Morgunblaðið - 09.02.1988, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988
35
Fælir
allafrá
- segirÞórður
Yngvi Guðmunds-
son framkvæmda-
stjóri Lindar um
ákvæði frumvarps
um fjármagns-
markaðinn.
„ÞETTA er ekkert annað en
hreint afturhald og gengur
gegn yfirlýstri stefnu stjórn-
valda og viðskiptaráðherra,
um að opna hér fyrir erlendar
fjárfestingar," sagði Þórður
Yngvi Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri fjármögnunar-
fyrirtækisins Lindar, er leitað
var álits hans á lagafrum-
varpi sem nú er i undirbún-
ingi á vegfum viðskiptaráð-
herra og felur meðal annars
í sér að eignaraðild útlend-
inga að íslenskum fjármögn-
unarfyrirtækjum verði tak-
mörkuð. Stærstu fjármögnun-
arleigur landsins, þar með
talin Lind eru að verulegu
leyti í eigu erlendra aðila.
„Þetta fælir alla frá. Það hef-
ur enginn áhuga á að fjárfesta
hér ef ekki má eiga nema 25%
í starfandi fyrirtæki. Þrátt fyrir
yfirlýsingu ráðherra er sam-
kvæmt orðanna hljóðan ekki
unnt að skilja frumvarpsdrögin
öðruvísi en svo að ákvæðið eigi
að verða afturvirkt,“ sagði Þórð-
ur Yngvi.
„Annað athugavert ákvæði í
þessu frumvarpi, sem snertir
fjármunaleigumar, gerir ráð
fyrir að lágmarks hlutafé í fjár-
munaleigufyrirtæki verði 10
milljónir miðað við láns-
kvaravísitölu 1882 stig. Grein
af þessu tagi er marklaus nema
jafnframt fylgi henni ákvæði um
lágmarks eiginfjárhlutfall,það
skiptir höfuðmáli, æskilegt væri
7-10% af heildareignum og
skuldum.
Margir heimsóttu ferðaskrifstofur um helgina og fengu ferða- áætlanir sumarsins.
Sumaráætlanir ferðaskrifstofanna:
Morgunblaðið-BAR
í ferðir. „Ifyrir hádegi á mánudag
höfðu rúmlega 200 farþegar bæst í
hópinn, en við erum ánægð með að
fylla tvær vélar sama morguninn.
Það er greinilegt að fólk hefur náð
í bækling í gær og drifið í að láta
bóka sig.“
Helgi sagði að ótrúleg dreifing
væri í bókunum, en þó virtist honum
að mest væri ásóknin í sumarhús í
Hollandi og Englandi. Ferðalög á
sólarstrendur fylgdu fast á eftir og
þar væri Mallorca hvað vinsælust.
Einnig hafði Helgi orð á að leiguflug
til Kanada nyti hylli viðskiptavina
Samvinnuferða-Landsýnar.
Að sögn Knúts Óskarssonar fram-
kvæmdastjóra Úrvals var 2000 til
3000 bæklingum dreift þar um helg-
ina og fólk streymdi inn á mánudeg-
inum til að ná sér í eintak. „Bytjað
er að panta ferðir nú þegar en fólk
tekur sér góðan tíma í vangaveltur
um sumarleyfið. Þeir sem pöntuðu
ferðir um helgina voru flestir fastir
viðskiptavinir."
Míkið spurt um sumarferðir
sem kynntar voru um helgina
Sumaráætlanir þriggja ferða-
skrifstofa voru kynntar um
síðustu helgi. Útsýn og Samvinnu-
ferðir-Landsýn höfðu opið hús og
dreifðu bæklingum á sunnudag-
inn, en bæklingur Úrvals lá
frammi á skrifstofunni í Pósthús-
stræti á laugardag og sunnudag.
Fjöldi fólks lagði leið sína á ferða-
skrifstofumar til að fá upplýsing-
ar um hvað væri í boði á sumri
komanda og pantanir hafa tekið
fjörkipp.
Morgunblaðið leitaði upplýsinga
hjá ferðaskrifstofunum þremur um
undirtektir við birtingu sumaráætl-
ananna.
Helgi Magnússon forstjóri Útsýn-
ar sagði viðbrögðin hafa verið mjög
góð á þeim bæ. „Við afhentum um
5000 eintök af sumaráætluninni hér
í Reykjavík, en umboðsaðilar um allt
land höfðu opið og á suma staðina
'þurfti að senda aukaeintök. Því má
gera ráð fyrir að upp undir 10.000
bæklingum hafi verið dreift á sunnu-
daginn."
Að sögn Helga tóku pantanir að
Stórútsölumarkaðurinn býður upp á fjölbreytt úrval af fatnaði
frá tíu fyrirtælgum.
Álján fyrirtæki með
stórútsölumarkað
ÁTJÁN fyrirtæki standa saman
að stórútsölumarkaði á Fosshálsi
13—15 sem hófst síðastliðinn
föstudag og stendur til 20. febr-
úar næstkomandi. Á markaðin-
um er fjölbreytt vöruúrval svo
sem fatnaður, skófatnaður,
sportvörur, hljómplötur, hljóm-
tæki, skartgripir, sængurfatnað-
ur og fleira og er allur varning-
ur á lækkuðu verði.
Að sögn Guðlaugs Bergmann,
forstjóra Kamabæjar, á markaður-
inn sér orðið nokkuð langa sögu
sem rekja má aftur til ársins 1975.
Þá voru það eingöngu fyrirtæki
sem tengdust Kamabæ sem stóðu
að útsölumarkaðinum, en þróunin
varð sfðan sú að fleiri fyrirtæki
bættust í hópinn og nú eru þau
orðin 18 talsins.
Þéssi fyrirtæki eru Ánar, Bona-
parte, Blik, Bylgjubúðin, Garbó,
Gefjun, Kamabær og Theódóra,
sem hafa fatnað á boðstólnum,
Nafnlausa búðin, sem selur efni,
Steinar með hljómplötur og hljóð-
snældur, Axel Ó og Skóglugginn
sem hafa skó á boðstólnum,
Hummel með sportvörur, Radiobær
með hljómtæki, Kári með sængur-
fatnað, Mæra og Yrsa með skart-
gripi og Toppleður sem hefur leður-
fatnað og pelsa á boðstólnum.
streyma inn á mánudagsmorgninum.
„Af þeim hundmðum pantana sem
okkur hafa þegar borist er ljóst að
sólarlöndin verða ofan á eins og
endranær, og flestir vilja fara til
Costa del Sol á Spáni. Svo er vin-
sælt að taka flug og bíl en margir
nota sér ráðgjöf okkar og fylgja svo-
kölluðum Utsýnarvegum." Helgi
sagði að lokum að á annað hundrað
manns hefði látið skrá sig í hópferð
Útsýnar á Ólympíuleikana í Seoul í
september.
Tekið var á móti um 3000 manns
hjá _ Samvinnuferðum-Landsýn
síðastliðinn sunnudag og að sögn
Helga Jóhannssonar framkvæmda-
stjóra vildu 200 þeirra láta bóka sig
Kýpur er nýr áfangastaður hjá
Úrval og virðist ætla að slá í gegn
að sögn Knúts. „Mallorca og sumar-
húsin eru líka alltaf vinsæl, en ágúst
er sá mánuður sem fyrst selst upp
í.“ Raunar voru viðmælendur Morg-
unblaðsins sammála um að flestir
virtust vilja fara í frí síðari hluta
sumarsins.
Stefán Valgeirsson, þingmaður Samtaka um jafnrétti og félagshyggju:
Ekkert óeðlilegt við að ég sitji
í bankaráði fyrir Framsókn
Ríkið hefur ráðið ferðinni í vaxtamálum
„ÉG VAR svolítið hissa á því
sem ráðherra sagði um þessi
málefni, ekki síst vegna þess að
það er ríkið sem hefur ráðið al-
veg ferðinni í sambandi við vext-
ina,“ sagði Stefán Valgeirsson,
þingmaður Samtaka um jafnrétti
og félagshyggju, er Morgun-
blaðið innti hann eftir hveiju
hann vildi svara þeirri gagnrýni
Jóns Sigurðssonar, dómsmála-
ráðherra, í þingræðu á fimmtu-
dag, að það jaðri við hræsni að
bankaráðsformaður, sem eigi
aðild að vaxtaákvörðun, gagn-
rýni vexti og ræði launamisrétti
í landinu, þegar hann hafi nýlega
staðið fyrir þvi að hækka laun
bankastjóra.
„Bankamir verða að binda 13%
af sínum heildarinnlánum í Seðla-
bankanum. Þeir fá það verðtryggt
en enga vexti. Auk þess voru þau
fyrirmæli gefin rétt eftir að þessi
ríkisstjóm settist að völdum að
bankamir ættu sem svarar um 10%
af heildarinnlánum í ríkisvíxlum eða
á iausum reikningum í Seðlabank-
anum. Af þessum lausareikningi
borga þeir 26% í vexti," sagði Stef-
án.
Hann sagði að ef innistæða bank-
anna á þessum lausareikningum
væri minni en hún ætti að vera
yrðu þeir að greiða dráttarvexti á
mismuninn, sem nú væru 51,6%
miðað við ársávöxtun, þó einungis
væri um að ræða fáa daga. Síðan
hefði það gerst að ríkisvaldið ætti
í samkeppni um fjármagnið. Þannig
hefðu vextir á ríkisvíxlum hækkað
úr 26% í 41,3% ársávöxtun fyrstu
fimm mánuðina eftir að ríkisstjóm-
in tók við völdum í júlímánuði. Þetta
hafi orðið til þess að ýmsir þeirra
sem áttu peninga tóku þá út úr
bönkunum til að kaupa ríkisvíxla
og það hafí haft þær afleiðingar í
för með sér að bankamir urðu í
sjálfsvöm að hækka vextina til þess
að halda í fjármuni sparifjáreig-
enda.
„Sum sé ríkisstjómin knúði það
fram með sínum aðgerðum að bank-
amir urðu að hækka vextina til
þess að halda í þessa fjármuni, þar
sem þeir fengu meira að segja refsi-
vexti á það, sem ríkið skyldar þá
til þess að hafa inni í Seðlabankan-
um. Bankamir höfðu enga aðra
möguleika og það er alveg út í
hött hjá ráðherranum að segja að
það séu bankaráðin sem ráði ein-
hveiju þegar svona málatilbúnaður
er hafður í frammi," sagði Stefán.
Hann sagði að vegna bindisskyld-
unnar í Seðlabankanum eða þessar-
ar skattlagningar yrði vaxtamunur
að vera rúmlega 2% meiri en ann-
ars væri eða það hefði komið fram
hjá Tryggva Pálssyni hjá Lands-
bankanum í útvarpinu.
„í annan stað sagði ráðherra að
ég hefði átt þátt í að hækka laun
bankastjóra ríkisbankanna, sem
væru með hæstu laun sem tíðkuð-
ust hjá ríkinu. Bankastjórar ríkis-
bankanna em með lægri laun en
að minnsta kosti ýmsir í einkageir-
anum og laun þeirra hljóta að taka
mið af því sem menn í sambærileg-
um stöðum annars staðar hafa. Það
breytir engu um það að ég mun
alltaf deila á þann mikla launamun
sem er í þjóðfélaginu. Og ráðherr-
ann veit að það er langt í ftá að
þetta séu tekjuhæstu launamenn í
þjóðfélaginu,“ sagði Stefán Val-
geirsson.
Hann sagði einnig aðspurður að
ekkert óeðlilegt væri við það að
hann sæti í bankaráði Búnaðar-
bankans fyrir tilverknað Framsókn-
arflokksins, þó hann sitji nú á þingi
fyrir aðra aðila. „Ég var kosinn til
þess að vera fulltrúi landsbyggðar-
innar í bankaráðinu fyrst og fremst.
Ég hef ekkert skipt um skoðun í
þeim efnum. Það eru fyrrverandi
félagar mínir, sem hafa skipt um
skoðun í ýmsum málum og ég hef
enga skyldu til þess að segja mig
frá því starfi og mun ekki gera,“
sagði Stefán.
Aðspurður um laun bankaráðs-
manna ríkisbankanna, sagði hann,
að þau væru 12% af launum banka-
stjóra, samkvæmt ákvörðun fyrr-
verandi ráðherra bankamála og for-
menn bankaráðanna hefðu helmingi
meira eða 24%. Grunnlaun banka-
stjóra væru nú rétt um 215 þúsund
krónur.
Skák og hand-
knattleikur saman
með happdrætti
ísg
SKÁKSAMBAND íslands
Handknattleikssamband
lands hafa fengið leyfi til að
reka sameiginlega skyndihapp-
drætti. Mun Handknattleiks-
sambandið fá 70% af hagnaði
en Skáksambandið 30%.
Skafið verður af miðunum eins
og happaþrennum og er fyrir-
hugað að hafa myndir af skák-
mönnum og handknattleiksmönn-
um á happdrættismiðunum og
ráðast vinningar af því hvaða
myndir koma upp og hve margar
í röð.