Morgunblaðið - 13.02.1988, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 13.02.1988, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1988 43 Unga fólkið og fjölmiðlarn- irtaiaiimmik- inn snjó Húsavík. EINMUNA tíð var á Húsavík fram á jólaföstu. Auð jörð var og útlit fyrir rauð jól en margir óskuðu eftir hvítum jólum og varð þeim að ósk sinni því á Þorláksmessu breytti alveg um tíðarfar. Áttin var norðlæg og á aðfangadag var hér leiðinda veður með snjókomu svo að við fengum hvít jól. Síðan hefur verið hér erfitt tíðar- far og sett niður dálítinn snjó. Unga fólkið og fjölmiðlar tala um mikinn snjó en þeir sem kalla þetta mikinn snjó muna ekki áratugi aftur í tímann. Að vísu eru dálitlir skaflar og hafa sumir þeirra mest myndast með aðstoð snjómoksturstækja. Þeg- ar túngirðingar eru ekki í kafi þá tel ég ekki mikinn snjó. Fréttaflutningur hefur mörgum hér þótt harla óábyrgur í sumum fjölmiðlum. Rás 2 sagði í síðdegisút- varpinu á þriðjudag að varla sæist á milli húsa á Húsavík vegna snjó- komu en þá var hér bjart veður og bjarmaði af sól í suðvestri. Á þriðju- dagsmorgun tilkynnti svo svæðisút- varpið okkur að áætlaðar væru aukaflugferðir svo tvær ferðir væru áætlaðar en veðurútlit væri þannig að það yrði ekkert af þessu flugi. Þar var bæði sagt rangt frá veðri og flugáætlun. Fréttir af færð og veðri eru mjög æskilegar en þær þurfa að vera ábyggilegar. Þrátt fyrir þetta leiðindaveður undanfarið hefur flug gengið vel og alla jafnan verið á áætlun og sama er að segja um sérleyfi Bjöms Sigurðssonar, Húsavík-Akureyri. Veðráttan hefur verið erfið og lítill afli hefur borist á land frá áramótum svo ekki hefur verið stöðug vinna við bolfisk í frysti- húsinu en rækjuvinnslan hefur verið svo til óslitin frá áramótum. — Fréttaritari Bollubakstur Heimilishorn Bergljót Ingólfsdóttir Það er langt síðan að menn lögðu á sig föstu og aðrar píslir í iðrunar- skyni, til að minnast pínu frelsar- ans, en bolluát mánudaginn í föstu- inngangi er enn við lýði. Bollubakst- ur fluttu þeir með sér til landsins danskir og norskir bakarar sem hér settust að á síðari hluta 19. aldar. Flenging með vendi í morguns- árið á bolludaginn, aður en menn komust úr bólinu, mun eiga rót að rekja til þeirra hirtinga og písla sem menn undirgengust til að iðrast á föstunni, en eftir siðaskiptin þróað- ist þetta hvarvetna smám saman yfir í gamanmál. Það er ekki vitað hvort flenging- ar eru enn mikið tíðkaðar á bollu- dag, en bolluvendir þykja ómissandi á þessum degi rétt eins og bolluát. Bollur, hvort heldur eru gerbollur eða vatnsdeigsbollur, eru afar vel þegnar, þær fyrmefndu eru fáan- legar í bakaríum en er auðvitað hægt að baka heima, rétt eins og þær úr vatnsdéiginu. mínútur þar til stærðin hefur tvö- faldast. Bollurnar penslaðar með þeyttu eggi eða mjólk, bakaðar í miðjum ofni, við 250°C í 10—12 mínútur. Kældar á' rist. Bollurnar skornar í tvennt eftir miðju, þeyttur ijómi eða krem sett á milli. Eggjakrem 2 dl mjólk, >/2 tsk. vanillusykur, 2 eggjarauður, l'/2 msk. sykur. Suðan látin koma upp á mjólk- inni, eggjarauður og sykur þeytt og mjólkinni hellt smám saman í. Blöndunni síðan hellt aftur í pottinn og hituð upp að suðumarki (má ekki sjóða) og vanillusykri bætt í að lokum. Eggjakrem er gott að smyrja á annan helming bollunnar þegar þeyttur rjómi er settur á milli. Vatnsdeigsbollur l'/2 dl vatn, 1 tsk. sykur, 75 g smjörlíki, 75 g hveiti, 2 egg. Vatn, sykur og smjörlíki soðið saman, hveitinu hrært út í, látið sjóða og hrært vel í á meðan. Þetta er síðan kælt áður en eggjunum er bætt saman við, einu í senn og hrært vel í á milli. Deigið sett með teskeiðum á smurða plötu, bakað í miðjum ofni í ca. 15—20 mínútur. Ofninn má helst ekki opna meðan kökurnar eru að hefast. Þeyttur ijómi settur á milli og brætt súkkul- aði ofan á. Bollur með ijóma eru mikið lost- . æti. Bolludeig 100 g smjörlíki eða smjör, 4 dl mjólk, • Ú/2 pk. þurrger, (selt í 50 g pökkum), ú/2 dl sykur, 1 tsk. kardemommur (má sleppa), 1 egg, 13—14 dl hveiti. Smjörlíkið brætt, mjólkin sett út í og hitað saman svo það verði yl- volgt. Þurrgerið hrært út í ásamt sykri, kardemommum og eggi. Að síðustu er hveiti og vökva hnoðað saman og deigið látið hefa sig á hlýjum stað í ca. 40 mínútur. Eftir það er deiginu skipt í 25—30 hluta, gerðar úr þeim bollur sem settar eru á smurða plötu. Bollum- ar látnar hefa sig aftur í ca. 30 Húsavík: MITSUBISHI COLT ísooglx — Hagkvæmur í rekstri — Auðveldur í akstri Veröfrákr. 397.000 MITSUBISHI LANCER 1500 glx Kostaríkur bíll sem kostar lítiö Verð frá kr. 498.000 Verðkr. f.015.000 MITSUBISHI SAPPORO ViðhafnarbtU í sérflokki — Tölvustýrð innsprautun (ECI) — Tölvustýrt fjöðrunarkerfi (ECS) — Læsivörn á hemlum (ABS) ' ■ ÞRJAR STJORNUR FRA MITSUBISHI □ Allir meö □ Allir meö □ Allir meö kveikju. □ Allir meö □ Allir meö sæti. framhjóladrif. aflstýri. snertulausa rafstýröa útispegla. rúllubílbelti í hverju □ Allir meö litaðar rúöur. □ Allir meö tvískipt, fellanlegt aftursæti. □ Allir meö dagljósabúnað. (samkvæmt nýju umferöarlögunum). BíU frá Mitsubishi borgar sig HF Laugavegi 170-172 Simi 695500
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.