Morgunblaðið - 09.02.1988, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988
31
Deila Panama og Banda-
ríkjanna magnast frekar
Noriega segir
Bandaríkin hafa
viljað ráðast inn í
Nicaragua með full-
tingi Panamahers
New York-borg, Reuter.
DEILA Bandaríkjanna og Pa-
nama virðist síst vera í rénum,
en í gær skýrðu málgögn Pa-
namastjómar frá því að sendi-
menn hennar i Bandaríkjunum
hefðu verið kallaðir heim til
skrafs og ráðagerða. Þessi heim-
köllun siglir í kjölfarið á ákæm,
sem gefin var út af yfirvöldum
í Miami á hendur Manuel An-
tonio Noriega, hershöfðingja og
hæstráðanda f Panama, fyrir
aðild hans að stórfelldu kókaín-
smygli. Noriega segir sakargiftir
hreinan þvætting og sagði að
stjórn Ronalds Reagans léti ekk-
ert tækifæri ónotað til þess að
koma á sig höggi, þar sem hann
hefði neitað að taka þátt í áform-
um Bandarikjastjórnar um árás
á Nicaragua.
Juan Sosa, sendiherra Panama í
Bandaríkjunum, Jorge Ritter,
sendiherra landsins við Sameinuðu
þjóðimar, og Robert Leyton, fulltrúi
Panama í Samtökum Ameríkuríkja,
voru allir kallaðir heim til Panama-
borgar „án tafar“ til þess að ræða
hin stirðu, ef ekki fjandsamlegu,
samskipti ríkjanna að undanförnu.
Þá hefur Panamaher kvatt heim
öll liðsforingjaefni sín, sem eru við
nám í bandarískum herskólum.
Noriega, sem verið hefur eigin-
legur valdhafi Panama frá 1983,
gaf í skyn í viðtali við sjónvarps-
stöðina CBS á sunnudag að ákæran
á hendur honum, sem gefin var út
í Miami í síðustu viku, væri hluti
samsæris Bandaríkjastjómar gegn
sér vegna stefnu hans í málum
Nicaragua og Panamaskurðsins.
Hann sagði að á fundi með
aðmírálnum John Poindexter, fyrr-
verandi þjóðaröryggisráðgjafa
Reagans, hefði Poindexter stungið
upp á samvinnu Panamahers við
innrás í Nicaragua.
„Já, þeir ætluðu að ráðst á Nic-
aragua," sagði Noriega með aðstoð
túlks. „ . . . eina ástæðan fyrir
því að ekki hafði enn verið látið til
skarar skríða var sú að Panama
væri í vegi fyrir slíkri innrás."
Noriega sagði að Poindexter
hefði sagst tala fyrir hönd forseta
síns og að hann hefði hótað refsiað-
gerðum gegn Panama ef Mið-
Ameríkuríkið aðstoðaði kontra-
skæmliða ekki.
Að sögn herforingja nokkurs í
Panamaher, sem CBS sagði hafa
verið viðstaddan ' umræddan fund,
var ætlunin að hersveitir Panama
fæm fyrst inn fyrir landamæri Nic-.
aragua, en á eftir áttu að fylgja
sveitir bandarískra landgönguliða.
í áðumefndri ákæm er Noriega
sakaður um að hafa breytt Panama-
her í stórfelld glæpasamtök, sem
aðstoðuðu kólumbíska eiturlyfja-
smyglara við að koma vamingi
sínum til Bandaríkjanna.
Bretland:
Verkfall í Ford verksmiðjiinum
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frín
VERKFALL í bílaverksmiðjum
Ford hófst í gærmorgun. Ekkert
útlit er fyrir, að það leysist á
næstunni. Verkfallið mun hafa
áhrif á starfsemi Ford-verk-
smiðja á meginlandi Evrópu og
samningaviðræður annarra
verkalýðsfélaga í Bretlandi.
Fyrir rúmri viku var naumlega
komið i veg fyrir verkfall hjá Ford,
þegar samningamenn starfsmanna
samþykktu tilboð fyrirtækisins um
7% kauphækkun strax og 2,5%
kauphækkanir á næstu tveimur
ámm umfram verðbólgu ásamt
víðtækum breytingum á vinnutil-
högun. í síðastliðinni viku höfnuðu
60% starfsmanna þessum samningi
og krefjast meiri launahækkunar
og að henni fylgi engin skilyrði um
breytingar á vinnutilhögun. Samn-
ingamenn og forystumenn starfs-
manna höfðu þó lagt til, að sam-
komulagið yrði samþykkt, og sögðu
það einstakt í sinni röð.
Um helgina hittust samninga-
nssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
nefndir fyrirtækisins og starfs-
manna. Fyrirtækið neitaði að breyta
tilboði sínu. Því kom til verkfalls.
Það virðist ljóst, að fyrirtækið
ætlar að bíða og sjá, hvemig sá
þriðjungur, sem var andvígur verk-
falli, bregst við, þ.e. hvort hann
mætir til vinnu. í gær, mánudag,
var hvergi unnið í bifreiðaverk-
smiðjum Ford, og enginn starfs-
manna þeirra mætti til vinnu. Ott-
ast er, að þetta verði langvinnt
verkfall. Árin 1971 og 1978 kom
til verkfalla hjá Ford, og stóðu þau
lengi.
Onnur fyrirtæki Ford í Evrópu
munu lenda í vandræðum vegna
þessa verkfalls. í Genk í Belgíu eru
framleiddir Sierra-fólksbílar og
Transit-sendiferðabílar. Þangað
þurfa að berast frá Bretlandi vélar-
hlutar og hlutar í yfírbyggingu.
Talsmenn þeirrar verksmiðju sögðu,
að segja þyrfti upp 2500 starfs-
mönnum, ef til verkfalls kæmi í
Bretlandi.
Embættismenn hafa áhyggjur af
launaþróun og óttast að launasamn-
ingar hjá Ford verði öðmm for-
dæmi. Á síðastliðnu ári hækkuðu
laun að jafnaði um ríflega 8% í um
4% verðbólgu. Ymislegt benti til,
að farið væri að draga úr þessum
launahækkunum, en samningar hjá
Ford um meiri hækkanir en vom í
boði nú mundu leiða til almennra
launahækkana. Þær hefðu síðan
áhrif í átt til þess, að vextir hækk-
uðu, sem aftur leiddi til aukins fjár-
magnskostnaðar. Það drægi síðan
úr þeim efnahagsbata, sem verið
hefur samfelldur í Bretlandi undan-
fann ár.
í síðustu viku hækkaði Englands-
banki vexti. Ýmislegt bendir til
þess, að það sé skynsamlegt hjá
Ford að bjóða heldur meiri hækkan-
ir, vegna þess að framleiðni mun
aukast vemlega, ef fyrirhugaðar
breytingar á vinnutilhögun nást
fram.
Reuter
204 kílóum léttari
Hempstead í New York-fylki. Reuter.
WALTER Hudson, sem hóf megrun i október á síðasta ári undir
leiðsögn megrunarsérfræðingsins Dicks Gregorys, ákvað í gær að
hætta i megruninni.
Þegar Hudson hóf kúrinn vó hann 544 kg, hann hefur á síðustu §ór-
um mánuðum lést um 204 kg. Hudson hefur ekki komið út fyrir húss-
ins dyr í 18 ár. Þegar til stóð að hann færi í gönguferð í gær fékk
hann andlegt 'áfall og ákvað að hætta í megmnarkúmum og Gregory
sem hefur verið honum til halds og trausts síðustu ijóra mánuði sagði
að vandamál Hudsons væm af sálrænum toga og því treysti hann sér
ekki til að halda áfram að aðstoða hann í megrunarkúmum. Nokkm
áður en megrunin hófst ætlaði Hudson að fara út úr íbúð sinni en festist
í dyrunum og varð að kalla til smiði til að losa hann.
Glæsileg karlmannaföt
dökkröndótto.fl. litir.
Klassísk snið og snið fyrir yngri menn.
Verð kr. 5.500,-, 8.900,- og 9.900,-
Terylenebuxur kr. 1.195,-, 1.395,-, 1.595,- og
1.795,- teryl./ull/stretch.
Gallabuxur kr. 790,-, 850,- og 875,- sandþvegnar.
Andrés,
Skólavörðustíg 22a,
sími 18250.
að þegar við kaupum leðursófa-
sett veljum við alltaf gegnumlit-
að leður og alltaf anilínsútuð
(krómsútuð) leður og leðurhúðir
af dýrum frá norðlægum slóð-
um eða fjallalöndum — og
yfirleitt óslípaðar húðir (sem
eru endingabestar).
Ef þú ert í einhverjum vafa um
hvort þú ert að kaupa góða
vöru eða ekki skaltu bara biðja
okkur um 5 ára ábyrgð.
húsgagnfrhöllín H
REYKJAVÍK