Morgunblaðið - 13.01.1988, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988
Notaðu
símann þinn
betur!
Hringdu í Gulu línuna og
fáðu ókeypis upplýsingar
um vörur og þjónustu.
DÆMI:
Arkitekt, arinhleðslu, antikvörur,
áklæði, álsmiði, baöherbergisvörur,
baðtækni, barnavörur, bilavarahluti,
bilaviðgerðir, bókhaldsþjónustu,
blóm, borðbúnaðarleigu, bókbind-
ara, bruggefni, byssuviðgerðir,
byggingavörur, danshljómsveit,
dráttarbeisli, dúklagningamenn,
dúkkuviögerðir, eldhústæki, farsíma,
fatabreytingar, fiskvinnsluvélar,
flisalagnir, frystihólf, förðun, föndur-
vörur, gardínur, gardinuhreinsun,
gámaþjónusta, gínur, gler, gluggaút-
stillingar, gullsmið, gúmmíbát,
gúmmífóðrun, húsasmið, húsgagna-
smið, hljóðfæraviðgerðir, hótelvör-
ur, húsgagnasþrautun, innanhúss-
arkitekt, innheimtuþjónusta,
innflutningsaðstoð, innrömmun,
járnsmiöi, kennslu, kúnststopp, leð-
urhreinsun, lekaviðgeröir, Ijósmynd-
un, loftræstikerfi, lögfræðing,
markaðsráðgjöf, málverkaviðgerðir,
mótorhjólakennslu, múrara, mynd-
bandsþjónustu, orgelviðgerðir,
olíuúðun, peningaskápa, pianóstill-
ingar, pipulagningamenn, plexígler,
prentþjónustu, raftækjaviðgerðir,
rafvirkja, reykskynjara, ritvinnslu,
ryðvörn, ræstingu, samkomusal,
saumakonu, silkiprent, sjónvarps-
viðgerðir, sjónvörp, skallameöferð,
skattaaðstoð, skemmtikraft, skjala-
þýðanda, skrifstofuvélar, skrifstofu-
húsgögn, skrifstofuþjónustu,
skósmið, snjóbræðslukerfi, snyrt-
ingu, sorplúguhreinsun, stálvaska-
slipun, stiflulosun, svefnherbergis-
húsgögn, skerpingar, teikningu,
tískuvörur, tollskýrslugerð, trésmið,
tölvuskráningu, úrbeiningu, útgáfu-
þjónustu, varahluti, vatnsrúm, veit-
ingar, veitingahúsavörur, verka-
menn, verkfæri, vélaþvott, vélritun,
vélsmiðju, vinnugalla, þjófavarnar-
kerfi, þúsundþjalasmið, þýðingar,
ökukennara.
62-33-88
Kínverjar hafna leiðtoga-
fundarboði Gorbatsjovs
Leggja áherslu á brottför Víetnama úr Kambódíu
Peking, Reuter.
KÍNVERJAR höfnuðu í gær boði Míkhaíls Gorbatsjovs, Sovétleið-
toga, um leiðtogafund kommúnistaríkjanna tveggja. Það setti hann
fram í viðtali við kínverska tímaritið Viðhorf, sem kom út á mánu-
dag. Endurtóku Kínverjar fyrri yfirlýsingar Dengs Xiaopings um
þijú ófrávíkjanleg skilyrði bættra samskipta ríkjanna og þá sérstak-
lega kröfuna um að Víetnamar, sem eru bandamenn Sovétríkjanna,
dragi herafla sinn úr Kambódíu.
Skilyrði þessi, sem Kínveijar
nefna „hindranimar þtjár", felast í
því að Víetnamar fari með herlið
sitt frá Kambódíu; því að Sovét-
menn fari með innrásarlið sitt úr
Afganistan; og í þriðja lagi að Sov-
étmenn dragi úr liðssafnaði sínum
við landamæri Kína og Sovétríkj-
anna.
í viðræðum við japanskan gest í
desember sagði Deng, sem orðinn
er 83 ára gamall, að ástandið_ í
Kambódíu ylti á Sovétmönnum: „Án
sovéskrar aðstoðar gætu Víetnamar
ekki barist einn aukatekinn dag í
Kambódíu."
Vestrænir stjómarerindrekar í
Peking sögðu í síðasta mánuði að
svo virtist sem Deng hefði linast
eitthvað í afstöðu sinni, að skilyrði
fyrir leiðtogafundi ríkjanna væri nú
aðeins eitt — lausn Kambódíu-
vandans — en bættu við að lengra
gætu Kínveijar ekki gengið og að
hinar „þijár hindranir" væru enn í
vegi bættrar sambúðar ríkjanna.
Á síðasta ári sagði Deng að hann
hefði hug á að hitta Gorbatsjov inn-
an tveggja ára; áður en hann yrði
of gamall.
Leiðtogar Kína og Sovétríkjanna
hittust síðast árið 1959 þegar Maó
Zedong var gestgjafí Níkítu
Khrústsjovs í Peking. Þá lék allt í
Deng Xiaoping
lyndi milli ríkjanna, en árið eftir
hallaði undan fæti og hrakaði sam-
Kambódía:
Víetnamar kunna
að fara fyrir árs lok
Pekin^, Reuter.
AÐ SOGN víetnamskra heimild-
armanna vilja þarlend yfirvöld
gjarnan að herlið Víetnama verði
á brott úr Kambódíu um næstu
áramót. Þessi þróun mála kom
vestrænum sendimönnum eystra
mjög á óvart, en hún siglir í kjöl-
far boðs Míkhaíls Gorbatsjovs um
leiðtogafund Kína og Sovétríkj-
anna. Dragi Víetnamar heri sína
úr Kambódíu verður helstu
hindruninni rutt úr vegi bættra
samskipta þessara tveggja stór-
velda kommúnistaheimsins, Kína
og Sovétríkjanna.
Starfsstreita:
„Víetnamar gætu dregið herlið
sitt tilbaka fyrir árið 1990, hvort
sem sættir hafa náðst í viðræðum
Kambódíumanna eða ekki," var
haft eftir einum ónafngreindra
heimildamanna Æeuíers-fréttastof-
unnar. „Víetnamar gætu farið og
látið Kambódíumönnum það eftir
að ráða fram úr sínum málum.“
Hinn 20. þessa mánaðar er gert
ráð fyrir að friðarviðræður stríðandi
fylkinga í Kambódíu hefjist í París,
en innanlandsófriður þar hefur nú
staðið í níu ár.
Þar munu þeir Sihanouk fursti,
leiðtogi útlagastjómarinnar, og
Hun Sen, leiðtogi leppstjómar Víet-
nama í Phnom Penh, hittast og er
talið að aðalkrafa furstans verði
brottflutningur hins 100.000
manna herliðs Víetnama úr landinu.
Sérfræðingar í málefnum kom-
múnistaríkjanna hafa lýst undrun
sinni á þessari stefnubreytingu
Víetnama og telja að Sovétmenn
hafí lagt hart að þeim. Víetnamar
hafa fengið ómældan stuðning frá
Sovétríkjunum, bæði efnahagsleg-
an og hemaðarlegan.
búðinni mjög á næstu árum. Á
síðustu ámm hafa sést nokkur
merki þíðu en Kínveijar hafa, sem
fyrr segir, sagt Sovétmenn þurfa
að fjarlægja „hindranimar þijár“
áður en um nánari samskipti verði
að ræða.
Gaston Sigur, aðstoðamtanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sem fer
með málefni Suðaustur-Asíu, sagði
í Washington í gær að hann teldi
uppástungu Gorbatsjovs jákvæða.
„Það er gott ef Sovétríkin og Kína
geta endurvakið eðlileg samskipti
eins skjótt og kostur er,“ sagði
hann asískum blaðamönnum, sem
ræddu við aðstoðarráðherrann um
gervihnött. „Við sjáum ekkert í
samskiptum [Kína og Sovétríkj-
anna], sem gæti skaðað okkur eða
vini okkar í Asíu og á Kyrrahafi."
Vestur-Þýskaland:
Komust ná-
lægtalkuli
Bayreuth, Reuter.
VESTUR-ÞÝSKIR eðlisfræð-
ingar skýrðu frá því á
fimmtudag i fyrri viku að
þeir hefðu fryst lítinn
málmkubb niður í tólf millj-
ónustu úr gráðu frá alkuli,
mesta frosti sem hægt er að
ná, og hafa menn ekki kom-
ist nær því.
Frank Pobell, prófessor við
Bayreuth háskóla, tjáði frétta-
manni Reuters að þessi áfangi
hefði náðst á síðasta ári og
sagðist hann vona að rannsókn-
arhópurinn kæmist enn nær
alkuli, sem er -273,15 gráður
á Celsíus (0°K (Kelvin)), á nýja
árinu. Þeir hefðu fyrst fryst
málminn með eðallofttegund-
um og síðan notað segul á
koparkubbinn, sem hefði vegið
130 grömm.
Sérfræðingur telur konur mun
heppilegri stjórnendur en karla
Manchester. Time.
STARFSSTREITA, sem rekja má til stjómenda breskra fyrir-
tælcja, veldur milljarða punda kostnaði á ári hveiju, að dómi
sérfræðings á þessu sviði. Hann telur einnig, að heilsu starfs-
fólks yrði ávinningur að konum í stjóraunarstöðum.
Caiy Cooper prófessor, sem
stjómar streiturannsóknum hjá
Vísinda- og tæknistofnuninni í
Manchester, sagði nýlega á ráð-
stefnu þar í borg, að næsta
kynslóð kvenstjómenda hefði til
að bera nægan mannskilning til
að stýra breskum iðnaði gegnum
öldurót tæknibyltingarinnar.
Stjómunarhættir karla valda
streitu og hindra starfsfólks í að
ná sínu besta. Stjómendum á
Bretlandi hættir enn til að vilja
vera einráðir umfram það sem
gerist í öðrum löndum, að sögn
hans.
Cooper sagði, að starfsstreita
kostaði Breta sem næmi fimm til
tíu prósentum af þjóðarframleiðsl-
unni (eða um 300 milljarða punda
á ári) vegna heilsuleysis, sjúk-
dóma og dauða.
„Starfsstreita er nátengd því,
hversu ríka stjóm fólki fínnst það
hafa á starfsábyrgð sinni. Breskir
stjómendur, sem flestir em karl-
ar, em almennt ekki fúsir til að
láta undirmönnum sínum slíkt
frelsi í té, af því að þeim em völd-
in of föst í hendi," sagði Cooper.
Einnig hyllast þeir fremur til að
beita refsingum en lofi. Þar fara
konur öðmvísi að.
Hann sagði, að dregið hefði úr
streitu og vandamálum tengdum
henni, þar sem fengnir hefðu ver-
ið ráðgjafar til að aðstoða fyrir-
tæki við að kljást við þessi mál.
Hlutur kvenna eykst
Cooper benti á, að flórða hvert
fyrirtæki, sem komið væri á fót
nú um stundir, væri stofnað af
konum, og sífellt fleiri konur, sem
lykju háskólanámi, sæktust nú
eftir stjómunarstörfum. Samt em
um 95% forstjóra og um 90%
annarra forráðamanna fyrirtækja
karlar.
Þessi upplýsingar Coopers
koma í framhaldi af skýrslu, þar
sem forráðamenn fyrirtækja em
varaðir við, að háar tekjur þeirra
auki mjög á heilsufarslega áhættu
vegna streitu og fleiri þátta.
Heilsan í hættu
Dr. Andrew Melhuish, læknis-
fræðilegur ráðgjafí hjá Henley
Management College, segir í
tímaritinu Director um þetta efni:
„Það er aðeins á færi þessara
manna sjálfra að dæma um, hvort
umbunin er áhættunnar virði.“
Hann vitnar til nýlegrar rann-
sóknar, sem gerð var á hálauna-
mönnum í yiðskiptahverfinu City
í London. í henni kom fram, að
streita, langur vinnutími, of mikil
áfengisneysla og of lítil líkams-
þjálfun höfðu í för með sér
hækkaðan blóðþrýsting (hjá
18,1% þeirra sem rannsakaðir
vom), umtalsverða jrfirþyngd
(15,2%), ógreinda hjartasjúkdóma
á háu stigi (2,5%), hjartakvilla
(7,1%), lifrarsjúkdóma (6,8%),
hækkað kólesterólstig (9,6%), auk
þess sem 30,6% þátttakendanna
vom stórreykingamenn.
Chris Jessop, forstöðumaður
heilsugæslustöðvarinnar í City,
sagði, að áberandi væri, hvað ald-
ur þeirra, sem sendir væm til
stöðvarinnar á vegum fyrirtækja,
hefði lækkað, frá því að niðurstöð-
ur rannsóknarinnar vom kynntar.
Fyrir aðeins einu ári vom starfs-
menn þessir yfírleitt hátt á
fertugsaldri eða rúmlega fertugir.
Nú em fyrirtæki farin að senda
inn menn, sem em hálffertugir,
af ótta við afleiðingar streitu.
Jessop sagði, að hlutfallið milli
karla og kvenna meðal þeirra sem
kæmu í athugun væri níu karlar
á móti einni konu, og væri það í
samræmi við hlutfall kynjanna í
stjómunarstöðum.
4-