Morgunblaðið - 19.02.1988, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988
13
Hbftie yeor 2019.
The Running Mon"
is a deady gome no
has ever survjved.
has yet to pwy.
Sýnd
30
4
6
45
Wfl i»l cæ ffl «ts imliM IfflM K Jt»ffiWiU KtKMVAV, fmUCTft
MlinMIHCIiilJWKWSIIAI UARIACIIClilJAAlDISð VAPIEl 11110^RICKAHDDAfSl«.. ..„JAIIKAMra
vWlKiAS i 11111. ..,,11111IMMC «11 >™.SII i #» k...H ,110« imi
.: ju wmum m M.nmtun —'-.™
Synd
9
0)0)
NMMftl
TVÆR TOPPMYNDIR
Þrumugnýr
Wall Street
Ný starfsáætlun Jafnréttisráðs:
Ahersla á frumkvæðis-
skyldu sljórnvalda
FEBRU AR-TILBOÐ
#.
v& „
V
O^V'
HITACHIHLJÓMTÆKJASETT
með geislaspilara ogfjarstýringu „meiriháttar “
/jjj/RONNING
•//'// heimilistæki
KRINGLUNNI —SÍMI (91)685868
Jafnréttisráð samþykkti á
fundi þann 2. febrúar s.I. nýja
starfsáætlun, sem miðar að því,
að veita stjórnvöldum aukið að-
hald í jafnréttismálum kynj-
anna. Jafnréttisráð hyggst
leggja áherslu á þann tilgang
jafnréttislöggjafar, að flýta fyr-
ir þvi, að jafnrétti kynjanna
náist í raun og skyldu stjóm-
valda, svokallaða fmmkvæðis-
og fordæmisskyldu þeirra til að
vinna með skipulegum hætti að
markmiði laganna.
í bréfí sem Asdís J Rafnar, for-
maður Jafnréttisráðs, ritaði félags-
málaráðherra 8. febrúar s.l., kynn-
ir hún þessa starfséætlun fyrir
ráðherra. Þar er minnt á frum-
kvæðis- og fordæmisskyldu stjóm-
valda með tilvísan f jafnréttislög
frá 1976 og 1985. Er ráðherra
minnt á, að stjómvöld hafí að tak-
mörkuðu leyti sinnt þessum
ákvæðum.
Þá beinir jafnréttisráð þeim til-
mælum til stjómvalda, að þau hlut-
ist til um það, að hvert ráðuneyti
og hver stofnun hins opinbera
„vinni framkvæmdaáætlun un
hvemig megi stuðla að jafnrétti
karla og kvenna í hveiju ráðuneyti
og stofnun hins opinbera", eins og
segir í fyrmefndu bréfí til ráð-
herra.
í mars næstkomandi mun Jafn-
réttisráð boða til fundar með for-
stöðumönnum ríkisstofnana, full-
trúum launþega hjá ríkinu o.fl. þar
sem kynntar verða hugmyndir
Jafnréttisráðs og leitað eftir við-
brögðum þessara aðila.
A ráðstefnu Jafnréttisnefndar
BHM o.fl., sem haldin.var 6. febrú-
ar síðastliðinn, sagði Ásdís J Rafn-
ar frá þeirri fýrirætlan Jafnréttis-
ráðs, að leita eftir viðræðum við
samtök vinnuveitenda, forstöðu-
menn einstakra fyrirtækja og sam-
tök launþega á almennum vinnu-
markaði um aukinn hlut kvenna í
stjómunar- og ábyrgðarstörfum.
Þá hyggst jafnréttisráð gefa út rit
um jafnrétti í atvinnulífínu næsta
vetur. Á næstu vikum verður hins
vegar gefínn út bæklingur á vegum
Jafnréttisráðs og Vinnuveitenda-
sambandi íslands, þar sem áhersla
er lögð á bættan hlut kvenna og
gildi þeirra í atvinnulífínu og fyrir
atvinnulífíð.
Á ráðstefnunni ræddi Asdís m.a.
um vilja kvenna tii að taka að sér
ábyrgðarstöður og sagði frá könn-
unum um þau efni. Hún sagði frá
könnunum sem gerðar hafa verið
um þessi mál hér og erlendis og
boðaði, að gerðar verði ítarlegar
kannanir á umsóknum í störf á
vegum hins opinbera hér á landi.
Þar ætti að kanna hvaða störf
konur hafa sótt um, hlutfall þeirra
starfa af heild og hlutfall kvenna
miðað við karla sem sækja um.
Ásdís sagði, að svo virtist sem
konur þyrftu um tíma a.m.k. meiri
hvatningu til að sækja um ábyrgð-
arstöður, námskeið í stjómun og
sjálfsstyrkingu eru t.d. viðurkennd
leið til að auka hæfni í starfí og
sjálfsöryggi. Konur þurfa þó að
hafa eigið frumkvæði og vildi Ásdís
árétta ábyrgð kvenna á því að leið-
rétta þann mismun, sem er á hlut
karla og kvenna í stjómunarstörf-
um, en ýta ekki ábyrgðinni alfarið
á kerfíð, eins og stundum gerist í
umræðunni.
Ásdís ræddi um forsendur jafn-
réttisbaráttunnar á fyrrgreindri
ráðstefnu og sagði m.a.: „Vegna
mikillar atvinnuþátttöku kvenna,
aukinnar menntunar og jafnréttis-
sjónarmiða ber að jafna hlut
kvenna og karla í stjómunarstörf-
um. Það er hagur þjóðfélagsins,
ekki síður en kvenna að hæfíleikar
kvenna fái notið sín ekki síður en
hæfíleikar karla...uppsöfnuð óán-
ægja meðal kvenna, sem kannanir
m.a. hjá BHM og bankamönnum
hafa leitt í ljós um framamöguleika
kvenna skapar ekki aðeins per-
sónuleg vonbrigði og óánægju,
heldur em afleiðingar þeirrar
óánægju ófyrirséðar með tilliti til
framtíðarinnar. Lýðræðislegt þjóð-
félag er reist á jafnrétti og frelsi
til að velja sér lífsstarf og mat á
hæfileikum einstaklinga verður að
byggja á rökum, en ekki fordómum
og tilfínningum", sagði Asdís J
Rafnar, formaður Jafnréttisráðs.
La vii 0 gerkerfi Tyrir Mrubratti gfleíra
•
Með þessu stórkostlega fyrirkomulagi næst hámarksnýting á lagersvæði. Mjög hentugt kerfi og sveigjanlegt við mismunandi aðstæður. Greiður aðgangur fyrir lyftaraog vöruvagna. Ávallt fyrirliggjandi. Leitið upplýsinga. UMBOÐS OG HEILDVERSLUN
SSs&zsmzsr
BiLDSHÖFÐA 16 SIMI 6724 44