Morgunblaðið - 09.02.1988, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988
27
Konuraar sem lögfðu leið sina til ísafjarðar að kynna sér hlutaskipta-
kerfið. Þær heita: Elín Ingólfsdóttir, Guðriður Elíasdóttir,' Guðrún
Emilsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Helga Guðmundsdóttir og Svan-
hildur Benediktsdóttir.
Á fundi með Pétri Sigurðssyni, forseta Alþýðusambands Vestfjarða.
nesjum án mikils undirbúnings.
„Þeir eru búnir að þaulhugsa þetta
fyrir vestan og ég get ekki séð ann-
að en það sé hægt að taka þetta
hlutaskiptakerfi beint upp. Önnur
verkalýðsfélög ættu að kynna sér
þetta kerfi rækilega og henda gamla
bónuskerfinu. Það er mín skoðun.
Það hafa margir sett út á kerfið,
án þess að hafa kynnt sér það.“
Hún sagði að það hefði einnig
vakið athygli þeirra hvað frystihúsin
fyrir vestan væri glæsileg, bæði
hvað varðaði aðbúnað starfsfólks og
tækjakost. Það væri til fyrirmyndar.
„Ég hefði viljað byija á að senda
atvinnurekendur héðan af Suður-
nesjum vestur til þess að kynna sér
þetta,“ sagði Guðrún Ólafsdóttir að
lokum.
Grindavík:
Tíu tonn af ufsa
í eina trossu
Grindavík.
HÓPSNES GK var aflahæst
Grindavíkurbáta í síðustu viku
með 31,5 tonn í þrem róðrum.
Þar af voru 10 tonn af ufsa í
eina trossu sl. laugardag en alls
20 tonn í öllum róðrinum. Ufs-
inn sem fékkst í þessum róðri
var mjög vænn og hrogninn-
byijuð að skríða.
Alls er 21 bátur byrjaður á net-
um frá Grindavík og vegna lélegs
afla reru bátamir annan hvem
dag. Að meðaltali vom þeir með
4-5 tonn í róðri en róðurinn hjá
Hópsnesi sem fyrr er getið var
alger undantekning. Tólf bátar
stunda iínu frá Grindavík en þeim
fer fækkandi þar sem venjan er
að skipta yfír á net upp úr miðjum
febrúar.
Veðráttan var heldur skárri í
síðustu viku og gátu línubátar
róið daglega en aflabrögð voru
léleg. Hæstur eftir vikuna var Sig-
urþór GK með 19,7 tonn í sex
róðrum. Lítið .barst af loðnu vegna
brælu í síðustu viku en Grindvík-
ingur GK landaði 146 tonnum og
Víkurbergið GK 242 tonnum og
notuðu þeir tækifærið til að skipta
um næpur þar sem loðnan veiðist
hér eftir á grynnra vatni.
— Kr.Ben.
Höfn:
Gæftaleysi á miðum
Sex bátar eru byrjaðir á netaveiðum
Höfn, Horaafirði.
GÆFTALEYSI var á miðum
Hornafjarðarbáta í síðustu
viku, og reru flestir einu sinni
en mest þrisvar. Sex bátar eru
byijaðir á netum og fékk Vísir
SF 64 29,9 tonn í þremur róð-
rum.
Kaupfélagið tók á móti 219,8
tonnum úr 36 sjóferðum. Hæstur
línubáta var Freyr SF 20 með
15,8 tonn. Freyr landar bæði hjá
Skinney hf. og KASK. Æskan SF
140 kom með 12,3 tonn til KASK.
Mestan afla frá áramótum hefur
Steinunn SF 10 fengið éða 81,7
tonn og Freyr SF 20 með 80,3
tonn. B/v Þórhallur Daníelsson
landaði 88,8 tonnum. Afli frá ára-
mótum er 574, 2 tonn, en var
879,3 tonn á sama tíma í fyrra.
Fiskimjölsverksmiðrja Homa-
fjarðar fékk 643,1 tonn af Gísla
Ama og 604,4 af Húnaröst. Báðir
lönduðu fyrrihluta vikunnar, en
lágu í höfn fram á sunnudag.
Skinney hf. fékk 23,1 tonn af
Skinney SF 30, mest langlúru. Þá
lönduðu Steinunn og Freyr 14,1
tonni af þorski, en Skinney hf. er
nú byrjuð að salta.
- JGG
Opið bréf til Magn-
úsar L. Sveinssonar
Hr. Magnús L. Sveins-
son formaður Verslunar-
mannafélags Reykjavík-
ur.
Starfsmenn Flugleiða ráku upp
stór augu þegar þeir lásu frétt á
baksíðu Morgunblaðsins sunnu-
Slökkvilið
Hafnarfjarðar:
150 útköll
árið 1987
SLÖKKVILIÐ Hafnarfjarðar
sinnti 150 útköllum árið 1987
og voru 96 þeirra vegna elds.
Helmingur útkallanna eða 46
voru vegna elds í rusli, sinu
og mosa.
Umdæmi Slökkviliðs Hafnar-
fjarðar er auk Hafnarfjarðar,
Garðabær og Bessastaðahreppur.
Komu 105 útköll frá Hafnarfirði,
29 útköll frá Garðabæ og 16 útköll
frá Bessastaðahrepp og utan þétt-
býlis. í frétt frá Slökkviliði Hafnar-
fjarðar kemur fram að á síðasta
ári hafí verið gerð breyting á
slökkviliðinu og brunavörðum Qölg-
að f fasta liðinu.
Slökkviliðið sér einnig um sjúkra-
flutninga fyrir svæðið og voru 1364
flutningar árið 1987. Af þeim voru
242 bráðaflutningar vegna slysa og
annarra áfalla.
meginþorra
þjóðarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er224 80
daginn 7. febrúar, þar sem þú
staðfestir að Verzlunarmannafé-
lag Reykjavíkur ásamt fleirum
standi í samningaviðræðum við
Lion Air í Lúxemborg um leiguflug
fyrir allt að 2.500 manns milli ís-
lands og Lúxemborgar.
Að okkar mati er hér um að
ræða mjög grófa aðför að hags-
munum þeirra rúmlega 500 starfs-
manna Flugieiða sem eru félagar
í VR og þeirra ijölmörgu þar til
viðbótar sem greiða í lífeyrissjóð
Verzlunarmannafélagsins.
Við sjáum ekki ástæðu til að
taka þátt í félagsskap sem beinlín-
is vinnur gegn hagsmunum okkar.
Ef þessi áform verða að veruleika
og VR tekur þátt í að skerða tekju-
möguleika okkar, þá er kominn
tími til að þeir starfsmenn Flug-
leiða sem eru í VR og greiða stórfé
í félagsgjöld á ári, stofni sitt eigið
stéttarfélag og yfirgefi Verzlunar-
mannafélag Reykjavíkur fyrir fullt
og allt eins og margoft hefur kom-
ið til tals áður. Má þar jafnvel
hugsa sér að starfsmenn Flugleiða
og aðrir aðilar sem starfa að ferða-
málum á íslandi stæðu saman að
stofnun slíks stéttarfélags.
Stjórn Starfsmannafélags
Flugleiða.
Niðurhengd loft.
T-prófílar og
loftaplötur.
Mismunandi stærðir
og gerðir.
Uppsett sýnishorn í
sýningasal okkar.
ÍSLENZKA
VERZLUMARFELAGIÐ HF
UMBOÐS- & HEILDVERZLUN
Bíldshöfða 16,
sími 687550.
Plostkdssar
ogskúffur
Fyrir skrúfur, rær og aðra
smáhluti. Einnig vagnarog
verkfærastatíf. Hentugt á
verkstæðum og vörugeymslum.
Ávallt fyrirliggjandi.
Leitiö upplýsinga.
UMBOOS OG HEILOVERSLUN
BILDSHOFÐA 16 SIMI 6724 44
* Venjulegir ofnar
* Handklæðaslár
‘Tauþurrkarar
©HF.OFNASMIBJAN
SÖLUDEILD
HÁTEIGSVEGI7 S: 21220
Allt
í röð og reglu
- án þess að vaska upp!
Komdu kaffistofunni á hreint.
Duni kaffibarinn sparar þér bæði
tíma og fyrirhöfn.
Getur staðið á
borði eða hangið
uppá vegg.
En það besta er:
Ekkert uppvask.
FAIMIMIR HF
Bíldshöfða 14 s: 67 2511