Morgunblaðið - 09.02.1988, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988
29
Asakanir á hendur Kurt Waldheim, forseta Austurríkis:
Tæp tvö ár frá því Waldheim
var bendlaður við stríðsglæpi
Vín, Reuter.
TÆP tvö ár eru liðin frá því að deilur blossuðu upp um fortíð
Kurts Waldheims, fyrrum aðalritara Sameinuðu þjóðanna. Wald-
heim tók við embætti forseta Austurríkis í júní árið 1986 og
höfðu þá þegar komið fram ásakanir um að hann hefði átt þátt
í striðsglæpum nasista á árum síðari heimsstyijaldarinnar. Hér
á eftir fer yfirlit yfir það helsta sem gerst hefur í máli þessu.
3. mars 1986. Austurríska vikuri-
tið Profil birtir afrit af skírteini
sem sagt er vera flokksskírteini
Waldheims. Waldheim neitar að
hafa verið félagi í flokki nasista.
Vikuritið segir einnig að Wald-
heim hafi gegnt herþjónustu á
Balkan-skaga á árunum 1942-til
1945 en áður hafði Waldheim
sagt að hann hefði verið við nám
í Vín á þeim árum.
4. mars Bandaríska dagblaðið
The New York Times bendlar
Waldheim við stríðsglæpi gegn
júgólsavneskum frelsissveitum og
segir hann einnig hafa átt þátt í
fjöldaflutningum gyðinga úr
landi.
22. mars Heimsráð gyðinga til-
kynnnir að samkvæmt banda-
rískum skjölum sé Waldheim eftir-
lýstur í Júgóslavíu vegna
stríðsglæpa, meðal annars vegna
morðs.
4. apríl ísraelar krefjast þess að
fá aðgang að skjölum varðandi
Waldheim frá Stríðsglæpanefnd
Sameinuðu þjóðanna, sem lögð
hefur verið niður.
8. maí Waldheim ber sigur úr
býtum í fyrstu lotu forsetakosn-
inganna í Austurríki og hlýtur
49,64 prósent atkvæða.
Javier Perez de Cuellar, sem
tók við embætti aðalritara Sam-
einuðu þjóðanna af Waldheim,
skýrir frá því að skjöl varðandi
fortíð Waldheims hafi ekki ver-
ið rannsökuð er hann varð aðal-
ritari samtakanna árið 1972.
22. maí Dómsmálaráðherra ísra-
els segir Ísraela búa yfir nægum
sönnunargögnum til að draga
Waldheim fyrir rétt fyrir
stríðsglæpi.
8. júní Waldheim sigrar Kurt
Steyrer, frambjóðanda sósíalista
í seinni lotu forsetakosninganna.
9. júní ísraelar kalla heim sendi-
herra sinn í Austurríki.
8. júlí Waldheim sver embættiseið
forseta Austurríkis.
27. apríl 1987. Bandaríkjamenn
setja Waldheim á lista yfír þá
útlendinga sem ekki eru taldir
æskilegir í Bandaríkjunum. Sagt
er að þetta sé gert vegna grun-
semda um að Waldheim hafi átt
þátt í flutningum á óbreyttum
borgurum í vinnubúðir í Þýska-
landi, áróðri gegn gyðingum,
flutningum á fólki í útrýmingar-
búðir, hefndaraðgerðum gegn
óbreyttum borgurum o.fl.
30. apríl. Alois Mock, utanríkis-
ráðherra Austurríkis, segir
ákvörðun Bandaríkjamanna
„óskiljanlega" og segir hana
skaða utanríkisstefnu Austurrík-
is.
19. maí Waldheim viðurkennir að
hann hafi brugðist „ranglega við“
hluta ásakananna en ítrekar að
hann hafi ekki átt hlutdeild í
stríðsglæpum.
27. júní. Vínardeild Sósíalista-
flokksins hvetur Waldheim til að
segja af sér.
1. sept. Aljþóðleg nefnd sagn-
fræðinga hefur rannsókn á fortíð
Waldheims samkvæmt beiðni
austurrísku ríkisstjómarinnar.
4. des. Waldheim segist bíða nið-
urstöðunnar og ítrekar að hann
hyggist ekki segja af ser.
6. des. Helmut Zilk, borgarstjóri
Vínar, segir að Waldheim muni
ef til vill ekki sjálfur fá ráðið því
hvort hann sitji áfram á forseta-
stóli verði niðurstöður sagnfræð-
inganefndarinnar ekki til þess að
hreinsa mannorð hans.
24. des. Karl Bíecha, innanríkis-
ráðherra Austurríkis, hvetur
Waldheim til að segja af sér.
2. feb. 1988. Vestur-þýska vikuri-
tið Der Spiegel birtir afrit af
skeyti sem blaðið segir að Wald-
Kurt Waldheim, forseti Aust-
urríkis.
heim hafí sent til að afla heimild-
ar til -að flytja rúmlega 4.000
Júgóslava úr landi.
4. feb. Waldheim segir að skeytið
nægi ekki til þess að sanna á
hann stríðsglæpi þó það kunni að
vera ófalsað.
6. feb. Jean Vanwelkenhuyzen,
sem situr í sagnfræðinganefnd-
inni, fínnur skjöl sem hann segir
að auki til muna mikilvægi skeyt-
isins sem Der Spiegel birti.
Waldheim var tannhjól í
stríðsvél þýska hersins
Vín, frá önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunbladains.
ÞUNGU fargi var létt af sagnfræðingunum sjö sem rannsökuðu
aðgerðir Kurts Waldheims, forseta Austurríkis, í heimsstyrjöld-
inni síðari í gær. Þeir afhentu ríkisstjórninni skýrslu sína og
buðu nánustu aðstoðarmönnum sínum út að borða. „Þetta var
áhugavert verkefni að takast á við,“ sagði einn þeirra, „en gífur-
Ieg vinna.“ Formaður nefndarinnar mun væntanlega halda blaða-
mannafund í dag en nokkrir nefndarmanna héldu þegar heim
í morgun.
. —— — AVKA . • 1
Ígí '4 . .
; • • Y ''■'''N..
■—"
Skeytið sem Der Spiegel birti og segir sanna að Waldheim hafi
gefið fyrirskipun um að rúmlega 4.000 Júgóslavar skyldu fluttir
úr landi.
Nefndin var sett á fót fyrir
tæpu hálfu ári og átti að ganga
úr skugga um í eitt skipti fyrir
öll hvort Waldheim hefði verið
viðriðinn eða framið stríðsglæpi í
heimsstyijöldinni síðari. Ekkert
hefur fundist sem sannar að hann
hafí framið glæpi en allt bendir
til að hann hafí vitað meira um
þá en hann hefur viljað vera láta
og verið „lítið tannhjól í vél sem
gerði glæpina mögulega", eins og
einn nefndarmanna komst að orði
í samtali við Morgunblaðið.
Sagnfræðingar frá sex löndum
áttu sæti í nefndinni. Þeir skrifuðu
hver sinn kafla á sínu sérsviði.
Skýrslan er 200 síður og sögð
gagnrýna forsetann harðlega fyrir
að hafa leynt umheiminn þátttöku
sinni í starfí þýska hersins. Hann
var lágt settur fulltrúi í herstjórn-
um hersins í Júgóslavíu og Grikk-
landi en sat fundi þar sem fjallað
var um brottflutning gyðinga og
aftökur liðsmanna víkingasveita
•bandamanna. Undirmenn Wald-
heims yfírheyrðu þá áður en þeir
voru teknir af lífi að fyrirskipan
Hitlers. Upplýsingaöflun var í
verkahring Waldheims. Hann
fylgdist með stöðunni á sviði
stjómmála og hermála og gerði
grein fyrir henni á fundum í her-
stjóminni. Þannig gat hann haft
óbein áhrif á ákvarðanatökur yfir-
manna sinna. Sjálfur segist hann
aðeins hafa merkt stöðuna inn á
landakort og verið túlkur.
Nefndinni tókst ekki að finna
júgóslavneskt skjal sem vestur-
þýska vikutímaritið Der Spiegel
birti í síðustu viku. Þar er Wald-
heim nefndur í sambandi við flutn-
ing flóttamanna í fangabúðir.
Þetta skjal olli miklu fjaðrafoki
alla síðustu viku. Enn er ekki ljóst
hvort það var falsað eða ekki.
Nefndin telur skjalið ekki skipta
höfuðmáli. En hún tekur fram í
skýrslunni að niðurstaðan sé
byggð á upplýsingum sem komu
fram fyrir 8. febrúar.
Austurríska ríkisstjómin fól
Svisslendingnum Hans Rudolf
Kurz að sjá um samsetningu og
starf nefndarinnar. Hann fékk sex
sagnfræðinga til liðs við sig. Tveir
þeirra, Fleming og Wallach, em
gyðingar; Belgíumaðurinn Van
Velkenhuyzen hefur reynslu af
að búa á hemumdu svæði Þjóð-
veija og Bandaríkjamaðurinn
Collins var herforingi í Víetnam.
Sagnfræðingamir em allir virtir
fræðimenn, hver á sínu sviði, og
tókust á við verkefnið af mikilli
alvöm. Þeir sömdu lokaniðurstöð-
una sameiginlega og nokkur
ágreiningur er sagður hafa verið
um hversu harðorðir í garð „Wald-
heims“, eins og forsetinn er
nefndur í skýrslunni, þeir ættu
að vera. En í samtölum við nokkra
þeirra um helgina kom fram að
þeir em allir sannfærðir um að
maðurinn er lygari. „Það er hald-
in lygakeppni í borginni Namur á
hveiju ári,“ sagði einn þeirra.
„Waldheim myndi vera í sérflokki
ef hann tæki þátt í henni.“
Haítí:
Manigat tekur við
f orsetaembætti
Port-Au-Prince, Reuter.
LESLIE Manigat tók við for-
setaembætti á Haítí á sunnu-
dag. I ávarpi sem hann flutti
við embættistökúna fór hann
þess á leit við Bandaríkjastjórn
að fjárstuðningur við Haítí yrði
aukinn.
Manigat er stjómmálafræðing-
ur að mennt og dvaldi í útlegð í
25 ár. Hann tók við embætti á
sunnudag en þá vom liðin tvö ár
frá því Jean-Claude Duvalier flúði
frá Haítí eftir 30 ára einræði
Duvalier-fjölskyldunnar.
Flest erlend ríki hunsuðu emb-
ættistökuna og sendu ekki fulltrúa
til að vera við athöfnina. Varafor-
seti Dóminíkanska lýðveldisins,
Carlos Morales Troncoso, var
háttsettasti þjóðarleiðtoginn sem
var viðstaddur embættistökuna.
Fyrir hönd Bandaríkjanna var
sendiherrann í Port-Au-Prince,
Bmnson McKinley. Ástæða þess
að erlend ríki létu hjá líða að senda
fulltrúa var að flest ríki draga í
efa réttmæti kosninganna á Haítí
þar sem Manigat var kjörinn for-
seti.
Kosningarnar á Haítí fóm fram
17. janúar síðastliðinn, fjórir
stjórnmaálamenn hættu við að
gefa kostá sér í forsetaembættið
vegna laga sem sett vóm um
framkvæmd kosninganna í des-
ember á síðasta ári, þar var her-
Reuter
Leslie Manigat forseti Haítí.
mönnum heimilað að vera inní
kjörklefum meðan atkvæða-
greiðsla fer fram og lýðræði við
kosningar skert á ýmsan annan
hátt. Að sögn erlendra frétta-
manna og sendimanna var kjör-
gengi undir 20% og því hæpið að
Manigat geti talist leiðtogi þjóðar-
innar.
Manigat notaði tækifærið við
embættistökuna til að biðja erlend
ríki um aðstoð. „Við viljum teng-
ast vináttuböndum við allar þjóð-
ir, einnig. voldugu granna okkar
í norðri," sagði Manigut í raeðu
sinni við embættistökuna. Átti
hann þar við Bandaríkjamenn sem
hafa skert framlög til Haítí mikið.
flD PIOIMEER
HUÓMTÆKI
Concorde á
nýju meti
frá New York
til London
Lundúnum. Reuter.
CONCORDE-þota brezka flug-
félagsins British Airways sló í
gær eigið hraðamet á leiðinni
frá New York til Lundúnum um
59 sekúndur, sem þykir mikið
þegar þessi flugvél á í hlut..
Þotan var tvær klukkustundir,
fimmtíu og fimm mínútur og 15
sekúndur frá New York til Lund-
úna. Að sögn talsmanns British
Airways var hagstæður byr á leið-
inni.
Áskriftarsiminn er 83033