Morgunblaðið - 20.11.1987, Side 57

Morgunblaðið - 20.11.1987, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987 57 FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR OG SUND Sjö með farseðil á Olympíuleikana Nokkrireru ekki lángtfrá OL-lágmörkunum SJÖ íslenskir frjálsíþrótta-og sundmenn hafa náð Olympíu- lágmörkunum fyrir Olympíu- leikana í Seoul 1988. Nokkrir eru ekki langt frá þeim lág- mörkum sem íslenska olympíunefndin hefur sett. Spjótkastarinn íris Grönfeld hefurt.d. náö alþjóðlega lág- markinu, en ekki því íslenska. Eðvarð Þór Eðvarðsson er einu sundmaðurinn sem hefur náð lágmarkinu. Nokkrir súndmenn eru ekki langt frá því. Spjótkast- ararnir Einar Vilhjálmsson og Sigurður Einarsson hafa náð lág- markinu. Þriðji spjótkastarinn, Sigurður Matthíasson, er líklegur til að ná því. Kringlukastaramir Vésteir.n Haf- steinsson og Eggert Bogason hafa náð lágmarkinu og einnig Helga Halldórsdóttir, 400 m grinda- hlaup, og Ragnheiður Ólafsdóttir, 3.000 og 10.000 m hlaup. Oddur Sigurðsson, sem hefur náð góðum árangri á ÓL í Moskvu og Los Angeles, hefur mikinn hug á að komast til Seoul. Oddur hefur átt við meiðsli að stríða tvö undan- farin ár. Hann er að fara byrja að æfa á fullu aftur. Þeir sundmenn sem eiga mögu- leika á að komast tiUSeoul með Eðvarð Þór, eru: Ragnar Guð- mundsson, Ragnheiður Runólfs- dóttir, Bryndís Ólafsdóttir, Hugrún Ólafsdóttir, Magnús Már ólafsson og Amþór Ragnarsson. ENGLAND Arsenal þarf aðferðast Deildarbikarmeistarar Arsenal, sem hafa verið heppnir að dragast á heimavöll í deildarbikar- keppninni, eða fímm sinnum í röð, drógust gegn Sheffíeld Wednesday í 8-liða úrslitum deildarbikarkeppn- innar. Arsenal leikur ekki á Highbury, heldur þurfa leikmenn liðsins loksins að ferðast og leika á Hillsborough í Sheffield 18. janúar. Dregið var í deildarbikarkeppninni í gær og getur farið svo að þrjú af kunnustu félagsliðum Englands komist í undanúrslit. Arsenal, Man. Utd. og Everton. Manchester United leikur gegn Oxford, sem fékk heimaleik. Ever- ton fékk aftur á móti heimaieik gegn Manchester City, sem hefur slegið Nottingham Forest og Wat- ford út úr keppninni. Hattaborgarliðið Luton leikur gegn sigurvegaranum í leik Reading og Bradford. Luton ætti að komast áfram í undanúrslitin. Suh heimsótti forsetann Morgunblaöiö/Julius Ryp Kyu Suh, formaður handknattleikssambands Suður-Kóreu, var staddur hér á landi á dögunum eins og við sögðum frá. Hann heimsótti meðal annars forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri af Suh, Vigdísi, eiginkonu formannsins og Jóni Hjaltalín Magnús- syni, formanni handknattleikssambands íslands. Suh hélt af landi brott á þriðjudag — ásamt Jóni Hjaltalfn. Þeir eru nú á ráðstefnu í Dortmund í Vestur-Þýskalandi, þar sem rætt er um mótahald og skipulagningu landsleikja næstu tvö árin. VEGGTENNIS || BLAK Keppendur á fyrsta kvennamótinu í veggtennis. Enn tapa Víkingar í karlaflokki Víkingar virðast ekki ætla að ríða feitum hesti frá fslands- mótinu í blaki karla í vetur. Liðið tapaði enn einum leiknum á mið- vikudaginn og að þessu sinni gegn HK í Digranesi. HK menn voru mun betri í leiknum og unnu sanngjamt 15:7, 15:10 og 15:7. Sömu lið átt- ust við í kvennaflokki og þar vann Víkingur með sömu tölum og lyktir karlaleiksins urðu. Blikastúlkur unnu ÍS 15:12, 15:8 og 17:15. Síðasta hrinan tók rúma hálfa klukkustund. FRÆÐSLUMAL Jim Parry með fyrir- lestur um Ólympíu- leikana JIM Parry, einn þekktasti fræðimaður í íþróttum á Bret- landseyjum og fyrrum leikmað- ur með knattspyrnuliðinu Derby, flytur aðalfyrirlesturinn » r á fyrsta fræðslufundi fræðslu- ráðs Ólympíunefndar íslands, sem verður á morgun, laugar- dag, og hefst klukkan 17 í stofu 101 í Odda, húsnæði hugvís- indadeiidar Háskóla íslands. Parry, sem er prófessor við íþróttadeild háskólans í Leeds í Englandi og mjög eftirsóttur fyrir- lesari víða um heim, verður með fyrirlestur um Ólympíuleika í nútíð og framtíð og þær hugsjónir, sem Olympíuleikamir byggjast á f ljósi raunveruleika samtimans. Þá munu Valdimar Ömólfsson, formaður ftæðsluráðs ólympíu- nefndar, Gísli Halldórsson, forseti ólympíunefndar og Sigmundur Guðbjamason, háskólarektor, flytja ávörp. Að auki flytja Ingólfur Hannesson og Þorsteinn Einarsson stutt erindi. Ingólfur fjallar um starfsemi og aðstöðu alþjóða ólympíunefndarinnar í Grikklandi og Þorsteinn ræðir um þátt íþrótta í fomum hátíðum. Öllum er heimill aðgangur og að- gangseyrir enginn. Sérstaklega er þeim boðið er tekið hafa þátt f . Ólympíuleikum, þjálfað íþróttafólk til keppni á leikunum eða starfað. ' að þátttöku íslands að öðru leyti. UPPSKERU- HATIÐ VALS verðurhaldiní sunnudaginn 22. nóvember kl. 14.00. Velunnarar, félagar og foreldrareru hvattir til að mæta. Stjóm knattspd. Vals. Ingrid og Margrét unnu kvennamótið FYRSTA kvennamótið í vegg- tennis var haldið í Veggsport HF fyrir stuttu. Það var það Clarinsumboðið sem stóð fyrir því. Keppt var bæði í „squash" og „racketball" og í fyrrgreindu greininni sigraði Ingrid Svenson, en Helga B.Jónsdóttir varð önnur. í síðamefdu greininni sigraði Margrét Jónsdóttir, en Ragnheiður Víkingsdóttir varð önnur. Keppendur í mótinu voru 15 talsins og sá Claijns um verðlaun til handa sigurvegurum. Stjömu-HI-TEC-mótið í „squash" fór fram um sl. helgi. 34 keppendur mættu til leiks. Sigurður G. Sveins- son sigraði Hörð Þorsteinsson örugglega í úrslitalejk. Þess má geta að þetta var í fyrsta skipti sem Hörður vinnur ekki mót sem hann tekur þátt' í. Á sunnudaginn fer fram mót í „raguet" í Dansstúdíó Sóleyjar kl. 13. SPAÐUILÍÐIN SPJLAÐU MEÐ Hægt er að spá í leikina símleiðis og greiða fyrirmeð kreditkorti. Þessi þjónusta er veitt alla föstudaga frá kl. 9:00 til 17:00 og laugardaga frá kl. 9:00 til 13:30. Síminn er 688 322 ISLENSKAR GETRAUNIR - eini lukkupotturinn þar sem þekking margfaidar vinningsiíkur. Leikir 21. nóvember 1937 K 1 X 2 1 Arsenal - Southampton 2 Charlton - Coventry 3 Luton - Tottenham 4 Oxford - Watford 5 Portsmouth - Everton 6 Q.P.R. - Newcastle 7 West Ham - Nott’m Forest 8 Wimbledon - Man. United 9 Blackburn - Crystal Palace 10 Leicester - Bradford 11 Man. City - Birmingham 12 Plymouth - Middlesbro © The Football League

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.