Morgunblaðið - 09.02.1988, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 09.02.1988, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988 Óráðið hvar átta manna emvígin verða haldin Campomanes skorar á íslend- inga að gera tilboð EKKI hefur verið ákveðið hvar eða hvenær átta manna einvígin um réttinn til að skora á Garrí Kasparov, heimsmeistara í skák, fara fram, en Alþjóða Skáksam- bandið, FIDE, mun ákveða það í samráði við keppendur. Campomanes, forseti Alþjóða Skáksambandsins, FIDE, hef- ur viðrað þá hugmynd að ís- lendingar bjóði i eitthvert af einvigjunum, sem fram eiga að fara i ár. Mjög óliklegt er þó að einvígi þeirra Jóhanns Hjartarsonar og Anatólíjs Karpovs fari fram hérlendis, enda telur Jóhann það ekki fýsilegt. Campomanes staðfesti við verð- launaafhendingu áskorendamóts- ins á sunnudag að Karpov yrði andstæðingur Jóhanns í átta manna úrslitunum. Aðrir sem eig- ast við eru: Artur Júsúpov frá Sovétríkjunum og Kevin Sprag- gett frá Kanada; Lajos Portisch frá Ungveijalandi og Jan Timman frá Hollandi; og Nigel Short og Jonathan Speelman, báðir frá Bretlandi. Næsta heimsmeistaraeinvígi mun fara fram árið 1990, og er hugmyndin að fjögurra manna áskorendaeinvígin fari fram 1989 og átta manna einvígjunum ljúki þá á þessu ári. FIDE mun sjá um Þeir Campomanes, forseti FIDE, og Friðrik Ólafsson, fyrrverandi forseti FIDE, á mótsstað í St. John. Campomanes hefur lagt tíl að íslendingar haldi eitthvert af þeim fjórum einvígjum sem fram eiga að fara á þessu ári í keppninni um réttínn til að skora á heimsmeist- arann í skák. að bjóða einvígin út og mun þá auglýsa hvenær tilboðsfrestur rennur út. Puerto Rico hefur boðist til að halda öll einvígin í júlí í sumar, en alls óvíst er hvort því tilboði verður tekið. Til dæmis hefur Jó- hann Hjartarson lýst því yfir að hentugra sé fyrir sig að tefla í nóvember en í sumar, að sögn Þráins Guðmundssonar, forseta Skáksambands íslands. Þá er talið líklegt að einvígi þeirra Shorts og Speelmans fari fram í London. Campomanes stakk upp á því við mótsslit í St. John á sunnudag að íslendingar byðust til að halda eitt eða fleiri af átta manna ein- vígjunum hér á landi, og hann ítrekaði þessa uppástungu í sam- tali við Þráin Guðmundsson í sam- tali í gærmorgun. Nær útilokað er þó að einvígi Jóhanns Hjartars- sonar og Karpovs verði haldið hér á landi. Jóhann og aðrir telja að of mikill þrýstingur yrði á honum ef hann tefldi hér, og eins myndi Karpov líklega ekki samþykkja að tefla á heimavelli andstæðings- ins. Ef úr því yrði að íslendingar gerðu tilboð í að halda eitthvert af átta manna einvígjunum yrðu það þá líkast til einvígi þeirra Spraggetts og Júsúpovs, eða Tim- mans og Portisch sem um yrði að ræða. Þar sem ekki hefur verið ákveð- in stund né staður fyrir einvígi þeirra Jóhanns og Karpovs er ekkert hægt að segja um það verð- launafé sem í boði kynni að vera, en ljóst er að það mun nema tug- um þúsunda Bandaríkjadollara, að sögn Þráins Guðmundssonar. Jóhann fékk 6.000 dollara - eða um 220.000 íslenskar krónur - í verðlaun fyrir sigur sinn á Kortsj- noj í St. John, en Kortsjnoj fékk 3.000 dollara í sinn hlut. Fjársöfnun Skáksambandsins: Rúmlega 200 þúsund söfnuðust ALLS bárust Skáksambandi ís- lands eitthvað á þriðja hundrað þúsund krónur í söfnun sem fram fór á meðan á einvígi Jóhanns Hjartarsonar við Viktor Kortsj- noj stóð, og var einkum um áheit einstaklinga að ræða. Kostnaður Skáksambandsins við einvígið í Kanada var yfir ein milljón króna, en sérstök aukafjárveit- ing frá ríkisstjórninni að upphæð 500.000 krónur hjálpaði sam- bandinu að ná endum saman. Endanlegar tölur úr söfnuninni liggja ekki fyrir, að sögn Áma Bjöms Jónassonar, gjaldkera Skák- sambandsins, en fýrrgreind tala mun láta nærri lagi, en þá á eftir að draga kostnað vegna auglýsinga frá. Kostnaður vegna farar Jóhanns til Kanada fór fram úr áætlun, eink- um vegna leigu á herbergi til skák- rannsókna, en hann var upphaflega áætlaður 6-700.000 krónur. Þó að ekki sé enn vitað hvar einvígi Jó- hanns við Karpov fer fram, er ljóst að kostnaður við það mun verða mikill. Birgir ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra, og Davíð Oddsson, borgarstjóri, hafa geflð vilyrði um stuðning ríkis og borgar við einvígið. Einu föstu tekjur Skáksam- bandsins eru framlög úr ríkissjóði, sem á fjárlögum fyrir 1988 nema einni milljón og 150 þúsund, sem er töluverð hækkun frá síðasta ári. Ýmislegt fleira en undirbúningur einvígis þeirra Jóhanns og Karpovs er á döfinni hjá Skáksambandinu og má þar nefna Reykjavíkurskák- mótið, sem hefst þann 23. febrúar næstkomandi. Því er ljóst að fjár- hagur sambandsins er mjög þröng- ur þrátt fyrir styrki frá einstakling- um, fyrirtækjum og opinberum aðil- um, sagði Ámi Bjöm Jónasson. skákinni hafði hvor klukkutíma til umráða, í annarri skákinni hálftíma og síðan 15 mínútur. F^rstu þremur skákunum lauk með jafntefli þrátt fyrir miklar sviptingar og þegar 15 mínútna skákimar voru komnar þótti skáklistin heldur setja ofan. f fjórðu skákinni sá Sókolov ekki að að Spraggett gat skákað af honum drottninguna og gafst upp við mikinn fögnuð kánadísku áhorfendanna. Þrír íslendingar tefla á stórmóti í St. John Nærri 40 stórmeistarar með í mótinu St. John. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni, Skákhátíðin í St. John held- ur áfram þótt áskorendaein- vígjunum sé lokið. í gær, mánudag, hófst að því að talið er sterkasta opna skákmótíð sem haldið hefur verið og eru þrir íslendingar þar á meðal, þeir Helgi Ólafsson, Margeir Pétursson og Karl Þorsteins. Milli 30 og 40 stórmeistarar blaðamanni Morgunblaðsins. eru á meðal þátttakenda, þar á meðal Júsúpov, Salov, Speelman og Mikhal Tal. Kanadamenn eru í sjöunda himni vegna frammistöðu heimamannsins Kevins Spragg- ets, sem vann Andrei Sókolov frá Sovétríkjunum eftir að þess- ir skákmenn höfðu teflt 4 hrað- skákir á laugardag. í fyrstu 61 Skemmtilegir Vindhanar á sumarbústaðinn * HURÐIRHF Skeifan 13 •108 Reylgavík-Sími 681655 Harðplast parket þetta sterka ®H(.0FNASM1BJAN SÖLUDEILD HÁTEIGSVEGI7 S: 21220 HflBBLUWDSl DENISONf VÖKVADÆLUR ☆ Ollumagn frá 19-318 l/mln. ☆ Þrýstingur allt að 240 bar. ☆ Öxul-flans staðall sá sami og á öðrum skófludælum. ☆ Hljóðlátar, endingargóðar. ☆ Einnig fjölbreytt úrval af stimpildælum, mótorum og ventlum. ☆ Hagstætt verð. ☆ Ýmsar gerðir á lager. ☆ Varahlutaþjónusta. ☆ Hönnum og byggjum upp vökvakerfi. SIG. SVEINBJÖRNSSON HF. Skeiöarási, Caröabæ símar 52850 - 52661
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.