Morgunblaðið - 13.02.1988, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1988
63
íuérn
FOI_K
UBRIAN Clough, framkvæmda-
stjóri Nottingham Forest er að
öllum líkindum út úr myndinni sem
næsti þjálfari iandsliðs Wales í
knattspymu. Stjóm Nottingham
Forest samþykkti á fundi í fyrra-
dag að banna honum að þjálfa
bæði liðin. Stjómarmenn í knatt-
spymusambandi Wales vom engu
að síður bjartsýnir og vonuðust til
að fá tvö ónafngreind fyrirtæki til
að styrkja ráðningu Clough. Hann
sagði hinsvegar í viðtali í sjónvarpi
í gær: „Ég þyrfti að vera ruglaður
til að yfírgefa Forest. Ég var að
vísu staðráðinn í að segja upp hjá
Forest, en ákvað svo að sofa á því
og hef nú ákveðið að fara ekki ef
stjómin er því andvíg.“
■ ERIK Veje Rassmusen er talinn
líklegur sem eftirmaður Alfreðs
Gíslasonar hjá Essen í v-þýsku
Bundesligunni í handknattleik.
Erik Veje Rassmusen leikur nú í
2. deild í Danmörku, en lék í nokk-
ur ár með Gummersbach áður en
Kristján Arason varð löglegur með
liðinu.
■ SAMMY Lee, sem er líklega
þekktastur sem leikmaður Liver-
pool leikur nú með Osasuna í 1.
deildinni á Spáni. Hann leikur þó
líklega ekki næstu þrjá mánuðina
vegna meiðsla sem hann hlaut í
leik gegn Vallodolid.
I VIGNIR BaJdursson, knatt-
spymumaður, hefur ákveðið að
leika með UBK f 2. deild næsta
sumar. Vignir lék á síðasta ári með
ÍK í 3. deild. Hann lék með UBK
1985.
■ JOHAN Cruyff, fyrrum þjálf-
ari Ajax, hefur sagt að ef til vill
myndi hann skrifa undir samning
sem þjálfari Barcelona í júní. Cru-
yff sagði í samtali við spánskt dag-
blað að hann myndi eyða næstu
mánuðum í að skoða aðstæður hjá
Barcelona. „Ef mér fínnst að ég
geti unnið gott starf og ef stjóm
félagsins samþykkir hugmyndir
mínar þá skrifa ég undir samning,"
sagði Cruyff. Hann sagði að líklega
yrði samningurinn til tveggja ára,
með hugsanlegri framlenginu ef vel
gengur.
■ STÉTTARFÉLAG ítalskra
knattspymumarina hefur hætt við
mótmæli sem vom fyrirhuguð um
helgina vegna kröfu stærri liðanna
um þrír erlendir leikmenn megi
leika með hveiju liði. Litlu liðin
hafa mótmælt þessum hugmyndum
á grundvelli jafnréttis og halda því
fram að þetta minnki möguleika
ungra ítalskra knattspymumanna.
Stéttarfélagið ætlaði efna til
hálftíma mótmæla á sunnudag, sem
hefðu tafíð leiki í 1. deild. Félagið
hefur nú hætt við mótmælin vegna
þess hve vel samningaviðræður
hafa gengið.
■ PETER Angerer verður
fánaberi Vestur-þjóðveija á opnun-
arhátíð Vetrarólympíuleikanna í
Calgary í Kanada í dag. Angerer
var ákærður fyrir að hafa neytt
steróíða á HM í Ósló 1985 og fékk
tæplega árs bann fyrir. Vestur-
þýska ólympíunefndin og Angerer
hafa hins vegar alltaf sagt að hann
hafí neytt steríóðanna án þess að
vita af því — sökin hafi verið hjá
lækni liðsins.
MPORTSMOUTH á nú í mjög al-
varlegum ftjárhagsörðugleikum og
ef að liðið borgar ekki skuldir sínar
innan nokkurra daga verður liðið
lýst gjaldþrota. Liðið skuldar nú
rúma milljýn punda, um 60 milljón-
ir ísl. kr. Ástandið er svo slæmt að
stjómarformaðurinn John Deacon
hefur þurft að greiða Ieikmönnum
laun úr eigin vasa síðustu vikur.
■ ÆFINGAR Þróttar verða
samkvæmt stundatöflu f Vogaskóla
um helgina. Fyrirhugað handknatt-
leiksmót, sem þar átti að vera í dag
og á morgun, fellur niður og halda
Þróttarar því æfingatímum sfnum.
KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILDIN
Þórsarar ofurliði
bornir í upphafi
Valur Inglmundarson var bestur Njarðvfkinga f gærkvöldi og skoraði 24 stig.
NJARÐVÍKINGAR gátu leyft sér
að láta varaliðið leika bróður-
partinn af leiknum gegn Þór f
gærkvöldi, svo miklir voru yfir-
burðir þeirra. Sturla Örlygsson
og Árni Lárusson voru meiddir
en það virtist ekki koma að
sök. Norðanmenn voru óvenju
daufir, þeir voru ofurliði bornir
þegar í upphafi og náðu sér
aldrei á strik.
Leikurinn sem slíkur bauð ekki
uppá mikla spennu og var illa
leikinn, einstaka sinnum brá fyrir
snotrum samleik og þá sérstaklega
af hálfu Njarðvfk-
Björn inga en þess á milli
Blöndal gerðu leikmenn sig
skrifar seka um ótrúlegustu
mistök.
Sem oftar var Valur Ingimundarson
bestur hjá Njarðvíkingum.
Jóhann Sigurðsson var bestur Þórs-
ara í þessum leik, sérstaklega í fyrri
UMFN - Þór
91 : 69
íþróttahúsið í Njarðvík, úrvalsdeildin í
körfuknattleik föstudaginn 12. febrúar
1988.
Gangur leiksins: 2:0, 15:4, 19:14,
34:14, 40:16, 42:23, 46:27, 61:31,
59:37, 65:40, 69:40, 72:46, 79:56,
83:63, 89:65, 91$9.
Stig UMFN: Valur Ingimundarson 24,
Hreiðar Hreiðarsson 17, Helgi Rafns-
son 13, Teitur örlygsson 11, Friðrik
Rúnarsson 7, Friðrik Ragnarsson 6,
Ellert Magnússon 5, Jóhann Sigurðs-
son 4, ísak Tómasson 4.
Stig Þórs: Jóhann Sigurðsson 16,
Konráð Óskarsson 13, Jón Héðinsson
12, Eiríkur Sigurðsson 10, Bjami
össurarson 10, Bjöm Sveinsson 6,
Ágúst Guðmundsson 2.
Áhorfendur: 130.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Sigurð-
ur Valur Halldórsson höfðu þeir góð
tök á leiknum.
hálfleik en í þeim síðari sýndi Bjami
Össurarson oft góð tilþrif.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
„Opið bréf“ til íþróttakennara
HANDBOLTI
Kristján
Arason
íliði
mánaðarins
I þriðja sinn
Kristján Arason, landsliðsmaður
í handknattleik, hefur staðið
sig mjög vel með Gummersbach í
vetur og til marks um það hefur
hann þrisvar verið í liði mánaðar-
ins, sem tímaritið Handball
Magazin velur. Kristján er eini leik-
maður Gummersbach í janúarliðinu,
en auk hans eru í því fjórir „nýlið-
ar“ og tveir, sem hafa verið valdir
einu sinni áður. Liðið er annars
þannig: í markinu er Jurgen
Brandstaeter, Hofweier, og aðrir
leikmenn auk Kristjáns þeir Michael
Klemm, Bayer Dormagen, Jovica
Elezovic (2), Hofweier, Jöm-Uwe
Lommel, Dormagen, Rudi Molitor,
Göppingen, og Jochen Fraatz (2),
TUSEM Essen.
Af gefnu tilefni vil ég biðja
fþróttasíðu Morgunblaðsins
að birta eftirfarandi bréf til
Þráins Hafsteinsonar, kenn-
ara við íþróttakennaraskóla
íslands:
Kæri Þráinn.
Vegna ummæla þinna í blaðagrein
í gær vil ég taka fram að stjóm
Frjálsíþróttasambandsins var ein-
huga um ráðningu Guðmundar
Karlssonar sem landsþjálfara
FRÍ. Ég tel það ósmekklegt af
þér að reyna að gera lítið úr hon-
um með því að segja að hann
hafí hvergi komið nálægt þjálfun.
Þú lítur alveg framhjá því að hann
er að ljúka ströngu bóklegu og
verklegu námi við bezta íþróttahá-
skóla heims, hinum sama og menn
hafa verið ráðnir beint úr til kenn-
arastarfa við íþróttakennaraskól-
ann á Laugarvatni. Einnig því að
sem keppnismaður hefur hann
margra ára reynslu af agaðri
þjálfun hjá þjálfumm, sem eru í
fremstu röð í Vestur-Þýzkalandi.
Þá þætti mér fróðlegt að vita
hvað nemendur þínir á ÍKÍ hafa
um það að segja að kennari þeirra
skuli taka ómenntaðan mann fram
yfír tvo íþróttakennara og kjósa
hann fremur sem . landsþjálfara.
Ég átti von á annarri afstöðu frá
háskólamenntuðum íþróttafræð-
ingi og kennara við æðstu íþrótta-
fræðistofnun íslands. Er von að
manni detti í hug að þú takir
hvorki starf þitt né stofnun alvar-
lega? Fróðlegt væri að vita hvaða
skoðun skólastjóri ÍKÍ hefur á
þessum meðmælum?
Víkjum að ummælum þínum um
hinn atvinnulausa brezka þjálfara
Bruce Longden, sem þú notar til
að gera mig tortryggilegan. Rétt
er að við höfum staðreyndir á
hreinu, en þær eru þessar. Eigin-
kona þín, Þórdís Gísladóttir, hitti
Longden á móti í Bretlandi, og
við heimkomuna sagði hún fram-
kvæmdastjóra FRÍ, að hún hefði
rætt um landsþjálfarastarfíð við
manninn og lofað honum að FRÍ
hefði samband við hann eftir að
hún kæmi heim. Nú geng ég út
frá því að þinni ágætu konu hafí
gengið gott eitt til. Hins vegar
ræddi hún við Longden án vitund-
ar og vilja stjómar FRÍ. Þegar
„skilaboðin" bárust lágu umsóknir
um starfíð fyrir hendi og eðlilegt
að fjallað yrði um þær fyrst. Ef
stjómin hefði ekki treyst sér til
að taka neinni þeirra hefði hugs-
anlega verið rætt við Longden.
Af þeim sökum bað ég fram-
kvæmdastjóra FRÍ að bíða með
að hringja.
Rétt er að taka fram að ársþing
FRÍ, sem þú sast, fól stjóminni
að ráða þjálfara fyrir 1. febrúar.
Var það haft að leiðarljósi. „Skila-
boðin" bámst í janúarlok og þarf
ekki að tíunda að samningar við
Longden hefðu tekið sinn tíma.
Þurft hefði að athuga hvort hann
treysti sér til að flytjast til Islands
og setjast að til nokkurra ára.
Ráðning hans hefði orðið langdýr-
asta lausnin. Stjóm FRÍ hugðist
tjalda lengur en til einnar nætur
og því var Guðmundur ráðinn.
Ummæli Einars Vilhjálmssonar,
mesta afreksmanns fijálsíþrót-
tanna undanfarin ár, í sömu
blaðagrein eru því ánægjuleg og
skoða ég þau sem traustsyfírlýs-
ingu við Guðmund.
Með kveðju,
Ágúst Asgeirsson, formaður
FRÍ.
SUND
Ágætir tímar
en engin met
ÍSLENSKT sundfólk hefur veriö
á faraldsfæti síðustu daga og
í gærtók hópur íslenskra keþp-
enda þátt f móti í Helsingborg
í Svfþjóð. íslendingarnir náðu
ágætum tfmum, þrátt fyrir að
engin met hafi verið sett.
etta eru svipaðir tímar og við
er að búast á þessum tíma.
Ef eitthvað er þá eru þeir heldur
betri en við áttum von á,“ sagði
Ingimar Guðmundsson fararstjóri í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Þau hafa verið í ströngum æfíng-
um og því ekki hvíit mikið fyrir
mótið þannig að við bjuggumst
ekki við svo miklu."
í gær var aðeins keppt í 50 metra
skriðsundi og boðsundi.
Ingólfur Amarson var fyrstur ís-
lendinganna í 50 metra skriðsundi
á 25.53 sekúndum, Hannes Már
Sigurðsson á 25.71 sekúndu, Ingi
Þór Einarsson á 26.86 sekúndum
og Eyleifur Johannsson á 26.69.
Hannes var svo ekki langt frá því
að ná drengjameti í boðsundi. Hann
synti fyrsta sprettinn á 26.69 sek-
úndum, en var 3/100 frá metinu.
í flokki kvenna náði Helga Sigurð-
ardóttir besta tímanum, synti á
28.15 sekúndum, Pálína Bjöms-
dóttir á 28.47, Heba Friðriksdóttir
á 29.10, Þóninn Guðmundsdóttir á
30.53 og Björg Jónsdóttir á 29.67
sekúndum. Tvær síðasttöldu bættu
tíma sinn verulega.
Karlasveitin náði mjög góðum tíma
í 4x50 metra skriðsundi, 1.43,35,
en kvennasveitin synti á 1.56,37
sekúndum.
íslensku keppenduirinir keppa í dag
f lengri greinum, en mótinu lýkur
á morgun.
Fimleikar—fimleikar
Uncjlingamót Fimleikasambands
Islands 1988 verður haldið í
Laugardalshöll 13. og 14. febrúar.
Mótið hefst laugardaginn
13. febrúarkl. 14.30
og helduráfram sunnudaginn
14. febrúarkl. 14.00.
Keppt verður eftir íslenska
fimleikastiganum.