Morgunblaðið - 19.12.1987, Blaðsíða 19
r»Óf>r wa\rri''jrjn CJT A na A f>TT h T mn A T<TTXTTr>PA»ff „
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987 19
Fjölskyldugnðsþjónusta
í Laugarneskirkju
Framtíðarsýnir sjáenda
eftír Guðmund S. Jónasson
Fjölskylduguðsþjónusta verð-
ur í Laugarneskirkju sunnudag-
inn 20. des. kl. 11. í mörg ár
hefur síðasti sunnudagurinn i
aðventu verið haldinn hátíðlegur
með þessum hætti i kirkjunni
enda vigsludagur hennar.
í vetur hafa guðsþjónustumar á
sunnudögum farið þannig fram að
böm og fullorðnir hafa komið sam-
an til kirkju kl. 11. Þegar að
prédikun hefur komið hafa börnin
farið með leiðbeinendum sínum nið-
ur í Safnaðarheimili kirlqunnar og
fengið fræðslu í tveimur aldurs-
hópum. Þessi breyting hefur mælst
mjög vel fyrir enda hefur kirkjan
verið nær þéttsetin alla sunnudaga
haustsins. En nú síðasta sunnudag
fyrir jól verða allir saman í einni
ijölskylduathöfn. Kveikt verður á
öllum kertum aðventukransins við
hátíðlega athöfn. Bamakór kirkj-
unnar syngur og fermingarbömn
aðstoða í guðsþjónustunni.
Jólaguðsþjónustumar í Laugar-
neskirkju verða þrjár. Eins og endra
nær verður sérstaklega vandað til
tónlistar í guðsþjónustunni. Á að-
fangadag kl. 18 mun Bamakór
kirkjunnar ganga syngjandi inn í
kirkjuna með kertaljós. Einnig
munu Inga Þóra Geirlaugsdóttir og
Laufey G. Geirlaugsdóttir syngja
tvísöng. Á jóladag kl. 14 flytur
Kirkjukórinn kantötuna In Dulce
Jubilo eftir Buxtehude. Og í mess-
unni annan jóladag kl. 14 mun
Kristinn Sigmundsson syngja.
Kirkjukórinn syngur í öllum guðs-
þjónustunum undir stjóm organist-
ans Ann Toril Lindstad. Á
aðfangadag mun organistinn leika
á orgel kirkjunnar í 25 mín áður
en hátíðin gengur í garð.
Jón D. Hróbjartsson
sóknarprestur
IÐUNN hefur gefið út bókina
Framtíðarsýnir Sjáenda — Sýnir
Nostradamusar og aðrir spádóm-
ar og er hún eftir Guðmund S.
Jónasson. í kynningu útgefanda
á bókinni segir:
Framtíðarsýnir sjáenda hefur að
geyma ýmsa spádóma er varða ís-
land og framtíðarhlutverk íslensku
þjóðarinnar þó að meginefni hennar
séu spádómar eins mesta spámanns
allra tíma, Nostradamusar.
Spádómar Nostradamusar hafa
vakið furðu og eiga vísindamenn
erfltt með að útskýra framsýni
hans. Nostradamus spáði m.a. fyrir
um frönsku stjómarbyltinguna,
Adolf Hitler og nasismann, kjam-
orkuárásimar á Japan, friðarhreyf-
inguna, morðíð á Olof Palme,
Persaflóastríðið og útbreiðslu al-
næmis, svo eitthvað sé nefnt.
Nostrádamus var læknir að
mennt og gaf út sfna fyrstu spá-
dómsbók árið 1955. Skömmu eftir
útkomu hennar fóm ýmsir spádóm-
ar hans að rætast og í dag er talið
að meira en helmingur þeirra hafl
komið fram. Spádómar hans varð-
andi nánustu framtíð em ekki síður
nákvæmir. Þeir benda á erfíða tíma
framundan fyrir mannkynið. í þeim
hildarleik gegnir lítil eyja í Norður-
höfum mikilvægu hlutverki og
þaðan kemur merkur leiðtogi.
Framtíðarsýnir sjáenda segir
jafnframt frá ævafomum spádóm-
um Hópi-indíána. Vikið er að
spádómi Gamla testamentisins um
Eldeyjuna í vestri og greint frá
kínverskum spádómi um íslend-
inga. Einnig er greint frá kínversk-
um spádómi Pýramídans mikla og
á hvem hátt þeir vísa á ísland."
- hátíð blómanna
plöntursetjajólablae
numhverfið.
nikið úrval jólabloma
jólin eru líka
Fallegar i
heimilin og u
Eigum mil
Hvasintur
, Þetta ómissanHl
faiiegtogtyi'k
Okkar ræktun
er
húsin jóiailmi.
okkar verð. i
1 Sýpris
jólastjaman
Ný sending
konnin af 1 • fi°kkí
jólastjörnum.
Faiiegar potta-
plöntur í tiiefm
jóla. Prífastvei
t.d. í stofu eða
qróöurskáia.
Alparos
Blómstrandi
Alparós er a
falleg-
fagleg þjónusta
Fagleg þekking
68 97 70
68 90 70. Krínglunm
lurhúsinuvn