Morgunblaðið - 13.01.1988, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988
Verðútreikningar fjármálaráðuneytísiiis:
Gert ráð fyrir
óbreyttu verði
á kótilettum
Vinnslu og meðferðarkostnaður veld-
ur hækkuninni, segja fulltrúar
landbúnaðarráðuneytisins
BOLLI Bollason hagfræðingur fjármálaráðuneytisins segir að í verð-
útreikningum ráðuneytisins hafi verið gert ráð fyrir að niðurgreiðsl-
ur nægðu til að verð á almennum neysluvörum úr dUkakjöti, svo sem
kótUettum og lærissneiðum, yrði óbreytt þrátt fyrir upptöku sölu-
skatts á matvæU. BoUi segir. að þetta hafi verið gert samkvæmt
upplýsingum frá landbúnaðarráðuneytinu. Guðmundur Sigþórsson,
skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu, sagði hins vegar í sam-
taU við Morgunblaðið, að hér væri um að ræða vinnslu- og með-
ferðarkostnað, sem hefði hækkað í kjölfar söluskattsbreytinganna.
Morgunblaðið/Þorkell
Frá vinstri Ingfibjörn Hafsteinsson frá matvörukaupmönnum, Sigurður Jónsson frá Verslunamefnd
kaupfélaganna, Magnús Finnsson framkvæmdastjóri Kaupmannasamtaka íslands, Jóhannes Jónsson frá
kjötkaupmönnum, Jón Sigurðsson framkvæmdastjóri Miklagarðs og Jón Ásbergsson forstjóri Hagkaups.
Matvömkaupmeim óánægðir með álagningu landbúnaðarvara;
Hætt við að hverfa-
verslunum fækki
MIKIL óánægja er meðal matvörukaupmanna með ákvörðun verð-
lagsráðs á álagningu á landbúnaðarvöram sem tóku gildi 7. janúar.
Landbúnaðarvörar era um þriðjungur af veltu matvöruverslana og
telja kaupmenn hættu á að hverfaverslanir leggi upp laupana ef
ekki næst fram leiðrétting.
Að sögn Bolla Bollasonar var
reiknað með hækkun á unnum kjöt-
vörum, vegna launaliðs og sölu-
skatts á umbúðir. Hinsvegar hefði
verið gert ráð fyrir að almennar
neysluvörur úr dilkakjöti, svo sem
kótelettur og lærissneiðar myndu
ekki hækka og ef það gerðist kæmi
það jafnmikið í bakið á fjármála-
ráðuneytinu og öðrum. Guðmundur
Sigþórsson sagði að niðurgreiðslun-
ar hefðu verið miðaðar við þá
verðhluta sem eru skráð á opinber
verð í smásölu og þeir tækju því
ekki hækkunum. Hins vegar ef um
væri að ræða vöru sem væri meira
unnin, eins og kótilettur, væri
vinnslu- og meðferðarkostnaður
ekki niðurgreiddur þó að hráefnið
í kótilettunum væri niðurgreitt.
í samtölum við kaupmenn fyrir
helgi kom fram óvissa um hvort
endurgreiðsla á kjamfóðurgjaldi
kæmi þegar til lækkunar á alifugla-
og svínaafurðum. Bolli Bollason
sagði að Ijóst hafí verið frá upphafí
að endurgreiðslur þessar kæmu til
lækkunar á birgðir og fulltrúum
framleiðenda hefði verið gerð grein
fyrir þessu. Guðmundur Sigþórsson
sagði að Framleiðsluráð landbúnað-
arins hefði tilkjmnt öllum, sem eru
í framleiðslu á alifugla- og svína-
kjöti, að þessi ákveðna upphæð sem
um var rætt, kæmi til niðurgreiðslu
frá og með áramótum. Hafi orðið
Póstur og sími:
Þrír nýir
stöðvar-
stjórar
Á ÞREMUR stöðum víðs veg-
ar um landið hafa verið
skipaðir nýir stöðvarsljórar
Pósts og síma undanfarnar
vikur. Ragnar Helgason
stöðvarstjóri á Húsavík hefur
verið skipaður stöðvarstjóri á
Akranesi i stað Hermanns
Guðmundssonar sem látið
hefur af störfum vegna ald-
urs.
Þá hefur Anna Þóra Péturs-
dóttir póstafgreiðslumaður verið
skipaður stöðvarstjóri á Fá-
skrúðsfírði í stað Sigurðar J.
Jónssonar sem tekur við starfi
stöðvarstjóra í Vestmannaeyj-
um.
Loks hefur Erla Eyjólfsdóttir
yfírpóstafgreiðslumaður á Sel-
fossi verið skipuð stöðvarstjóri
Pósts og síma á Laugarvatni í
stað Önnu Böðvarsdóttur sem
hefur látið af störfum vegna
aldurs.
verðhækkanir umfram það sem
ráðuneytið gerði ráð fyrir, væru þær
vegna vörubirgða í búðunum sjálf-
um, en ekki á vöru frá framleiðend-
um.
Bolli Bollason sagði að þær tölur
sem fíármálaráðuneytið hefði gefíð
út, um að söluskattur á matvæli
þýddi 7% hækkun að meðaltali og
að framfærslukostnaður ætti ekki
að hækka vegna tollalækkana, mið-
uðust við þessar breytingar einar
og sér. Einnig hefði verið ljóst að
verðhækkanir vegna söluskatts
kæmu á undan verðlækkunum
vegna tollalækkana. Bolli sagði að
erfítt væri að segja til um hvað
tollabreytingamar yrðu lengi að
skila sér en sér fyndist ólíklegt að
það taki langan tíma. „Það er þeg-
ar komið í ljós að fólk heldur að
sér höndum og kaupir ekki hluti
sem það veit að lækka auk þess sem
margar verslanir hafa verið að aug-
lýsa lægra verð þótt birgðimar hafí
verið keyptar á gamla verðinu,"
sagði Bolli.
Athugasemdir fíármálaráðuneyt-
isins eru fram komnar vegna
ummæla formanns Neytendasam-
takanna um og eftir síðustu helgi
þar sem hann gagnrýndi upplýsing-
ar stjómvalda um líkleg áhrif tolla-
og söluskattsbreytinganna á verð-
lag í verslunum. Taldi hann þessar
upplýsingar villandi og í sumum
tilvikum rangar. í frétt fjármála-
ráðuneytisins segir hins vegar að í
málflutningi formannsins gæti svo
mikils misskilnings, að það verði
ekki hjá því komist að gera við
hann nokkrar athugasemdir. Þetta
sé nauðsyniegt til þess að hinn al-
menni neytandi fái ekki rangar
hugmyndir um það, hvemig skatt-
kerfísbreytingin komi fram í
Á sameiginlegum blaðamanna-
fundi Verslunamefndar kaupfélag-
anna og Sambandsins og
Kaupmannasamtaka íslands kom
fram, að kaupmenn innheimtu stór-
an hluta söluskattsins fyrir ríkið
án þess að fá þóknun fyrir.
Áð sögn Jóns Ásbergssonar for-
stjóra Hagkaups ætti álagningin
að vera á bilinu 16 til 18%, en er
voruverði.
í fréttatilkjmningu ráðuneytisins
er efasemdum formanns Neytenda-
samtakanna um útreikninga og
upplýsingar stjómvalda vísað á bug,
en þær efasemdir lutu einkum að
breytingum á álagningu kaup-
manna, hækkun innkaupsverðs um
áramót og hækkun á gegni Evrópu-
gjaldmiðla og loks um áhrif endur-
greiðslu á kjamfóðurskatt, sem
formaðurinn telur að geti tekið
langan tíma og þangað til muni
verðhækkun á þessum afurðum
nema um 25%, það er að söluskatts-
áhrifin komi fram af fullum þunga.
„Þetta er alrangt," segir í frétt
ráðuneytisins. „Hið rétta í þessu er,
að endurgreiðsla á kjamfóðurskatti
nú 9,9% á nýmjólk, 10% á skyr og
9,13% á dilkakjöti í heilum skrokk-
um. Álagningaprósentan er óbreytt
en lækkar í krónum talið og eru
uppi hugmjmdir meðal kaupmanna
um að leita eftir hærri álagningu
vegna aukins kostnaðar, sem leiðir
af notkun greiðslukorta.
Sigurður Jónsson frá Verslunar-
nefnd Kaupfélaganna sagði að
tekur til sölu frá framleiðendum frá
og með. 1. janúar sl. Með öðram
orðum, endurgreiðslan nær ekki
einungis til framleiðslu þessa árs,
heldur einnig birgða hjá framleið-
endum um áramót. Þess vegna er
ekkert því til fyrirstöðu, að áhrifa
hennar gæti í verðlagningu nánast
þegar í stað og alla vega ekki síðar
en verslanir hafa selt þær birgðir,
sem þær iágu með um áramótin."
Síðan segir í athugasemd ráðu-
neytisins: „Kjami málsins er þessi.
Núna um áramótin kom til fram-
kvæmda einhver mesta uppstokkun
á skattakerfínu, sem orðið hefur
hér á landi í áraraðir. Hún hefur í
för með sér gífurlega röskun á verð-
hlutföllum hér innanlands. Til
marks um það má nefna, að í kjöl-
farið breytist verð á meira en
helmingi þeirra liða, sem ganga inn
í framfærsluvísitöluna." Þá kemur
klausa sú sem vitnað er til hér í
upphafí og í lok athugasemda ráðu-
neytisins segir: „Þess vegna skiptir
öliu máli, að almenningur fylgist
grannt með þeim breytingum, sem
verða á vöruverði nú eftir áramótin.
Það er ekki síst verkefni Neytenda-
samtakanna að sjá til þess, að hinn
almenni neytandi fái réttar og
traustar upplýsingar um þessar
breytingar."
álagning á dilkakjöt hefði lækkað
um tæpar 6 krónur á kílóið, svipað
fyrir smjör og um 90 aura fyrir
hvem lítra af mjólk. Því væri ljóst
að dreifíngakostnaður og kostnaður
kaupmanna við að geyma vörana
væri mun hærri en sölulaun þeirra.
„Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til
að ná fram leiðréttingu eftir hefð-
bundnum leiðum hefur það ekki
tekist," sagði Sigurður og vitnaði
til 12. greinar laga um verðlag,
samkeppnishömlur og óréttmæta
viðskiptahætti, en þar segir: „Verð
og álagningu má ekki ákveða lægri
en svo, að fyrirtæki þeirra tegundar
er í 1. mgr. getur, fái greiddan
nauðsynlegan kostnað við innkaup
eða endurinnkaup vöra, fram-
leiðslu, aðflutning, sölu, flutning
ásamt afskriftum, svo og sann-
gjaman, hreinan hagnað, þegar
tekið er tillit til áhættunnar við
framleiðslu vörannar og sölu."
. Sigurður sagðist óttast að
ákvörðun verðlagsráðs ætti fyrst
og fremst eftir að bitna á neytend-
um til dæmis í formi breyttra
neysluvenja.
Magnús Finnsson framkvæmda-
stjóri Kaupmannasamtakanna
sagði að hverfaverslanir og verslan-
ir í dreifbýli ættu þegar erfítt
uppdráttar. Ráðstafanir sem þessar
kæmu verst við þær og ættu eftir
að stuðla að enn frekari fækkun
þeirra þar sem álagning á nauðsynj-
um réði tilvist þeirra.
Stöðvarstjóri á Húsavík:
8 umsókn-
ir bárust
8 UMSÓKNIR bárast sam-
göngumálaráðuneytinu um
stöðu stöðvarstjóra Pósts og
síma á Húsavík, sem auglýst
var laus frá síðustu áramót-
um. Núverandi stöðvarstjóra,
Ragnari K. Helgasyni hefur
verið veitt staða stöðvarstjóra
á Akranesi.
Umsækjendur um stöðu hans
era: Eggert Haraldsson, Pat-
reksfírði, Einar M. Albertsson,
Siglufirði, Gísli Ólafsson, Akur-
eyri, Halldór H. Hilmarsson,
Höfn, Jón Kjartansson, Húsavík,
Reynir Ólafsson, Húsavík, Stef-
án Amaldsson, Akureyri og
Þórarinn Ólafsson, Húsavík.
Fjármálaráðuneytið um tolla- og söluskattsbreytingamar:
Hætta á að kaupmenn reyni
að misnota aðstöðu sína
o g hagnast á breytmgunni
„ÞAÐ sem skiptir öllu um framgang þessa máls er að neytendur
fái sem gleggstar upplýsingar um það hvernig þetta kemur við heim-
ilishaldið. Þar era áreiðanlega ýmsir þættir óvissir. Ekki síst það
atriði, hvernig kaupmenn muni bregðast við þessum breytingum.
Sjálfsagt má alltaf finna einhverja aðila, sem reyna að misnota að-
stöðu sina og hagnast á þessari breytingu. Sú hætta er alltaf fyrir
hendi,“ segir meðal annars í frétt frá fjármálaráðuneytinu, sem
Morgunblaðinu barst í gær, vegna ummæla formanns Neytendasam-
takanna um verðútreikninga i kjölfar söluskattsbreytinganna. í
fréttinni segir ennfremur að það sé hlutverk stjórnvalda að reyna
að tryggja framkvæmd þessa máls, þannig að skattalækkanir skili
sér í verðlagi hér innanlands og verðhækkanir fari hvergi fram úr
þvi sem tilefni gefst til. Þetta verði ekki gert með valdboði stjóm-
valda heldur þurfi að efla verðskyn neytendanna sjálfra, þvi aðhald
þeirra sé virkasta verðlagseftirlitið.