Morgunblaðið - 13.02.1988, Page 14

Morgunblaðið - 13.02.1988, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1988 NORRÆNT TÆKNIÁR1988 / Umsjón Sigurður H. Richter Hagvirki — opið hús Hagvirki hf. verður með opið hús í tilefni Norræns tækniárs 1988 sunnudaginn 14. febrúar milli klukkan 13 og 17. Fyrirtækið er til húsa á Skútahrauni 2, Hafn- arfirði. Hagvirki er stærsta verktaka- fyrirtæki landsins um þessar mundir, að íslenskum aðalverktök- um undanskildum. Á launaskrá síðastliðins árs voru rúmlega 800 manns, en fastráðnir starfsmenn eru nú á þriðja hundrað. Velta fyrirtækisins á síðasta ári var skv. bráðabirgðauppgjöri rúmlega Ú/2 milljarður. Hagvirki var stofnað árið 1981, upp úr öðru verktakafyrirtæki, Hraunvirki, sem hafði starfað um 3ja ára skeið, svo til eingöngu við virkjanaframkvæmdir á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Eigendur Hagvirkis eru þeir: Aðalsteinn Hallgrimsson, Gísli Friðjónsson, Svavar Skúlason og Jóhann G. Bergþórsson, sem jafnframt er for- stjóri. Á þeim sjö árum sem Hagvirki hefur starfað hafa helstu verkefni þess verið orkumannvirki, vega- gerð, gatna- og holræsagerð, auk almennra byggingaframkvæmda, sem nú er stærri þáttur í starfsem- inni en áður var. Fyrirtækið kemur inn í framkvæmdir á ýmsum stig- um þeirra, allt frá því að sjá um einstaka þætti og upp í það að sjá um alla þætti samkvæmt bindandi kostnaðaráætlun. Til þess að geta annast alla þætti stórframkvæmda, eins og t.d. gerð Sultartangastíflu, sem fyrirtækið tók að sér strax á öðru starfsári sínu, og gerð vegar fyrir Ólafsvíkurenni, svo að annað dæmi sé nefnt frá upphafsárunum, þarf mikinn mannafla og góðan tækja- kost. Hjá Hagvirki starfar að jafn- aði fyöldi verk- og tæknifræðinga, iðnaðarmenn, vélamenn, tækni- og verkamenn, sem hafa aflað sér reynslu við margvísleg verkefni. Margir starfsmanna hafa starfað allt frá stofnun fyrirtækisins. Verktakastarfserru hefur ætíð verið sveiflum háð. í upphafí var það ætlun eigenda Hagvirkis, að fyrirtækið yrði alhliða verktakafyr- irtæki, þó svo að atvikin hafi hag- að því þannig, að jarðvinnuverk- efni bæði stór og smá sætu í fyrirr- úmi fyrstu árin. Fyrir um 2—3 árum dró mjög úr slíkum verkefn- um og eru hafnarframkvæmdimar í Helguvík síðasta stóra verkið á því sviði, sem Hagvirki hefur átt aðild að, að minnsta kosti í bili, en framkvæmdir þar eru nú komn- ar á lokastig. Þess í stað hefur Hagvirki nú snúið sér í ríkari mæli en áður að almennum bygg- ingaframkvæmdum og er nú m.a. með í smíðum fjölbýlishús í Grafar- vogi fyrir Byggingarsamvinnufé- lagið Búseta, fjölbýlishús við Ála- granda og til nýmæla telst, að fyr- irtækið festi nýverið kaup á landi undir tæpar 200 íbúðir af öllum gerðum á Seltjamamesi, sem framkvæmdir munu hefjast við innan skamms. Síðastliðið haust tók Hagvirki að sér verk á Grænlandi fyrir ICECON sem felst í því að smíða og endurbyggja fískvinnsluhús í þremur bæjum á Grænlandi, en því verki lýkur væntanlega nú í vor. Þá eru samningar í gangi um byggingu frystihúss í Nuuk. Sérstakur vinnuflokkur er ann- ast lagningu slitlags á þjóðvegi landsins hefur verið starfandi hjá fyrirtækinu undanfarin 4 ár, og hafa verið lagðir hátt á þriðja hundrað km af bundnu slitlagi víðsvegar um landið. Innan Hagvirkis er deildaskipt- ing og heyrir starfsemi 6 deilda undir forstjóra. Þær em: innkaupa- deild, fjármála- og skrifstofudeild, tæknideild, véladeild, jarðvinnu- deild og byggingadeild, sem nýve- rið flutti starfsemi sína til Reykjavíkur, einkum vegna mikilla verkefna þar um þessar mundir. Á morgun gefst fólki m.a. kost- ur á að skoða stórvirkar vinnuvélar að störfum, einnig verða ýmis tæki stór og smá til sýnis. Véla- og trésmíðaverkstæði fyrirtækisins verða opin og jafnframt verða sýndar mjmdir frá starfsemi fyrir- tækisins. Starfsmenn fyrirtækisins munu verða á staðnum og svara fyrirspumum. Boðið verður upp á kaffíveiting- ar og eitthvað svalandi fyrir böm- in, sem jafnframt fá endurskins- merki frá fyrirtækinu. Rafboði hfVélaverkstæði Sig. Sveinbjörnssonar hf., Nökkvi hf. og Stálvík hf ,, Skipaverkstöð ‘ ‘ — opið hús í TILEFNI af Norrænu tækniári 1988 verða fyrirtækin við voginn með „opið hús“ í húsakynnum sínum sunnudaginn 14. febrúar 1988 kl. 13.00-17.00. Við Amarvog í Garðabæ era fjögur fyrirtæki sem saman mynda „skipaverkstöð", þ.e. þau geta veitt alhliða þjónustu við smiði, endurbætur og viðhald skipa. Eitt fyrirtækjanna smíðar skip og setur niður vélar og ann- an búnað, annað sér um allar inn- réttingar, það þriðja annast raf- lagnir og það fjórða smíðar allar gerðir af vindum. Þessa dagana er unnið að byggingu dráttar- brautar og verður hún, þegar hún kemst í gagnið í vor, sú stærsta á landinu. Um svipað leyti er gert ráð fyrir að viðlegukantur- inn verði fullbúinn, þannig að á svæðinu verði fullkomin aðstaða til alhliða þjónustu við skipaút- gerðir. Stálvík hf. Skipasmíðastöðin Stálvík hf. var stofnuð 1961. Ifyrsta fískiskipið, Sæhrímnir KE-57, var afhent eig- anda á árinu 1963 og á því stöðin 25 ára smíðaafmæli á þessu ári. Stálvík hf. hefur á þessum árum smíðað fjölda fískiskipa af öllum stærðum, ailt að 57 m löngum, eins og Otto N. Þorláksson RE-203, sem er mikið og gott fískiskip. í dag er á lokastigi smíði á 39 m alhliða fiskiskipi sem verður afhent eiganda sínum, sem er Útgerðarfé- lagið Jarl hf. í Keflavík, í lok mars. Vonir standa til að gestum þyki til- komumikið að sjá nærri fullsmíðað skip af þessari stærð inni í húsi. Nökkvihf. Skipasmíðastöðin Nökkvi hf. var stofnuð 1960. Fyrirtækið hefur á þessum árum innréttað á milli 20 og 30 fískiskip og annast viðhald og endumýjun á mörgum skipum. Nökkvi hf. hefur eins og önnur fyrirtæki á svæðinu iagað fram- leiðslu síná að þörfum og kröfum íslenskra sjómanna enda þykja inn- réttingar þeirra hinar vönduðustu að gerð og frágangi. Vélaverkstæði Sigurðar Sveinbjörnssonar hf. Fyrirtækið var stofíiað í Reykjavík 1946 en flutti á svæðið 1969, þá í nýtt og fullkomið verk- stæðishús. Lengi framan af voru aðalverkefni þess viðhald ýmiss kon- ar, en á árinu 1955 hóf það fram- leiðslu á vindum í samvinnu við norskt fyrirtæki. Síðan þá hefur fyrirtækið smíðað vindur í um 400 fiskiskip. Fyrirtækið rekur heildsölu með vörur sem tengjast framleiðslu þess. Á síðustu 20 árum hefur fyrir- tækið framleitt flókinn dælubúnað fyrir hitaveituholur víða um land. Ekki er vafí á að gestum mun leika forvitni á að sjá hinn fullkomna tækjabúnað sem fyrirtækið er búið. Rafboði hf. Fyrirtækið var stofnað 1971. Síðan þá hafa aðalverkefnin verið raflagnir í skip. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í töflusmíðum fyrir skip og einnig smíðað annan búnað í skip, svo sem hleðslutæki, viðvör- unarkerfí og gangsetningar- og stjómunarbúnað fyrir umbreyta. Þá hefur Rafboði hf. smíðað auto-troll- búnað í 15 togara og er búnaður þessi hannaður að hluta af Rafboða. Ffyrirtækið hefur á að skipa reynd- um tæknifræðingum og rafvirkjum á sviði skiparafmagns. Dráttarbraut Stétvfkur hf. Arnarvogur Opin hús á simmidaginn Nú á sunnudaginn milli kl. 13 og 15 eru það annars vegar eitt stærsta verktakafyrirtæki lands- ins og hins vegar fyrirtæki í skipa- smíðaiðnaðinum, sem verða með Opið hús. í Hagvirki, á Skútahrauni 2 í Hafnarfírði, mun fólki m.a. gefast kostur á að skoða stórvirkar vinnuvélar að störfum. Einnig verða sýnd þar margvísleg tæki stór og smá, svo og véla- og trésmíðaverkstæðið. Bömunum verður leyft að setjast undir stýri á mörgum vinnuvélanna og þeim gefinn minjagripur um heimsókn- ina. í Skipaverkstöðinni við Amar- vog í Garðabæ gefst fólki m.a. tækifæri til að fara um borð í og skoða nýsmíðaðan stóran skuitog- ara inni í húsi. Einnig verða þar í gangi stórvirkar vélar á véla- verkstæði, og margt fleira verður til sýnis. Það verður án efa bæði skemmtilegt og fróðlegt fyrir alla aldurshópa, að skoða þessi fyrir- tæki. Veitingar verða á boðstól- um, bæði kaffí og svaladrykkir, og starfsmenn munu veita upplýs- ingar um starfsemi fyrirtækjanna. ■ a ■'« Stálvík SI-1. Fyrsti skuttogarínn sem smíðaður var á Islandi. Skipið var afhent eigendum 1973,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.