Morgunblaðið - 31.12.1987, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1987
Verðmæti sjávarafla er
meira en nokkru sinni fyrr
Aukning milli ára um 20% í krónum taiið
Yfirborgun
á fiski kemur
ekldtílgreina
- segir Soffanías
Cecilsson formaður
Vinnuveitendafélags
Breiðafjarðar
Vinnuveitendafélag Breiða-
fjarðar hefur samþykkt á fundi
sínum að halda fast við auglýst
lágmarksverð verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins á fiski upp úr sjó
hveiju sinni. Soffanias Cecilsson,
formaður félagsins, segir að von-
laust sé að standa í yfirborgunum
á fisk og meta verði allan fisk
framvegjs hvað varðar gæði og
stærð og verðleggja hann eftir
því. Vinnslan hafi hreinlega ekki
efni á því að borga meira fyrir
fiskinn og yfirborgunum verði
hætt.
Soffanías sagði í samtali við
Morgunblaðið, að verð á fimm kílóa
þorski nú væri sambærilegt við verð
á þorski sömu þyngdar, sem farið
hefði í gegn um Fiskmarkað Hafn-
arfjarðar frá upphafi. Það væri hins
vegar of hátt fyrir frystinguna, en
söltunin rétt réði við það. Því kæmi
ekki til greina að yfirborga fisk og
um það væru vinnuveitendur við
Breiðafjörð sammála.
I samþykkt fundarins segir: að
stjómleysi, fjárfestingar og hömlu-
laust launaskrið þjónustugeirans
leggist nú af fullum þunga á fisk-
vinnsluna. Haidi svo áfram, bresti
undirstaðan og kerfið hiynji.
„Stjómmálamenn, opnið nú augun
og lítið á spá Þjóðhagsstofnunar frá
fyrsta desember 1987. Þá er gengi
dollars 37,20 krónur. Blönduð fisk-
vinnsla er þá metin rekin með 4,5%
tapi. Hvert er tapið þá miðað við
gengi dollarsins nú á 35,70 krón-
ur,“ segir orðrétt í samþykkt
fundarins.
Hvítanesið létt
um 400 tonn
REYNA átti að losa Hvítanesið
af strandstað í Hornafjarðarósi
á árdegisflóðinu í dag, gamlárs-
dag. Ljósafoss hefur nú flutt um
það bil 400 lestir af fiski úr skip-
inu til lands í Höfn, við það hefur
komið hreyfing á skipið og
standa vonir til að nú takist að
losa það.
Hvítanesið hefur nú setið fast
síðan 22. þessa mánaðar og hafa
tilraunir til að losa það enn engan
árangur borið. Nokkrir tugir tonna
af fiski skemmdust af olíu þegar
rör sprakk við sjódælingu milli
tanka fyrir nokkru en skemmdir á
skipi og farmi eru að öðru leyti
taldar óverulegar.
ÞÆR sveiflur sem verið hafa á
gengi bandaríkjadollars á er-
lendum gjaldeyrismörkuðum á
þessu ári hafa ekki skaðað hags-
muni íslenskra útflutningsaðila
ef á heildarútflutning lands-
manna er litið, að sögn Benedikts
Valssonar, hagfræðings hjá
Þjóðhagsstofnun. í upplýsingum
frá Fiskifélagi íslands verður
verðmæti útfluttra sjávarafurða
1987 um 1.082 milljónir, sé það
reiknað í dollurum, en það var
864 milljónir árið 1986. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Seðla-
bankanum var kaupgengi dollars
kr. 40,09 fyrstu tvær vikur þessa
árs, en er nú kr. 35,81. Hefur
gengi dollarans þvi lækkað um
FISKAFLI landsmanna verður
samkvæmt spá Fiskifélags ís-
lands um 1,6 milljónir tonna og
er það þriðja árið í röð, sem afl-
inn verður um og yfir því marki.
Verðmæti aflans upp úr sjó er
talið verða 22,7 milljarðar króna
og útflutningsverðmæti um 42
milljarðar. í hvoru tveggja tilfell-
inu er um nálægt 20% aukningu
verðmæta að ræða í krónum tal-
ið. Fiskifélagið telur að aldrei
áður hafi fengizt meira fyrir
útflutning sjávarafurða.
Heildarafli síðasta árs varð
1.651.000 tonn og liggur munurinn
að segja má allur í minni loðnuafla
nú. Hann verður á þessu ári
813.000 tonn en var í fyrra
895.000. Heildarbotnfiskafli er
áætlaður 659.000 tonn á móti
632.000 tonnum í fyrra eða rúm-
lega 4% meiri í ár. Þorskafli verður
tæp 11% gagnvart íslensku krón-
unni á þessu ári.
„Það er ekki raunhæft að tala
um beint tekjutap vegna lækkunar
dollarans," sagði Benedikt, 7 vægi
dollars í heildarútflutningi Islend-
inga er um 40% og þegar rætt er
um áhrif lækkunar dollarans verður
að líta til þess að aðrir gjaldmiðlar
sem viðskiptasamningar okkar eru
bundnir í hafa hækkað að sama
skapi." Samkvæmt útreikningum
Þjóðhagsstofnunar hefur gengi
breska pundsins hækkað um 12%,
en sem dæmi má nefna að tæplega
22% af útfluttum sjávarafurðum
okkar eru greiddar í pundum. Gengi
japansks yens hefur hækkað um
15% og gengi evrópumyntarinnar
381.000 tonn en var í fyrra 366.000
eða 15.000 tonnum meiri nú. Ysu-
aflinn verður 39.000 tonn en var í
fyrra 47.000.. Ufsaafli eykst um
10.000 tonn, en afli af karfa minnk-
ar um 4.000 tonn. Grálúðuafli eykst
hlutfallslega mest, um 13.000 tonn,
úr 31.000 í 44.000 tonn. Humar-
afli er heldur meiri en á síðasta
ári, þó litlu muni. Rækjuafli eykst
enn og hefur svo verið undanfarin
ár. Aukningin verður þó minni en
verið hefur milli ára. Alls verður
rækjuaflinn um 39.000 tonn, eða
um 2.000 tonnum meiri en í fyrra.
Hörpudiskafli minnkar hins vegar
um 3.000 tonn
Alls er áætlað að verðmæti afl-
ans þetta ár upp úr sjó verði 22,7
milljarðar króna, en á síðasta ári
var það 18,8 og hefur aukizt um
tæp 21%. Talið í dollurum jókst
verðmætið úr 457 milljónum í 585
eða um 25%. Miðað við SDR var
ECU hefur hækkað um tæp 8%.
í máli Benedikts kom fram að
aukin brögð væru að því að samið
væri um verð á útflutningsafurðum
í öðrum myntum en dollurum.
Þannig væru nú verð mjöl- og Iýsis-
afurða, svo dæmi sé tekið, bundið
í evrópskum myntum. Þar sem verð
eru bundin í dollurum hafa samn-
ingar verið gerðir til skemmri tíma
og á það bæði við um viðskipti
okkar við Bandaríkjamenn og Sov-
étmenn.
„Þegar á heildina er litið fæ ég
ekki séð að útflutningstekjur okkar
hafí rýmað vegna þróunarinnar á
alþjóðagjaldeyrismörkuðum á pessu
ári, heldur virðast áhrifín vera já-
kvæð,“ sagði Benedikt að lokum.
virði aflans 389 milljónir árið 1986,
en 455 milljónir á þessu ári. Aukn-
ingin er tæp 17%.
Fiskifélag íslands áætlar að virði
útfluttra sjávarafurða á þessu ári
verði um 42 milljarðar króna. A
síðasta ári nam virðið rúmlega 35
milljörðum. Aukningin milli áranna
verður því um 20%. í dollurum tal-
Heildarflutningar Eimskips
voru um 880.000 tonn, sem er 12%
aukning frá árinu 1986. Hafa
flutningar félagsins aldrei verið
meiri að magni. Aukning hefur
mest orðið i innflutningi eða um
19% frá síðasta ári, segir í frétt
frá fyrirtækinu.
Á árinu 1987 eru rekstrartekjur
Eimskipafélagsins um 4,4 milljarðar,
sem er um 19% aukning frá árinu
á undan. Á sama tíma hefur bygg-
ingarvísitala hækkað á milli ára um
tæplega 18%. Hagnaður verður af
rekstri félagsins þrátt fyrir raun-
lækkun flutningsgjalda.
Reksturinn hefur einkennst af
miklum flutningum, góðri nýtingu
skipastóisins og tiltölulega hagstæð-
um ytri skilyrðum. Kostnaðarhækk-
anir innanlands og erlendis hafa þó
í vaxandi mæli haft áhrif á seinni
hluta ársins. Gert er ráð fyrir minni
flutningum á árinu 1988 vegna
minnkandi hagvaxtar. Verulegar
kostnaðarhækkanir innanlands
skapa rekstraróvissu á komandi ári.
Blikur á lofti í alþjóðaviðskiptum eru
einnig áhyggjuefni, segir í frétt Eim-
skipafélagsins.
Eimskip rekur nú 17 skip. Þar
af eru að jafnaði um 13-14 með
íslenskum áhöfnum. Fjöldi starfs-
ið verður virði útflutningsins um 1
milljarður en var í fyrra 864 milljón-
ir. Aukning í dölum talið er því um
25%. Sé hins vegar miðað við SDR
(sérstök dráttarréttindi) er aukn-
ingin rúm 14%. í frétt frá Fiskifé-
lagi íslands segir að þrátt fyrir
rýmandi gengi alþjóðlegra gjald-
miðla megi draga þá ályktun að
aldrei fyrr hafi fengizt meira fyrir
sjávarfang landsmanna.
manna félagsins nú um áramót er
745, þar af starfa 50 erlendis. Félag-
ið rekur 4 eigin skrifstofur erlendis,
í Bandarílq'unum, Hollandi, Þýska-
landi og Svíþjóð.
Orðrómur um gengis-
fellingu um áramótin:
* ’
Ur lausu
lofti gripið
Segir Jóhannes Nordal
ALBERT Guðmundsson formað-
ur Borgaraflokksins sagði i
umræðu á Alþingi í gær að þrá-
látur orðrómur væri víða um
land að til stæði að fella gengi
krónunnar um áramótin og
gjaldeyrisdeildir bankanna yrðu
lokaðar af þessum sökum i dag.
Jóhannes Nordal seðlabankastjóri
ságði við Morgunblaðið að þessi
orðrómur væri gersamlega úr lausu
lofti gripinn, engar áætlanir væru
uppi um gengisfellingu og slikt hefði
raunar ekkert verið orðað.
Höfum hagnast af þróun-
inni á gjaldeyrismörkuðum
-segir Benedikt Valsson, hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun.
12% aukning í
flutningum EÍ
Hagnaður af rekstri félagsins