Morgunblaðið - 19.02.1988, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988
Skákmótið í St. John:
f slendingarnir end-
uðu allir við miðjuna
Karl teflir sennilega við Kasparo v í
fyrstu umferð hraðskákmótsins
ÍSLENSKU skákmennirnir í St.
John í Kanada enduðu um og
ofan við miðju í opna skákmótinu
sem þar lauk á miðvikudags-
kvðld. Helgi Ólafsson og Margeir
Pétursson fengu 5 vinninga af 9
en Karl Þorsteins 4,5 vinninga.
Yasser Seirawan frá Banda-
ríkjunum vann mótið, fékk 7
vinninga.
Helgi Ólafsson átti möguleika á
að lenda í verðlaunasæti fyrir
síðustu umferðina en hann var þá
kominn með 5 vinninga eftir sigur
á búlgarska stórmeistaranum Ve-
likov í 8. umferð. í síðustu skákinni
tapaði hann sfðan fyrir alþjóðiega
meistaranum Krum Georgiev frá
Búlgaríu en sá náði sér um leið í
áfanga að stórmeistaratitli. Alls
náðu 5 skákmenn slíkum áfanga á
mótinu.
Margeir Pétursson vann tvær
síðustu skákir sínar á mótinu, gegn
alþjóðlegu meisturunum Martinov-
skij og Perenyi. Karl tapaði næst-
síðustu skákinni fyrir Acosta en
vann Fonk frá Kanada í síðustu
skákinni.
Seirawan vann mótið eins og
áður sagði en í 2.-3. sæti urðu
Lputjan og Damlijanovic með 6,5.
Tólf skákmenn urðu jafnir í 4. sæti
með 6 vinninga, þar á meðal Sovét-
mennimir Tal, Vaganjan, Júsupov
og Ehlvest.
Heimsmeistarasmótið í hraðskak
hefst í dag. Þar hefja 32 skákmenn
þátttöku og tefla 6 skáka útslátta-
reinvígi. Raðað er í fyrstu umferð
eftir skákstigum og eru allar líkur
á að Karl Þorsteins tefli í fyrstu
umferð við Garry Kasparov heims-
meistara, en af þeim sem tryggt
höfðu sér rétt í gær var Karl stiga-
lægstur. í gær fór þó fram síðasta
úrtökumótið fyrir keppnina og var
því ekki loku fyrir það skotið að
Karl slyppi við heimsmeistarann í
fyrstu umferð. En þá væri Anatolij
Karpov næstur og síðan Artur Jú-
supov.
Morgunblaðið/BAR
Fundargestir á borgarafundi Sjálfstæðisfélaganna í Breiðholti.
Davíð Oddsson á fundi Sjálfstæðisfélaganna í Breiðholti:
Kostnaður við byggingu ráð-
húss innan ramma áætlana
Pianóleikarinn Alain Raes og klarínettuleikarinn Claude
Faucomprez. Þeir leika á tónleikum í Norræna húsinu nk. laugardag
og mánudag.
Norræna húsið:
Tveir Frakkar leika
DAVÍÐ Oddsson, borgarstjóri og
Vilhjálmur Þ. Vilþjálmsson voru
gestir á almennum borgara-
fundi, sem Sjálfstæðisfélögin í
Breiðholti héldu síðastliðinn mið-
vikudag i Gerðubergi. Fjölmenni
var á fundinum og barst þeim
Viþjálmi og Davíð fjöldi fyrir-
spurna.
Davfð Oddsson flutti fyrri fram-
söguna, þar sem hann ræddi um
nýgerða fjárhagsáætlun borgarinn-
ar, stöðu borgarsjóðs og helstu
framkvæmdir almennt í borginni
og í Breiðholti.
Davíð benti á í upphafi ræðu
sinnar að í tíð fyrverandi meirihluta
hefði viðkvæðið sífellt verið hjá
borgarfulltrúum þess meirihluta að
§árhagsörðugleikar væru miklir og
peninga vantaði. Núna segðu þessir
sömu menn að borgin væri rík.
Davíð kvað það rétt vera að borgin
væri vel stödd fjárhagslega; hún
skuldaði minna en hún ætti í úti-
standandi skuldum og væri það
nokkuð sem hann vissi ekki til að
gerðist hjá öðrum bæjarfélögum.
Einnig benti hann á að staða borg-
arinnar væri mun betri en annarra
höfuðborga á Norðurlöndum.
Mikill f ramkvæmdavilji
á tónleikum á vegum
Alliance Frangaise
PÍANÓLEIKARINN Alain Raes
og klarínettuleikarinn Claude
Faucomprez halda tónleika á
vegum Alliance FranQaise í Norr-
æna húsinu nk. laugardag og
mánudag. Leikin verða verk eft-
ir BurgmTler, Weber, Debussy,
Gade og Poulenc. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20.30 báða dag-
ana.
Alain Raes fæddist í Roubaix f
Norður-Frakklandi en Claude
Faucomprez í Lens í Norður-
Frakklandi. Báðir stunduðu þeir
nám við Rfkistónlistarháskólann í
París og hafa frá árinu 1977 sam-
hæft tónlistarhæfíleika sína. Þeir
eru sífellt að reyna að fullkomna
túlkun sína á hinum ^ölbreyti-
legustu og oft á tíðum lítt þekktu
tónverkum, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Það sem einkennir flárhagsáætl-
unina í ár að sögn borgarstjóra er
mikill framkvæmdavilji, en um 25%
af heildarfjármunum borgarinnar
fara í eignabreytingar. Stærsta
framkvæmdin eru hitaveitufram-
kvæmdir Hitaveitu Reykjavíkur að
Nesjavöllum, sem í heild er áætlað
að kosti um 3 milljarða.
Davíð rakti einnig helstu fram-
kvæmdir á vegum borgarinnar f
Breiðholti; ný sundlaug hefði verið
byggð við Ölduselsskóla, hafín
bygging fyrsta áfanga nýs fþrótta-
húss við Fjölbrautarskólann í Breið-
holti, ný skólabygging við Selás-
skóla yrði tekin í notkun, ný leik-
svæði fullgerð, nýr gæsluvöllur í
Selási tekinn í notkun og ný skipti-
stöð SVR í Mjódd yrði tilbúin undir
tréverk.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarfulltrúi og formaður skipu-
lagsnefndar flutti annað framsögu-
erindið og ræddi hann um umferð-
armál og skipulagsmál f Breiðholti.
Hann gerði í fyrstu grein fyrir ný-
samþykktu aðalskipulagi og helstu
nýmælunum þar. Borginni hefur
nú verið skipt upp í 9 hverfaskipu-
lagssvæði og er það nýmæli hugsað
til þess að efla tengsl borgarbúa á
viðkomandi svæðum og borgaryfír-
valda. Kvað Vilhjálmur ekki langt
f það að gengist yrði í skipulag
Breiðholtssvæðis og þegar að því
kæmi yrði haft samband við borg-
arbúa.
Breiðholtsskipulag
Vilhjálmur ræddi og nokkuð um
umferðarmál í Breiðholti, og þá
aðallega um Höfðabakkabraut og
Ofanbyggðaveg. Um framlengingu
Höfðabakkabrautar sagði Vilhjálm-
ur að skiptar skoðanir væru um
lagningu þess vegarkafla. Hann
kvaðst sjálfur hafa verið á báðum
áttum áður, en eftir að hafa verið
á fundum með íbúum í hverfínu
virtist sér nauðsynlegt að ráðast í
þessa framkvæmd til þess að létta
á umferðinni eftir Vesturbergi,
Austurbergi og Suðurhólum. „Það
verður hins vegar ekki á næstu 4—5
árum sem í þessa framkvæmd verð-
ur ráðist og þegar að þvf kemur
að taka endanlega ákvörðun full-
vissa ég menn um það að samráð
verður haft við íbúa í Breiðholti."
Um Ofanbyggðaveg sagði Vihjálm-
ur að vissulega væru skiptar skoð-
anir um þann veg, en menn mættu
hins vegar ekki gleyma því að
Vegagerð ríkisins þefði ákvörðun-
arvald um lagningu þess vegar og
hefði hún það á stefnuskrá sinni
að ráðast í lagningu þess vegar á
næstu tveimur árum.
væru núverandi tölur innan þessa
svigrúms. Borgarsfjóri vildi þó ekki
neftia neinar ákveðnar tölur, enda
ætti eftir að leggja þær fyrir borg-
arráð.
Leiknir á uppleið
Á fundinum var nokkuð rætt um
íþróttafélagið Leikni, sem fundar-
menn voru sammála um að líf væri
aftur komið í. Benti Heimir Berg-
mann á, að stórum fjármunum
væri varið í aðhlynningu og af-
vötnun ungmenna sem illa hefði
farið út úr vímuefnum, en litlu sem
engu fé varið f forvamarstarf sem
íþrótta- og ungmennastarf væri.
Taldi hann borgaryfírvöld ekki hafa
gert nógu mikið til þess að hjálpa
Leikni til þess að komast á laggim-
ar, mikið væri í húfí þar sem á ferð-
inni væri félag í einu bamflesta
hverfí landsins.
Davíð tók undir það að aldrei
væri nógsamlega að íþrótta- og
æskulýðsstarfí hlynnt, jafn ómetan-
legt og það væri. Hann benti hins
vegar á að á þessu fjárlagaári færi
samtals 112 milljónirtil íþróttamála
á þessu ári, fyrir utan það Qármagn
sem færi til byggingar íþróttahúss
við Fjölbrautarskólann í Breiðholti.
Beygja. inn á Mjóddina
Ólafur Sveinsson spurði þá Davíð
og Vilhjálm að því hvenær mætti
eiga von á því að vinstribeygja
kæmi á Reylqanesbraut inn að
verslanamiðstöðinni við Mjódd. Vil-
hjálmur svaraði því til að umferðas-
érfræðingar borgarinnar hefðu al-
farið lagst gegn því að þama væri
vinstribeygja af umferðarlegum
ástæðum. Hann sagði hins vegar
að leiddi tfminn það í ljós að núver-
andi gatnaskipan kæmi verulega
niður á þeim þjónustuaðilum er
þama væru, yrði að skoða þetta
mál alveg frá gmnni.
Borgarfulitrúar Sjálfstœðisflokksins verða til
viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardög-
um frá kl. 10-12. Er þar tekið á móti hvers
kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum
borgarbúum boðið að notfæra sér viðtalstíma
þessa. _ ...
Laugardaginn 20. febrúar verða til viðtals Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formað-
ur skipulagsnefndar Reykjavíkur og Sigurjón Fjeldsted, formaður stjórnar SVR
og í stjórn skólamálaráðs og fræðsluráðs.
mm^mmmmmm^^mm^^am^mmm^mmm^mmmmmmmmmmmmmm^
Ráðhúskostnaður
innan ramma
Á fundinum var lítillega rætt um
fyrirhugaða ráðhúsbyggingu.
Ragnar Magnússon spurði borgar-
stjóra hver áætlaður heildarkostn-
aður yrði af byggingu ráðhússins á
þessu stígi. Davíð svaraði þvf til,
að þegar samþykkt hefði verið að
fara í byggingu ráðhússins, hefði
verið gert ráð fyrir 250 miiljóna
kostnaði við bílastæðisgeymslu og
500 milljónum til sjálfs ráðhússins.
Á núvirði mætti uppfæra þessar
tölur með um 10% verðbólgu, þann-
ig að hún yrði samtals um 820
milljónir. Hann kvað við áætlanir
hafa verið gert ráð fyrir 10% svigr-
úmi til hækkunar á kostnaði og
Þjónusta SVR
Jón Þorgeirsson kom á framfæri
þeirri spumingu hvenær mætti eiga
von á því að samræmt strætis-
vagnakerfi tæki gildi, annars vegar
þannig að ferðast mætti beint á
milli úthverfa borgarinnar og hins
vegar beint til nágrannasveitarfé-
lagann. Siguijón Fjeldsted, borgar-
fulltrúi og stjómarformaður Stræt-
isvagna Reykjavíkur, sem staddur
var á fundinum svaraði þessu þann-
ig að menn mættu eiga von á því
að með hinni nýju skiptistöð yrði
leiðakerfíð endurskoðað með beinar
samgöngur milli bæjarhluta í huga.
„Mér segir svo einnig hugur, að
önnur bæjarfélög og sérleyfíshafar
muni æskja þess að hafa viðkomu
í hinni nýju skiptistöð."