra innimálningin hefur gljástig 10, sem gefur fallega satináferð. Heimilið fær rnildan og sérlega hlýlegan blæ, því birtan endurkastast ljúflega. Samspil ljóss og skugga verður áhrifamikið með Kópal Glitru. Kópal Glitra hefur hæfilegan gljáa til að henta á öll herbergi hússins. Viljir þú hærri gljáa á veggi sem meira mæðir á skaltu velja Kópal innimálningu með hærra gljástigi, s.s. Kópal Flos eða Kópal Geisla. ^TDK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.