Morgunblaðið - 09.02.1988, Side 47
47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988
Amnesty Intemational:
PAKISTAN
Mohammad Azeen hefur verið
dæmdur til dauða fyrir rán og
morð. Hann var 12 ára gamall í
október 1984, þegar ránið sem
hann er sakaður um var framið,
en þá lét einn maður lífið. Hann
var ákærður ásamt níu öðrum
sökudólgum og dæmdur af her-
rétti í árslok 1985, rétt áður en
herlögum í landinu var aflétt.
Dómur herréttarins var birtur í
febrúar 1986 og allir sakborningar
sakfelldir og dæmdir til dauða.
Þegar sakbomingarnir áfrýjuðu til
forseta Pakistans, var öllum
dauðadómum breytt í lífstíðar-
fangelsi nema dómi Mohammads
Azeems. Talið er að hann sé í
haldi í ríkisfangelsinu í Khairpur
í Sjnd-fylki.
í fyrstu skyrslu um ránið, sem
lögreglan byggði síðari rannsókn
sína á, er hvegi getið um að ung:
ur drengur hafi átt hlut að því. I
mars 1987 heimilaði hæstiréttur í
Sind föngum, sem dæmdir höfðu
verið af herrétti, að krefjast endur-
skoðunar dóma innan ákveðinna
takmarka. Hæstarétti í Sind var
síðan send beiðni um að endur-
skoða dauðadóminn yfir Mo-
hammad Azeem, m.a. á þeim for-
sendum að Barnalöggjöfin frá
1955 veitir afbrotamönnum „á
æskuskeiði" undanþágu frá dauð-
arefsingu. Þessari beiðni var hafn-
að í maí 1987. í sama mánuði var
hæstarétti Pakistans send beiðni
um endurskoðun, og hefur dauðar-
efsingu verið frestað þar til niður-
staða hæstaréttar liggur fyrir.
Amnesty International er skil-
yrðislaust á móti dauðadómum og
telur þá vera grimmilega,
ómennska og niðurlægjandi refs-
ingu og brot á þeim greinum
Mannréttindaskrár Sameinuðu
þjóðanna og annarra mannréttin-
dasamþykkta, sem kveða á um
réttinn til að lifa. Amnesty Intern-
ational telur sérstaklega ískyggi-
legt, að föngum sem dæmdir voru
meðan herlög voru í gildi (frá júlí
1977 til desember 1985) skuli
meinað að leita réttar síns hjá
æðri dómstólum, gagnstætt öllum
lagavenjum, og að umræddur
dauðadaumur sé brot á grein 6.5
í Sáttmála um borgaraleg og
pólitísk réttindi, sem bannar
dauðadóma yfir börnum yngri en
18 ára.
Samkvæmt opinberum skýrsl-
um voru 2105 dauðadæmdir fang-
ar í Pakistan í desember 1984, að
meðtöldum þeim sem áfrýjað
höfðu. Frá júlí 1984 til júní 1985
voru 106 manns líflátnir. Amnesty
er kunnugt um að þrír þessra
manna voru yngri en 18 ára. Allir
voru þeir dæmdir af herrétti.
Amnesty Intemational fer þess á
leit að dómnum yfir Mohammad
Azeem verði breytt.
Áskorunum skal beint til:
His Excellency President
Mohammad Zia-ul-Haq
The Presidency
Murree Brewery Road
Rawalpindi
Pakistan.
Justice (rtd) Ghans Ali Shah
Chief Minister
Office of the Chief Minister
Karachi
Pakistan.
(Fréttatilkynning)