Morgunblaðið - 13.02.1988, Síða 61

Morgunblaðið - 13.02.1988, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1988 61 IÞROTTIR UNGLINGA / SKIÐI Fer á skíði um hverja helgi ELÍSABET Marfa Garðars- dóttir renndi sór fagmann- lega niður bröttustú brekkur Bláfjalia og glampaði á skíðin í upplýstum brekkunum. „Það er aldeilis að þú ert á glæsi- legum skíðum,*1 sagði blaða- maður við hana þegar hún stansaði með stfl rótt fyrír framan nefið á honum þar sem hann lá eftlr eina byltuna og gat því greint skiðin henn- ar mjög vel. „Já þetta eru splunkuný skfði sem óg fókk í jólagjöfsvaraði hún skelli- hlæjandi yfir tilburðum blaða- manns við að reyna að standa á skíðunum sem hann hafði leigt sér. Nýju skíðin hennar Elísabetar eru þriðju skíðin sem hún eignast, en hún fór fyrst á skíði 10 ára. Skíðabakteríuna fékk Beta 12 ára, en þá eignaðist hún sín fyrstu skíði, en núna er hún 16 að verða 17. „Ég fer á skíði um hvetja helgi og stundum líka í miðri viku. Eg sæki Skálafell og Bláfjöll álíka mikið. Annars fór ég í Kerlingar- fjöll í sumar og lærði rosalega mikið á því. Ég fer sko örugglega þangað aftur. Maður getur alltaf lært eitthvað nýtt á skíðum, sama hvað maður fer oft,“ sagði Elísa- bet að lokum. Elfsabet M. Stefénsdóttir Morgunblaöiö/Vilmar Erla í glæsilegum plóg. Erla Svanbjörg: Dálítið þreyttí fótunum FÁTT ER betra fyrir þá sem eru að renna sín fyrstu fet á skíðum en að fá kennslu hjá þeim sem vel kunna til verka. Þetta sann- reyndi Erla Svanbjörg Inga- dóttir þegar hún steig á skíði í annað skipti á ævinni núna um daginn. Hún og fleiri félag- ar hennar úr Unglingaathvarf- inuvoru í kennslu hjá Örnólfi Valdimarssyni þegar blaða- mann bar að. Greinilegt að krökkunum miðaði vel áfram því þau voru farin að fara í byrjendalyftuna og renna sér með tilþrifum niður brekkuna. Ekki gat Erla nú neitað því að hún hafi verið dálítið smeik til að byija með. „En þegar ég var byrjuð fannst mér þetta • ekkert mjög erfitt. Það er erfiðast að stoppa því maður rennur alltaf áfram. Eg er búin að læra að fara í plóginn, beygja og ganga uppí móti,“ bætti hún við. Dálítill kuldi var kvöldið sem við- talið var tekið og var Erla spurð hvort henni væri ekki kalt. „Bara aðeins á höndunum. En ég er dá- lítið þreytt í fótunum og fæ áreiðan- lega harðsperrur," svaraði Erla. Þrátt fyrir að vera búin að fá kennslu færustu manna sagðist Erla ekki þora að fara strax í stóla- lyftuna enda er skynsamlegt að ætla sér ekki um of til að byija með. Morgunblaöiö/Vilmar Haukur sposkur á svip ásamt forstöðumanni athvarfsins, Þórunni Óskarsdóttur. „Meiriháttar aðveraí Kerlingarfjöllum“ - segir Haukur Pálsson „ÞETTA er í fyrsta skipti í vetur sem ég fer á skíði hérna uppí Bláfjöllum en ég hef rennt mér mikið hjá skólanum," sagði Haukur Pálsson sem var á skíðum ásamt félögum sínum úr Unglingaathvarfinu Flúða- seli þegar blaðamaður kannaði mannlífið í Bláfjöllum. Haukur fór síðastliðið sumar með Unglingaathvarfinu í skíðaskólann í Kerlingarfjöllum og sagðist hann hafa verið þar í fjóra ■■■ daga og lært allt Vilmar sem hann kann á Pétursson skíði þar. Þessu átti skrífar blaðamaður erfítt með að trúa því Haukur virtist svo sannarlega hafa lengri en fjögurra daga skiða- reynslu þar sem hann brunaði á ógnarhraða niður brekkumar af miklu öiyggi. „Það var meiriháttar í Kerlingar- ijöllum, skemmtilegast var náttúr- lega að læra að skíða þó að það væri nú dálitið erfitt að læra að taka beygjur. Samt var nú erfí&sst að standa á fótunum," sagði Hauk- ur geislandi af ánægju. „Á hveiju kvöldi voru haldnar kvöldvökur sem nemendur skíðaskólans skiptust á að stjóma. Eftir kvöldvökumar var siðan ball og léku skíðakennaramir undir dansi. Þetta var meiriháttar," hélt hann áfram. Krakkamir í athvarfinu söfnúðu sér fyrir þessari Kerlingaifyallaferð með blómasölu og fleiru. Núna eru þau á fullu að safna sér fyrir ferð í sumar og sagði Haukur að þau stefndu á að fara til útlanda. „Við ætlum að gefa út blað til að safna pening fyrir þá ferð,“ sagði Haukur að lokum. Anna Kristín Gunnarsdóttir: Hrædd um að detta á hausinn Fékk skíði i jolagjof - segirlngólfur HANN Ingólfur Snævarr Finn- bogason er ekki með öllu ókunnugur brekkunum í Blá- fjöllum því hann rennir sér nið- ur þær um hverja helgi þegar veður og færi leyfa. Þetta hefur hann gert í fimm ár. Þegar blaðamaður hitti Ingólf var hann með félögum sínum úr Unglingaathvarfinu á skíðum og leiddist greinilega ekki. Þrátt fyrir-að Ingólfur stundi skíðin svona mikið hefur hann aldrei æft íþróttina með neinu fé- lagi. „Ég hef bara ekki tíma til þess því vikan er alveg fullbókuð hjá mér. Ég stefni samt á að kom- ast á grunnskólamótið sem verður haldið á öskudaginn. Ef það tekst ætla ég að keppa í svigi. Ég hef aldrei keppt á móti þannig að þetta er spennandi," sagði hann. En ætli það sé ekki dýrt að fara jafn oft á skíði og Ingólfur gerir. Hann var spurður að því.- „Þetta er dálítið dýrt, ég fer með svona 500 krónur í hvert skipti. Pening- ana fæ ég með því að bera út Mogg- ann. Ég tek alltaf með mér nesti þannig að ég borga bara 5 rútuna og lyftumar. Skíðin eru náttúrlega dýr en ég fékk ný og mjög góð Blizzard-skíði í jólagjöf í fyrra," svaraði Ingólfur. „ÉG LÆRÐI á skíði í sumar í Kerlingarfjöllum þegar ég fór þangað með unglingaathvarf- inu. Mér leist nú ekkert á að fara á skíði því ég var hrædd um að detta á hausinn. Ég datt nú líka á hausinn en samt gekk vel að læra á skíðin," sagði Anna Krístin Gunnars- dóttir þegar blaðamaður ræddi við hana. Anna var greinilega yfir sig ánægð með veruna í Kerling- arfjöllum því hún hélt áfram að ræða um hana. „Þáð var ekki bara verið á skíðum því á hveiju kvöldi voru kvöldvökur þar sem • voru skemmtiatriði, leikir og svona dót,“ sagði hún. Erfiðast fannst Önnu að læra að beygja og sagðist hún hafa dottið nokkr- MorgunblaðiðA/ilmar Ingólfur Snævarr. um sinnum á hausinn við beygju- tilraunir. „Ég ætla að reyna að fara á skíði í vetur og mig langar aftur í Kerlingarfjöll," sagði Anna að lokum. Anna Krlstin „Það skiptir mestu máli að vera lipui41 - segirJón Hólm Stefánsson „ÞETTA ER ífyrsta skipti sem ég fer á skíði síðan ég flutti suður. Áður átti ég heima á Akureyri og fór mjög oft á skíði þar. Það var einhvern veginn miklu þægilegra að komast á skíði fyrir norðan því þar er allt miklu einfaldara í sniðum. Ég var farinn að sakna þess að vera á skíðum þannig að það er góð tilfinning að renna sér aftur niður brekkurnar," sagði hinn kraftalegi Jón Hólm Stefánsson þegar hann var tekinn tali í brekkum Bláfjalla. Jón sagðist hafa selt svigskíðin sín þegar hann flutti suður og keypt sér hljómflutningstæki í stað- inn. „Ég sé nú dálítið eftir svigskíð- . Vilmar Er það ekki svona sem skíðameistar- amir láta mynda sig eftir velheppnaða ferð, a.m.k. tekur Jón sig vel út með skíðin. Vilmar Pétursson skrífar unum og er að hugsa um að selja gönguskíðin mín Qg fá mér svigskíði. Ég fæ sennilega skíða- delluna aftur núna þó að ég sé að- eins farinn að ryðga í tækninni. Það er ómögulegt að vera með skíða- dellu og eiga ekki skíði. Jón hefur ekki bara áhuga á skíða- íþróttinni því hann æfir ólympískar lyftingar þrisvar í viku og er núna að undirbúa sig undir íslandsmeist- aramótið. Jón var beðinn að bera lyftingarnar og skíðin saman. „Báð- ar greinamar eru skemmtilegar og mig langar að geta lagt stund á þær. Á skíðum skiptir mestu máli að vera lipur en í lyftingum reynir maður á alla vöðva og þarf að vera kraftmikill," svaraði hann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.