Morgunblaðið - 13.02.1988, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRUAR 1988
Dagnr 70 ára:
Bollur - bollur
Markmíðið er að gefa
áfram út gott dagblað
Einarsbakarí býður
glænýjarog gómsætar
bollur um helgina.
Verið velkomin.
Opið laugardaga 8-16,
sunnudaga 9-16.
Tryggvabraut22,
sími 27099.
iTS
- segir Áskell Þórisson ritstjórí
DAGUR, eina dagblaðið utan
Reylqavikur, fagnaði 70 ára af-
mæli í gær og héldu starfsmenn
blaðsins og gestir þeirra, alls 130
manns, upp á timamótin á Hótei
KEA í gærkvöldi. Dagur hóf sinn
lífsferil 12. febrúar 1918 og hef-
ur frá upphafi stutt Framsóknar-
flokkinn, segir í ágripi af sögu
Dags. Fyrsta blaðið var fjórar
síður og á forsíðu nýja blaðsins
sagði fyrsti ritstjóri þess, Ingi-
mar Jónatansson Eydal, meðal
annars: „Þó að Dagur sé nú lítill
vexti, þegar hann hefur göngu
sína, má þó vel svo fara að á
honum sannist það fornkveðna:
„Mjór er mikils vísir“.“
Frá upphafi hafa níu menn
verið ritstjórar Dags. Nú eru rit-
stjórar þeir Áskell Þórisson og
Bragi Bergmann, en þeir tóku
við ritstjóm blaðsins sl. sumar.
Níu ritstjórar
Á gamlársdag 1919 tilkynnti
ritstjóri blaðsins að einhver frestun
yrði á útkomu blaðsins þar sem
hann væri að láta af störfum og
nýr ritstjóri var þá ekki fenginn.
Fresturinn varð tæpir ijórir mánuð-
ir. Austur í Laxárdal í Þingeyjar-
sýslu fannst álitlegt ritstjóraefni,
Jónas Þorbergsson, og sat hann við
ritstjóm til ársins 1927. Þórólfur
Sigurðsson frá Baldursheimi í Mý-
vatnssveit gegndi ritstjómarstörf-
um veturinn 1927-1928. Þegar
Þórólfur kvaddi Dag og hélt aftur
til síns heima í Mývatnssveit tók
fyrsti ritsljóri blaðsins, Ingimar
Eydal, aftur við ritstjóminni og
hafði hana með höndum, ýmist einn
eða með aðstoð annarra, allt til
ársins 1945. Jóhann Guðmundsson
Frímann stýrði blaðinu ásamt þeim
Ingimari og Hauki Snorrasyni um
tveggja ára tímabil frá 1942, en
Haukur starfaði við blaðið allt til
ársins 1955. Erlingur Davíðsson tók
við af Hauki og gegndi ritstjórnar-
störfum samfleytt í 24 ár, eða til
ársloka 1979. Hermann Svein-
bjömsson tók við 1980 og stóð vakt-
ina til miðs árs 1987. Þá tóku nú-
verandi ritstjórar við völdum, þeir
Áskell og Bragi.
16 manna ritstjórn
Áskell sagði í samtali yið Morg-
unblaðið að þeir Bragi skiptu með
sér verkum. Bragi sæi um allt inn-
blaðsefni og skrifaði flesta leiðar-
ana, en sjálfur sæi hann um al-
mennar fréttir í blaðinu. Hátt í 50
manns starfa við Dag, þar af er
16 manna ritstjóm. Auk blaða-
manna starfandi á.Akureyri, hefur
Dagur þrjá blaðamenn í nágranna-
bæjum Akureyrar, á Húsavík,
Sauðárkróki og á Blönduósi. Þá er
nýlega tekinn til starfa blaðamaður
Dags í Reykjavík og er honum ætl-
að að sinna þingfréttum og íþrótta-
viðburðum þar syðra auk hinna
ýmsu blaðamannafunda er kunna
að yekja athygli Norðlendinga.
Áskell sagði að ágætlega gengi
að halda úti dagblaði á landsbyggð-
inni. „Það er alltaf nóg að gerast
héma enda nær okkar svæði bæði
til Norðurlands eystra og vestra.
Við höfum blaðamenn á þessum
svæðum og fylgjumst því vel með
því sem er að gerast. Fréttaskortur
hefur ekki hijáð okkur neitt sér-
staklega, en vissulega erum við með
aðrar áherslur heldur en sunnlensku
blöðin. Við erum þó ekki algjörlega
bundnir af Norðurlandi. Til dæmis
vorum við með myndasyrpu í blað-
inu er Jóhann Hjartarson kom til
landsins eftir að hafa sigrað
Kortsnoj og fleira mætti telja í þeim
dúr. Fyrst og fremst einbeitum við
okkur þó að Norðurlandi," sagði
Áskell.
Framsóknarmálgagn
Dagur hefur löngum verið bendl-
aður við Framsóknarflokkinn ásamt
Tímanum. „Flest blöð hérlendis
hafa tengsl við ákveðna stjórn-
málaflokka. Ég held að fullyrða
megi að fréttaskrif blaðanna séu
óbundin pólitík. Ritstjómargreinar
- hinsvegar benda á hvar í pólitíkinni
viðkomandi fjölmiðill stendur. Við
erum fyrst og fremst að selja vöru.
Ef varan væri svo áberandi lituð
af einstrengingslegri flokkspólitík
að það sæist í almennum frétta-
skrifum, þá er það gefið mál að sú
vara seldist ekki sérstaklega vel,“
sagði Áskell.
Áskell sagði að áskrifendum
Dags hefði fjölgað verulega eftir
að blaðið var gert að dagblaði. „Það
eru aðeins tvö dagblöð á íslandi sem
þora að vera í upplagseftirliti,
Morgunblaðið og Dagur. Prentað
upplag hjá okkur er í kringum 7.000
og seld eru um það bil 6.000 eintök
daglega. Við tökum þátt í upplags-
eftirliti svo að auglýséndur okkar
fái upplýsingar frá óháðum aðila
um hverjar upplagstölur blaðsins
eru í raun.“
Stækkun lengi
í deiglunni
Broti blaðsins var breytt árið
1919 í þá stærð, sem síðan hefur
haldist hvað lengst. Upp úr 1930
var þó alvarlega farið að ræða
stækkun á blaðinu. Dagur hafði
komið út þetta einu sinni í viku,
oftast fjórar síður, stöku sinnum
aðeins tvær. Stækkun þurfti þó að
bíða betri tíma. Á árinu 1934 kömu
út 14S blöð af Degi, en í byijun
næsta árs ákvað útgáfustjóm að
draga saman seglin vegna fjár-
hagsörðugleika. Litlar breytingar
urðu á blaðinu þegar Erlingur tók
við hvað varðar útlit, magn eða
innihald. Langt og farsælt stöðug-
leikatímabil gekk í garð. Erlingur
lagði áherslu á að gera Dag að
málgagni Norðlendinga allra og
kom sér smám saman upp nokkuð
þéttriðnu kerfi fréttaritara i sveit-
um og sjávarplássum. Mismunandi
var hve mörg tölublöð komu út frá
ári til árs. Blaðið kom.reglulega út
einu sinni í viku en oft tvisvar.
Lengi mátti sjá í blaðinu smá-
klausu: „Blaðið kemur út á miðviku-
dögum og á laugardögum þegar
ástæða þykir til.“ Sjálfsagt hefur
auglýsingamagn ráðið miklu í þess-
um efnum, en einnig það hvort ein-
hveijar athyglisverðar fréttir var
að færa, segir í ágripinu.
í eigið húsnæði
Á sextugsafmælin flutti Dagur
fyrst í eigið húsnæði á Tryggva-
braut 12, efri hæð. Árið 1981 gerði
útgáfufélag Dags samning við
Smörlíkisgerð Akureyrar, til húsa
á Strandgötu 31, um makaskipti á
eignunum. Prentvél Dags var flutt
úr Prentsmiðju Odds Bjömssonar á
Strandgötu 31 og önnur starfsemi
Dags fylgdi fljótlega í kjölfarið.
Húsnæðið þar telur tæpa 600 fer-
metra. Miklar framkvæmdir standa
nú yfir á lóð Dags við Strandgötuna
þar sem núverandi húsnæði Dags
er fyrir löngu orðið of lítið. Verið
er að reisa nýtt 964 fermetra hús-
næði, sem hýsa á ritstjórnina og
annað starfslið blaðsins. Jafnframt
er verið að auka við húsnæði Dags-
prents, sem auk þess að prenta
Dag, mun í framtíðinni sinna
margvíslegum öðrum verkefnum.
Að sögn Áskels hefur framkvæmd-
um við nýbygginguna seinkað lítil-
lega síðustu daga vegna frosta, en
þeir Dagsmenn áætla að flytja í
nýja húsið á komandi sumri.
Gefur frest til mánudags
FLEIRI hafa sótt um frest í ár
til að skila inn framtölum sínum
heldur en tíðkast hefur undan-
farin ár, samkvæmt upplýsingum
hjá Skattstofu Norðurlandsum-
dæmis eystra. Hinsvegar hefur
skattstjóri tekið þá ákvörðun að
gefa fólki frest fram á mánu-
dagsmorgun til að skila skatt-
skýrslum sínum inn.
Jón Dalmann Ármannsson skrif-
stofustjóri sagði í samtali við Morg-
unblaðið að skýrslumar þyrftu að
vera komnar í póstkassa skattstof-
unnar á mánudagsmorgun. Ef sá
frestur nægði hinsvegar ekki, þá
þyrftu menn að sækja um skrifleg-
an frest til embættisins. Jón sagði
að það vildi brenna við að það væru
sömu aðilarnir sem sæktu um frest
ár eftir ár. Þetta væri orðin árlegur
vani hjá þeim nokkrum þó auðvitað
væru einstaklingar innan um sem
illa stæði á hjá einhverra hluta
vegna. Hámarksfrestur, sem veittur
er, er til 29. febrúar.
Jón Dalmann sagði að nokkuð
væri alltaf um það að fólk þyrfti á
aðstoð að halda við gerð skýrslna
sinna og reyndi starfsfólk skattstof-
unnar að veita alla þá aðstoð sem
í þeirra valdi stæði. Hinsvegar væri
engu aukafólki bætt við þess vegna.
Aðallega er eldra fólkið aðstoðað
við framtöl sín.
Skíðasamband íslands hefur
fært Vísa-bikarmót sitt í karla-
og kvennaflokkum frá Siglufirði
til Akureyrar, þar sem það verð-
ur haldið um helgina.
Keppt verður bæði í svigi og
stórsvigi karla og kvenna og hefst
fyrri umferð báða dagana klukkan
Alls eru franíteljendur í umdæm-
inu um 19.000 talsins. Þar af væru
14.000 árituð framtöl send fram-
teljendum. 4.700 væru giftar kon-
ur, sem eru á framtali eiginmanns,
auk þess sem 1.500 einstaklingar
innan 16 ára í umdæminu telja
fram.
11.00. Seinni ferðin verður farin
klukkan 13.00 báða dagana. í dag,
laugardag, verður keppt í stórsvigi
karla og svigi kvenna og á sunnu-
dag í stórsvigi kvenna og í svigi
karla. Verðlaunaafhending og mót-
slit verða á Skíðastöðum um kl.
15.00 á sunnudag.
Bikarmót skíða-
manna á Akureyri
Morgunblaðið/GSV
Ritstjórar Dags, þeir Áskell Þórisson og Bragi Bergmann.
Tómas Lárus Vilberg, einn af þ'ósmyndurum Dags.
Morgunblaðið/GSV
Blaðamennirnir Vilborg Gunnarsdóttir og Eggert Tryggvason við
störf.
Úr afgreiðslu Skattstofu Norðurlandsumdæmis eystra.
Skattstofan á Akureyri: