Morgunblaðið - 09.02.1988, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 09.02.1988, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988 ÚTSALA 30-50% afsláttur gluggatjöld Suðurlandsbraut 6, Sími: 91 -8 32 15. Minning: Agúst Sturlaugs■ son frá Fjósum Fæddur 14. maí 1899 Dáinn 1. febrúar 1988 I dag, 9. febrúar, verður til mold- ar borinn Ágúst Sturlaugsson frá Fjósum í Laxárdal, Dalasýslu. Hann var fæddur að Öxl í Breiðuvíkur- hreppi á Snæfellsnesi, þar sem for- eldrar hans bjuggu þá, en fluttist ungur með þeim inn í Dalasýslu. - Foreldrar hans voru Ásta Lilja Kristmannsdóttir frá Litla-Vatns- homi og Sturlaugur Jóhannesson frá Sauðhúsum. Ágúst var þriðji í röð níu systkina. Kristmann var elztur, síðan Jóhannes, þá Ágúst, sem hér er kvaddur, Magnús, Sigur- jón, Lilja og Áslaug, sem dó á öðru ári. Nokkrum árum síðar fæddist stúlka, Áslaug Friðmey. Yngstur var Kristján. Þessi stóri systkina- hópur er nú allur horfinn yfír móð- una miklu. Var Ágúst síðastur að kveðja. Fyrir aldamót voru erfiðir tímar hjá aiþýðufólki í Dalasýslu. Systkini Ástu Lilju fluttu ásamt fleira fólki vestur um haf og ungu hjónin, for- eldrar Ágústs, voru um tíma að hugsa um að fara þangað líka. Af því varð þó ekki. Þau settu saman bú og fljótlega komu bömin hvért af öðm. Gústi frændi, eins og við kölluð- um hann alltaf, ólst upp við tak- mörkuð efni hjá góðum, bókhneigð- um foreldrum sem lásu húslestra lengur en almennt tíðkaðist og ólu böm sín upp við heiðarleika og sam- vizkusemi. Upp úr fermingu fór Gústi til sjós, fyrst með frænda sínum Kristmanni, skipstjóra í Stykkishólmi. Frá 17 ára aldri fór hann á vertíðir til verstöðvanna á Suðumesjum og gekk þá mest alla leíðina með sjópokann sinn. Þrautseigja hans var ótrúlega mikil, enda mun ekki hafa veitt af í þá daga. Við undruðumst sögur hans, svo látlausar sem þær þó voru. Ein þeirra greindi frá því er 18 ára unglingurinn kom að vestan FRJALSI LIFEYRISSJÓÐURINN HEFUR ÞU HUGSAÐ FYRIR ÞVI HVERNIG F.TÁRHAGUR ÞINN VERÐUR ÞEGAR ÞÚ LÆTUR AF STÖRFUM ? Nú á tímum eru margir farnir að huga að því hvort þeir muni geta haldið þeim lífsgæðum sem þeir njóta í dag þegar að því kemur að þeir láta af störfum. Trúlega viltu ekki láta fjárhaginn stoppa þig þegar þú loksins hefur tíma til að njóta lífsins. Til þess að það gerist ekki verður þú sjálfur að gera þínar ráðstafanir, því enginn annar gerir það nógu vel fyrir þig. Og eins og máltækið segir, ekki er ráð nema í tíma sé tekið. FRJALSI LÍFEYRISS JÓÐ- URINN Frjálsi Lífeyrissjóöurinn ávaxt- ar iðgjöldin á öruggan og arðbæran hátt og tryggir þér góðar tekjur þegar þú lætur af störfum. Frjálsi Lífeyrissjóður- inn er hentugri leið til að undirbúa sig betur undir ævikvöldið enflestar aðrar sparnaðarleiðir. BYRJAÐU STRAX!... Ef þú byrjar snemma að greiða í Frjálsa Lífeyrissjóðinn, þá færð þú verulega mikið hærri lífeyrisgreiðslur vegna margföldunaráhrifa vaxta. NJÓTTU ÞESS SÍÐAR Frjálsi Lífeyissjóðurinn er séreignasjóður en ekki lána- stofnun. Féð í sjóðnum helst því alltaf óskert. Sérfræðingar Fjárfestingarfélags íslands sjá um að ávaxta það með kaup- um á verðbréfum, sem bera hæstu vexti á hverjum tíma. Þannig er þér tryggður hámarks lífeyrir miðað við framlag þitt. ALLIR GETA VERIÐ MEÐ Fáðu upplýsingar um fulla aðild eða viðbótaraðild í Frjálsa Lífeyrissjóðnum. Því fyrr sem þú gengur í sjóðinn, því fyrr geturðu vænst þess að fá hærri lífeyrisgreiðslur, þegar þar að kemur. FJÁRFESriNGARFÉlAGD Hafnarstræti 7 101 Reykjavík s: (91) 28566 Kringlunni 103 Reykjavik s: (91) 689700 Fjármál þín - sérgmn okkar á leið í verið til Grindavíkur. Hann veiktist af spönsku veikinni á leið- inni, en áfram hélt hann þó veikur væri. Hann stansaði eina til tvær nætur á hvetjum áningarstað og loks tókst honum að komast á sjó- inn eftir að lungnabólgan var um garð gengin. Eftir nokkurra ára sjómennsku á árabátum og skútum veiktist hann af berklum og dvaldi nokkur ár á berklahælum, lengst á Kristnesi í Eyjafirði. Þar kom þolgæði Ágústs aftur að góðu gagni og náði hann fullri heilsu. Þegar foreldrar hans fóru að eld- ast hugsuðu þau Ágúst og systir hans Lilja um bú foreldra sinna og önnuðust þau af alúð árum saman. Ásta Lilja lézt 77 ára gömul árið 1946 en Sturlaugur 79 ára árið 1952, bæði heim að Fjósum. Fyrir 30 árum fluttust þau systk- inin, Gústi og Lilja, til Reykjavíkur. Þau bjuggu á Hraunteigi 15 og héldu heimili saman uns Lilja dó fyrir tæpum 10 árum. Lilja, sem einnig hafði þurft að berjast við berkla á æskuárum sínum, var fremur heilsulítil en hugsaði um heimilið meðan Gústi vann almenna vinnu, lengst af hjá Reykjavíkur- borg. Um helgar brá Gústi sér á hestbak enda átti hann góða hesta og hafði yndi af. Hann tók mikið af ljósmyndum og tók margar góð- ar myndir á gömlu kassavélina sína. Hann las mikið af Ijóðum, sérstak- lega ljóð Davíðs Stefánssonar, Stef- áns frá Hvítadal og Jóhannesar úr Kötlum. Jóhannes úr Kötlum var Dalamaður, vel kunnugur þeim systkinum og heimsótti þau oft. Eftir að Lilja dó var Gústi oft einn og einmana. Hann varð því feginn er hann fékk inni á Hrafn- istu í Reykjavík. Þar var hann í sínu hverfi og gat framan af geng- ið heim í íbúð sína á Hraunteignum. Hugurinn var þó oft vestur í Dölum. Gústi var mjög bamgóður og hændust böm okkar að honum. Eftir að bróðir hans Kristján dó 1974, gegndi Gústi hlutverki afans í fjölskyldu okkar. Hann vann oft í Teigahverfínu síðari ár starfsævi sinnar og fylgdi honum þá oft hóp- ur ungra bama sem kölluðu hann afa. Hlýlegt og rólegt fas hans, fullkomlega æðmlaust hlaut að laða að honum böm. Gústi var veitandi alla sína ævi. Hann kom ávallt færandi hendi og tók vel á móti gestum. Aldrei kvartaði hann né bað um neitt sér til handa. Hann var þakklátur fyrir allt sem fyrir hann var gert. Við viljum flytja þakkir öllu því góða starfsfólki á Hrafnistu í Reykjavík sem annaðist hann af alúð og hlýju eftir að fjör hans tók að þverra síðustu árin. Nú þegar hann er horfinn finnst okkur að heilum kafla úr íslands- sögunni sé lokið. Þessi heilsteypti, látlausi alþýðumaður var góður full- trúi kynslóðar sem ólst upp við kjör sem okkur virðast að sumu leyti hafa verið ótrúlega hörð. Af þessum kjömm mótaðist þrautseigja hans, en jafnframt æðraleysið og mann- gæzkan, sem við nutum ríkulega. Blessuð sé minningin um Gústa frænda. Hvíli hann í friði við hlið Lilju systur sinnar. Sigurlaug Kristjánsdóttir, Ingólfur S. Sveinsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.