Morgunblaðið - 13.01.1988, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988
33
Frumvarp til lánsfjárlaga 1988:
Heildarlán-
tökur 21.794
milljónir kr.
Lántökur innanlands 12.210 m.kr. —
erlendis 9.574 m.kr.
Að tillögum meirihluta fjárhags- og viðskiptanefndar neðri deild-
ar Alþingis samþykktum gerir frumvarp til lánsfjárlaga 1988 ráð
fyrir heildarlántökum að fjárhæð 21.784 m.kr. Stefnt er að 12.210
m.kr. lántökum innanlands en 9.574 m.kr. lántökum erlendis. Frum-
varpinu var í gærkvöldi visað til þriðju umræðu i neðri deild í dag.
Allar breytingartillögur stjórnarliða voru samþykktar, en tillögur
stjórnarandstöðunnar felldar.
1.165 m.kr. hækkun
Stjórnarfnlmvarp til lánsfjárlaga
1988 kom til annarrar umræðu og
atkvæðagreiðslu í fyrri (neðri) þing-
deild í gær. Breytingartillögur
meirihluta fjárhagsnefndar þing-
deildarinnar (stjórnarliða) standa til
1.165 m.kr. hækkunar á heildarlán-
tökum frá því sem var, er frum-
varpið var lagt fram. Tillögur
meirihlutans standa til 60 m.kr.
hækkunar á innlendum lántökum
en 1.105 m.kr. hækkunar á erlend-
um lántökum. Að tillögum meiri-
hlutans samþykktum nema
heildarheimildir til töku lána á árin
21.784 m.kr.
Milliganga ríkissjóðs
Lántökuhækkunin fer um ríkis-
sjóð, en í raun er hér um að ræða
lánsfé til stofnana og fyrirtækja.
Helztu breytingar, samkvæmt til-
lögum meirihlutans, eni þessar:
1) Hækkun innlendrar lántöku,
60 m.kr.: lánveiting ríkisins til
RARIK 1988 vegna framkvæmda
við línu niður á Krosssand.
2) Hækkun erlendra lántaka,
1.105 m.kr.: RARIK 160 m.kr.
Sæberg hf.- Ólafsfírði 180 m.kr.
(vegna breytinga á Mánaberginu í
skuttogara), fjögur raðsmíðaskip
565 m.kr. Öll þessi lán ganga til
greiðslu erlendra skammtímalána,
sem hafa verið tekin, og auka því'
ekki við skuldir þjóðarbúsins. Þá
hækkar lántökuheimild Byggða-
stofnunar um 200 m.kr. Byggða-
stofnun skal m.a. styðja við útgerð
í þeim byggðarlögum þar sem hún
hefur dregizt saman.
3) Við afgreiðslu fjárlaga var
framíag til Kvikmyndasjóðs hækk-
að úr 40 í 60 m.kr.
4) Við afgreiðslu fjárlaga var
framlag ríkissjóð til Jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga hækkað úr 1.485
m.kr. í 1.533 m.kr. Nú er þetta
framlag hækkað enn í 1.540 m.kr.
5) Byggðastofnun er heimilað
að nýta hagstæð lánskjör á erlend-
um lánamörkuðum.
6) Bætt er inn í frumvarpið, að
ósk Seðlabanka, heimild fyrir ríkis-
sjóð til að gefa út og selja ríkisvíxla.
Mikil óvissa framundan
í nefndaráliti minnihlutans,
Kristínar Halldórsdóttur (Kvl/Rn.)
Ilcildarjfirlil um innlendar og crlcndar lánlökur 1988.
Sala Vcrðhréfa- Vcrðbréfa- önnur Innlcnd
spari- knup kaup innlcnd lántaka Erlcnd 1 lcildar
skirtcina h.tnknkcrfis lífsjóða lántakn nlls lán lántökur
I. Opinbcrir aóilar 3 otm 1 260 4 260 I 949 6 209
Ríkissjóóur. A hluli 3 (MXI 1 260 — — 4 260 905') 5 165
Fyrirt.rki mcð cignaraóihl ríkissjóðs .... — — — 650 650
Svcitaríélóg — — — — — 394 394
II. Opinbcrar l.inastofnanir 280 6 11() 3(X) 6 690 750 7 440
Bvggingarsjóður rikisins — — 4 750 50 4 8<X) 4 800
BygcingarsjiM>ur vcrkamanna — — 1 360 — 1 360 1 360
Bvggðastofnun. almcnnar l.invciting.ar — — — 250 250 550 ^ 8<X)
Byggðastoínun. innlcnd skipasmíði .... — ■ — — — 200 200
Framkv.rmdasjóður — 280 — — 280 - 280
III. Atvinnufvrirt.Tki og sjóðir 60 1 200 1 260 6 875 8 135
Atvinnufyrirt.Tki — — — — — 4 8(X) 4 8(X)
Hcrjólfurhf. Vc'tmannacyjuin — — — — — I25;) 125
Flóah.lturinn Baldur hf — — — 100 |(K)
Fiskvciðasjóður. grciðsluhalli — — — 150 150 150 3(X)
Fiskvciðasjóður. útl.in — — — 250 250 350 600
IðnlAnasjcíður — — — 3(X) 3(X) 4(X) 700
Iðnþróunarsjóður — *■ — — 50 50 100 150
Stofnlánadcild landhúnaðarins — — 60 — 60 60
Útflutningslrtnnsjóður — — — 50 50 50 100
Fjármögnunnrlcigur — — — 400 400 800 1 200
Hcildarlántökur (I + II +111) 3 (XX) 1 540 6 170 1 500 12 210 9 574 21 784
') Erlcndar líntókur rlkisrjóös tl árinu 1988 aö fjarhxö 905 m.kr. cru ckki vcgna cigin ráöstófunar hcldur vcgna
milligðngu rlkissjóðs um langtlmalántökur til RARIK. raðsmlðaskipa og Mánabcrgsins á árinu 1988.
*) Þar af 25 m.kr. ónotud hcimild frá árinu 1987.
Hcimild: Fjárlaga- og hagsýslustofnun.
Meðfylgjandi tafla fylgdi nefndaráliti og breytingartillögum stjórnarliða í fjárhagsnefnd neðri deildar
þegar sljórnarfrumvarp til lánsfjárlaga 1988 kom til annarrar umræðu í þingdeildinni i gær.
MÞffiGI
og Steingríms J. Sigfússonar (Abl/
Nl.e.) eystra segir m.a.:
„Með tilliti til fyrri reynslu og
allra aðstæðna eru litlar líkur til
að þessi áætlun um fjármagnsþörf
standist. Mikil óvissa er um þróun
efnahagsmála á næstu mánuðum,
en horfur eru allar heldur á verri
veg. Gert er ráð fyrir samdrætti í
sjávarafla og framleiðslu sjávaraf-
urða. Afkoma útflutningsfyrirtækja
hefur farið versnandi, og spáð er
tvöfalt meiri viðskiptahalla við út-
lönd á þessu ári en hinu síðasta.
Gengismálin eru í uppnámi, verð-
lagshorfur eru óljósar og óraunhæft
er að reikna með aðeins 10% verð-
bólgu frá upphafí til loka árs, þar
sem verðbólgan er nú um 30% og
engin teikn á lofti um að hún fari
lækkandi á næstunni. Samningar
um kaup og kjör eru framundan,
þar sem óhjákvæmilegt verður að
rétta verulega hlut hinna tekju-
lægstu, en auknar álögur á almenn-
ing, m.a. í formi matarskatts, auka
stórlega á þungann í réttmætri
kröfugerð alls launafólks ...“
Breyting-artillögur
minnihlutans
Minnihluti fjárhagsnefndar,
Kristín og Steingrímur, með og
ásamt Inga Birni Albertssyni (B/
Rvk), fluttu þtjár breytingartillögur
við lánsfjárlagafrumvarpið. Breyt-
ingartillögumar fela í sér að fallið
verði frá ráðgerðri skerðingu til
Hafnarbótasjóðs, Ríkisútvarps og
Ferðamálasjóðs.
Vestmannaeyjaf erja
Samþykkt var breytingartillaga
tveggja stjómarliða í fjárhags-
nefnd, Kjartans Jóhannssonar
(A/Rn) og Guðmundar G. Þórarins-
sonar (F/Rvk), sem skrifuðu undir
nefndarálit meirihlutans með fyrir-
vara, við 7. grein frumvarpsins.
Samkvæmt þeirri grein var Heijólfí
hf. Vestmannaeyjum heimilað að
taka 100 m.kr. lán til „hönnunar
og smíði feiju". Kjartan og Guð-
mundur lögðu til að í stað orðanna
„hönnunar og smíði feiju" komi:
að fengnu samþykki fjármálaráð-
herra og Qárveitinganefndar Al-
þingis til hönnunar feijunnar".
Kjartan sagði í framsögu að eðlilegt
væri að Vestmannaeyingar fengju —
hliðstæða fyrirgreiðslu í sam-
göngum og aðrar byggðir, sem
nytu vegakerfis. Hinsvegar hafí
ekki legið fyrir nægilegar upplýs-
ingar þetta mál varðandi. Þess-
.vegna sé eðlilegt að setja inn
fyrirvara um samþykki ^ármála-
ráðherra og fjárveitinganefndar.
Raunar ætti sá fyrirvari víðar heima
þegar lántökur út í þjóðfélaginu og
hagsmunir ríkisins sköruðust.
Skoðanakönnun Hagvangs:
Æskan útbreiddasta og
mest lesna barnablaðið
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
barnablaðinu Æskunni:
Bamablaðið Æskan er útbreidd-
asta bamatímaritið hér á landi
samkvæmt könnun sem Hagvangur
hf. gerði nýlega á lestri tveggja
stærstu bamatímaritanna, Abc og
Æskunnar. 1000 manns á aldrinum
18—67 ára vom í úrtakinu og náð-
ist í 781 einstakling sem jafngildir
78,1% svörun. Það er með bestu
heimtum í skoðanakönnunum.
í könnun Hagvangs var m.a.
spurt hvort Æskan og Abc væm
keypt í áskrift á heimilinu. Niður-
staðan varð sú að næstum því
helmingi fleiri heimili kaupa Æsk-
una, eða 18,6% spurðra gegn 10,1%,
sem sagðist kaupa Abc. Hvað lausa-
sölu varðar virðast jafnmargir, eða
1,5%, svarenda kaupa blöðin annað
veifíð. Það sýnir að mikill meiri-
hluti fóreldra kaupir fyrrgreind blöð
í áskrift handa bömum sínum ef
þeir kaupa þau á annað borð.
Séu niðurstöður búsetudreifíngar
skoðaðar hefur Æskan einnig þar
talsvert forskot. Landinu var skipt
í þijú svæði: Höfuðborgarsvæði,
þéttbýli úti á landi og strjálbýli.
Nákvæmlega helmingi fleiri kaupa
Æskuna í þéttbýli úti á landi en
Abc. í stijálbýli kaupa 29,3%
spurðra Æskuna en 16% Abc. Á
höfuðborgarsvæðinu er svipað hlut-
fall, 18,8% kaupa Æskuna en 10,7%
Abc. Á þessu má sjá að svipaður
munur er á dreifíngu blaðanna um
land allt.
í könnun Hagvangs var einnig
spurt hvort þátttakendur (yfírleitt
foreldrar) læsu fyrrgreind blöð. Þar
hefur Æskan einnig vinninginn.
12,7% segjast alltaf lesa Æskuna
en 7,3% Abc. Nákvæmlega jafn-
margir, eða 59,9%, svarenda sjá
aldrei blöðin. Áthygli vekur að
10,4% karlmanna lesa alltaf Æsk-
una en aðeins 4,4% Abc. En þegar
konumar eru spurðar er munurinn
minni. 14,8% þeirra sem svömðu
lesa Æskuna alltaf en 10,0% Abc.
Barnablaðið Æskan hefíir komið
út í 90 ár og er elsta barnablað sem
gefið er út hér á landi. Útgefandi
er Stórstúka íslands. Abc. hefur
komið út í 9 ár og er gefið út af
Fijálsu framtaki hf.
Frá afhendingu styrksins, talið frá vinstri: prófessor Valdimar K. Jóns-
son forseti verkfræðideildar, Guðfínna Kristjánsdóttir og Einar Ólafsson
foreldrar Kristjáns, Kristján B. Einarsson er hlaut styrltinn, forseti ís-
lands Vigdís Finnbogadóttir og Sigmundur Guðbjamason rektor HÍ.
Veitt verðlaun fyrir
frábæran námsárangur
ÚTHLUTUN úr Minningarsjóði
Þorvalds Finnbogasonar stúd-
ents fór fram mánudaginn 21.
desember. Styrkinn hlaut Krist-
ján B. Einarsson nemandi á 4.
ári í vélaverkfræði við verk-
fræðideild Háskóla íslands.
Sjóðurinn var stofnaður af for-
eldrum Þorvalds Finnbogasonar,
Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga
Rúti Þorvaldssyni prófessor við
verkfræðideild á 21 árs afmæli
Þorvalds sonar þeirra, 21. desember
1952. Er tilgangur sjóðsins að
styrkja stúdenta til náms við verk-
fræðideild Háskóla íslands eða til
framhaldsnáms í verkfræði við ann-
an háskóla að loknu prófí hér heima.
Að þessu sinni hlaut styrkinn
Kristján B. Einarsson, Bláskógum
3, Reykjavík, nemandi á 4. ári í
vélaverkfræði við verkfræðideild
Háskóla íslands. Mælti verkfræði-
deild með því við sjóðsstjómina að
Kristjáni yrði veittur styrkurinn
vegna frábærs árangurs í námi en
hann mun ljúka verkfræðiprófí í
vor.
Stjóm minningarsjóðsins skipa
nú Sjgmundur Guðbjamason, rekt-
or HÍ, Valdimar K. Jónsson, forseti
verkfræðideildar, og forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir sem er systir
Þorvalds Finnbogasonar.