Morgunblaðið - 19.12.1987, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987
mjómsveitin Model.
Ahorfendur voru nemendur 9. bekkjar Hagaskóla.
Rás 2
Rokkaðí
saumastofunni
Saumastofa Ríkisútvarpsins öðl-
aðist líf einn eftirmiðdag í
siðustu viku þegar þátturinn „Á
milli mála“ á Rás 2 var helgaður
íslenskri tónlist. Voru haldnir um
Qögurra tíma langir tónleikar í
beinni útsendingu og kom fjöldi
tónlistarmanna fram; hljómsveitim-
ar Grafík, Greifamir, Model og
Rauðir Fletir. Auk þeirra stigu á
svið saumastofunnar; Hörður
Torfason, Bubbi, Megas, Bjartmar
Guðlaugsson, Pálmi Gunnarsson,
Magnús þór Sigmundsson og Jón
Ólafsson en þrír hinir síðastnefndu
sungu nokkur bamalög. Kynnir á
tónleikunum var Laddi og brá hann
sér í allra kvikinda líki og tók auk
þess lagið.
ÍSLENSKI JASSBALLETTFLOKKURINN
ÁFRAM VEGINN
Fyrsta sýning íslenska jassbal-
lettflokksins var á Broadway
fímmtudaginn 10. desember síðast-
liðinn, en flokkurinn var stoftiaður
f haust. Sýningin ber nafnið „Áfram
veginn" og taka alls 12 dansarar
þátt í henni, níu félagar flokksins
auk þriggja gestadansara. Dans-
höfundur er Englendingurinn Evrol
Puckering og hann setti sýninguna
einnig upp.
Ætlunin er að settar verði upp
stuttar sýningar eins og þessi, en
fíokkurinn stefnir að atvinnu-
mennsku.
íslenski jassbaUetflokkurinn stefnir áfram veginn.
Margrét Ólafsdóttir dansaði „sólódans
MorgunblaAiS/Sverrir