Morgunblaðið - 19.12.1987, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 19.12.1987, Blaðsíða 66
66 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987 „Gegn ofbeldi á jólaföstuu $ t Blaðinu hefur borist eftirfar- andi frá nemum á námskeiðinu „Ofbeldi í fjölskyldunni“: „Bráðum koma blessuð jólin, bömin fara að hiakka til. Allir fá þá eitthvað fallegt...“ Foreldrar, afar og ömmur, frænd- fólk og systkini. Viljum við ekki öll bömum það besta? Eru stríðsleik- föng skaðleg? Um það eru skiptar skoðanir, en þó eru sumir sem álíta að hægt sé að vera án stríðsleik- fanga og að þau hafi ekki sérstakt uppeldislegt gildi. Aðrir benda á að þeir hafi alist upp með Roy Rogers og tindátum sem og byssum af ýmsu tagi og ekki hlotið varanlegan skaða af. En nú er öldin önnur — eða hvað? Nútímastríðsleikföng eru raun- verulegri og fullkomnari en áður og það eina sem vantar til að fullkomna myndina eru vélbyssuhreiður og skriðdrekar í mátulegri stærð fyrir böm. En er það þetta sem við viljum? Á tímum afvopnunarsamninga og friðarvilja um gjörvallan heim hefur úrval stríðsleikfanga aldrei verið meira og finnst mörgum að hér skjóti skökku við. Þess vegna leggjum við til að þeir sem ætla að gefa bömum jóla- gjafir sneiði hjá ofþeldisleikföngum og gefi frekar „eitthvað fallegt" eins og segir í kvæðinu. Utrýmum stríðsleikföngum úr heimi bamanna. Mörgum finnst eflaust í stórt ráð- ist og við ofurefli að etja þar sem leikfangaframleiðendur neyta allra leiða til að koma vöru sinni á fram- færi. Nýjasta nýtt em teiknimynda- flokkar í sjónvarpi þar sem beinlínis er kennt hvemig leika skuli með þessi leikföng þannig að ímyndunar- afl bamanna fær ekki að njóta sín og þroskast. Ofbeldi leiðir af sér ofbeldi og sú spuming vaknar hvort ofbeldisleikir leiði ekki af sér ofbeldi á öðrum sviðum, t d. í samskiptum bama við hvort annað? Hnefarétturinn er sá réttur sem liggur kannski beinast við eftir alla þá innrætingu sem fylgir ofbeldis- leikjum. Ofbeldi gegn börnum Það er hlutskipti margra bama að upplifa ofbeldi en hvað felst í því að verða fyrir ofbeldi? Ofbeldi gegn bömum er líkamleg, sálræn eða kynferðisleg valdbeiting sem skaðar bam og gengur þvert á rétt þess. Böm sem upplifa ofbeldi verða örvæntingarfull. Þau verða næm fyrir ofbeldisað- stæðum og læra að forðast þær. Þau missa tilfinningatengsl við annað fólk og hætta að treysta því. Bam sem verður fyrir ofbeldi breytir oft hegðun sinni og gerist það á ýmsan hátt. Yngri böm sækjast mikið eftir ástúð og stundum verða þau á eftir í þroska. Böm á skólaaldri hætta að fylgjast með, stofna til óeirða eða em óeðlilega þæg. Böm sem búa við ofbeldi á heimili eiga oft fáa vini eða að þau koma aldrei með vinina heim. Unglingum sem verða fyrir of- „Ofbeldi leiðir af sér ofbeldi og sú spurning vaknar hvort ofbeldis- leikir leiði ekki af sér ofbeldi á öðrum svið- um, t.d. í samskiptum barna við hvort ann- að?“ beldi hættir til að skrópa í skólanum, eða vera illa undirbúnir eða öfugt, þeir eru mjög duglegir og draga í lengstu lög að fara heim. Hvernig má koma í veg fyrir að börn verði fyrir ofbeldi? Á öllum þegnum þess lands hvílir sú skylda að tilkynna allar þær mis- fellur sem þeir verða vitni að í aðbúnaði bama. Lögregla og bama- vemdamefndir eru þeir aðilar sem hægt er að snúa sér til og er málið þá kannað. Bæði andlegt og líkamlegt ofbeldi getur haft mjög alvarlegar afleiðing- ar, en hér veljum við að fjalla einungis um einn þátt: Kynferðislegt ofbeldi. Kynferðisleg áreitni og kynfræðsla í skólum Mikil umræða hefur verið í gangi undanfarið um kynferðislegt ofbeldi gagnvart bömum, en minna um alls- kyns kynferðislega áreitni sem nær til miklu stærri hóps og þá einkum til unglingsstúlkna. Með kynferðis- legri áreitni eigum við við klám og klámfengið orðalag, t.d. tvíræðni og þukl. En nú er kominn tími til að taka á'þessum málum með raunhæfum aðgerðum. Alvarlegustu afleiðing- amar em andlegir erfiðleikar sem oft eru varanlegir. Draga mætti úr þeim erfiðleikum með aukinni upp- fræðslu og umræðu um þessi mál í skólum. T.d. mætti taka þetta upp í kynfræðslu þannig að bömum verði ljóst að þetta er fyrirbrigði sem er til staðar í þjóðfélaginu og það ræðst af tilviljun hveijir verða fyrir kyn- ferðislegri áreitni og er því ekki aðeins vandamál þess sem fyrir því verður og þeir bera ekki alla sökina heldur eiga að veijast og segja frá atburðunum. Böm og unglingar geta m.a. leitað sér aðstoðar hjá unglingadeildum ríkis og sveitarfélaga, bamasíma Rauða krossins og bamahóps Kvennaathvarfsins. Kvennaathvarf- ið eru þau félagasamtök sem hafa unnið mikið að þessum málum. Styðjum Kvenna- athvarf Þegar Kvennaathvarfið var opnað 6. desember 1982 kom strax í Ijós að þörfín fyrir það var brýn. Á árinu 1983 leituðu 151 kona og 109 böm skjóls þar. Þessar konur höfðu flest- ar þolað ofbeldi ámm saman. Þær höfðu leitað það mikið til ættingja og vina að sá möguleiki var fullnýtt- ur. Það eru takmörk fyrir því hvað kona með böm getur búið lengi á annarra manna heimili. Auk þess getur ofbeldismaðurinn sífellt valdið ónæði. Venjulega hafa konumar því farið heim aftur. Þær hafa oft leitað til lögreglu og lækna og hafa litla hjálp fengið. Með til- komu Kvennaathvarfs opnaðist ný undankomuleið fyrir þessar konur. Það, að enginn veit hvar athvarfið er staðsett er stór kostur, því kon- umar em þá óhultar fyrir ofbeldis- mönnunum. Er ekki kominn fcími til að við hættum að fría okkur allri ábyrgð þegar við verðum vitni að ofbeldi gegn konum og bömum eða heymm um það? Hér er ekki um einkamál að ræða heldur þjóðfélagslegt vandamál. Með tilkomu Kvennaat- hvarfs hafa konur fengið aukna samkennd, aukinn styrk og loks von um betra líf. Er ekki vonin það fyrsta sem þarf til að bijóta þann vítahring sem konan lifir í. Ástæðan fyrir þessari greinarbirt- ingu er sú að á þessum tíma árs eiga aðilar sem verða fyrir ofbeldi sérstaklega um sárt að binda. Hér að framan hafa ýmsir þættir • of- beldis verið raktir og er það von okkar að þeir veki fólk til umhugsun- ar um þessi mál. Nemar i Háskóla íslands á námskeiðinu: Ofbeldi í fjölskyldum. Anna Sigríður Þorkelsdóttir, Ingibjörg Ólöf Sigurðardóttir, Ingelise Allentoft, Kristjana Sigmundsdóttir, Margrét Sigrún Jónsdóttir, Þóra I. Stefánsdóttir. Skáia fell BobbyogJohn spila dans-ogjólatónlist. ^HOTEL^ ■BH FLUCLFIDA fSm HOTEL Opið öll kvöld til kl. 01.00. Aðgangseyrir kr. 200.- flö PIOIMEER Opið til kl. 03.00 í nótt! AÐGÖNGUMIÐAVERÐ KR. 500.- ÍOASABLANCA. ^Skúlagötu 30 - sími 11555 DISCOTHEQUE Við komu Svartfaxa, Fokker- vélar Flugleiða, voru öll tæki reynd og er Húsavík þá 16. flugvöllurinn þar sem afgreiðsla er frá Olís. Morgunblaðið/Sigurður P. Björnsson Húsavík: OIís á flugvellinum Húsavík. Á Húsavíkurflugvelli hefur Olíuverslun íslands hf. sett upp afgreiðslu eldsneytis fyrir allar þær flugvélar sem annast innan- landsflug. Áður var aðeins hægt að afgreiða þar flugvélabensín, sem minni vélar nota, en ekki það eldsneyti, sem til dæmis Fokkervélar Flugleiða nota. En nú hefur Olís bætt úr þessu með aukinni þjónustu, sem er vel þökkuð og sem skapar öryggi á vissan hátt. Við komu Svartfaxa, Fokkervél Flugleiða á þriðjudaginn 15. desem- ber sl. voru öll tæki reynd og er Húsavík þá 16. flugvöllurinn þar sem afgreiðsla er frá Olís. Ónnur tímamót eru einnig í sögu Húsavíkurflugvallar, þar sem síðast- liðinn laugardag voru 30 ár liðin frá því að völlurinn var tekinn í notkun og Flugleiðir hófu áætlunarflug til Húsavíkur. Þar með hófst nýr þáttur í samgöngumálum héraðsins og af staðnum létt töluverðri einangrun. Þá fóru dagblöðin að koma oftar, ekki allt að 10 blöð í einu, meira en viku gömul, þá komu þau mest þriggja daga, en nú má segja að við fáum þau daglega, því að vetri eru sex ferðir í viku en að sumri er flog- ið alla daga og suma tvisvar á dag. Stöðug þróun hefur orðið í fram- kvæmdum við völlinn. Flugbrautin var upphaflega 1000 metrar, síðan lengd í 1200 og er nú 1500 metra löng með fullkomnum ljósaútbúnaði. Ný og glæsileg flugstöð var tekin í notkun í mars 1986. Næsti áfangi er að fá flugbrautina malbikaða og svo er talað um ýmislegt fleira í sam- bandi við það að Húsavíkurvöllur hefur ýmsa bestu kostina, sem vara- flugvöllur fyrir millilandaflugið, hann er einn af sex sem eru í athugun þar til skipaðrar nefndar. — Fréttaritari Jólapakkakvöld Jólapakkakvöldin okkar hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár. Nú endurtökum við þau laugardagskvöld og sunnudagskvöld. Matseðill _ Hreindýrapaté með purtvínshlaupi Cognacskryddað krabbaseyði með hörpuskelfiski Heilsteiktar nautalundir með Camembert og rósapiparsósu Astríðukrapís Kaffi og konfekt Matseðillinn gildir sem happdrættismiði, aðalvinningur er flugfarseðill til London Víkingaskipið er sérstaklega skreytt. Ingveldur Hjaltested syngur jólasálma við undirleik Jónínu Gfsladóttur Sigurður Guðmundsson leikur jólalög á píanó. «4*. Stjórnandi kvöldsins er Hermann Ragnar Stefánsson. Model samtökin kynna jólafatnað á alla Sr fjölskylduna, börn, unglinga og fullorðna. £ J Borðapantanir í síma 22322 —22321 Verið velkomin 1 HÓTEL LOFTLEIÐIR FLUGLEIOA ' HÓTEL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.