Morgunblaðið - 13.02.1988, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1988'
7
Flotgallar sótt-
ir með flugvél
MIKIL eftirspurn er nú hér á
landi eftir svokölluðum flot-
vinnugöllum um borð í fiski-
skip. Einn innflytjenda á
slíkum göllum er umboðs- og
heildverzlunin Seifur hf. Eft-
irspurn eftir göllunum hjá
henni hefur verið slík, að
ákveðið var að senda leigu-
flugvél til Noregs eftir rúm-
lega 150 göllum svo hægt
væri að sinna kaupendum.
Erling Proppé er sölustjóri hjá
Seifi. Hann sagði í samtali við
Morgunblaðið, að fyrirtækið seldi
flotvinnugalla frá Noregi, sem
hétu Regatta. Töluverð eftirspurn
hefði verið eftir þeim að undanf-
örnu, en eftir að Morgunblaðið
hefði skýrt frá giftusamlegri
björgun tveggja skipverja af Guð-
mundi VE, sem hefðu verið í þess-
úm göllum, hefði nánast orðið
Rétt síma-
númer
í FRÉTT í Morgunblaðinu í
gær, föstudag, voru rangar
upplýsingar frá lögreglu um
símanúmer upplýsingaþjónustu
vegna nýrra umferðarlaga. Rétt
númer er 62-36-35.
Lögreglan í Reykjavík byrjar
þessa þjónustu á mánudag. Þá er
hægt að hringja í ofangreint núm-
er frá kl. 14-16 og fá svör við
spumingum um ný umferðarlög,
sem taka gildi 1. mars. Þessi þjón-
usta verður á virkum dögum fram
til mánaðamóta.
sprenging. Rekja mætti pantanir
á að minnsta kosti 200 göllum
beint til fréttarinnar. Þó Seifur
ætti gallasendingu á leið til lands-
ins með skipi, hefði hann ekki séð
sér annað fært en að leigja flug-
vél til að sækja galla til Alasunds
í Noregi.
Morgunblaðifl/Svemr
Erling Proppé, sölustjóri og Atli Hermannsson, starfsmaður Seifs með einn gallann við fiugvélina, sem var
frá leiguflugi Sverris Þóroddssonar.
Lánasjóður íslenskra námsmanna:
Hætt að draga meðlög frá láni
SIGURBJÖRN Magnússon, nýskipaður formaður stjórnar Lánasjóðs
íslenskra námsmanna hefur sent Benedikt Bogasyni formanni Vöku,
f.l.s. bréf þess efnis að stjórn sjóðsins hafi tekið þá ákvörðun að frá
og með 1. júní n.k. verði hætt að telja meðlög til tekna við útreikning
námslána. Tilefni þessa bréfs var fyrirspurn hins síðarnefnda um við-
brögð sjóðsstjórnar við þeim tilmælum ráðherra um að þessum reglum
yrði breytt.
Aðdragandi þessa máls er Sá, að
við endurskoðun úthlutunarreglna
sjóðsins síðastliðið vor samþykkti
meirihluti stjómar sjóðsins þá reglu
að bamsmeðlög skyldu tejast til
tekna og koma til frádráttar náms-
lánum. Þessu mótmæltu fulltrúar
námsmanna.
Síðastliðið haust samdi Valborg
Snævarr, fulltrúi Vöku í Háskóla-
ráði greinargerð um þetta mál, þar
sem hún færði rök fyrir því að regl-
an styddist ekki við lög. Benti hún
á að samkvæmt bamalögum og for-
dæmi Hæstaréttar teldist meðlag
vera eign barns en ekki móður. Full-
trúi Stúdentaráðs Háskóla íslands í
stjóm LÍN lagði fram greinargerð
Valborgar, en niðurstöðu greinar-
gerðarinnar var hafnað í stjórn
sjóðsins.
Að tilhlutan Valborgar var málinu
vísað til Lagastofnunar Háskóla Is-
lands og 1. desember síðastliðinn
skilaði stofnunin áliti sínu. Var álitið
samhljóða áliti Valborgar. Álit þetta
var kynnt stjóm Lánasjóðsins, en
meirihluti hennar var ósammála áliti
Lagastofnunar.
Námsmenn bmgðu því næst á það
ráð að senda Birgi ísleifi Gunnars-
syni, menntamálaráðherra álitið og
þann 21. desember síðastliðinn seridi
ráðherra sjóðsstjórninni bréf, þar
sem hann mæltist eindregið til þess
að reglunni yrði breytt við næstu
endurskoðun úthlutunarreglna
Lánasjóðsins.
28. janúar síðastliðinn lögðu full-
trúar námsmanna í stjóm LIN fram
tillögu til stjómar, þar sem lagt var
til að viðkomandi ákvæði í úthlutun-
arreglum yrði fellt út, frá og með
gildistöku og sú skerðing sem af því
hefði hlotist leiðrétt með afturvirk-
um hætti. Stjóm sjóðsins felldi þessa
tillögu.
4. febrúar síðastliðinn sendi Bene-
dikt Bogason formaður Vöku, félags
lýðræðissinnaðra stúdenta, stjóm
Lánasjóðsins bréf, sem hann kynnti
fulltrúum námsmanna í stjórninni. í
bréfi þessu var fyrirspum þess efn-
is, hver viðbrögð stjómarinnar yrðu
við málaleitan ráðherra. Sigurbimi
Magnússyni var á stjómarfundi 4.
febrúar falið að svara bréfi Bene-
dikts.
Á síðasta fundi stjómar sjóðsins,
síðastliðinn fimmtudag kynnti Sig-
urbjöm bréf stjómarinnar til form-
anns Vöku. Segir m.a. í bréfinu: „Á
fundi stjómar LÍN í dag var tekin
sú ákvörðun að hætta að flokka
meðlög sem tekjur og tekur sú
ákvörðun gildi frá og með 1. júní,
er nýjar úthlutunarreglur taka
gildi." Segir enn fremur í bréfinu
að stjómin standi fast við þá skoðun
sína að núgildandi reglansé fullkom-
lega lögmæt.
I samtali við Morgunblaðið, sagði
Valborg Snævarr fulltrúi Vöku í
Háskólaráði, að hún fagnaði þessari
ákvörðun stjómarinnar, sem vissu-
lega væri áfangasigur í þessu máli.
„Það er ávallt ánægjulegt að sjá
vinnu sína bera árangur og bjóst ég
í rauri ekki við annarri niðurstöðu.
Með bréfi ráðherra var málið nánast
komið í höfn, en með fljófæmisleg-
um tillöguflutningi sínum, án sam-
starfs við mig, sem hafði unnið
máíið efnislega, var stjóm sjóðsins
stillt upp við vegg og gert illmögu-
legt að samþykkja eitt eða neitt.
Við í Vöku vomm ávallt þeirrar
skoðunar að þetta mál ætti að vinn-
ast í tveimur áföngum. í fyrsta lagi
ætti að fá reglunni breytt og síðan
að fá fram einhverja afturvirka leið-
réttingu. Það mál á nú eftir að kanna
og undirbúa og er það von mín að
einhver leiðrétting náist, en til þess
að það megi takast, verður fulltrúi
stúdenta í stjóm Lánasjóðsins að
spara allar svívirðingar í garð stjóm-
valda, en reyna heldur að ná sam-
vinnu," sagði Valborg Snævarr.
Metaðsókn í Bandaríkjunum,
Metaðsókn í Englandi.
Umsagnir fjölmiðla:
„Óigandi spennumynd“
„Besti hrollur ársinsu
„Rómantískasta mynd ársinsu
„Nístandi spennumynd“
„Snjöll og tælandi“