Morgunblaðið - 09.02.1988, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.02.1988, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988 Heilbrigðisþing 1988 Tómas Helgason, prófessor: Merkja á áfengi með sama hætti og tóbak Bjórinn brýtur gegn markmiðum heil- brigðisáætlunar Frá heilbrigðisþingi 1988: Guðmundur Bjarnason, héilbrigðisráðherra, Páll Sigurðsson, ráðuneytis- stjóri, og Tómas Helgason, prófessor, í ræðustól. (Ljósm. Mbl. Ól.K.M.) Hjartasjúkdómar og krabbamein: Breytum líf smáta - tökum upp nýjan lífsstíl Fyrirbyggjandi leiðir kannaðar segir Guðmundur Bjarnason „Ný heilbrigðismarkmið fyrir Evrópusvæðið bygga ekki sízt á því, að bæta megi heilbrigði þjóð- anna með því að menn leiti aftur til hinna einföldu og tiltölulega ódýru aðferða, sem byggjast á breyttum viðhorfum til lífsins og lífsgæðanna, breyttum lifnaðar- háttum og nýjum lífsstíl". Þannig komst Guðmundur Bjamason, heilbrigðisráðherra, að orði, þeg- ar hann setti Heilbrigðisþing 1988 sl. föstudag. „Þvi er það“, sagði heilbrigðsráð- herra, „að við leitum fyrirbyggjandi leiða, leitum fyrirbyggjandi aðferða til þess að hjartasjúkdómamir, sem voru fátíðir í byijun þessarar aldar en hafa orðið eins og faraldur um og eftir miðbik hennar, geti aftur íjarað út í lok aldarinnar og bytjun þeirrar næstu. Svipuðu máli gegnir um hina aðaldánarorsök okkar, krabbamein- ið, þar er leitað leiða fyrst og fre- emst til þess að greina sjúkdóminn á frumstigi vegna þess að við vitum ekki nægilega mikið um orsakir, til þess að forvamarstarfið geti orðið jafn markvisst og við teljum að það geti verið í sambandi við hjartasjúk- dórna". Ráðherrann sagði að nú, að loknu starfí vinnuhópa og að loknu heil- brigðisþingi, yrði heilbrigðisáætlun endurskoðuð í ijósi framkominna ábendinga, og síðan lög fram á Alþingi til ályktunar, væntanlega fyrir vorið. „Fmmvarp um breytingar á áfengislögum, sem flutt er til að leyfa framleiðslu og sölu á áfengu öli, ásamt viðbrögðum sumra við þvf, er dæmigert fyrir skilningsleysi og tvískinnungs- hátt gagnvart þessu atriði. Raun- ar er óskiljanlegt að nokkur skuli vilja taka á sig ábyrgðina af því að stuðla að því, að Island verði fyrst meðlima Alþjóðaheil- brigðsistofnunarinnar til að bijóta gegn þessu markmiði". Það var Tómas Helgason, pró- fessor, sem þannig komst að orði á Heilbrigðisþingi 1988. „Þetta er þeim mun óskiljanlegra sem sumir þessara sömu aðila hafa gengið vel fram í baráttunni gegn öðrum nautnaefnum sem líka eru hættuleg heilsu manna. Vonandi verður um- ræðan um íslenzka heilbrigðisáætl- un til að afstýra þeirri hneisu sem felst í skilningsleysinu á hættunni sem fylgir Qölbreyttara og meira framboði áfengis". Prófessorinn sagði að merkja ætti áfengi sem hættulegt heilsu manna á sama hátt og tóbak. „En áfengi sem ekki er síður hættulegt [en tóbak], ef til vill hættulegra, hefur ekki enn verið merkt með svipuðum hætti. Umbúðir allra áfengra diykkja ætti auðvitað að merkja svo fólk sæi að innihaldið gæti valdið fíkn, geðsjúkdómum, krabbameini og hjartasjúkdómum". ÍSLENSK HEILBRIGÐISÁÆTLUN Skýrsla heilbrigöls- og Iryggingamalaraöherra Ragnhildar Helgadbltur íslenzk heilbrigðisáætlun: Forsíða íslenzkrar heilbrigðisá- ætlunar, skýrslu til Alþingis. Heilbrigði dýrmætasta eign einstaldingsins - verðmæt- asta auðlind þjóðarinnar Heilbrigðisþing - landsáætlun um heilbrigðisþjónustu ’afla 1: Heilbrigðisútgjöld sem hlutfall af vergri landsframleiðslu 1970-1985 Ár Heilbr- útgjöld á föstuverði M.kr. Verg lands- framleiðsla á föstu verði M.kr. Hlutfall heilbr- útgf. af vergri landsfram- leiðslu 1970 3,221.9 ' 59,336.3 5.43* 1971 3,540.9 66,858 8 5.30* 1972 3,818.0 71,238.7 5.36* 1973 3,966.2 74 .'534.5 5.32* 1974 4,217.5 78,870 5 5 35* 1975 4,839.3 80,164.5 6.04* 1976 5,119.6 84.422 0 6.06* 1977 5,226.0 92,075 9- 5.68* 1978 5,625.5 98,218 7 5 73* 1979 5,983.1 103,638 7 5 77* 1960 6,237.7 109,496 8 5.70* 1981 6,920.7 114,216 2 6.06* 1982 7,239 7 116,866 0 6.19* 1983 8,174.0 112,091.9 7.29* 1984 8.464.0 115,968 1 7.30* 1965 9,169.6 119,910.0 7.65* Verð 1985=100 Alþjóðaheilbrigðisstofnunin 3etti fram heilbrigðismálamark- mið árið 1977 undir kjörorðinu „Heilbrigði allra árið 2000". Árið 1986 ályktaði ríkisstjórnin, að frumkvæði Ragnhildar Helga- dóttur, að „vinna að landsáætiun í heilbrigðismálum með hliðsjón af stefnu Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar. Jafnframt lagði Ragnhildur fram íslenzka heil- brigðisáætlun - í formi skýrslu til Alþingis. Sjö vinnuhópar hafa síðan unnið að skoðun einstakra þátta heilbrigðisáætlunarinnar, á vegum viðkomandi ráðuneytis, og skilað áltisgerðum og ábend- ingurn. Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra, efndi síðan til heilbrigðisþings síðast liðinn föstudag, þar sem fjallað var um áætlunina og nefndarálitin. Skýrslur vinnuhópa íjölluðu um: 1) stefnu í heilbrigðismálum, 2) heilbrigða lífshætti, 3) heilbrigðis- eftirlit, 4) heilsugæzlu, 5) lyfjamál, 6) tryggingamál, 7) ú'ármuni og mannafla, 8) rannsóknir og kennslu, Dr. H. Mahler, framkvæmda- stjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunar- innar, ávarpaði heilbrigðisþingið, og fjallaði m.a. um forvarnir og fyrirbyggjandi starf. Að loknum ávörpum og framsög- um vinnuhópa fóru fram almennar umræður. Þingið sátu rúmlega 200 fulltrú- ar heilbrigðisstétta og heilbrigðis- stofnana og annarra aðila, er heil- brigðismálum sinna í einni eða ann- ari mynd. Þetta er annað íslenzka heil- brigðisþingið. Það fyrra var haldið 1980. Heilbrigðisþing skal haldið fjórða hvert ár, samkvæmt ákvæð- um laga um heilbrigðisþjónustu. í framhaldi af heilbrigðisþingi 1988 verður væntanlega lögð fram á Alþingi endurskoðuð íslenzk heil- brigðisáætlun til umfjöllunar og ályktunar. Heilbrigðisútgj öld: Tæp 8% af landsframleiðslu segir forsijóri ríkisspítalanna Það kom fram í rœðu Davíðs Á. Gunnarssonar, forstjóra ríkisspítala, á heilbrigðisþingi 1988, að útgjöld til heilbrigðis- mála nemi tœpum 8% af lands- framleiðslu. Orðrétt sagi Davíð Á Gunnars- son: „Hlutfall heilbrigðisútgjalda af vergri iandsframleiðslu, var, sam- kvæmt útreikningum Þjóðhags- stofnunar, 7,1% 1883, 7,6% 1984, 7,6% 1985. Hlutfallið er lítið eitt hærra mælt af þjóðarframleiðslu, eða 8% 1985". Mikil áhersla hefur verið lögð á líkamsrækt á síðari árum til að efla hreysti og bæta heilsuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.