Morgunblaðið - 13.02.1988, Side 37

Morgunblaðið - 13.02.1988, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1988 37 KAUPIN A SMARAHVAMMSLANDI A KOPAVOGI Bæjarstjórnin ánægð með nýju kaupendurna Vonbrigði með Samband íslenskra samvinnufélaga VEGNA ákvörðunar bæjarstjórnar Kópavogs, um að nýta sér forkaups- rétt að Smárahvammslandi og gnnga inn í kaupsamning Sambands íslenskra samvinnufélaga ásamt fimm öðrum fyrirtælgum, leitaði Morg- unblaðið álits fulltrúa stjórnmálaflokkanna í bæjarstjórn Kópavogs. Nefndu óljóst öll Sambandsfyrirtækin „Ég er ánægður með þessi skipti en ég varð fyrir ákaflega miklum vonbrigðum með Sambandið," sagði Skúli Sigurgrímsson, fulltrúi Fram- sóknarflokksins. „Þegar við hittum þá fyrst í haust töíuðu þeir óljóst um að flytja alla sína starfsemi í Smára- hvamm. Síðan þegar gengið var eft- ir skipulagi þá var einungis hægt að festa hendur á lóð undir stórmarkað og bensínstöð. Þegar gengið var enn frekar eftir skipulagi í janúar, bökk- uðu þeir niður í flmm hektara undir stórmarkað og töluðu óljóst um að ef þeir héldu landinu þá mundi það endast þeim í hálfa til heila öld. Það mátti skilja á þeim að þeir vildu eiga þama ónotað land sem þeir gæth byggt eftir hendinni en það er náttur- lega ekki það sem þjónar hagsmun- um bæjarins. Ég er ánægður með að Bygginga- vöruverslun Kópavogs skuli vera einn kaupenda. Þeirra húsnæði er löngu orðið of lítið og þurfa að geta byggt sig upp á nýjum stað, en þetta er fyrirtæki sem byggst hefur upp í Kópavogi. Hin fyrirtækin hafa sýnt það og sannað að þeim er treystandi til að standa við þessa samninga. Við eigum Iand eftir fyrir Sambandið fyrir það sem þeir hafa beðið um. Bærinn fékk fimm hektara út úr þessum kaupum og síðan eigum við eitthvað á annaðhundrað hektara austan við Reylqanesbraut sem ætlað er undir atvinnustarfsemi. Við höfum gert þeim grein fyrir því og það er land sem þeir þurfa ekki að kaupa heldur geta fengið úthlutað." Landið verður að byggjast upp hratt og örugglega „Ég stóð að þessu ásamt öðrum bæjarfulltrúum í Kópavogi og auðvit- að hefði ég ekki gert það nema vegna þess að ég tel það vera skyldu okkar að sjá til þess að landsvæði eins og þetta byggist hratt og örugglega upp,“ sagði Heimir Pálsson fulltrúi Alþýðubandalagsins. „Þetta er sér- lega mikilvægur blettur þar sem hann hefur mikil áhrif á bygginga- hraðann í nágrenninu. Við ætlum á næstu árum að byggja dalinn upp áfram og ef mikill kraftur er í upp- byggingu þama þá hefur það áhrif eins og dæmin sanna. Þetta er ekki svæði sem við höfum efni á að liggi óhreyft í mörg ár eða að taki mörg ár að koma í gagnið. Nú hefðum við gjaman, eins og við höfum ítrekað, viljað sjá höfuðstöðvar SÍS koma þama. en við fengum engin raun- veruleg svör um hvað þama ætti að gerast. Því töldum við það einfald- lega skyldu okkar að grípa inn í og gera eitthvað í málinu. Ég er sannfærður um að við emm að skipta við traust fyrirtæki. Þetta em fyrirtæki sem hafa staðið sig mjög vel á undanfömumárum og engin ástæða til að vantreysta þeim. Ég vona því að þetta sé af hinu góða.“ Ánægður með niðurstöðuna „Ég er ánægður með þessa niður- stöðu," sagði Richard Björgvinsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. „Það lá fyrir að ekki fékkst nein áætlun frá Sambandinu um byggingahraða. Þama höfum við fengið stærri aðila sem við vonumst eftir að gangi vel. Eins og í pottinn var búið þá er ég ánægður með niðustöðuna. Okkar aðaláhugamál er að landið byggist og verði nýtt.“ Neistann vantaði „Ég er mjög svektur yfír þessum viðbrögðum Sambandsins og að þeir skuli gugna á þessu þar sem ég hafði mikinn hug á að þeir kæmu hing- að,“ sagði Guðmundur Oddsson full- trúi Alþýðuflokksins. „Hins vegar vantaði alltaf í þá einhvem neista. Við fengum aldrei neitt að vita og það er ástæðan fyrir því hvemig fór. Eins og aðrir í bæjarstjóminni höfð- um við það að leiðarljósi að byggja þetta land upp sem fyrst. Ég er ákaflega óhress með um- mæli Guðjóns B.Ólafssonar um að við höfum komið aftan að þeim, því hann veit miklu betur. Auðvitað sjá allir að ekki er nema af hinu góða að fá starfsemi Sambandsins inn í sveitarfélagið. Það er engin vonska í okkur út í þá og ekki hægt að neita því að þeir hafa auglýst þetta land vel fyrir bæinn, sem er þakkar vert. Við skildum aldrei að þeir þyrftu allan þennan tíma til að ákveða sig. Þegar þeir sendausíðan bréf 10. fe- brúar og buðust til að byggja svæðið upp á fímm ámm, þá var það gert til að ná betri áróðursstöðu. Það er eitthvað að gerast hjá Sambandinu sem ég átta mig ekki á. Við töluðum aldrei við aðstoðarforstjórann fyrr en á síðasta degi og honum virtist koma mjög á óvart hvemig málið var komið og vera lítið inn í því. Ég fékk á tilfinninguna að áhuginn vær- inánast enginn og þá sérstaklega eftir að ákvörðunin um Kirkjusand var tekin. Við fengum líka að heyra það að Sambandið stæði illa. Eftir á að hyggja sýnist manni að það sem upp úr standi sé að Sam- bandið hafi ekki verið farið að hugsa um sína uppbyggingu. Það kemur mér á óvart að fyrirtæki ætli að kaupa land á 117 milljónir án þess að hugleiða hvað eigi að gera við það.“ KOPAVOGUR Fimm aðilar hafa sameinast um kaup á 33 hekturum úr landi Smárahvamms eftir að Kópavogsbær ákvað að nýta forkaupsrétt sinn. °Sur Amarnes REYKJAVÍK i ^ Seljahverfi V GARÐABÆR hesthúsahverfi Kópavogs \ \ Morgunblaöið/ GÓI \ 1 km Þrjú fyrirtæki samein- ast um verslunarmiðstöð FORRÁÐAMENN fyrirtækjanna sem keypt hafa 33 hektara úr landi Smárahvamms, ásamt Kópavogsbæ, eru sammála um að hefjast handa við skipulagningu svæðisins hið fyrsta. Þrjú þeirra, Bygginga- vöruveslun Kópavogs, Ikea og Hagkaup hf. hyggjast reisa sameigin- lega verslunarmiðstöð á þeim 12 hekturum sem komu í þeirra hlut. Frjálst framtak mun byggja og selja atvinnu- og iðnaðarhúsnæði á 16 hekturum og auk þess flytja þangað starfsemi sína. „Landakaupin eru liður í áfram- haldandi byggingastarfsemi fyrir- tækisins og hef ég ákveðnar hug- myndir um hvað þarna verður byggt, sem ég mun nú þróa,“ sagði Magnús Hreggviðsson stjórnar- formaður Frjáls framtaks. „Undan- farin 15 ár hef ég verið í bygginga- starfsemi að hluta. Ég hef aukið þann þátt og fellt inn í starfsemi Fijáls framtaks eftir komu mína þangað 1982. Kaup á helmingi Smárahvammslands munu auka byggingastarfsemi Fijáls framtaks verulega og styrkja þar með starf- semi fyrirtækisins. í mínu fyrra starfi, sem rekstrar- ráðgjafi sá ég það oft þegar fyrir- tæki voru með einn rekstrarþátt, mjög stóran eins og tímarita- útgáfan hefur verið hjá okkur, gat það fyrr enn seinna leitt til óörygg- is og oft á tíðum erfíðleika. Það er nokkuð sem við viljum komast hjá.“ Jón Guðmundsson framkvæmda- stjóri Byggingavöruverslunar Kópavogs, sagði að ekki væri end- anlega búið að ákveða yfir hvaða starfsemi fyrirtækið byggði á lóð- inni. „Við vorum búnir að sækja um lóð þarna áður en Sambandið kom til,“ sagði Jón. „Ég vil sem minnst um þetta segja að svo komnu máli enda er ekki búið að skipuleggja svæðið en við höfum kynnt bæjaryfirvöldum okkar hug- myndir." Byggingavöruverslun Kópavogs rekur verslanir við Ný- býlaveg í Kópavogi, við Dalshraun í Hafnarfirði og í Kringlunni auk Timbursölu við Skemmuveg. Lóð Hagkaups og Ikea er sam- eiginleg með lóð Byggingavöru- verslunar Kópavogs og sagði Jón Ásbergsson forstjóri Hagkaups hf.. að ætlunin væri að mynda sameig- inlega verslunarmiðstöð, fyrirtækj- anna þriggja með sameiginlegri nýtingu á bifreiðastæðum. „Við þurfum að sameina hags- muni þessara þriggja fyrirtækja og ná samkomulagi við Frjálst fram- tak,“ sagði Jón. „Skipulagsvinnan tekur sinn tíma og má reikna með að hægt verði að hefjast handa upp úr miðju ári 1989 en stefnan er að framkvæmdum og frágangi verði lokið árið 1995. Félag heyrnar- lansra: Nýtákn- máls- orðabók NÝ táknmálsorðabók er nú komin út hjá Félagi heyrn- arlausra. Þetta er þriðja útgáfa táknmálsbókar, aukin og endurbætt. í annarri útgáfu voru alls um 1.300 tákn en sú bók hefur nú verið uppseld síðustu 6 ár. Sés- taklega hefur verið hugað að því að hún henti til kennslu og sjálfsnáms í táknmáli. í bókinni er orðalisti yfír öll þau tákn sem bókin hefur að geyma svo auð- velt er að fínna það tákn sem leitað er að hveiju sinni. Táknin eru teiknuð en viðeigandi örvar sýna hreyfíngu þá sem nota skal hveiju sinni. Félag heymarlausra hvetur sem flest fyrirtæki til að festa kaup á bókinni, sérstaklega þau fyrirtæki sem hafa heyrnar- lausa eða heymarskerta starfs- menn í sinni þjónustu. Þarna verður reist verslun fyrir Ikea, en verslunin er í leiguhúsnæði í kjallara í Húsi verzlunarinnar, með lager á tveimur stöðum. Við ætlum að byggja yfir alla starfsemina um 7.000 fermetra húsnæði, sem er ívið stærra en það svæði sem fyrir- tækið hefur nú yfir að ráða. Við erum auk þess undir þrýst- ingi frá forsvarsmönnum Ikea er- lendis, sem vilja að við förum eftir þeirra foskrift um það hvemig verslunin á að vera, það er verslun og lager með sjálfsafgreiðslu: á sama stað." Samkvæmt skipulagi er gert ráð fyrir bifreiðastæði í kjallara Húss verzlunarinnar en fengin var und- anþága frá skipulagsyfirvöldum til að reka þar verslun um takmarkað- an tíma. „Það þarf að sameina lagerinn hjá Hagkaup, sem nú er á fjórum stöðum og ætlum við að byggja 7.000 fermetra yfir hann. Þar verða einnig skrifstofur fyrir þá sem kaupa inn. Þá er einnig ætlunin að reisa þama um 3.000 fermetra verslun eins og við emm með í Skeifunni, með blönduðum vam- ingi,“ sagði Jón. „Til að forðast allan misskilnig þá em gjöld til bæjarfélaga greidd þar sem versl- animar em. Það breytti því engu um hvar Hagkaup greiðir sín gjöld þó við fæmm með skrifstofurnar í Krísuvík." Loðnuveiðin: Skarðsvík SH búin með kvóta LOÐNAN er nú heldur að síga nær landi og á sú, sem nú er að veiðast, um eina til tvær vikur í að verða frystingarhæf. Samn- ingar um sölu á frystri loðnu og loðnuhrognum hafa enn ekki tekizt. Loðnan er fremur óróleg eftir að hafa farið í gegnum hita- skilin, en nú er spáð góðu veðri og vonast menn þá til þess að afli glæðist að nýju. Auk þeirra skipa, sem áður er getið, fór Sigurður RE á fimmtudag með 700 tonn til Vestmannaeyja og Helga II RE 200 til Homafjarð- ar. Síðdegis í gær höfðu eftirtalin' skip tilkynnt um afla: Pétur Jónsson RE 980, Bjarni Ólafsson AK 900 og Hilmir SU 850 til Seyðisfjarðar, Gísli Ámi RE 640 til Grindavíkur, Skarðsvík SH 650 á vesturleið og búin með kvóta, Húnaröst ÁR 500, Galti ÞH 350 og Guðmundur Ólafur ÓF 420 til Homafjarðar, Gullberg VE 400 til EskiQarðar og Huginn VE 150 til Vestmannaeyja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.