Morgunblaðið - 13.01.1988, Page 28

Morgunblaðið - 13.01.1988, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988 Útgefandi Framkvœmdastjóri Ritstjórar Aöstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fróttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 55 kr. eintakiö. Rödd Dubceks heyrist á ný frá Prag Fyrir réttum tuttugu árum snerust heimsfréttir mjög um atburðina, sem þá voru að gerast í Tékkóslóvakíu. Frels- isandi fór um landið undir forystu Alexanders Dubceks, þáverandi aðalritara kommún- istaflokks landsins. Þá töluðu menn um „vorið í Prag“ og sósíalisma með „mannúðlegt andlit“. Væntu margir mikils af þeim breytingum, sem unnið var að í Tékkóslóvakíu. Innan Kremlarmúra sátu hins vegar ráðamenn sovéska kommún- istaflokksins og þyngdist þeim mun meira á þeim brúnin sem fleiri frjálsræðis-fréttir bárust frá Prag. Fór svo í ágúst 1968, að fímm Varsjárbandalagslönd undir forystu Sovétríkjanna sendu herafla inn í Tékkóslóv- akíu til að binda enda á vorið í Prag og koma hitastiginu að nýju niður í þann kulda, sem þykir við hæfí í kommúnista- ríkjum. Var þetta gert í krafti Brezhnev-kenningarinnar svo- nefndu um að réttlætanlegt væri að beita sósíalísku her- valdi til að stemma stigu við „óæskilegri" þróun sósíalis- mans í einhverju því landi, sem Kremlveijar teldu sósíalískt. Alexander Dubcek og hálf milljón manna voru rekin úr tékkneska kdmmúnistaflokkn- um eftir innrásina. Síðan fréttist það helst af Dubcek, að hann væri við skógarhögg á afskekktum stað og núna fyrst, tuttugu árum síðar, heyrist rödd hans að nýju á Vesturlöndum í samtali við blað ítalskra kommúnista „L’Unita". Þar lýsir Dubcek lífí sínu eftir innrásina meðal annars á þann veg, að hann hafí verið „eins og fangi, sem fær ekki að fara lengra en fjöt- urinn leyfír". Allt hafí verið gert til að honum fyndist, að hann væri einskonar úrhrak eða útlagi í eigin landi. í 19 ár hafí lögreglan fylgst með honum eða þar til Míkhaíl Gorbatsjov kom til Prag í fyrra. „Síðan hef ég ekki séð lög- reglumennina," segir Dubcek. Skömmu áður en viðtalið birtist í ítalska blaðinu kom forystugrein þess efnis í Rude Pravo, dagblaði kommúnista- flokksins í Tékkóslóvakíu, að það sé gróf rangtúlkun að bera stjómarhætti Dubceks saman við þær breytingar, sem Gorb- atsjov hefur boðað í Sovétríkj- unum. Sovéska fréttastofan Tass sendi frá sér boðskap þess- efnis, að með aðgerðum Gorbatsjovs hafí sovéski kom- múnistaflokkurinn styrkt forystu sína en undir forystu Dubceks hafi kommúnisminn veikst í Tékkóslóvakíu. I ljósi orða Dubceks í L’Unita á ef til vill að skoða þessi ummæli í Rude Pravo og hjá Tass sem forvamarstarf. Þessar málpíp- ur ráðamanna í Prag og Moskvu hafí viljað segja það skýrt og afdráttarlaust, að Dubcek sé enn í ónáð og ekk- ert sé skylt með honum og Gorbatsjov. Sú staðreynd, að Dubcek fær nú að tala opinberlega og lögreglan hætti að vakta hann eftir að Gorbatsjov kom til Prag, á rætur að rekja til ákvarðana á æðstu stöðum. í Tékkóslóvakíu virðist hið sama vera að gerast og í Sovétríkjun- um fyrir rúmu ári, þegar Andrei Sakharov fékk að snúa til Moskvu, að áhrifamanni í ónáð er hleypt úr prísundinni og gefíð tækifæri til að láta ljós sitt skína. Sakharov hefur sagt, að gefa eigi Gorbatsjov tækifæri til að sýna, hvort hann standi við fyrirheitin um breytingar. Dubcek segir, að innrásin í Tékkóslóvakíu 1968 hefði verið „óhugsandi", ef Gorbatsjov hefði verið við völd í Sovétríkjunum. Þannig hafa þeir Sakharov og Dubcek báðir lýst að minnsta kosti óbeinu trausti á Gorbatsjov og greint hann frá stalínistunum. Er vit- undin um yfírlýsingar af þessu tagi- ástæðan fyrir breyttum högum þessara manna? Fyrir þá sem muna vorið í Prag og bundu vonir við nafn Dubceks er það merkileg stund að fá að nýju að kynnast við- horfum hans og sjá, að þau hafa ekki breyst. Hann vill að þráðurinn verði tekinn upp að nýju, þar sem frá var horfíð fyrir 20 árum, með því að binda enda á ritskoðun og nálgast fijálst markaðskerfi. Hvonigt er hins vegar á döfínni í Tékkó- slóvakíu eða Sovétríkjunum. En á meðan menn á borð við Dubcek og Sakharov fá að láta til sín heyra er enn von um að ný hugsun kunni að ná undir- tökunum. Rætt víö skipverjana sem björguðust af Bergþóri KE 5 Morgunblaðið/Ámi Johnsen Skipveijarnir sem björguðust. Frá vinstri Einar Magnússon, Sverrir Víglundsson og Gunnar Magnússon. „Góður Guð, láttu Arna Víkars sjá þessa sól“ Vélbáturinn Bergþór KE 5 fórst um 9 sjómílur norðvest- norður af Garðskaga síðastlið- inn föstudag og með honum tveir menn, en þrir skipverjar björguðust. Með Bergþóri fór- ust Magnús G. Þórarinsson skipstjóri og útgerðarmaður og Elvar Jónsson háseti. Bergþór var tæplega 60 tonna bátur, en brotsjór setti hann á hliðina. Þegar verið var að aðstoða Magnús við að komast út um neyð- arglugga í brú reið sá brotsjór yfír sem sökkti Bergþóri endan- lega og var Magnúsi ekki bjargað og Elvar Jónsson háseta sem var einn niðri í lúkar þegar báturinn fór á hliðina sáu aðrir skipveijar ekki eftir það. Magnús skipstjóri sem var kunnur sjósóknari og afla- maður og gætinn á sjó hafði síðast samband við land tæplega klukku- stund áður en slysið varð, en svo skjótt fór báturinn á hliðina og sökk að ekki reyndist unnt að senda út neyðarkall. Miðað við aðstæður er talið kraftaverk að þrír menn skuli hafa komist af, en Morgunblaðið ræddi við þá um slysið. „Ég sogaðist niður með bátnum og barðist um á hæl og hnakka“ Rætt við Gunnar Magnússon háseta „Við Sverrir vorum tveir á þilfari þegar brotsjór reið á bátnum og velti honum á hliðina. Ég sá brotið ríða á skipinu og náði að henda mér niður á þilfarið til þess að reyna að ná taki á einhveiju og halda mér,“ sagði Gunnar Magnússon háseti í samtali við Morg- unblaðið. ^ föður sinn út, kastaði ég slaka af björgunarbátslínunni til Magnúsar og hann náði taki á henni, en virt- ist mjög máttfarinn. í þessu reið ólag yfír og ég hvarf aftur niður með öldunni flæktur í línu björgun- arbátsins. í þessu ólagi sökk Bergþór á örskoti með miklum sog- um og ég sogaðist niður með bátnum. Ég missti takið á línunni sem ég hafði verið að toga út úr björgunarbátshylkinu, en barðist um á hæl og hnakka í kafínu. Ein- hvemveginn Iosnaði ég úr flækjunni og þegar mér skaut upp aftur var Bergþór sokkinn. Ég fékk lestar- lúgu í höfuðið þegar mér skaut upp, en um stund reyndi ég að hanga á henni og nýta flotið, en það var stórhættulegt. Óhemju ojía komst strax í sjóinn og við Einar drukkum talsvert af þeim ófögnuði, en brimið var slíkt að það var miklu ömggara að reyna að synda heldur en að vera nálægt hlutum eins og lestarlúgunni. Skammt frá sá ég fískikar fljóta, en enga menn og báturinn farinn. Það var óbjörgu- legt að sjá ekkert annað. Ég barst síðan nokkmm sinnum í kaf, en mér skaut alltaf upp aftur og eftir eina slíka hrinu sá ég á bakhliðina á gúmmibjörgunarbátnum um það bil 10—15 metra frá mér. Mér tókst að synda að honum og ná taki á bátslínunni og fikra mig nær björg- unarbátsopinu, en þegar ég komst „Það skipti engum togum að ég fór á bólakaf og fannst ég berast frá skipinu með öldunni sem reif mig með sér, en ég flaut síðan upp rétt við hvalbakinn. Þá heyri ég að Magnús skipstjóri setur á fulla ferð til þess að reyna_ að keyra bátinn upp úr brotinu. Ég náði að koma mér yfir á stýrishúsið, en þá vom bæði möstur bátsins komin í sjó og báturinn lá á stjómborðshliðinni. Ég synti að stýrishúsinu og kom mér upp á bakborðshlið þess. Það var bullandi sjór og heppni að mað- ur slasaði sig ekki í bamingnum, en þar sem ég kem að stýrishúsinu kastast gúmmíbjörgunarbátshylkið úr gálganum sem maraði í kafi og bátshylkið barst síðan til mín þar sem ég var einn á stýrishúsinu. Báturinn byijaði ekki að blásast upp, en ég náði takið á línunni sem liggur í þrýstiflösku hans og byrj- aði að draga hana út til þess að blása hann upp. Þar sem ég lá í sjóskorpunni og var að draga línuna sá ég Magnús skipstjóra koma út í neyðarútgangsgluggann og standa þar með axlir upp úr glugg- anum og í sömu andrá kom Einar stýrimaður upp um gluggann fram hjá pabba sínum og hóf þegar að reyna að hjálpa honum út um gluggann. Neyðarglugginn er helm- ingi stærri en aðrir gluggar stýris- hússins. Um leið og Einar byrjar að toga "9% Gunnar Magnússon þangað vissi ég ekki fyrr en ég lá inni í bátnum, því það voru hraust- ar hendur félaga minna sem kipptu mér inn í gúmmíbjörgunarbátinn. Að undanfömu höfum við Sverrir stundað miklar gönguferðir og í þessum gönguferðum hef ég lést um 7 kg. Enginn okkar þriggja reykir, en það er eins og við höfum verið að undirbúa okkur undir þessi átök, því við erum vel á okkur komnir líkamlega og krafturinn getur skipt sköpum ef menn ná að komast frá borði." Gunnar hefur tvívegis áður lent í kröppu á sjó. í annað skiptið var hann á 120 tonna bát, Jóni Ágúst, sem keyrði upp á sker undir Hafnar- bergi, en þeir náðu að komast frá landi með fulla lest af sjó og í hitt skiptið var hann stýrimaður á Blika þegar neyðarkall barst frá Víði II á reki tæpt undan Garðsskagaflös. Gunnar fór þá með Blikann og náði Víði II í tog. - á.j.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.