Morgunblaðið - 13.01.1988, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 13.01.1988, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988 Að sjúga rokk og ról ÞRIÐJUDAGINN 29. desember voru haldnir tónleikar í Duus-húsi komu þar fram fjórar mis- áheyrilegar hljómsveitir. Tónleik- arnir voru býsna vel sóttir og er ánægjulegt til þess að vita að lif- andi tónlist heilli fólk ennþá, jafnvel þó svo að ekki séu allir flytjendur þekktir. Tónleikarnir hófust um tíuleytið og stóðu fram til klukkan eitt og leið blessunarlega stuttur tími milli hljómsveita. Fyrsta kastið voru gömul lög með Bubba Morthens leikin í hléum og fóru þá að renna tvær grímur ef ekki fleiri á undirrit- aðan. Gagnrýnandi telur sig nú ekki háaldraðan mann, en við það að hlýða á rokkforingjann Bubba, eins og hann var hér i mínu ung- '’dæmi, fór ég að velta því fyrir mér hvað margt hefði nú gerst síðan. Og svo fannst mér það bara ekk- ert undarlegt þegar ég fór að telja árin. Útúrdúr Hljómsveitin Útúrdúr frá Keflavík steig fyrst sveita á stokk. Eftir að hafa hlustað á hana um nokkurt skeið fór ég að sannfær- ast um að hún bæri nafnið með rentu. Og í framhaldi hugrenninga BDinna vegna tónlistarinnar með Bubba fór ég aftur að velta því fyrir mér hvað hefði eiginlega gerst síðan — en með nokkrum öðrum formerkjum. Útúrdúr var nú samt ekki alslæm, en mér fannst nokkuð skorta upp á að hún ætti erindi á tónleika, þó ekki væri nema vegna starfsreynslunnar, ef svo má að orði komast. Meðlimirnir eru ekki nógu öruggir með sig, samspilinu er ábótavant og síðast en ekki síst er ekki nógu mikið bítl í þessari Keflavíkurhljómsveit. Blátt áfram Næst geystist fram á völlinn hljómsveitin Blátt áfram. Gagnrýn- andi hafði mjög gaman af sveitinni, þétt og viss á sínu. Þá voru laga- smíðarnar margar hverjar mjög sniöugar (t.d. „Nostradamus"), en slíkt þykir gjarnan vera til bóta í þessum „bransa". Söngkonan Inga var hins vegar annar handleggur. Eins og ég var nú hrifinn af frammistöðu hennar og Bjarkar systur hennar á „Loft- mynd“ Megasar. Það er leiðinlegt að segja það, en hún sýndi ná- kvæmlega engin tilþrif í Duus-húsi. Það kemur fyrir bestu söng- konur að missa úr tón og tón — en heilu og hálfu lögin eru full mikið af því góða. Annað var þó enn leiðigjarnara (furðulegra?), en það var að hún fékk óstöðvandi hláturköst í miðjum lögum og þreyttist síðan ekki á að segja okkur ótíndum almúganum að síðasta lag hefði verið misheppn- að, hálfmisheppnað eða bara soldið. Þetta var farið að verða eins og bein lýsing hjá Hemma Gunn, en er kannski óvitlaus hug- mynd. Stjörnugjöf flytjenda á eftir hverju lagi — af hverju ekki? Aðfall Ég held að rétt sé með fariö að þetta hafi verið fyrstu hljómleikar Aðfalls og þeir komust ágætlega frá sínu. Reyndar mátti greina af lófatakinu, sem skiþtist nokkuð eftir borðum, að salurinn var vel skipaður vinum og vandamönnum, en það er nú jafngamalt mann- kynssögunni. A<5fe//flytur popp með Ijóðrænu ívafi, en einhver stakk því að mér að meðlimir hlytu að hafa orðið fyrir áhrifum frá Hljómumi Sjálfum fannst mértónlistin bara ekki nógu skemmtileg, en hver maður sinn smekk. Hvað Ijóðrænuna áhrærir þá hefði hún nú notið sín betur ef söngvarinn hefði ekki þurft að vera með neðanmálsgreinar milli laga til þess að nýgervingin í hinu næsta færi nú örugglega ekki fram hjá neinum. Morgunblaðið/BS Myndin vartekin þærtvær nanósekúndur, sem Bjössi basti stóð kyrr. _-~>t------------- rokksíðan ÁRNI MATTHÍASSON Ljósmynd/BS Sungið með Aðfallir.u. Bleiku bastarnir Síðastir á dagskrá voru aðalfor- ingjarnir: Bleiku bastarnir. Þeir leika einfalt, hrátt rokk sem svífur einhverstaðar í eternum milli pönks og rokkabillís. Þetta er til- gerðarlaust rokk, en því miður er leitun að tilgerðarleysi í íslensku poppi, hégóminn alls ráðandi. Það á enginn Bastanna eftir að fá verðlaun fyrir „besta hljóðfæra- leik“ — a.m.k. ekki í náinni framtíð — sem er líka eins gott, því hér er það hamslaus tjáningin sem máli skiptir; ekki einhver fágstefna virtúósa. Að mínu mati er Bjössi Baldvins nú einn besti sviðsmaður í íslensku rokki. Og enn leitar hugurinn aftur til Bubba. Vér gamlingjarnir mun- um eftir því þegar Bubbi var að byrja í Alþýðuhússkjallaranum (man einhver hvar hann var?) og það sem heillaði var ekki síst ofsa- fengin sviðsframkoman. Bjössi minnir mig um sumt á það, en hann er ekki fylltur heilagri reiði líkt og Bubbi heldur hefur hann afskaplega gaman af þessu öllu saman og hlær að og með rokk- inu, sjálfum sér og heiminum. Hann kallar það að sjúga rokk og ról og ég er fullsáttur við þá skilgreiningu. András Magnússon. Útúrdúr Morgunblaðið/BS Blátt áfram. Bestu plöturnar Plötukaupendur og gagnrýnendur hafa fengið að segja sitt um bestu plöt- ur ársins og ekki er úr vegi að leyfa plötuútgefendum að láta uppi hvaða augum þeir líta íslenskar plötur ársins. Að vonum er mönnum efst í huga þær plötur sem þeir hafa átt þátt í að gera og koma út og í sambandi við það óskaöi Steinar Berg eftir að fá að láta eftirfarandi fylgja hans vali: „Mat mitt mótast af þeim samskiptum sem ég hef átt við þá flytjendur sem Steinar hf. hefur gefið út á árinu. Þegar ég er beðinn að velja fimm bestu plöturnar er væntanlega átt við þær plötur sem veitt hafa mér mesta ánægju. Ég aðskil ekki markaðslegt- og persónulegt mat þannig að þegar ég er spurður eftirá hverjar séu uppáhalds plötur ársins 1987, þá eru það mest seldu plötur míns fyrirtækis." Jónatan Garðarsson, Pótur Kristjánsson, Steinar Steinar Bjartmar Guðlausson - Bjartmar Guðlaugsson - í fylgd með fullorðnum í fylgd með fullorðnum Bubbi Morthens - Dögun Bubbi Morthens - Döqun Grafík - Leyndarmál Centaur - Blúsjamm Megas - Loftmynd Grafík - Leyndarmál Stuðmenn - Á gæsaveiðum Gunnar Þórðarson - í loftinu Kári Waage, Fálkinn Centaur - Blúsjamm Grafík - Leyndarmál Megas - Loftmynd Tíbrá - Yfir turnunum Rikshaw - Rikshaw Ásmundur Jónsson, Grammið Bubbi Morthens - Dögun Megas - Loftmynd Ornamental - Kyrrlátt kvöld á Hótel hjartabrot Ýmsir - Snarl 1 Sykurmolarnir - Cold Sweat Steínar Berg ísleifsson, Steinar Bjartmar Guðlaugsson - í fylgd með fullorðnum Grafík - Leyndarmál Greifarnir - Dúbl í horn Model - fylodel Ríó tríó - Á þjóðlegum nótum Jón Ólafsson, Skífan Óskar Þórisson, Skífan Brynjar Baldursson, L Skífan Bubbi Morthens - Dögun Gaui - Gaui Megas - Loftmynd Strax - Face the Facts Stuðmenn - Á gaesaveiðum Jón Múli Árnason - Sönglög Megas - Loftmynd Strax - Face the Facts Stuðmenn - Á gæsaveiðum Sykurmolarnir - Sykurmol- arnir Geiri Sæm - Fíllinn Grafík - Leyndarmál Hinsegin blús - Hinsegin 1 blús Megas - Loftmynd Stuömenn - Á gæsaveiðum 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.