Morgunblaðið - 13.02.1988, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1988
Reykvískir nemendur fylgjast með skemmtun TuréU-hjónanna í gær.
ChiU og Dan TuréU syngja einn söngva Dans á sviðinu í Háskólabíói.
Auðvitað höfum við boðskap
en við segjum ekki frá honum
- segja Chili og Dan Turéll
Á að taka Dan TuréU alvar-
lega? Hann lítur út eins og hann
vUji það ekki. íklæddur einhvers
konar sjakket við hvítar buxur,
með stórt bindi um hálsinn, dökk
sólgleraugu og svartan harð-
kúluhatt, andlitið með svolitlum
kímnisvip. Kannski eru gleraug-
un til að draga úr glettnisvip
augnanna? Þegar hann byijar
að tala, fær öU myndin annan
svip. Áheyrandinn missir hið ytra
form út úr brennividdinni og
djúp, róleg röddin beinir athygi-
inni að yfirveguðum listamanni,
sem hefur vaUð sér leiksvið og
kann sína ruUu, veit nákvæmlega
Islenski dansflokkurinn frum-
sýnir fjögur ballettverk undir
samheitinu „Eg þekki þig - þú
ekki mig“ á morgun, sunnudag,
14. febrúar. Hollendingurinn
John Wisman samdi dansana og
setur jafnframt upp sýninguna
hér í náinni samvinnu við landa
sinn Henk Schut sem er hönnuð-
ur sýningarinnar. Þetta er
stærsta verkefni Islenska dans-
flokksins á leikárinu og ein af
áskríftarsýningum leikhúsgesta.
John Wisman starfar við Þjóðar-
ballettinn í Hollandi sem aðaldans-
ari og dansahöfundur. Henk Schut
hannar búninga, sviðsmynd og sér
um lýsingu, en umgjörðin er mikil-
vægur hluti sýningarinnar. Að
ioknu myndlistamámi f Hollandi
nam Schut leikmynda- og búninga-
hönnun við Royal Academy of Dra-
matic Art í Lundúnum, þar sem
hvað hann er að gera. Við hlið
hans situr kona hans og sam-
starfsmaður, leikkonan Chili, og
skerpir myndina. Við skynjum
kannski best lífssýn þeirra hjóna,
þegar þau segja okkur nafn dótt-
ur sinnar, sem situr þar hjá og
litar í bók, hún heitir Lotus eftir
„. . . þvi undursamlega og fal-
lega kínverska blómi“.
Við eram á blaðamannafundi, þar
sem Dan Turéll og Chili segja frá
sjálfum sér. Tilefnið er heimsókn
þeirra hingað til iands í boði Nor-
ræna hússins, Háskóla íslands og
Háskóiabfós. Þau koma til að vera
viðstödd framsýningu bíómyndar-
hann hefur starfað síðan sem sjálf-
stæður hönnuður við ýmis leikhús.
Fyrsta verk sýningarinnar, „Eg
er að bíða eftir þér“, samdi Wisman
að beiðni hollenska ríkissjónvarps-
ins fyrir keppni ungra evrópskra
dansara, sem fram fór á Italfu 1985
og sjónvarpað var beint til margra
landa. Tóniistin f verkinu er eftir
Louis Andriessen.
Upphaflega tók annað verkið,
„Númer 48“, heilt kvöld í sýningu
en íslenskir áhorfendur sjá aðeins
brot úr því. Það var samið fyrir
dansflokk Krisztina de Chatei og
tónlistina samdi John Cage.
„Segðu þetta aftur, hærra" nefn-
ist þriðja verk sýningarinnar. Það
var samið 1984 fyrir hollenska þjóð-
arballettinn við 4. kafla „Sinfonia"
eftir Luciano Berio. I verkinu dansa
Qórar konur og fjórir karlar.
Sfðasta verkið er samið sérstak-
lega fyrir kvendansarana tíu sem
innar sem gerð var eftir fyrstu
sakamálasögu Turélls sem heitir
Morð í myrkri. í leiðinni flytur Tur-
éll fyrirlestra í boði Háskólans, les
upp úr verkum sínum í Norræna
húsinu og þau hjón flytja skemmti-
dagskrá, e.k. kabarettsýningu, í
Norræna húsinu annað kvöld.
Danni frændi
Dan Turéll er fæddur árið 1946.
Hann mótast á bítlaáranum, kemur
fram á sjónarsviðið 1969 og verður
í foiystu fyrir rithöfundum sinnar
kynslóðar. Hann skrifar bækur,
ljóðabækur, smásögur og loks saka-
máiasögur, alls yfir 70 bækur.
Hann skrifar einnig dálka í blöð,
semur söngva, útvarps- og sjón-
skipa Islenska dansflokkinn og þá
fjóra karldansara sem taka þátt í
sýningunni. Verkið heitir „Loka-
skilaboð" og er tónlistin úr þremur
verkum eftir Laurie Anderson.
Dansarar Isienska dansfiokksins
í verkinu „Eg þekki þig - þú ekki
mig“ era: Ásta Henriksdóttir, Birg-
itte Heide, Guðmunda Jóhannes-
dóttir, Guðrún Pálsdóttir, Helena
Jóhannsdóttir, Helga Bemhard,
Katrín Hali, Lára Stefánsdóttir,
Olaffa Bjamleifsdóttir og Sigrún
Guðmundsdóttir.
Gestadansarar í sýningunni era
Jóhannes Pálsson sem undanfarin
ár hefur starfað með The Pennsyl-
vania Ballet Company og ferðast
um Asíu með kóreönskum dans-
flokki, Hollendingurinn Comé du
Crocq, Austurríkismaðurinn Hany
Hadaya og Bandaríkjamaðurinn
Paul Estabrook.
varpsþætti og síðustu tvö árin hafa
þau hjónin ferðast um með
skemmtidagskrá sína og sýnt um
alla Danmörku, fyrir dönskum þing-
mönnum, heimsótt Belgíu og Græn-
land og nú ísland. í Danmörku er
Dan Turéll orðinn eins konar goð-
sögn um bítlakynslóðina, þekktur
sem „Danni frændi“.
Morð í myrkri
Við spyrjum Dan Turéll fyrst um
sakamálasögur hans og kvikmynd-
ina eftir þeirri fyrstu, Morð í myrkri.
Hanrt segir þetta vera fyrstu
myndina sem gerð er eftir sögum
hans og hann hafí veitt handrits-
höfundum og leikstjóra algjört frelsi
við gerð hennar. „Ég hef þegar
gert mína kvikmynd, hún er hér,“
segir hann og heldur uppi bókinni.
„Mér fínnst hafa tekist vel að koma
sögunni á fílmu, hún hefur sitt eig-
ið form, bók er bók og kvikmynd
er kvikmynd. Þetta er vissulega
sérstök tilfínning, maður hefur
„búið með“ þessum persónum í 7
til 8 ár og allt í einu era þær fam-
ar að „búa með“ öðram! Nú er ver-
ið að kvikmynda næstu sögu í bóka-
röðinni og undirbúningur hafinn að
þeirri þriðju, það lítur út fyrir að
bókaröðin komi líka út í kvikmynda-
röð,“ segir Dan Turéll og brosir.
Hann lýsti síðan sögunum, sem
era allar um sömu aðalpersónur,
nafnlausa blaðamanninn, lögreglu-
foringjann Ehler og lögfræðinginn
og vinkonu blaðamannsins, Gitte
Bristol. „Þetta era glæpasögur og
gerast jrfírleitt í stórborg, þar sem
jarðvegurinn er fyrir glæpastarf-
semi. Sög^usviðið er oftast Kaup-
mannahöfn, sérstakir staðir og
umhverfí þar. Ég reyni að nota
þetta söguform til þess að rannsaka
umhverfíð, kafa ofan í þennan þjóð-
félagskima," segir Dan og Chili
bætir því við, að myndin Morð í
myrkri hafí heppnast vel, fengið
gfóða dóma og aðsókn. „Aðalleikar-
inn, Michaei Falch, passar vel í hlut-
verkið, konur segja hann mjög lag-
legan og kynþokkafullan og það er
mjög gott,“ segir hún.
Skemmtidagfskrá
fyrir alla
Dan vísar spurningfum um
skemmtidagskrá þeirra til konu
sinnar, „það er hennar deild,“ segir
hann. Chili lýsir þessari uppákomu:
„Þetta er ekki eiginleg kabarettsýn-
ing, frekar eins konar „standandi
rithöfundur", við syngjum ýmis lög
við danska texta, við setjum nýja
texta við lög frá t.d. Lou Reed og
Leonard Cohen. í bland við söngv-
ana förum við með ljóð og Dan
talar við áheyrendur," segir hún.
Þau era spurð um til hverra
skemmtidagskráin höfði helst,
hvort hún sé bundin ákveðinni kyn-
slóð?
„Gestir okkar era á öllum aldri,
eiginlega frá 15 ára til áttræðs,“
svarar Chili og heldur áfram: „Dan
höfðar mjög tii eldri kvenna, þær
era hrifnar af honum, eins yngra
fólk. Þetta er ekki hreint glens og
grín, þótt formið sé slíkt, áhorfend-
Morgunblaðið/Þorkell
„Danni frændi“, eins og Danir
kalla fjöllistamanninn Dan Tur-
éll, flytur atriði úr skemmtidag-
skrá fyrir reykvíska skólanem-
endur i Háskólabíói í gær.
ur koma til að hlusta, ekki aðeins
til að hlæja."
— Hafíð þið þá einhvem sér-
stakan boðskap að færa?
„Auðvitað höfum við boðskap,
en við eram ekki svo vitlaus að
«agt frá honum," svarar Dan og
líkti þvi við bækur, rómana, þar sem
sagt er á kápunni um hvað þær
era, „. . . þannig að lesandinn veit
nákvæmlega hvemig bókin er og
hættir við að lesa hana,“ segir Dan
Turéll og brosir kímileitur.
Ástar-haturssamband
við ísland
Að lokum era Turéll-hjónin spurð
hinna klassísku spuminga um ís-
land.
„Ég hef svona einhvers lags ást-
ar-haturssamband við ísland," segir
Dan, „Ég hef komið hingað áður,
ég held fyrir um tíu áram. Það sem
mér líkar best er stoltið, hvað sumt
við landið og þjóðina er óbreytan-
legt. Hitt líkar mér verr, sem er
þvermóðskan, ekki þvermóðska ein-
staklinga, heldur í uppbyggingu
þjóðfélagsins, sem lýtur einhveijum
„verður að gera“ og „má ekki gera“
reglum. Svo get ég auðvitað bætt
einhveiju við um hreina loftið og
náttúrafegurðina," sagði hann og
brosti sínu breiðasta.
„Hér er allt svo yndislega hreint,
t.d. miðað við Kaupmannahöfn,"
sagði Chili. „Ég naut þess að fá
mér morgungöngu í hreina loftinu
og dóttirin á öragglega skemmtileg-
ar minningar héðan, hún undi sér
vel I snjónum, sem hún sér annars
svo sjaldan."
Að þessum orðum sögðum kveðj-
um við þennan merka fjöllistamann,
Dan Turéll og Qölskyldu hans,
þeirra bíður ströng dagskrá, að
kynna verk sín fyrir íslendingum
yfír helgina.
í dag verða þau viðstödd fram-
sýningu myndarinnar Morð í myrkri
í Regnboganum kl. 14.00 og á
morgun, sunnudag, mun Dan iesa
úr verkum sfnum og segja frá sjálf-
um sér í Norræna húsinu kl. 17.00.
Annað kvöld kl. 20.30 sýna þau
hjón síðan kabarett sinn í Norræna
húsinu, aðgöngumiðar era seldir á
staðnum.
ÞJ
Morgunblaðið/Bjaraí
Úr „Ég þekki þig - þú ekki mig“, sem íslenski dansflokkurinn frumsýnir á sunnudag.
Ég þekki þig - þú ekki núg“
Frumsýning hjá íslenska dansflokknum á sunnudag