Morgunblaðið - 13.02.1988, Page 64
ÞEGAR
MESTÁ REYNIR]
EIGNA
MIÐLUMN
27711
ÞINCHOLT. SSTRÆTI 3
Svenir Kristinsson, söhistjóri - Þorieífur Guðmundsson, sölum.
Þórólfur Halklórsson, lögfr.- Unnsteinn Beck hrl., simi 12320
LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11 strandaði við Grindavík:
mönnum bj arg-
að frá borði með bvrlu
Grindavík.
Þyrla Landhelgisgæslunnar,
TF Sif, svífur yfir Hrafni
Sveinbjamarsyni III á strand-
stað á Hópsnesi í fyrrinótt og
bjargar skipshöfninni frá
borði. Þyrlan fór fjórar ferð-
ir; fjórir skipveijar voru flutt-
ir í fyrstu ferðinni, þrír í ann-
arri og síðan tveir og tveir.
Að sögn Páls Halldórssonar
flugstjóra þyrlunnar gekk
björgunin eins og í sögu.
Verð á blendingsskinnum
langt undir kostnaðarverði
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Loðskinnauppboð í Kaupmannahöfn:
ELLEFU skipveijum af Hrafni Sveinbjarnarsyni III GK 11 var bjarg-
að í land með þyrlu Landhelgisgæslimnar eftir að báturinn strandaði
í Hópsnesi austan við innsiglinguna til Grindavikur, þegar hann var
að koma úr netaróðri í fyrrinótt. Síðdegis í gær var kominn leki
að bátnum, en reyna átti að ná honum út á flóðinu í nótt.
Slysavamamenn frá slysavama-
sveitinni Þorbimi í Grindavík komu
á strandstað í fyrrinótt tilbúnir að
ná skipverjum í land með fluglínu-
.tækjum. Góðar aðstæður á strand-
—«<R.að til björgunar með þyrlu voru
hins vegar nýttar og tóku slysa-
vamamenn því á móti skipveijum
í fjörunni jafnharðan sem þeir komu
í land.
Þyrla vamarliðsins flutti svo
fímm menn út í bátinn í hádeginu
í gær og þyrla Landhelgisgæzlunn-
ar flutti víra og dælur milli varð-
skips og Hrafns. Mennimir komu
frá borði rétt fyrir kvöldmatinn í
gærkvöldi og sagði Bjöm Ingvars-
son vélstjóri á Óðni að kominn
væri leki að bátnum í fískilestinni.
„Báturinn næst út, ég er ekki í
nokkrum vafa um það eftir að hafa
kannað aðstæður. Spumingin er
hins vegar hvort hann skemmist
meira _en orðið er,“ sagði Bjöm.
Skúli Óskarsson vélstjóri á Hrafni
Sveinbjamarsyni III tók í sama
streng.
„Það bullar inn á einum stað
undir styttu en böndin eru heil sitt
hvoru megin við og óbeygluð. Eftir
því sem mér er sagt þarf að ná
bátnum aftur af standinum og á
hann þá að fljóta," sagði Skúli.
Aðspurður sagðist hann hafa
verið sofandi þegar báturinn
strandaði og vaknað við skruðning-
ana og höggin.
„Við vorum allir rólegir og eng-
inn meiddist en strákamir voru að
störfum á millidekki. Ég fór niður
í vél og lest strax á eftir en þá var
enginn leki sjáanlegur. Þessi leki
sem við fundum nú seinni partinn
er nýkominn, enda báturinn verið
að nuddast við klöppina í allan dag,“
sagði Skúli.
Reyna átti að ná bátnum út í
nótt eftir því sem Eiríkur Tómasson
framkvæmdastjóri Þorbjöms hf.,
eiganda Hrafns, sagði gærkvöldi.
„Ef þetta happaskip á að skemm-
ast þá er betra að það skemmist
við að vera dregið út. Ég get ekki
horft upp á það grotna niður hér í
fjörunni eftir að það hefur þjónað
okkur farsællega í 25 ár,“ sagði
hann. Kr.Ben.
Sá viðtöl og frásagnir á bls.
34 og 35.
Sævar Sigurðsson starfsmaður Þorbjamar hf. og slysvarnamaður
t.v. fagnar Sigfúsi Traustasyni skipveija af Hrafni Sveinbjamarsyni
III eftir að hann bjargaðist í land á strandstað við Grindavik í fyrri-
nótt.
- segir Jón Ragnar Björnsson, framkvæmdastjóri
SKINN af bláfrostref og silfurref
lækkuðu enn í verði á loðskinna-
uppboði danska loðdýraræktar-
sambandsins sem haldið er í
Kaupmannahöfn þessa dagana.
Blárefaskinn og skuggarefaskinn
seldust á rúmar 1.700 krónur
stykkið, sem er svipað verð og
fengist hefur á uppboðum í vet-
ur, miðað við sambærilegt verð.
Er það verð langt undir fram-
leiðslukostnaði. Rúmlega 9 þús-
und íslensk refaskinn vom boðin
til kaups á uppboðinu. Einnig er
nokkuð af íslenskum minkaskinn-
um boðin til kaups en þau verða
ekki boðin upp fyrr en um helg-
ina.
Samkvæmt upplýsingum Jóns
Ragnars Bjömssonar, framkvæmda-
stjóra Sambands íslenskra loðdýra-
ræktenda, voru helstu niðurstöður
uppboðs refaskinnanna þessar: Blá-
refaskinn seldust að meðaltali á
1.725 kr., og seldust 80% framboð-
inna skinna. Þar af var meðalverð
íslensku skinnanna 1.714 krónur og
seldust 85% þeirra. Skuggarefs-
skinnin fóru á 1.765 krónur og seld-
ust 88% þeirra, meðalverð íslensku
skinnanna var 1.719 krónur. Blá-
frostskinnin seldust á 1.875 krónur,
og fóru 52% þeirra, en þau íslensku
á 1.794 kr. og seldust 66% þeirra.
Um 15—20% verðlækkun varð á blá-
frostskinnunum. Norsku silfurrefa-
skinnin fóru á 4.548 krónur að með-
altali og seldust 68% þeirra en það
er 7% verðlækkun. Onnur silfur-
refaskinn, það er dönsk, sænsk og
Ifklega nokkur íslensk, fóru á 3.979
kr. að meðaltali og lækkuðu um 18%.
Á þetta uppboð fóru rúmlega 9
þúsund íslensk refaskinn, mest blá-
refur, af um 60 þúsund skinnum sem
seld verða í Kaupmannahöfn á þessu
sölutímabili. Áður var búið að selja
eitthvað á annað þúsund refaskinn.
Hin skinnin fara á uppboð síðar. Jón
Ragnar sagði að nú virtist vera minni
verðmunur á milli íslensku blá- og
skuggarefaskinnanna og annarra og
benti það til að gæðamunurinn hefði
minnkað. Hann sagði að búist hefði
verið við lækkandi verði á blendings-
skinnum vegna þess að framboð
þeirra tvöfaldaðist á milli ára, en
nú væri verðið orðið allt of lágt og
enginn ávinningur að framleiða þau.
Nú liggja fyrir bráðabirgðatölur
um ásetning minka og refa. Kemur
í ljós að refalæðum hefur fækkað
um rúmlega 1.500, úr 18 þúsund í
16.500. Aftur á móti heftir fjöldi
refalæða meira en tvöfaldast, úr 23
þúsund læðum í 52.500, en afkoman
í minkaræktinni hefur verið mun
betri en í refaræktinni.
Meiri janúarafli en nokkru sinni
FISKAFLI landsmanna varð 255.786 tonn í janúar
og er það langmesti afli, sem frá upphafi hefur
náðst í janúarmánuði. Næstmestur varð aflinn í
þessum mánuði árið 1986, 206.605 tonn. Aflinn í
janúar í fyrra varð 165.820 tonn, en verkfall sjó-
manna var fram eftir þeim mánuði. Aflinn nú er
þvi um 90.000 tonnum meiri og liggur munurinn
nánast allur í loðnu.
Bráðabirgðatölur Fiskifélags Islands um aflann í
janúar 1988 ásamt endanlegum tölum frá sama mán-
uði síðasta árs liggja nú fyrir.
Þorskafli togara jókst um 1.000 tonn, ýsuaflinn
nær Q'órfaldaðist og afli af öðrum tegundum er nokk-
uð svipaður milli mánaðanna. Heildarafli togara í
janúar nú varð 22.035 tonn, en 18.714 í fyrra.
Bátaaflinn nú varð 232.727 tonn á móti 146.110
í fyrra. Loðnuafli varð 213.832 tonn, 82.145 lestum
meiri en í fyrra. Þorskafli bátanna er svipaður milli
ára, ýsuafli einnig, en afli af ufsa nokkru minni. Af
síld veiddust nú 4.459 tonn en ekkert í janúar í fyrra.
Afli smábáta varð samtals 1.014 tonn í janúar, en
var í fyrra 996 tonn. Verkfallið í fyrra hafði ekki
áhrif á útgerð smábátanna. Þorskafli nú er 724 tonn
en 832 í fyrra. Afli af ýsu hefur rúmlega þrefaldazt,
en er svipaður af öðrum tegundum.
Þorsk\\eiði ‘ allra skipa nam 23.403 tonnum nú,
22.192 í fyrra, ýsuafli varð 3.312, 1.681 í fyrra, ufsa-
afli 2.936, 3.855 í fyrra og karfaafli 2.918, 2.401 í
fyrra. Steinbíts- og skarkolaafli hefur rúmlega tvö-
faldazt, en grálúðuafli dregizt saman um helming.
Metálag
á Landsvirkj-
unarkerfið
ÁLAG á raforkukerfi Lands-
virkjunar sl. fimmtudag var
meira en áður hefur gerst.
Mældist álagið 620 MW og til
samanburðar má geta þess að
heildar afkastageta kerfisins
er 712 MW.
Ástæðu hins mikla álags má
rekja til undanfarins kuldakasts
sem hefur dregið úr afkastagetu
vatnsaflsstöðva annarra en
Landsvirkjunar, en auk þess er
fullur rekstur í stóriðju og raf-
hitun með mesta móti.
r*