Morgunblaðið - 13.02.1988, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 13.02.1988, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1988 25 HÉR ER ÚR- BÓTA ÞÖRF eftir Jóhann Þórðarson í heilsíðuauglýsingum í dagblöð- um er varða skil á staðgreiðslu opinberra gjalda o.fl. segir svo m.a.: „Ekki er nægjanlegt að greiða greiðsluna í banka eða póstleggja hana fyrir eindaga. Greiðslan þarf að berast skrifstofu innheimtu- manns í -síðasta lagi á eindaga. Greiðslur sem berast eftir það munu sæta dráttarvöxtum." Fram hefur komið í einhverjum auglýsingum að innheimtumenn þeir sem hér er átt við séu sýslu- menn, bæjarfógetar og gjaldheimt- ur. Jóhann Þórðarson Ljóst er að þessi tilhögun, sem hér er ákveðin og gerð að tilhlutan fjármálaráðherra og alþingismanna okkar, passar á engan hátt fyrir íslenskar aðstæður. Við skulum taka dæmi um gjald- þegn, sem býr norður í Ámeshreppi í Strandasýslu, en skv. framan- greindri auglýsingu skal hann koma með sína skilagrein og greiðslu til innheimtumanns ríkissjóðs, sem er á Hólmavík. Hverra kosta á maður völ „sem hefur að sögn margföld mannréttindi á við aðra - lands- menn". Hann kemst ekki landleið- ina með bifreið nema ef til vill 3 mánuði á ári, samgöngur á sjó geta verið lokaðar vegna hafíss eða veð- urs og að auki eru engar samgöng- ur á sjó á milli þessara staða. Kostn- aðarins vegna er útilokað fyrir hann að fara flugleiðis. Þrautalendingin verður því sú að hann verður að taka fram skíðin sín og fara þessa leið yfír fjallvegi um 100 km hvora leið til að standa fjármálaráðherra skil á framangreindu. Ef hann sinnir ekki þessari skyldu sinni skulu settir á hann dráttarvextir. Stóðu menu ef til vill betur að vígi . fyrir nokkrum öldum, þegar skatt- heimtumenn konungs riðu um hér- uð til að innheimta fé af landsbúum? Hvað um gjaldþegm'nn sem býr i Austur-Barðastrandarsýslu? Á hann að fara til Patreksfjrðar með sína skilagrein um 200 km vega- lengd? Hvað um þá sem búa inn í ísafjarðardjúpi og búa við hálfrar aldar gamla vegi, sem teppast um leið og fyrsta snjógusan kemur. Eiga þeir að fá sér far með Djúp- bátnum, sem fer tvisvar í viku eða sjaldnar og veija í þetta þá fjórum dögum í hveijum mánuði, þ.e. 48 dagsverkum á ári? Eg hef tekið hér og bent á gjald- þegna á Vestfjörðum, eins mun þó vera með aðstæður í öðrum lands- hlutum. Hvað um íbúa á norðaust- anverðu landinu? Hvemig verður með samgöngur þar nú þegar hafís er að koma að landi eða er þegar kominn þegar þetta er skrifað? Er ekki tími til kominn, virðuleg- ir alþingismenn og aðrir ráðamenn þessarar þjóðar, að þið gerið ykkur grein fyrir því að við búum á ís- landi og við íslenskar aðstæður. Það er ekki hægt að ákveða það hér I fjármálaráðuneytinu að samgöngur hér á landi gangi eftir áætlun, þó að þær séu mjög mismunandi eftir landshlutum og þó sérstaklega yfír vetrartímann. Eg held að ráðamenn þurfí að setja sig inn f þetta áður en ákvarðanir em teknar eins og ég hef bent hér á. Borgaramir þurfa að geta á viðunandi hátt fylgt þeim reglum sem settar em, það má ekki vera ómöguleiki fýrir okkur að fara eftir þeim. í raun þurfum við ekki að fara lengra en í Gjaldheimtuna í Reykjavík og sjá þá örtröð sem þar hefur skapast undanfama daga vegna aukins álags á þá stofnun í sambandi við þessi skil, en áður tóku bankamir við stómm hluta gjaldanna og tóku þar með kúfínn af þessu álagi. Áð lokum vil ég taka það fram, til að forðast misskilning, að ekki ber að sakast við starfsfólk hinna ýmsu stofnana varðandi svona at- riði, það em þingmennirnir okkar sem bera alla ábyrgðina, þeir setja reglumar, sem við eigum að fara eftir, svo og ráðherrar, sem hafa með málin að gera. Höfundur er lögfræðingur. NY HAGSTÆÐ KJOR á nokkrum notuðum úrvals bflum!!! Við getum nú boðið nokkra notaða úrvals bfla á betra verði og greiðslukjörum en áð- ur hefur þekkst kr. 318.500 Toyota GT Twincam árg. '84 Mazda 323 station árg. '86 Mazda 626 árg. '86 Mazda 323 árg. '82 Mazda 626 Coupe árg. '85 Opið laugardaga frá kl. 1 -5 BILABORG HF. FOSSHÁLSI 1,S. 68-1299 1 ' • - . IIIIBWIÍMÍI TT-ii ^SS5Si7yiri~ ''' MAZDA 626 GLX árg. '85 MAZDA 626 GLX árg. '85 MAZDA 323 árg. ’87 MAZDA 323 árg. ’87
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.