Morgunblaðið - 13.02.1988, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1988
Framleiðslustjórnun í alifuglarækt:
STIGIÐ FRAMFARASPOR EÐA
AFTUR TIL FORTÍÐAR?
ALIFUGLABÆNDUR hafa staðið í átökum Hér á eftir fara ummæli fulltrúa ólíkra
að undanförnu við fulltrúa verslunar og sjónarmiða í þessu máli, í framhaldi af
neytenda vegna framleiðslustjórnunar sem greininni „ Af innlendum vettvangi“ sem
tekin hefur verið upp í alifuglaræktinni. birtist annars staðar í blaðinu:
Morgunblaðið/Einar Falur
Jóhannes Gunnarsson
form aður
Neytendasamtakanna:
Undirbúum
hertar
aðgerðir
„ÞAÐ er mín skoðun að þessu
máli sé engan veginn lokið og
Neytendasamtökin eru að und-
irbúa hertar aðgerðir," sagði
Jóhannes Gunnarsson formaður
Neytendasamtakanna.
„Ég er sannfærður um að ef
þessar aðgerðir sem landbúnaðar-
ráðherra og framleiðendur stefna
að verða að veruleika muni það leiða
til óhagkvæmari framleiðslu og
hærra verðs til neytenda, en verðið
til neytenda er þegar með eindæm-
um og ekki á það bætandi.
Við brugðumst svona harkalega
við nú vegna þess hvað við höfum
lengi barist gegn þessu og vil ég
minna á baráttuna gegn einokun
íseggs á sínum tíma. Við emm
búin að horfa upp á það allt of lengi
að byggðastefnu og björgunarað-
gerðum fyrir gjaldþrota fyrirtæki
hefúr verið haldið úti á kostnað
matarbuddu almennings. Þegar
þama átti að fara að bjarga hags-
munum einhverra framleiðenda á
sama hátt sögðum við: Nei takk,
ekki meir. Við höfum þá reynslu
af núverandi landbúnaðarráðherra
að mótmælin ein duga skammt og
framleiðendasjónarmið eru alltaf
tekin fram yfir neytendasjónarmið,
og því getum við ekki látið staðar
numið."
Einar Eiríksson,
Miklaholtshelli:
Höfum ekki
getað komið
ájafnvægi
„UPPHAF þessa máls má rekja
aftur til ársins 1984 þegar únnið
var að stofnun dreifingarmið-
stöðvarinnar íseggs, sem átti að
skylda alla að leggja inn í. Þetta
var okkur ekki að skapi þar sem
við töldum að dreifingarstöðin
myndi auka kostnaðinn. En þeir
höfðu meirihluta í Sambandi
eggjaframleiðenda og stofnuðu
fsegg en við sögðum okkur úr
sambandinu og stofnuðum Félag
alifuglabænda," segir Einar
Eiríksson eggjabóndi í Mikla-
holtshelli.
Eggjabóndi með afUrðir hænsna
„í kjölfar þessa var Samband
eggjaframleiðenda styrkt verulega
af opinberu fé sem skapaði mismun-
andi stöðu framleiðenda. Þeir juku
framleiðsluna og ætluðu að ná und-
ir sig stærri hluta markaðarins, en
þá var næg framleiðsla í landinu.
Þetta varð til að auka spennuna
því aðrir framleiðendur vildu halda
sínum hlut. Það fór reyndar svo að
dreifíngarstöðin hætti starfsemi
sinni. En við erum að súpa seyðið
af þessu núna og höfum ekki getað
komið aftur á jafnvægi á milli fram-
boðs og eftirspurnar. Síðan er það
alltaf svo þegar vel gengur og verð-
ið er eðlilegt að þá er mikil ásókn
hjá nýjum mönnum að hefja fram-
leiðslu og er því oft erfitt að halda
jafnvægi.
Það er erfitt að vera í forsvari
fyrir hóp manna sem geta ekki
framleitt með sæmilegum árangri
og þegar komið var fram á síðasta
ár var séð að grípa yrði til ein-
hverra aðgerða. Ekki var um nema
tvær leiðir að velja. Að stofna dreif-
ingarstöð sem hefði einokun á
eggjasölu og öllum væri skylt að
leggja inn í eða að hafa dreifinguna
fijálsa en framleiðsluréttinn tak-
markaðan. Seinni leiðin var vaJin."
Einar sagði að afstaða fóðursal-
anna, þar sem mikil samkeppni
ríkti, hefði ráðið töluverðu um að
markaðurinn hefði ekki jafnað sig.
Þeir hefðu ekki verið tilbúnir til að
stöðva þá verst stöddu og því hefði
framleiðslan ekki dregist saman á
eðlilegan hátt þegar harðnaði veru-
lega á dalnum.
Geir Gunnar Geirsson,
Vallá:
Gefumst upp
fyrir kerfinu
„ÉG HEF ekki breytt um skoðun.
Hins vegar er ljóst að ekki þýðir
endalaust að berja hausnum við
steininn. Það má til sanns vegar
færa að við séum að gefast upp
á því að berjast við þetta mið-
stýrða kerfi sem hefur haldið
stöðugt áfram að misþyrma okk-
ur. Fyrst við gátum ekki sigrað
þá verðum við að ganga í lið með
þeim,“ sagði Geir Gunnar Geirs-
son, eggjabóndi á Vallá á Kjalar-
nesi.
„Ég væri óhræddur að keppa
áfram ef aðstæður væru eðlilegar,
en ekki er hægt að keppa við fjár-
magn sem streymir úr opinberum
sjóðum sem maður hefur sjálfur
borgað í. 0g enn er verið að borga
úr þessum sjóðum.
Úr því sem komið er mætti mér
vera sama um hvort eggjasamlag
verður sett á stofn eða ekki. Ég sel
mikið til stórra kaupenda, sem
þurfa mikinn afslátt, og er því að
selja ódýrari egg en margir aðrir.
Ef þetta yrði sett í eitt kerfí þyrfti
ég ekki að selja ódýrara en aðrir.
En vissulega er þetta sárt því ég
var búinn að fjárfesta í nýjum vélum
og ætlaði að auglýsa mitt eigið
merki upp af myndarskap.
Ég vona svo sannarlega að hægt
verði að sjá eitthvað meira frjáls-
ræði í þessu í framtíðinni. Vandræð-
in minnka vonandi eftir því sem
offramleiðsla lambakjöts minnkar
og minni þrýstingur verður á okk-
ur.“
Bjarni Ásgeir Jónsson,
Mosfellssveit:
Lægra
kjúklingaverð
fæst aldrei
leyft
„ÞESSAR árásir Neytendasam-
takanna á okkur eru ákaflega
ósanngjarnar. Við höfum gert
vel miðað við þær aðstæður sem
við búum við,“ sagði Bjarni Ás-
geir Jónsson framkvæmdastjóri
Reykjagarðs hf. sem rekur ali-
fuglabú í Mosfellssveit og á Ás-
mundarstöðum.
„Við höfum frá því fóðurbætis-
skatturinn var fyrst settur á okkur
ítrekað óskað eftir hjálp og sam-
starfi við Neytendasamtökin við að
ná honum af okkur og öðrum álög-
um sem við teljum ósanngjarnar.
Við erum búnir að gefast upp á því
að berjast einir fyrir fijálshyggjunni
í landinu. Við erum kannski bara
að þroskast eins og Þorsteinn Páls-
son forsætisráðherra og Jón Bald-
vin Hannibalsson fjármálaráðherra,
sem báðir höfðu lýst því yfir að
þeir ætluðu að afnema fóðurbætis-
skattinn en hækkuðu hann í staðinn
þegar þeir urðu fjármálaráðherrar.
Þegar þeir tóku við embættum
sínum sáu þeir vandamál land-
búnaðarins, sem vissulega eru ekki
auðleyst og lausn þeirra varðar
okkar hagsmuni.
Okkur þykir ótækt að Neytenda-
samtökin geri framleiðendur þess-
ara afurða að glæpamönnum og
okrurum. Það er ekki réttlátt því
að þrátt fyrir allt eru kjúklingar
með ódýrasta kjötinu á markaðnum
og egg eru líklega ódýrasta áleggið
og maturinn hér í búðum. Það er
staðreynd að svo til allar vörur og
þjónusta eru verulega dýrari hér
en erlendis og er út í hött að vera
að taka þessar afurðir sérstaklega
út úr.
Hitt er svo annað mál að með
ákveðnum aðgerðum teljum við
hægt að hafa egg og kjúklinga
ódýrari hér, en gerum okkur grein
fyrir því að okkur verður aldrei leyft
að hafa kjúklingana ódýrari vegna
samkeppninnar við lambakjötið sem
stjórnvöld bera ábyrgð á að selja,
og þó leyft verði að flytja inn kjúkl-
inga munu stjórnvöld sjá til þess
að þeir verði ekki of ódýrir fyrir
lambakjötið.“
Ingibjörn Hafsteinsson
formaður
matvörukaup manna:
Reglugerðin
spor aftur
ábak
„VIÐ TÖKUM ekki afstöðu til
óska Neytendasamtakanna og
viljum ekki stjórna verðlagningu
framleiðenda. En við erum á
móti reglugerðinni, erum hrædd-
ir við afleiðingar hennar,“ sagði
Ingibjörn Hafsteinsson kaup-
maður í Hamrakjöri og formaður
Félags matvörukaupmanna.
„Reglugerðin er að okkar mati
spor aftur á bak, við viljum hafa
samkeppni á milli framleiðenda.
Þessi samkeppni hefur verið til
staðar og hefur því ekki þurft inn-
flutning til aðhalds. Ef samkeppni
verður áfram sjáum við ekki þörf
fyrir hann.
Ingibjörn sagði aðspurður að
kaupmenn hefðu ekki aukið álagn-