Morgunblaðið - 13.01.1988, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 13.01.1988, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988 39 SVAR MITT eftir Billy Graham Guð opinberar sig Hvers vegna bindur þú guðstrú þína við Bibiíuna eina? Nóg er til af öðrum bókum með góðum hugmyndum um Guð. Sé Biblían ekki annað en safn hugmynda ýmissa manna, ritað af mönnum, er engin ástæða til að leggja meiri áherslu á hana en önnur mannleg hugmyndasöfn varðandi Guð. En Biblían segir ekki frá hugmyndum manna um Guð. Hún greinir frá hugmjmdum Guðs um menn! Með öðrum orðum, hún er ekki mannleg bók (þó að menn hafi skrifað hana) heldur er hún guðleg bók með algjörlega sérstæð- um hætti. Þetta er ástæðan til þess að kristnir menn vitna oft til Biblíunnar og segja að hún sé orð Guðs. Hún varð ekki til vegna þess að ein- hverjir menn komust að einhverri niðurstöðu um Guð. Hún varð til vegna þess að Guð ákvað að opinberast okkur. „Vitið það umfram allt að enginn ritningar-spádómur verður þýddur af sjálfum sér; því að aldrei var nokkur spádómur borinn fram að vilja manns, heldur töluðu menn frá Guði, knúðir af heilögum anda“ (2. Pet. 1, 20—21). Hvers vegna gaf Guð okkur orð sitt? Hann gaf okkur það vegna þess að hann elskar okkur og vill að við þekkjum sig. Við þurfum ekki að geta okkur til um Guð því að hann hefur sagt okkur hvílíkur hann er og hvemig við getum þekkt hann í persónulegu samfélagi. Þess vegna ríður okkur á að vita hvað Biblfan kennir. Hér er um áð ræða mál sem snertir eilífðina. Eg geri mér ljóst að óvíst er hvort þú trúir því á þessari stundu að biblían sé orð Guðs. En nú skora eg á þig: Byijaðu að lesa Biblí- una með opnum huga. íhugaðu af einlægni hvað hún segir og vertu fus til að snúa þér af heilum huga til Guðs ef þú kemst að því að hún er sönn. Eg legg til að þú byijir á því að lesa í guðspjalli Jóhannesar og biðjir Guð að sýna þér hvort Jesús Kristur sé raunverulega einka- sonur hans, sendur af himnum ofan til þess að deyja fyrir þig á krossinum og frelsa þig frá syndum þínum. Jesús sagði: „Biðjið og yður mun gefast; leitið og þér munið finna" (Matt. 7,7). Viljirðu þekkja Guð skaltu snúa þér til Biblíunnar þar sem hann hefur opinberað sjálfan sig. Þegar þú gerir það er eg sannfærður um að þú áttar þig á að Jesús Kristur einn er „vegur- inn, sannleikurínn og lífið“ (Jóh. 14,6). SJÓNVARPS- BINGÓ Sjónvarpsbingó á Stöð 2 mánudagskvöldið 11. janúar 1 988. Vinningar í fyrri umferð þegar spilað var um eina lárétta línu. Spilað var um 10 aukavinninga, hver að verðmæti kr. 50.000,00., frá HUÓMBÆ: 56, 70, 67, 3, 89, 72, 60, 53, 26, 73, 37, 83, 7, 80, 79, 85, 58, 88. SPJALDNR. 14156. Þegartalan 88 kom upp var HÆTT að spila á aukavinningana. Þegar spilað var um BÍLINN komu eftirfarandi tölur upp. Spilað var um þrjár láréttar línur, (eitt spjald): 63, 16, 90, 74, 35, 75, 20, 40, 42, 1 5, 1,33, 51,29, 50, 5, 1 7, 77, 1 3, 31,45, 4, 32, 1 8, 41,78, 54, 87. SPJALDNR. 16701. SÍMAR 673S60 og673S61. ki OGUR STYRKTARFÉ LAG SlMAR: 673560 og 673561 NÝ KRABBAMEINS- LÆKNINGADEILD opnar á Landspítalanum í febrúar eftir gagngerar endurbætur. Hjúkrunar- ffæðingar og sjúkraliðar; hér er spennandi tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu nýrrar starfsemi. Tveggja vikna námskeið hefst 1. febrúar um hjúkrun og læknismeðferð krabbameins- sjúklinga. Boðið er upp á fastar kvöld- og næturvaktir. Allar nánari upplýsingar gefúr hjúkrunarfram- kvæmdastjóri, Kristín Sop- husdóttir, eða hjúkrunar- deildarstjóri, Sigríður Snæbjörnsdóttir í síma 29000 - 486. HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Á SKURÐSTOFUR Dagvinna og gæsluvaktir. Góð vinnuaðstaða. Þriggja mánaða aðlögunartími. HJÚKRUNARFRÆÐING- UR í SPEGLANIR. Dagvinna, 50% starf. HJÚKRUNARFRÆÐING- UR í GÆSLUSKÁLA (RECOVERY) Hjúkrunarfræðingur óskast til afleysinga í gæsluskála kvennadeildar. Dagvinna. Lítill og þægilegur vinnustað- ur. Upplýsingar um ffarnan- greind störf geftir Bergdís Kristjánsdóttir, hjúkrunar- ffamkv'æmdastjóri í síma 29000 - 508. HJLJ KRU NARFRÆÐINGUR Á KVENNADEILD Hjúkrunarfræðingur óskast á Krabbameinslækningadeild kvenna 21 A, frá 1. febrúar. LJÓSMÆÐUR Á SÆNGUR- KVENNADEILD Ljósmæður óskast á nætur- vakt á Sængurkvennadeild. Fyrir 60% vinnu greiðast deildarstjóralaun. Ennfremur óskast ljósmæður á aðrar vaktir — sveigjanlegur vinnu- tími. Nánari upplýsingar gefúr hjúkrunarframkv'æmdastjóri, María Bjarnadóttir í síma 29000 - 509 STARFSMENN Ófaglærðir starfsmenn óskast í ýmis störf, bæði fastar stöður og til afleysinga. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa hjúkrunarfor- stjóra, sími 29000 - 484. STARFSMENN í ELDHÚS Ófaglærðir starfsmenn óskast í eldhús Landspítala, bæði í 75% starf og fullt starf. Nánari upplýsingar í síma 29000 - 491 (Jóhanna eða Olga). LÆKNARITARIÁ GEÐ- DEILD Geðdeild Landspítalans óskar eftir að ráða læknarit- ara í 50% starf. Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg og góð íslensku- og vélritunarkunnátta. Upplýsingar um starfið gefur skrifstofústjóri geð- deildar í síma 29000 - 637. ...fyrr en þú hefur kynnt þér málið RÍKISSPÍTALAR LANDSPÍTALI essemm/slA 19 09
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.