Morgunblaðið - 13.02.1988, Side 44

Morgunblaðið - 13.02.1988, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1988 Handverk með hugmyndir Atli Ingólfsson ræðir við Franco Donatoni Þegar rætt erum „nýju“ nýju tón- listina er erfítt að horfa framhjá hlut ítala í útbreiðslu hennar. Ung ítölsk tónskáld hafa vakið eftirtekt víða um lönd og eldri kempur nýrrar ítalskrar tónlistar voru þegar kunnar að list- fengi. Af hinum síðamefndu njóta nú mestra vinsælda Luciano Berio og Franco Donatoni. Donatoni hefur látið sér mjög annt um framtíð tón- listarinnar, og var fyrstur tónskálda af sinni kynslóð að kenna tónsmíðar svo einhveiju næmi. Flest hinna yngri tónskálda á Ítalíu hafa ein- hvem tíma verið í læri hjá Donatoni og mun ekki síst honum að þakka hversu títt er að ungir ítalir vinni til alþjóðlegra viðurkenninga fyrir tónsmíðar. Það var einmitt í miðri kennslu- stund að við hittum Franco Donatoni að máli til að skyggnast sem snöggv- ast í hugarheim hans. Maðurinn er samanrekinn að ofan- verðu og þróttmikill í fasi. Röddin er rám en sterk. Ræðan ein sker úr um að þama er ekki til dæmis bíla- mangari á ferðinni. Tal hans er yfír- lætislaust en öruggt, svo flóknustu mál hljóma sem hversdagsrabb. Hann grípur gjaman til kímni, en af bliki augnanna skilst að kímni hans er ekki spaugið eitt saman. Nemandanum M. var ekki sama þegar „Maestro" sagði: „Það er merkilegt hvemig hin gamla tón- hugsun gerir enn vart við sig í ykk- ur, kynslóð sem ætti að vera búin að gleyma henni. í verkinu þínu leyn- ast hin hefðbundnu tónskraut." Hann brosir. „Ég hef ekkert við það að athuga, en þetta þarft þú sjálfur að vita þegar þú vinnur við verkið ..." AI: Donatoni, kunnugt er að þín fyrstu verk, á árunum 1950—1955, sóttu margt til Bartóks, en síðan kúventirðu og fylktir liði með þeim sem töldu Webem viðmiðunarpunkt nýju tónlistarinnár. Er Webem ennþá sami stólpinn, til dæmis fyrir þá kynslóð sem nú nemur tónsmíðar? Donatoni: Það má vera að hvað tæknina varðar hafi Webem minna vægi fyrir ungu tónskáldin nú en áður, en það er þá bara vegna þess að hugsun hans hefur þróast með þessum kynslóðum sem eftir hann komu. Ekkert annað tónskáld á fyrri hluta aldarinnar hefur sömu mögu- leika á þróun tónmálsins. Hann var eina leiðin áfram. Ég tel ólíklegt að hann muni nokkum tíma verða fast- ur liður á tónleikaskrám, en yngri kynslóðir þurfa að hlusta á hann. Hann er besta mótvægið við hinn yfírgnæfandi hljóðheim sem óhjá- kvæmilega loðir við fólk fyrir tilstuðl- an flölmiðla og iðnaðar. Hann er sumsé einskonar meðal. Ástæðulaust er þó að taka hann inn óblandaðan, best að hafa dálítið vatn með. Annars lenda menn í list- rænu tómi eins og því sem mynd- aðist fyrst eftir að tónskáld fóru að rannsaka tónlist Webems, og taka hana of bókstaflega sem fyrirmynd. AI: Ég hef heyrt þig segja að nú sé liðið skeið tilraunanna og í seinni verkum þínum vekur athygli skírleiki formannsins. Þá em „uppáhaldstón- bil“ nýju tónlistarinnar, krómatísk tónsambönd, minna áberandi en áð- ur. Öðm hveiju finnast líka orðið þríhljómar í tónlist þinni. Ég sá hvar maður minntist á endurfund hefðar- innar, og fannst mér það misskilning- ur. Hvað fínnst þér? D: Já, það er villandi að tala um efnivið tónverka án tillits til notkun- ar eða virkni hans. Schönberg var spurður hvert væri efni tónverka hans og hann svaraði: „Hljóð.“ Það segir okkur harla fátt en þó til dæm- is það, að efniviðurinn er ekki tákn- in, og ekki heldur nótumar. Það sem skiptir máli er samband hljóðanna. Þannig er það engan veginn endur- fundur hefðarinnar þótt þríhljómur birtist í verki. Annað mál er ef hann hefur þá virkni sem hefðin gefur honum, ef samband hans við önnur hljóð er hefðbundið. Kannski er í einhveijum skilningi hægt að tala um að hugmyndin um hefð standi okkur nær nú^en fyrir tveimur áratugum. Ég á við að í dag em menn uppteknir af fúnksjónum, virkni, í verkum sínum eins og af dálæti á hinni sterku virkni hefð- bundinna verka. í hefðbundnu tón- máli er virknin innbyggð, það er í raun hún sem kölluð er hefð. í dag þarf hins vegar hver höfundur að smíða eigin stíl og finna upp hneigð- ir hans og virkni með röklegri hugs- un og innsæi. Á þessu tvennu er ljós munur. Tíðarandinn hefur breyst og meiri ró er að komast á. Annað eins rót og á 1. og 6. áratugnum er einsdæmi í tónlistarsögunni og vitanlega er hún ekki öll þannig. AI: Rökleg hugsun, já. í Norður- Evrópu tala sumir um vitsmuna- hyggju (intellektúalisma) ítala. D: Nú? Ekki veit ég hyað túlkað er sem vitsmunahyggja. Á Ítalíu er sem stendur nokkuð greinileg til- hneigingtil maníerisma (þ.e. stöðlun- ar á aðferðum og áherslu á áferð eða áhrif). Að sjálfsögðu er það þó vits- munaverk að hefja tónlistina upp á afstrakt svið, að gera úr henni lista- verk. Tónskáldið vinnur með skynhrif, en upplifír þau að miklu leyti sem afstrakt, sértæk fyrirbæri. Vinnuna má kannski frekar kalla formlega en vitsmunalega. Um er að ræða eins konar handverk með hugmynd- ir. Formin eru eins og hlutir í hönd- um myndhöggvara. Tónskáldið þarf að höggva til í huganum og að því leyti er vinnan vissulega vitsmuna- leg. Þessu má samt ekki rugla sam- an við röklega vitsmuni eða gáfu- mennagjálfur. Sennilegt er að ítölsk verk séu um margt ólík öðrum evrópskum tónsmíðum. Ég held að menntun og geta ítalskra tónskálda sé yfírleitt á háu stigi. Mikilvægasta ástæða þess er sennilega ijölgun konservato- ríanna úr þrettán í um sextíu á 7. áratugnum. Þar jókst möguleikinn á föstum launum fyrir tónskáld og þekking á nýrri tónlist breiddist út. Ríkið og fjölmiðlar sinna nýrri tónlist hins vegar sáralítið en tónsmíða- keppnjr eru sennilega hvergi fleiri en á Ítalíu. Kannski ýta þær undir einhvem maníerisma. Úr tónlistarlífinu Sigrún Davíðsdóttir Umsagnir um Svíþjóðarferð Blásarakvintetts Reykjavíkur - I hópi hinna útvöldu... og önnur lofsyrði Eins og sagt var frá í síðasta pistli úr tónlistarlífínu, fór Blásara- kvintett Reykjavíkur í Svíþjóðar- reisu. Sú ferð gekk ekki aðeins vel, heldur ægivel, ef marka má umsagn- ir sænskra tónlistargagnrýnenda um hópinn. Kemur tæplega á óvart hér, en alltaf gaman að heyra gott orð- ‘spor frá útlöndum. Á efnisskránni voru verk eftir Atla Heimi Sveins- son, norska tónskáldið Ceeile Ore, Svíann Lars-Erik Larsson og og Ungveijann Györgi Ligeti. Tónleikaferðin var skipulögð af Sænsku ríkiskonsertunum, en sú stofnun skipuleggur árlega fjölda- marga tónleika um Svíaríki. Tónleik- ar kvintettsins voru liður í tónleika- röð, sem kallast Tónlist á okkar tímum, þar sem er flutt samtímatón- list. Það var reyndar það eina, sem var gagnrýnt í umsögnunum. Einn gagnrýnandinn hafði orð á, að betur færi á að flétta saman samtímatón- list og eldri tónlist... En grípum aðeins niður í sænsku dómunum . .. Fyrirsögnin um tónleikana í Linköping er Tónlistarboðskapur með lifandi hlýju. Um kvintettinn segir að hann sé á sama plani og bestu sænsku kammersveitir og ein- leikarar. Kvintettinn búi ekki aðeins yfír mikilli tæknikunnáttu, heldur geti þeir á innbiásinn hátt komið tónlistarboðskap sínum á framfæri á lifandi og hlýjan hátt. Gagnrýn- andinn kveðst sjaldan hafa heyrt jafn öruggan homleik og hjá Joseph Ognibene. Sama megi segja um leik Einars Jóhannessonar, sem þegar sé orðinn þekktur í Svíþjóð fyrir stór- snjallan klarínettleik, sannarlega áhrifamikinn. Þessum gagnrýnanda fínnst Ligeti-verkið áhugaverðast og áhrifamest. Það krefjist mikils af flytjendum, bæði tækni og tilfinn- ingu fyrir að ná öjlu út úr verkinu, sem þar sé að fínna. En það sé svo, að hvort sem tónleikar séu haldnir í Linköping, London eða París, þá fæli svona efnisskrá frá, sem sé synd. Þó hafí verið metaðsókn, m'ið- að við aðstæður. I gagnrýni um tónleikana í Málm- ey segir að fyrir flestum Svíum sé ísland hvítur flekkur, sem leiði hug- ann helst að gömlum sögum og mörg hundruð ára gömlum handrit- um. En þar leynist fleira, líka auð- ugt tónlistarlíf á háu plani. Því hafi heimsókn kvintettsins verið einkar spennandi. Meðlimirnir fímm spiluðu ekki aðeins tæknilega eins og best varð á kosið. Ekki aðeins að áheyr- andinn velti því heillaður fyrir sér hvort hægt væri að komast þar lengra, heldur var samleikur þeirra líka einstæður og meira en innantóm fullkomnunin. Jafnvægi, sem virtist eitthvað svo sjálfsagt, en kallaði fram undrun og gleði á stund- inni ... og fyrirsögnin er Áhrifa- miklir, íslenskir hljómar. í umsögn um tónleikana í Stokk- hólmi er sagt að Ríkiskonsertamir ættu að huga ögn betur að skipuragi tónleika sinna, svo að fólk þurfi Fredagen den 29 januarí 1988 Kulturredaktör: HELENE JACOBSSON Islanningar som spred vttrme pá Roxy Fem musiker *v absolut yppers- ta kvalitet gAstadc Cotland igár och gav en mycket minnesvard konsert pá Roxy. Tillsammans bil- dar de Reykjaviks Blásarkvintett som har funnits scdan 1981 och med konserten pá Gotland avslu- tar de en turná i Sverige, som ett inslag i serien "Musik i vár tid”. Ett projckt som stöds av Rikskon- serter och Nomus. Klarinettisten Einar JÓhannes- son presenterade musiken pá ett avspánt sátt, som skapade en varm och fin kontakt mcllan musi- kernaoch publiken. *— För utt spela den hár musi- ken krávs tre cgcnskaper: mod, livslust och koncentration, sade Einar och det var ett citat frán den islándske kompositören Atli Hei- mir Sveinsson (f. 1938) och detta stámde till varje ton i de tvá satscr- na ur hans komposition med ti- teln: ”5 hjládrif (femhjulsfrift). Första satscn bestod av en láng, sammanhángande kaskad, en ked- ja av snabba löpningar med kolos- sal intensitet dár de olika instru- mcnten i tur och ordning bröt in mcd korta solon. Efter denna energiska sats följde cn kontrast, mycket lángsam med éffcktfulla pauser. Musiken var uj ekki að missa af annarri eins topp- sveit og Blásarakvintettinn sé. Áuk þess hafi efnisskráin verið frábær- lega sett saman og vel flutt af þess: um hæfíleikaríku Islendingum. I flutningi sínum á Ligeti-verkinu hafi þeir sýnt bæði fínlega innlifun og snilldar kraft. Og þama er kvintett- inn kallaður „elitenensemble“. Verst við eigum tæplega orð yfír elítu á ástkæra ylhýra, fer líklega best á að tala um hóp hinna útvöldu ... Ein umsögnin ber yfirskriftina Andstæðir hljómar. Á tónleikum sínum hafi kvintettinn boðið upp á fímm andstæða tónliti, ekki síst vegna efnisvalsins. Verk Atla Heim- is bauð upp á ögrandi tónlist, sem tónlistarmennimir hafí tekið hvat- lega á. Verk Ores lýsti því, sem tit- illinn gefi til kynna, spírölum eða vafningum, og flytjendunum hafi tekist að gera hlut hvers hljóðfæris lifandi. í verki Ligetis gafst íslend- ingunum tækifæri til að sýna yfir- burði sína, allt frá dýpstu til hæstu tóna. Flutningurinn varð æ meira innblásinn, segir að lokum. Eftir tónleikana á Gotlandi segir gagnrýnandinn að fimmmenning- arnir hafí valið viðfangsefni, sem eins og renni saman í eina heild. Leikur þeirra og framkoma geri tón- listina svo enn meira lifandi. Gott dæmi um hvað það skipti miklu máli að „sjá“ tónlistina. Einkum hrífst gagnrýnandinn af hve þeir skildu vel við tónana í hægu köflun- um. Af fimmmenningunum hafi stafað ákefð og næmni en um leið virðing fyrir hver öðrum, tónlistinni og áheyrendum. Stórbrotnir og eink- ar góðir tónleikar, sem margir fleiri hefðu átt að hlusta á. Eins og sjá má, hrifust Svíamir mjög af. Þegar erlend gagnrýni er lesin, þá er ekki síst gaman að huga að þeim lýsingarorðum sem eru not- uð, sannarlega fjölbreytt og skemmtileg... Verk Atla Heimis fáum við að heyra á tónleikum Musiea Nova 28. febrúar, meira um það þegar þar að kemur. Sunnudaginn 20. febrúar kemur kvintettinn fram á tónleikum á Ak- ureyri. Spilar þar sem kammersveit af staðnum, vonandi vísir að fastri hljómsveit. Þar flytja þeir meðal annars Sinfóníu concertante fyrir blásara og hljómsveit eftir Mozart. Blásarakvintett Reykjavíkur kemur fram á háskólatónleikum bráðlega. í vor leggur kvintettinn svo upp í aðra reisu og þá til Bretlands, með öllu klassískari efnisskrá í fartesk- inu. Koma fram á tónleikum í Card- iff í Wales, spila þar í nýju og glæsi- legu tónlistarhúsi og svo í Tónlistar- háskólanum í Manchester. Faðir Bemharðs Wilkinsonar flautuleikara kvintettsins er kórstjóri, hefur tvo góða kóra á sínum snærum og BBC. Annar þeirra, William Byrd Singers, kemur fram á tónleikum með kvint- ettinum í Manchester. Á báðum stöðum fer kvintettinn í upptökur á vegum klassísku rásar- innar hjá BBC (hvenær skyldum við annars eignast slíka rás hér í RÚV?!). Til þess að komast þar að, þarf að senda inn spólu með prufu- spili, sem er athugnð í höfuðstöðvun- um í London og þar komust þeir í gegn. Það er því fréttavon af Blásara- kvintett Reykjavíkur seinna meir ... og þeir heyrast líka hér á næst- unni... Blásarakvintettinn lék á Got- landi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.