Morgunblaðið - 31.12.1987, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1987
SVERRIR KRISTJANSSON
HÚS VERSLUNARINNAR 6. HÆO
LÖGM. HAFSTEINN BALDVINSSON HRL."
FASTEIGN ER FRAMTÍÐ
Óskum viðskiptavinum okkar og[L
landsmönnum öllum gleðilegs
ársogfriðar
Gleðileg nýtt ár!
Þökkum það liðna.
28444
NÚSjEIGMIR
SKIP
VELTUSUNDI 1
SiMI 20444
Daníel Ámason, lögg. fast.,
Helgi Steingrímsson, sölustjóri.
E
*
Oskum viðskiptavinum okkar
velfarnaðar á komandi ári
og þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.
? : rwir 1 11 44 KAUPÞING HF1 f PU Husi verslunarinnar 'S" 68 69 08 |
Solum enn: F Siguióur Dcigbjartssön. Ingvar Guðmundsson, ^etur Olafsson Uilmor Baldursson hdl.
Óskum viðskipta vinum
okkar og landsmönnum
öllum árs og friðar.
Þökkum viðskiptin á
árinu sem er að líða.
FASTEIGNA Fh
J-LÍI MARKAÐURINN
&
Öðinsgötu 4, símar 11540 - 21700.
Jón Guömundsson sölustj.,
Leó E. Löve lögfr., Ólafur Stefónsson viðskiptafr.
SIMAR 21150-21370
Upplýsingar um viöskiptin á árinu 1987:
Meðaltal seldra eigna
S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
L0GM J0H Þ0R0ARS0N H0L
Raunvirði var 92,8% af kaupverði.
Útborgun var 92,1% af kaupverði eða 79,2% af raunvirði.
Á fyr8tu 29 dögum samningstímans greiddu kaupendur 29,1% af kaup-
verði eða 23% af raunviröi.
Afhending var 67 dögum eftir undirritun kaupsamnings.
Útborgun greiddist á 318 dögum.
Hlutfall raunvirðis var 134,3% af fasteignamati.
Hlutfall raunvirðis var 96,8% af brunabótamati.
Miðað er við haekkun lánskjaravísitölu á milli ára sem var rúml. 22,3%
pg vexti 7,5% af verðtryggöum skuldum.
Bestu nýársóskir til viöskiptamanna okkar og
annarra landsmanna með þökk fyrir árið sem er að kveðja.
Viðskiptum hjá okkur
fylgja
ráðgjöf og traustar
upplýsingar.
AIMENNA
FASTEIGNASAIAN
LAUGAVEG118 SIMAR 21150-21370
JÓLAÓRATORÍAN
Tónlist
Egill Friðleifsson
Langholtskirkja 29.12. ’87.
Efnisskrá: Jólaóratoría —
fyrri hluti — eftir J.S. Bach
Flyljendur: Kór Langholts-
kirkju og kammersveit ásamt
einsöngvurunum Ólöfu Kol-
brúnu Harðardóttur, Sigríði
Ellu Magnúsdóttur, Michael
Goldliorpe og Kristni Sig-
mundssyni.
Stjórnandi: Jón Stefánsson.
Sjálfsagt er J.S. Bach einhver
dugmesti verkamaður í víngarði
Drottins í samanlagðri kristni.
Það er ekki út í bláinn að hann
er nefndur fimmti guðspjalla-
maðurinn. Stórfengleg verk
hans, samin skaparanum til
dýrðar, hljóta að snerta hvem
þann er gaum gefur, bræða ísinn
úr hertum hjörtum og lyfta and-
anum í hæðir utan og ofan við
amstur daganna. Nú var það
Jólaóratorían sem lýsti upp
skammdegið er Kór Langholts-
kirkju ásamt einsöngvurum og
kammersveit fluttu fyrri hluta
verksins í kirkjunni sinni sl.
þriðjudagskvöld undir stjórn
Jóns Stefánssonar. Það er nú
orðinn árviss viðburður að kórinn
flytji verkið eða hluta þess milli
jóla og nýárs og er tilhlökkunar-
efni Bachunnenda og kirkjuvina,
sem nú eins og jafnan áður fylltu
Guðshúsið og sátu undir voldug-
um hljómum meistarans. Verk
Bachs er saltið sem ekki dofnar,
málmurinn sem hvorki tærist né
eyðist við núning tímans. En
mikið tónverk gerir einnig miklar
kröfur. Flytjendur verða að vera
vandanum vaxnir. Ágæt frammi-
staða Kórs Langholtskirkju kom
ekki á óvart. Kórinn er vel mann-
aður og vel þjálfaður. Þó tenór-
inn sé þar veikasti hlekkurinn —
kvilli sem htjáir margan kórinn
— gat ég ekki betur séð en þar
mætti sjá nýja unga meðlimi sem
sjálfsagt eiga eftir að dafna og
eflast í höndum Jóns Stefánsson-
ar. En margir, e.t.v. flestir
kórfélagar, eru vel að sér í þess-
ari óratoríu Bachs og kórinn
söng víða með ágætum, má þar
t.d. benda á hið áhrifaríka 21.
atriði (Dýrð sé Guði í upphæðum)
þar sem dýrt ofinn tónvefur
Bachs komst vel til skila. Sálm-
amir voru vel mótaðir og fallega
unnir. Hljómsveitin náði einnig
vel saman og hnökrar vorti fáir.
Einsöngvarasveitin var vel
skipuð og jafnari en oft áður.
Guðspjallamanninn söng Michael
Goldthorpe. Hann hefur margoft
heimsótt okkur áður og er jafnan
aufúsugestur. Hann hefur óvenju
bjarta, háa og létta tenórrödd
og hefur þennan söngstíl full-
komíega á valdi sínu. Kristinn
Sigmundsson brást ekki fremur
venju og Sigríður Ella Magnús-
dóttir söng mjög sannfærandi.
Þó Ólöf Kolbrún njóti sín betur
á sviði óperunnar en í óratoríum
Bachs einkenndist túlkun hennar
nú af óvenjulegri mildi, sem
hæfði efninu vel. Jón Stefánsson
stjómaði af miklu öryggi. Hann
gjörþekkir þetta verk og sveifl-
aði tónsprotanum eins og sá sem
valdið hefur. Yfírbragð flutn-
ingsin^ var e.t.v. ögn léttara en
stundum áður. Raunar þarf ekki
að tína fleira til. Þetta var góður
konsert — mjög góður.
w
&
FASTEIGNASALA
Suðurlandsbraut 10
s.: 21870-687808-687828
Ábvrgð — Rcynsla — öryggi
Óskum viðskiptavinum
okkar og öðrum lands-
mönnum árs og friðar.
r—"_j Hllmar Valdlmarsson s. 687225,
JmÍ Hörftur Harðarson s. 36876,
’JIDI Rúnar Astvaldsson s. 641496,
Sigmundur Böðvarsson hdl.
Gleðilegt nýtt ár.
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.
EIIfNA
MIÐUINIIN
27711
LINGHOLTSSTRÆTI 3
Svcrrir Krlslinsson. solustjori - Þortcifur GuAmundsson. solum.
Þorolfur Halldorsson, logfr. - Unnslcinn Beck. hr!.. simi 12320
Viljum kaupa
í Rvík 3ja-4ra herb. íbúð (2 svefnh.). Minnst 80 fm. Útb.
300 þús. strax, húsnæðismálalán 1. apríl. Tilboð merkt:
„H - 4254“ óskast lögð inn á auglýsingadeild Mbl.
Savanna tríóið;
Plata með
14 lögnm
Á nýársdag, 1. janúar 1988, em
liðin 25 ár síðan Savanna tríóið kom
fram opinberlega í fyrsta sinn. Þeir
Þórir Baldursson, Troels Bendtsen
og Björn Bjömsson höfðu að vísu
sungið á skólaskemmtunum og í
útvarpsþáttum áður, en þetta kvöld
hófu þeir af alvöru feril sinn sem
skemmtikraftar.
Frami Savanna tríósins á þeim
Qórum árum, sem það starfaði, var
einstakur í íslensku skemmtanalífi.
Þeir sungu á mannamótum innan-
lands og utan, komu fram í útvarpi
og sjónvarpi í Bretlandi og á Norð-
urlöndum og voru fengnir til að
annast fyrstu skemmtiþættina þeg-
ar íslenskt sjónvarp hóf göngu sína.
Savanna tríóið söng inn á fjórar
stórar hljómplötur, sem löngu eru
ófáanlegar.
í tilefni þessara tímamóta hefur
Taktur hf. gefið út vandaða hljóm-
plötu, sem hefur að geyma 14 af
lögum Savanna tríósins.
Umslag plötunnar er sex síður.
Þar er ferill Savanna tríósins og
tíðarandi sjöunda áratugarins rak-
inn í máli og fjölmörgum ljósmynd-
um.
(Úr fréttatilkynningu.)