Morgunblaðið - 13.02.1988, Síða 1

Morgunblaðið - 13.02.1988, Síða 1
72 SIÐUR B OG LESBOK STOFNAÐ 1913 36. tbl. 76. árg. LAUGARDAGUR 13. FEBRUAR 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Leiðtogafundur EB-Iandanna: Skálað í kampavíni eftir strangan fund Brussel, frá Krístófer Má Krístinssyni, fréttarítara Morgunbladsins. LEIÐTOGAR ríkja Evrópubandalagsins funduðu í allan gærdag en á tólfta tímanum í gærkvöldi var borið til þeirra kampavín og var það talið til marks um að eitthvert samkomulag hefði náðst. Fundurinn var að þvi kominn að leysast upp í gær þegar Bretar og Hollending- ar féllust Ioks á málamiðlun vegna útgjalda til landbúnaðar. Þá sner- ust Frakkar á hinn bóginn öndverðir og gerðu kröfur fyrir vinbænd- ur og var það síðasta deilumálið eftir strangar viðræður í tvo daga. Margaret Thatcher forsætisráð- herra Bretlands, og hollenski forsæt- isráðherrann Ruud Lubbers héldu stíft fram kröfum sínum um lækkun á niðurgreiðslum til bænda. Að sögn stjómarerindreka í Brussel lentu þau þó bæði í nokkrum vanda vegna málamiðlunartillögu sem Helmuth Kohi kanslari Vestur-Þýskalands lagði fram og hinar þjóðimar tíu féllust á. Fór svo að lokum að af- Grönlandsfly synjað um áætlunarflug' Nuuk. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunbladains. í ANNAÐ sinn hefur flugfélagið önlandsfly fengið synjun frá k samgönguráðuneytinu um fi til áætlunarflugs milli Kulu- súk og Keflavíkur. I Ástæða þess að Grönlandsfly fær néitun við beiðninni um leyfí til að hefja áætlunarflug milli Kuiusuk og Kéflavíkur er sú, að sögn talsmanns danska samgönguráðuneytisins, að ekki er talinn gmndvöllur fýrir því að tvö flugfélög haldi uppi áætlunar- flugi milli þessara staða. Helgi Jóns- son hefur flogið milli Kulusuk og Kpflavíkur um árabil. staða þeirra stóð ekki í vegi fyrir samkomulagi. Þá vildu Frakkar herða á kröfum í þágu vínbænda og er talið, að yfirvofandi forsetakosn- ingar setji svip á afstöðu Frakka en á fundinum sátu þeir báðir Francois Mitterrand, forseti, og Jacques Chirac, forsætisráðherra, sem era líklegir keppinautar i kosningunum. Á tólfta tímanum í gærkvöldi var hins vegar borið kampavín í fundar- sal leiðtoganna og var sú ályktun dregin af því, að þeir hefðu komist að samkomulagi. Sjá einnig „Pólitískar aðstæð- ur . . .“ á bls. 30. . I ♦ro BPACF m ■ ' r- Reutcr Franskir bændur efndu til mótmæla í París í gær vegna stefnu Evrópubandalagsins í landbúnaðarmál- um. Plægðu bændurnir upp grundir á Champs de Mars í nágrenni Eiffel-turnsins. Sovétmenn boða nýtt frumkvæði í afvopnunarmálum: Þingmenn ræði sam- drátt á norðurslóðum Moskvu, Reuter. I SOVÉTRÍKJUNUM hefur verið ákveðið að hefja nýtt frumkvæði í afvopnunarmálum, sem beint er til þjóðþinga tiltekinna ríkja, Risajakki Reuter Klæðskerar franska fataframleiðandans Bayard komust i metabók Guinness þegar þeir saumaðu stærsta jakka heims. Jakkinn er fjög- urra metra hár, vegur 17 kiló og í hann fóru 37 fermetrar af klæði. að því er sagði í tilkynningu frá hinni opinberu fréttastofu Tass í gær. Sagði i fréttinni að ut- anríkismálanefndir beggja deilda Æðsta ráðs Sovétríkjanna hefðu samþykkt á fimmtudag að senda utanrikismálanefndum þjóðþinga íslands, Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar, Finnlands, Kanada og Bandaríkjanna sér- stakt ávarp þar sem hvatt er til þess að hafnar verði viðræður um að draga úr vígvæðingu á norðurhöfum. Sendiherra Sov- étríkjanna á íslandi afhenti Eyj- ólfi Konráð Jónssyni, formanni utanríkismálanefndar Alþingis, ávarpið í gær. í ávarpinu er vikið að „neikvæðri þróun" vígbúnaðarmála á norður- slóðum á meðan afvopnunarviðræð- ur hafí skilað árangri á öðram svið- um. Segir þar ennfremur að flota- æfingar Bandaríkjamanna og aðild- arríkja Atlantshafsbandalagsins á Norður-Atlantshafí verði sífellt umfangsmeiri auk þess sem flota- viðbúnaður fari sífellt vaxandi. Jeg- or Lígatsjov, annar valdamesti mað- ur Sovétríkjanna, og Anatólíj Dóbríjnín, einn helsti ráðgjafi Sov- étstjómarinnar á sviði utanríkis- mála, mæltu fyrir tillögunni í Æðsta ráðinu. En efni hennar er í samræmi við hugmyndir, sem Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi kynnti í Múrmansk sl. haust. í frétt Tass kemur fram að gert er ráð fyrir að sovéskir þingmenn og starfsbræður þeirra í ríkjunum sem nefnd vora hér að framan komi saman til vinnufunda, haldnar verði ráðstefnur og komið verði á viðræð- um fulltrúa ríkjanna í gegnum sjón- vaip með aðstoð gervihnatta. í samþykkt Æðsta ráðsins segir m.a. að „ógnvænlegur eyðingar- máttur kjamorkuvopna, sem komið hefur verið fyrir í kafbátum og skipum" skapi aukna spennu og dragi úr öryggi þeirra þjóða sem búa í þessum heimshluta. Eyjólfur Konráð Jónsson kvaðst í samtali við Morgunblaðið í gær hafa tjáð sovéska sendiherranum að hann myndi skýra forseta sam- einaðs þings, forsætisráðherra og utanríkisráðherra frá ávarpinu og leggja það fyrir boðaðan fund í ut- anríkismálanefnd á mánudag. Carrington lávarður, fram- kvæmdastjóri NATO, segir í viðtali sem birtist í Morgunblaðinu í dag að Sovétmenn vinni stöðugt að því að auka vígbúnað sinn í þessum heimshluta og greinilegt sé að ís- lendingar og Norðmenn hafi vax- andi áhyggjur af þessari þróun. Víkur hann einnig að tillögum Gorbatsjovs og segir hinn hemaðar- lega hluta þeirra tæpast settan fram í fullri alvöra. Sjá einnig viðtal við Carring- ton lávarð á miðopnu blaðsins og „Sovéskir eldflaugakaf- bátar. . . á bls. 29. Frakkland: Lagt upp í herferð á hendur hávaða Parfs. Reuter. FRANSKA umhverfisvemdarráðuneytið ætlar í dag að hleypa af stokkunum mikilli herferð á hendur hávaðanum og á hún aldeilis ekki að ganga hljóðalaust fyrir sig. óþægindum og jafnvel sársauka þegar hann fer yfír 120 desíbel. Hann er traflandi við 60 desíbel, þreytandi við 80 og hættulegur heyrninni þegar hann er kominn í 100. í skýrslu frá umhverfisvemd- arráðuneytinu segir, að algengt sé, að franskir unglingar hljóti óbætan- legar heyrnarskemmdir vegna háv- aðans frá hljómflutningstækjum. Með herferðinni á hendur hávað- anum er stefnt að því að gera heim- ilið, vinnustaðinn og skólann ögn friðsælli en fyrst og fremst að vekja Frakka til vitundar um þetta vanda- mál. Aróðursherferðin verður Tekin í útvarpi alla næstu viku og með aðalhlutverkið fer hraðmæltur og nefmæltur náungi, sem veit ekkert jmdislegra en veinið í ryksugunni, brakið í kaffíkvöminni og mótorhjól með ónýt púströr. Til að öruggt sé, að boðskapurinn týnist ekki innan um annað glamur í útvarpinu, er hann kynntur hveiju sinni með langdregnu Tarzanöskri. Þeir, sem hafa hlýtt á þáttinn, segja, að nú fari það ekki lengur á milli mála, að hávaði getur tekið menn algerlega á taugum. Hávaði veldur fólki verulegum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.