Morgunblaðið - 13.01.1988, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 13.01.1988, Qupperneq 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988 nmnmn * „fcg hc-yW sjávavn i$!" * Ast er... PUD ... að sjá ekki sólina fyr- ir henni. TM Reg. U.S. Pat. Ofl.—all rights reserved c1984 Los Angeles Times Syndicate Ágætt! Þú hefur lofað hon- um meira en ég treysti mér til að efna. HÖGNI HREKKVÍSI Hækkíð laun þeirra lægstlaunuðu Til Velvakanda Nú í upphafi árs stefnir í óróa á vinnu- markaði og virðast miklar kjaradeilur framundan. Annars vegar er verkafólk, sem vissulega þarf á leiðréttingu launa sinna að halda, en hins vegar aðrir sem þegar hafa viðunandi laun en ætla sér nú stóran hlut. Ég tel að við þær aðstæður sem nú hafa skapast ættu láglaunahópam- ir að ganga fyrir hvað launahækkanir varðar. Sérstaklega á þetta við um fólk sem vinnur í undirstöðuatvinnugrein okk- ar, fiskvinnslu. Fiskvinnslufólk vinnur erfiða vinnu, oft langan vinnudag en er skammarlega illa launað. Verkamaður Fæðingarorlof verdí jafnt fyrir allar konur Til Velvakanda Undanfama daga hefur staðið yfir kynning á breyttu fyrirkomu- lagi fæðingarorlofs. Þar á meðal er lenging fæðingarorlofs um einn mánuð og aukin réttindi maka ii é^ééíIiíié ■■■■■ ml lim fama daga. Hann er með ól en ómerktur. Upplýsingar í síma 33529. Svartur högui Fullvaxinn svartur högni hvarf í Árbæjarhverfí fyrir nokkm. Hann hefur grá hár á hálsi og var með gula 61. Þeir sem orðið hafa varir við hann em beðnir að hringja í síma 671006. Lykill Stakur lykill á kippu merktri „Sumarbústaður SÍL, lykill nr. 8 - Bessi", fannst í Skeijafírði fyrir skömmu. Upplýsingar í síma 13226. tekna, þ.e. beinharðra peninga, til heimilisins. Er ekki tíma'bært að leiðrétta þetta misrétti? Auðvitað á fæðingarorlof að vera jafnt fyrir allar konor. Gulllitað reiðhjól Asgrímur hringdi Gulllitað reiðhjól af gerðinni BMX-turbo hvarf frá Hólmgarði 50 síðari hluta síðustu viku. Á hjólinu em svartir púðar með áletmninni „Action". Þeir sem geta gefíð upplýsingar um hvar hjólið er niður komið em góð- fúslegast beðnir að hringja í síma 39224. Fundarlaunum er heitið. Foreldrar í hverfínu em vinsam- legast beðnir að athuga hvort þangað hafí borist reiðhjól af þessari gerð. Þessir hringdu . Fæðingarorlof verðijafnt Sigrún hringdi: „Ég vil taka undir með H.Þ. sem skrifar í Velvakanda hinn 7. þ.m. Það er mikið óréttlæti að heimavinnandi húsmæður fái ekki jafn mikið fæðingarorlof og konur sem vinna úti. Greinilegt er að störf húsmæðra em ekki mikils virði í augum ráðamanna. Ég tel tímabært að þetta misrétti verði leiðrétt." Köttur Svartur köttur hefur verið á flækingi við Rauðalæk undan- Víkverji skrifar Töluverðar umræður hafa verið um það um nokkurt skeið með- al þeirra, sem rita erlendar fréttir í Morgunblaðið, hvemig beri að standa að eignarfallsendingum ætt- amafna. Eins og lesendur hafa ef til vill veitt athygli hefur það oft tíðkast að hafa eignarfallsending- una á skímamafninu; dæmi: ræða Ronalds Reagan en síðan þegar skþ-narnafninu er sleppt ræða Re- agans. Um þetta hafa blaðamenn ekki verið á eitt sáttir. Engin algild regla er til í málinu um þetta. Hinn 30. desember sl. birtist hér í blaðinu grein eftir Árna Böðvars- son, málfarsráðunaut Ríkisútvarps- ins, þar sem hann drepur meðal annars á þetta atriði og vísar máli sínu til stuðnings í rannsóknir In- gólfs heitins Pálmasonar. Segir Ami það meginreglu í íslensku beygingarkerfí að orð verði ekki beygingarlaust þó að annað hlið- stætt orð bætist við. Þeir sem fylgi ekki þessari meginreglu skipi sér að minnsta kosti óafvitandi í þann fjölmenna flokk sem stefnir „að skemmdum á íslensku máli með því að fella niður beygingar." Eftir þessa ádrepu Áma urðu þeir, sem rita erlendar fréttir í Morgunblaðið sammála um, að hér eftir myndu þeir forðast að geta talist til mál- skemmdarverkamanna af þessum sökum. X- JL X. Fyrir þá sem vinna að því að flytja íslendingum fréttir af útlendingum, sem allir bera ættar- nöfn, er það þó ekki einhlítt að koma sér niður á það að bæði skímarnafn og ættamafn fái eign- arfallsendingu — síðan koma undantekningamar. Ámi Böðvars- son bendir einmitt á þær í Tungu- taki, húsblaði Ríkisútvarpsins, vettvangi umræðna um málfar. Þar segir í blaði nr. 33 nú í desember: „Þau ættamöfn sem taka eignar- fallsendingu þegar þau standa ein (verk Nordals, ljóð Thomsens) halda henni að sjálfsögðu í vönduðu máli þegar skímarnafnið bætist framan við: verk Sigurðar Nor- dals, ljóð Grims Thomsens. Ekki er venja að beygja ættamöfn kvenna á sama hátt, heldur t.d.: þulur Theodoru Thoroddsen. Það hefur þó stundum verið gert (sbr, athugun Ingólfs Pálmasonar). Rétt er að fara eins með nöfn útlend- inga: ræða Ronalds Reagans, stjórnártíð Benitos Mussolinis. Útlend karlmannanöfn sem enda á -a taka þó ekki slíkri breytingu (Rabuka, uppreisn Rabuka), og ekki virðist heldur þörf á að bæta eignarfalls-s-i aftan við nöfn sem enda á -e (t.d. morðingi Palme, Olofs Palme).“ Víkveiji getur fellt sig við hvert orð, sem þama stendur. Og með vísan til þess var það til dæmis rétt, þegar stóð í fyrirsögn á forsíðu Morgunblaðsins á föstudag:Mót- mæli við komu Margaretar Thatcher til Nígeríu. xxx Víkveiji vakti máls á því fyrir hálfum mánuði, að sögnin að versla virtist vera að útrýma sögn- inni aðkaupa. Nefndi Yíkveiji dæmi úr fréttatíma Bylgjunnar. Af þessu tilefni barst Víkveija bréf, þar sem honum var bent á að líta sér nær í Morgunblaðinu. Sendi bréfritari nokkrar úrklippur úr Morgunblað- inu og Þjóðviljanum máli sínu til stuðnings. Mesta athygli Víkveija vakti, að viðurkenndur rithöfundur notar sögnina að versla á þennan hátt í smásögu í Lesbók Morgun- blaðsins: „fyrir húsmæðrunum sem óskuðu einskis fremur en að fá að versla í friði sitt kjötfars og sínar agúrkur.“ Dæmi bréfritara eru annars þessi: hvers konar bækur versla þeir; við verslum föt okkar aðallega inn frá Ítalíu og Frakklandi; ég er að versla mér föt; við versluðum föt á sumartilboði; og verslar iðulega fatnað á mig; til dæmis mættu við- skiptabankar nú ekki versla hluta- bréf. Þessi dæmi sýna, að það er meira en tímabært að snúast gegn þessum ósómal

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.