Morgunblaðið - 31.12.1987, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1987
Mótmæli palestínumanna í ísrael:
Enn fjölgar fórnar-
lömbum óeirðanna
PLO vill taka þátt í friðarráðstefnu
Bandaríkin:
Skoti geim-
skutlu
frestað
Washington, Reuter.
SKOTI geimskutlunnar
bandarisku hefur nú verið
frestað um óákveðinn tíma
vegna þess að einn hiuti
hreyfilsins hennar reyndist
ekki sem skyldi í prófunum
í síðustu viku.
Að sögn talsmanna NASA,
geimferðastofnunar Banda-
ríkjanna, kom ekkert athuga-
vert fram þegar farið var yfir
niðurstöður prófananna í
fyrstu, en við nánari aðgæslu
reyndist vera bilun í einum
hluta hreyfiltúðunnar.
„Skotdegi STS-26 hefur ver-
ið frestað. Hversu lengi er hins
vegar enn á huldu,“ sagði í til-
kynningu NASA. Upphaflega
var ráðgert að skjóta geim-
skutlunni á loft 2. júní næsta
árs.
The Independent:
Segir írani
ætla að láta
Líbýumönnum
efnavopn í té
Lundúnum, Reuter.
BRESKA dagblaðið The In-
dependent segir að íranir
hafi fallist á að láta Líbýu-
mönnum efnavopn í té, en í
staðinn fái þeir sovéskar
Scud-flaugar.
Blaðið bar fyrir sig heimilda-
mönnum í Teheran og Trípólí
og sagði að gengið hefði verið
frá samkomulagi þessu þegar
leiðtogi írönsku Byltingarvarð-
anna heimsótti Líbýu fyrir
skömmu.
Að sögn The Independent
hafa íranir þróað þrjár nýjar
tegundir efnavopna, sem komið
er á áfangastað í fallbyssu-
kúlum og með eldflaugum. Þau
eru ætluð gegn skipum, skrið-
drekum og fótgönguliði. Talið
er að Líbýumenn hyggist beita
vopnunum í stríði sínu gegn
Chad.
Kambódía:
Leiðtogi lepp-
stjórnarinnar
í Afganistan
í heimsókn
Bangkok, Reuter.
NAJIBULLAH, leiðtogi af-
gönsku leppstjórnarinnar í
Kabúl, er nú í opinberri
heimsókn í Kambódíu þar
sem honúm hefur verið vel
tekið. Afganistan og
Kambódía eru þau tvö
leppríki Sovétríkjanna, sem
hvað verst eru á vegi stödd.
Að sögn hinnar opinberu
fréttastofu Kambódíu, SPK,
tók kommúnistaleiðtoginn
Heng Samrin á móti Najibullah
á flugvellinum í Phnom Penh.
Þangað kqm forseti Kabúl-
stjómarinnar frá Víetnam, þar
sem hann og Nguyen Van Linh,
kommúnistaleiðtogi í Víetnam,
undirrituðu sáttmála um vin-
áttu og samvinnu ríkjanna.
Heng Samrin var gerður að
leiðtoga kommúnistastjórnar-
innar í Phnom Penh eftir að
Víetnamar réðust inn í landið
að undirlagi Sovétmanna árið
1978. Þá var stjóm Rauðu
khmeranna kómið frá völdum,
en hún hafði ríkt í þrjú ár.
Þetta er fyrsta opinbera
heimsókn Najibullah til annarra
ríkja en Sovétríkjanna. A leið
sinni til Vietnam í síðustu viku
kom hann við á Indlandi.
Tel Aviv, Abu Dhabi, Reuter.
SAUTJÁN ára gamall palestínu-
tnaður lést í gær af völdum
skotsára er hann hlaut í óeirðum
palestínumanna á Gaza-svæðinu .
og vesturbakkanum þann 21.
þessa mánaðar. Þar með hafa
23 palestínumenn fallið fyrir
byssukúlum ísraelska hermanna
á þessu umdeilda svæði.
lsraelskir hermenn skutu hinn
sautján ára gamla Mustafa Issa
Al-Beik í höfuðið við Jablalya-
flóttamannabúðimar á Gaza-svæð-
inu og var hann fluttur helsærður
í sjúkrahús í suðurhluta ísraeis.
Talsmaður asjúkrahússin skýrði frá
þv í í gær að hann væri látinn.
Fjölmargar þjóðir hafa gagnrýnt
ísraela fyrir að hafa mætt mótmæl-
um palestínumannanna af allt of
mikilli hörku og hefur verið fullyrt
að unnt hefði verið að btjóta mót-
mælin á bak aftur með öðrum hætti
svo sem með því að beita táragasi
og gúmmíkúlum. Herforingjar í her
ísraela segja hins vegar að her-
mönnum hafí verið fyrirskipað að
beita aðeins skotvopnum væri lífi
þeirra ógnað.
Um 900 palestínumenn voru
handteknir þá 15 daga sem mót-
mælin stóðu yfír og segja lögfræð-
ingar hinna handteknu að þeim
spáðu því í gær, miðvikudag, að
nokkrir erfiðleikar væru fyrir-
sjáanlegir á næstu vikum um að
halda olíuverði stöðugu.Venju-
lega hefur dregið úr eftirspurn
eftir hráolíu í janúarmánuði. Þá
Sérfræðingamir segja, að þeir
sjái og vísbendingar um að olíu-
framboð muni verða alltof mikið.
Var meðal annars vitnað til yfir-
lýsinga sem Saudi Arabar og
Indónesar hafa sett fram um að
þeir gætu hæglega hundsað regl-
ur og verðlagningu Samtaka
olíusölurikja, ef einhveijir innan
samtakanna virtu ekki sam-
þykktir um að fara ekki fram
hafí ekki verið leyft að skoða máls-
skjöl og annað það sem lýtur að
réttarhöldum yfír skjólstæðingum
þeirra. Hafa þeir lýst yfír því að
þeir geti ekki annast vöm palestínu-
mannanna af þessum sökum.
ísraelar ráðgera að reka 50 and-
spymumenn úr röðum palestínu-
manna úr landi en Bandaríkjastjóm
hefur lagst gegn þeim áformum því
ráðamenn óttast að það kunni að
spilla fyrir bættum samskiptum
Bandaríkjmanna við Egypta og
Jórdana. Yitzhak Shamir, forsætis-
ráðherra ísraels, kallaði ráðherra
sína til fundar á miðvikudag þar
sem rætt var hvort vísa ætti pa-
lestínumönnunum úr landi en
ákvörðun þar að lútandi var fre-
stað. Bandaríkjamenn telja að
Frelsishreyfíng palestínu (PLO)
hagnit á því verði palestínumönnum
vísað úr landi til Líbanons þar sem
skæmlipðar PLO hafa bækistöðvar.
Talsmaður PLO skýrði frá því í
gær að samtökin væru reiðubúin
til að taka þátt í fyrirhugaðri ráð-
stefnu um leiðir til að koma á friði
fyrir botni Miðjarðarhafsins. Kvað
talsmaðurinn samtökin reiðubúin til
að senda fulltrúa á ráðstefnuna svo
framarlega sem mynduð yrði sam-
eiginleg sendinefnd arabaríkja.
úr ákveðnum framleiðslukvóta.
Eins og frá hefur verið sagt, var
ákveðið á OPEC-fundi nýlega að
verð á tunnu yrði 18 dollarar, og
mjög hart yrði gengið eftir því að
ekki yrði farið yfir framleiðsluk-
vóta. Voru menn minnugir þess er
verð á tunnu hrapaði niður úr öllu
valdi í fyrra og fór lægst í 9 doll-
ara. Aftur á móti er strax að koma
í Ijós nokkur tregða ýmissa olíu-
framleiðsluríkja að hlíta þessu.
Þá er þess að gæta að nú um
áramótin eru birgðir af olíu meiri
en í árslok 1986 og telja því sér-
fræðingar, að brugðið geu til
beggja vona með olíuverð á næst-
unni.
Sagði talsmaðurinn PLO geta haft
harla lítil áhrif á gang mála ef full-
trúar frá Egyptalandi, Sýrlandi,
Jórdaníu og Líbanon væru ekki með
í för.
ísraelar telja PLO til hryðju-
verkasamtaka og neita að eiga
viðræður við fulltrúa þeirra. Þá er
greinir ráðamenn í fsrael einnig á
um hvort ráðlegt sé fyrir ísraela
að taka þátt í slíkri friðarráðstefnu.
Þorskleysi
hrjáir Dani
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun,
fréttaritara Morgunbladsins.
SAMKVÆMT siðvenju borða Dan-
ir þorsk yfir nýjárið. í ár gæti það
reynst þeim erfiðara og dýrara
en áður að viðhalda þessari venju
vegna skorts á þorski.
Gæftaleysi hefur verið mikið og
lítið um þorsk á markaðnum því hef-
ur verð á þorsk hækkað mikið.
Þorskkílóið fór í 67 danskar krónur
á fiskmörkuðum á Jótlandi. Þar of-
aná leggst söluskattur 22% og
þjónustugjald fisksala áður en þorsk-
urinn er boðinn almenningi til kaups.
Þorskkílóið gæti því náð 85 dönskum
krónum, sem jafngildir um 495
íslenskum krónum.
Danmörk:
Amfetamín
stærsta
vandamálið
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jergen Bruun,
fréttaritara Morg^unblaðsins.
STÆRSTU eiturlyfjamál í Dan-
mörku á síðasta ári eru tengd
amfetamínneyslu. Þessar upplýs-
ingar koma fram i nýútgefinni
ársskýrslu lögreglunnar í Kaup-
mannahöfn.
Átta af hverjum tíu málum sem
komu til umfjöllunar hjá eiturlyjja-
deild lögreglunnar í Kaupmannahöfn
voru tengd dreifingu og neyslu am-
fetamíns. Á árinu 1987 var lagt hald
á 20 kílógrömm af amfetamíni í
Kaupmannahöfn.
Heróín og hass-málum hjá lögregl-
unni hefur ekki fjölgað á árinu sem
er að líða. Þrátt fyrir það eru heróín-
neysla enn mikið vandamál. Á
siðusta sólarhring voru þrír eitur-
þrælar I Kaupmannahöfn lagðir inn
á sjúkrahús vegna þess að þeir tóku
of stóran skammt af heóíni.
Mannskæðustu sj*ó-
slys aldarinnar
Minningarathöfn um þá sem
létust þegar ferjan Dona Paz
sökk við Filippseyjar eftir
árekstur við olíuskip fór fram
á þriðjudag • Forseti
Filippseyja, Corazon Aquino,
var viðstödd athöfnina. Slysið
er meðal mannskæðustu sjó-
slysa á þessari öld. Með ferj-
unni var fólk á leið til
jólainnkaupa í höfuðborg
Filippseyja, Manila. Ekki er vit-
að fyrir víst hversu margir
voru með feijunni en um 2.000
manns eru taldir af. Hér á eft-
ir er sagt frá mestu sjóslysum
sem orðið hafa frá aldamótum.
í. 30. janúar 1945 fórust á milli
6.0Ó0 og 7.700 manns í Eystra-
salti þegar flutningaskip nasista
Wilhelm Gustloff varð fyrir árás
sovésks kafbáts og sökk. Flutn-
ingaskipið var yfírfullt af Þjóð-
veijum sem voru að flýja Pólland.
900 komust lífs af.
2. Nóvember 1948 sprakk
kínverskt vöruflutningaskip með
um 6.000 manns innanborðs og
sökk úti fyrir Mansjúríu. Enginn
komst lífs af.
3. 3. desember 1948 fórust á milli
1.000 og 3.920 manns þegar
kínverskt skip, Kiangya, með
flóttafólki sökk nálægt Shanghai.
4. 26. febrúar 1916 drukknuðu á
milli 1.200 og 3.100 manns í Mið-
jarðarhafi þegar franska
skemmtiferðaskipið Provence
sökk.
5. 6. desember 1917. Franska
vopnaflutningaskipið Mont Blanc
og belgískt gufuskip rákust á í
Halifax. 1.600 manns létu lífíð í
árekstrinum.
6.14.-15. apríl 1912. Titanic rakst
á ísjaka á Atlantshafi í jómfrúr-
ferð sinni. 1.500 fórust þegar
Titanic sökk.
7. 20. desember 1987. Nær 2.000
eru taldir af eftir að feijan Dona
Paz rakst á olíuflutningaskipið
Victor við Filippseyjar. 26 manns
var bjargað.
8. 7. maí 1915 fórust 1.198 með
breska gufuskipinu Lusitaniu sem
sökkt var af þýskum kafbát úti
fyrir strönd írlands.
9. 26. september 1954. Yfir 1.160
manns létu lífið þegar japanska
feijan Toya Maru sökk á Tsug-
aru-sundi í Japan.
10. 15. júní 1904. 1.020 létu lífið
þegar gufuskipið General Slocum
brann á East River í New York.
11. 29. maí 1914 drukknuðu
1.010 þegar breska gufuskipið
Empress of Ireland sökk eftir
árekstur við norskt kolaskip á St.
Lawrence ánni.
12. 29. ágúst 1916. Þúsund
manns fórust þegar kínverska
gufuskipið Hsin Yu sökk úti fyrir
strönd Kína.
13. 18. mars 1921. Gufuskipið
Hong Kong fórst á Suður-Kína-
hafi með þeim afleiðingum að
1.000 manns drukknuðu.
14. 28. september 1912. Þúsund
mahns fórust þegar japanska
gufuskipið Kichemaru sökk við
Japansströnd.
15. 24. júlí 1915. 810 létu lífið
þegar gufuskipinu Eastland hvolf-
di á Chicago-ánni.
Olíuverð óstöð-
ugt á næstunni?
London, Reuter.
SÉRFRÆÐINGAR um olíumál