Morgunblaðið - 19.12.1987, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987
AKUREYRI
MIKIÐ URVAL
Jfo&irbor,
þc'i Bmi máfjirnnum,
bdfliítþittna&i.íiJbomiþiö „
/ ribi brttii þinn bilji.sbo á jöitu ann \
f á f)itraium;aríoeö íbagborttv ' '
brauö os (prirgrí oss borar s
i Sbo smt bér og ^rirgrfum borum |
sbulbunautum. rifli írtö þú 0S8 í
v frristtii,f)riöurfrrí&i oss fcáilluj
>1 aö pitt rr rlkiIX mátturinn j
-ogöráti'm nö tiliíu,
Veggplatti
með bæninni
Faðir vor
Tilvalin tækifæris- og jólagjöf.
Útgefin afKFUM og KFUK til
styrktar byggingu félaganna í
Sunnuhlíð.
Fæst í Hljómveri og Ped-
rómyndum.
Verðkr.950,-
Qeföu betni jólaqjöf
Qeföu Rauöu semuNa
HAFNARSTRÆTl 96 - SlMI 96-27744 AKUREYRI
Glerárgata 26 Morgunbiaðið/GSV
LÍKÖN AF AKUR-
EYRARKIRK.il!
kirkjuna.
Líkön þessi sem eru nýkomin til
landsins voru gerð á Ítalíu og eru
með tvennskonar áferð, silfur- og
koparlitaðri. Þau kosta 1.200 krón-
ur og verða til sölu í blómabúðunum
Akri og Laufási, einnig í Hljómveri
og Skóverslun MH Lyngdal. Þá
munu sóknarprestamir hafa þau til
sölu.
Sóknamefnd Akureyrarkirkju
hefur látið steypa líkön af kirkj-
unni sem ætlunin er að selja til
styrktar kirkjunni og hinu nýja
safnaðarheimili.
Margir bera hlýjan hug til Akur-
eyrarkirkju og hafa lýst áhuga á
að eiga slíkan grip. Auk þeirra hafa
ferðamenn iðulega spurt eftir
minjagripum þegar þeir koma í
9Ó£ABÆKUR
*
Háskólinn á Akureyri:
Sjálfseignarstofnun
reki stúdentagarða
við Glerárgötu 26
SÍHBL,
Hunonaxr
BIRGIR ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra hefur skrifað
Húsnæðisstofnun ríkisins bréf þess efnis, að ráðuneytið hafi mik-
inn áhuga á að stofnunin veiti lán til kaupa á húsnæði við Glerárgötu
26 á Akureyri til að innrétta þar íbúðir fyrir námsmenn. Stjórn
Húsnæðisstofnunar hefur fjaUað um málið og vísaði þvi til undir-
nefndar sem hefur þann starfa að fjalla um félagslegar íbúðir.
Undirnefndin kemur saman á mánudag og búist er við þvi að stjóra
stofnunarinnar fjalli um málið að nýju nk. þriðjudag, en eins og
fram kom á Akureyrarsíðu Morgunblaðsins á fimmtudaginn lýsti
nýstofnað Félag háskólanema á Akureyri yfir þungum áhyggjum
um framtíð háskólans vegna húsnæðiseklu í bænum.
Birgir ísleifur sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að þetta mál
væri ekki á vegum ráðuneytisins
þó svo að allir væru af vilja gerðir
til að ljá því liðsinni. „Hópur manna
á Akureyri sem. hug hefur á að
stofna sjálfseignarfélag í líkingu við
Félagsstofnun stúdenta í Reykjavík
hefur verið að beita sér fýrir stúd-
entaíbúðum á Akureyri. Ég hef
aðeins skrifað bréf þess efnis að
mér lítist vel á hugmyndina án nok-
kurra skuldbindinga ráðuneytisins.
Hugsanlegt sjálfseignarfélag er að
sækja um lán til Húsnæðisstofnunar
enda verður frumkvæðið að koma
að norðan. Stúdentagarðar á Akur-
eyri eru ekki komnir inn á fjárlög
og það hefur engin ákvörðun verið
tekin um að þeir skuli vera for-
gangsverkefni í peningamálum af
hálfu ríksins," sagði ráðherra.
Ami Amason, sem ásamt fjöl-
skyldu sinni stofnaði hlutafélagið
Eyri hf. á Akureyri er hann keypti
húsnæðið þann 30. október sl. af
Norðurverki hf., býður hugsanlegri
sjálfseignarstofnun að ganga inn í
samning sinn og Norðurverks hf.
Ef tilboðinu verður hafnað hyggst
Ámi reisa og reka þarna hótel.
Norðurverk hf. reisti húsið fyrir um
það bil átta ámm, en hefur ekki
getað selt það þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir. Ámi hefur verið stjómar-
formaður í Norðurverki hf. frá
upphafi og sagðist hann hafa keypt
eignina meðal annars til að leysa
fjárhagsvanda fyrirtækisins. „Húsið
hefur staðið autt í átta ár. Það er
nú í fokheldu ástandi með gleri. Ég
hef reist þriðju hæðina á húsið, en
á eftir að setja þak á það. Ég keypti
húsið á 13 milljónir króna og með
þeim framkvæmdum, sem ég hef
lagt fram, stendur það í um 16
milljónum króna nú,“ sagði Ámi.
í bréfí ráðherra til Húsnæðis-
stofnunar segir m.a.: „Menntamála-
ráðuneytinu hafa nú verið kynntar
hugmyndir um möguleika á því að
innréttaðar verði íbúðir fyrir náms-
menn á allt að fjórum hæðum í
húsinu nr. 26 við Glerárgötu. Virð-
ist mögulegt að gera 15-20 íbúðir
fyrir hjón og um 35 herbergi fyrir
einstaklinga. Hótelrekstur er mögu-
legur á sumrin. Ef hugmynd þessi
getur orðið að vemleika er fyrir-
hugað að koma á fót sjálfseignar-
stofnun á Akureyri í líkingu við
Félagsstofnun stúdenta. Enginn
vafi er á því að það ræður miklu
um framgang þessa máls, hvort
Húsnæðisstofnun ríksins samþykkir
að veita lán til þessara íbúða sam-
kvæmt þeim kafla húsnæðislag-
anna, er heimilar 85% lán til íbúða,
sem byggðar eru á vegum félaga-
samtaka, e'r leigi námsmönnum."
Morgunblaðið/GS V
Það er þröng á þingi í pósthúsi Akureyringa þessa dagana, jafnt utan sem innan við afgreiðsluborðin
enda hefur starfsmannahald verið tvöfaldað nú fyrir jólin.
Góða veðrið vinnur með
okkur í jólapóstinum
segir Gísli Eydal stöðvarstjóri Pósts og síma
PÓSTMENN á Akureyri hafa haft í nógu að snúast undanfarna
daga eins og víðast hvar annars staðar og að sögn Gísla Eydal stöðv-
arstjóra hefur póstburður gengið eins og í sögu. „Það er auðvitað
mikið til góða veðrinu að þakka enda hefur ekki þurft að fella nið-
ur eina einustu ferð að þessu sinni vegna ófærðar í lofti né á láði.
Svo vonar maður bara að jólasnjórinn komi ekkert fyrr en á Þorláks-
messu þegar flestir ættu að vera búnir að fá pakkana sína og
jólakortin."
Gísli sagðist búast við að jóla-
pósturinn í ár yrði um það bil 10%
meiri en í fyrra enda hefði magnið
aukist ár frá ári heldur en hitt.
„Akureyringar fá um 110.000 jóla-
kort, sem fara í gegn hjá okkur,
en þá er ótalið það sem heimamenn
bera sjálfir til vina og kunningja í
bænum. Ráðnir hafa verið ijörutíu
skólakrakkar í útburðinn hjá Pósti
og síma á Akureyri auk þess sem
starfsmannahald innan dyra hefur
verið tvöfaldað nú í jólaösinni.
Ætli það séu ekki hátt í 80 manns
sem vinna daglega í jólapóstinum
hér í bænum,“ sagði Gísli. Dreifing-
in hefur verið mjög jöfn það sem
af er. „Traffíkin“ hófst fyrir alvöru
mánudaginn 14. desember. Flogið
er þrisvar á dag með póst til
Reykjavíkur, fyrst strax á morgn-
ana kl. 9.00, síðan með „kaffivél-
inni“ kl. rúmlega 15.00 og síðast
með kvöldvélinni.
Síðasti skiladagur jólapóstsins
var sl. fímmtudag svo að tryggt
væri að hann kæmist til skila í
tæka tíð. Gísli sagði að póstmenn
á Akureyri hefðu ávallt komið öllum
jólapósti til viðtakenda sinna áður
en klukkan slægi sex á aðfanga-
dagskvöld þrátt fyrir seinagang
sendendanna. „Við höfum oft á
tíðum ,setið við símann á aðfanga-
dag og hringt til þeirra sem eiga
jólapóst á pósthúsinu og beðið þá
um að sækja hann. Við gerum allt
sem mögulegt er til að koma öllum
jólapóstinum til skila svo enginn
verði fyrir vonbrigðum.“
Póstmenn draga upp-
sagnir sínar til baka
Póstmennimir níu sem sögðu upp í byijun september hafa dregið
uppsagnir sínar til baka vegna loforða stjóravalda um endurskoðun
á launakerfi þeirra og endurmati á námi úr Póstmannaskólanum.
Allir þessir póstmenn starfa við takagildi 1. jan. Póstmönnum finnst
pósthúsið á Akureyri og hafa lokið að laun þeirra séu.of lág miðað við
námi frá Póstmannaskólanum. Þeir hinn almenna vinnumarkað í landinu
sögðu upp störfum sínum þann 4. og hafa gert kröfu um að minnsta
sept. sl. og áttu uppsagnimar að kosti 15.000 kr. launahækkun.