Morgunblaðið - 13.02.1988, Blaðsíða 27
Tjaldstæðin
1 Laugardal:
Sjö buðu í
Ijaldbúðir
Lægsta tilboð
rúmar 25 milljónir
SJÖ tilboð bárust í byggingu 500
fermetra þjónustuhúss, Tjald-
búðir, við Ijaldstæðin í Laugard-
al. Lægsta tilboðið var frá Reisir
sf., 25,1 miiljón króna en kostn-
aðaráætlun er 26,7 miHjónir
króna.
Aðrir sem buðu voru ísvirki hf.
26,8 millj., Múrsmíði sf. 27 millj.,
Bjöm Agnarsson 28,4 millj., Sig-
urður Bárðarsson 29,4 millj. Hilmar
og Sveinbjöm sf. 30,7 millj. og Sig:
urbjöm Guðjónsson 32,4 millj. í
þjónustuhúsinu er gert ráð fyrir
aðstöðu fyrir svæðisvörð, snyrtingu,
matseld, uppþvótt, þvotta og reistur
verður sérstakur þurrkhjallur. Að
sögn Guðmundar Pálma Kristins-
sonar, forstöðumanns byggingar-
deildar Reykjavíkurborgar, er einn-
ig gert ráð fyrir borðum og bekkjum
á verönd sem að hluta til er undir
þaki.
Húsið er tyrft að utan með glæm
þaki og er því ætlaður staður á
sömu lóð og tjaldstæðin em nú, en
fjær götunni. Verkinu skal vera
lokið um mánaðarmót júní og júlí.
Manfreð Vilhjálmsson, arkitekt,
hannaði húsið og sagðist hann eiga
von á að Tjaldbúðirnar kæmu til
með að bæta vemlega úr allri að-
stöðu á tjaldstæðinu. „Vonandi
verður þetta til að auka hróður
borgarinnar, en það hefur verið
kvartað nokkuð erlendis frá vegna
aðstöðuleysis á tjaldstæðinu," sagði
Manfreð.
Fjármála-
ráðuneytið:
Álagá
símalauna-
deildar
LESENDUR hafa kvartað yfir
því við Morgunblaðið að mjög
erfiðlega gangi að ná sambandi
við launadeild fjármálaráðuneyt-
isins. Samkvæmt upplýsingum,
sem þar voru veittar i gær, munu
starfsmenn Pósts og síma álags-
prófa símann þar á næstunni og
verður þá vonandi hægt að koma
i veg fyrir frekari vandamál.
Þegar Morgunblaðið náði sam-
bandi við launadeildina eftir ítrek-
aðar tilraunir, kom í ljós að margir
höfðu kvartað yfir hversu erfitt
væri að ná sambandi. Erfiðleikana
mætti rekja til þess, að fólk leitaði
mun meira til launadeildar eftir að
staðgreiðslukerfi skatta var tekið
upp, til að fá nánari upplýsingar
vegna skattkorta. Þá þyrfti fólk
einnig að ná sambandi ef launamið-
ar fyrir síðasta ár hefðu ekki bor-
ist, svo unnt væri að ganga frá
skattframtali fyrir síðasta ár. Á
skiptiborði launadeildar vinna tvær
stúlkur og tengjast átta símalínur
við skiptiborðið, auk tveggja frá
borðinu í stjórnarráð.
Islenska óperan:
Sýningumá
Norðurlandi
frestað
Fyrirhugaðri ferð íslensku óper-
unnar með Litla sótarann um Norð-
urland nú um helgina er frestað
vegna veðurs.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1988 27
W
IBM PS/2... VEIST ÞU HVAÐ
GERIR HANA EINSTAKA?
l/ MARGFÖLD AFKÖST!
Hún afkastar margfalt á við PC tölvur.
l/NVTIR K GÖGN!
Hún er arftaki PC tölvunnar og gögnin ganga á milli.
l/FER ViL MID AUGUN!
Ljósmyndagæði á skjánum. Þú þreytist minna.
l/AUÐVELD í NOTKUN!
IBM PS/2 er á allan hátt mjög aðgengileg.
Mús einfaldar vinnu við skjáinn.
*/ NETTENGINGAR EINFALDAR/ÖRUGGAR!
Tengist fullkomlega bæði í net og við stórar tölvur.
KOMDU OG PRÓFADU HANA!
Hjá IBM eða söluaðilum.
FYRST OG FREMST
SKRIFSTOFUVÉLAR HF.
OnÓ A. MICHELSEN
HVERFISGÖTU 33 REYKJAVÍK
SÍMI623737
VIÐSKIPTI: Sala, þjónusta,
viðgerðir, innflutningur.
VÖRUR: Tölvubúnaður,
rekstrarvörur, Ijósritunarvél-
ar, rit- og reiknivélar, búðar-
kassar og kerfi, klukkukerfi,
skrifstofuhúsgögn o.fl.
STARFSMENN: 60.
GÍSLIJ. JOHNSEN
SKRIFSTOFUBÚNAÐUR SF.
NÝBÝLAVEGI 16 KÓPAVOGI
SÍMI 641222
VIÐSKIPTI: Sala, þjónusta, við-
gerðir, rekstur tölvuskófa, inn-
flutningur.
VÖRU R:Tölvubúnaður, rekstrar
vörur, Ijðsritunarvélar, rit- og
reiknivélar, skrifstofuhúsgögn,
klukkukerfi, farsímar o.fl.
STARFSMENN 30.
ÖRTÖLVUTÆKNI HF.
ÁRMÚLA 38 REYKJAVÍK
SÍMI687220
VIÐSKIPTI:Sala,þjónusta, við-
gerðir, hönnun og smíði á raf-
eindabúnaði, sérverkefni á raf-
einda- og tölvusviði, innflutn-
ingur, aðlögun búnaðar o.fl.
VÖRUR:Tölvubúnaður,rekstrar
vörur, tölvuhúsgögn og fleira
tengt tölvum, rafeindatæki o.fl.
MAGNUS SF.
BOLHOLTI 6 REYKJAVÍK
SÍMI689420
VIÐSKIPTI: Sala, þjónusta,
viðgerðir, hugbúnaðargerð,
innflutningur.
VÖRUR: Tölvubúnaður,
rekstrarvörur, tölvuhúsgögn
og fleira tengt tölvum.
STARFSMENN: 4.
STARFSMENN: 25.
HJARNIHF.
BREKKUGÖTU 2 HAFNARFIRÐI
SÍMI 652277
VIÐSKIPTI: Sala, þjónusta,
hugbúnaðargerð.
VÖRUR: Tölvubúnaðúr, hug-
búnaður.
STARFSMENN: 4.
AMsís»-
AS6US/SIA